Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 33

Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 33
Dagbók 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 iPod tapaðist Stór, svartur iPod (180 Gb) tapaðist í Reykja- vík miðvikudaginn 28. júlí sl. iPodinn er í ljósu gúmmíhulstri og var svokölluð iTrip-snúra tengd við hann. Finn- andi vinsamlega hringi í síma 893-2526 eða 487-8010. Góð fundar- laun. Umhverfismál víða til skammar á landsbyggðinni Ég er höfuðborgarbúi og eins og margir fleiri sem búa í borginni þá fer ég stund- um út á land til að hlaða rafhlöð- urnar, ýmist í tjald eða í sumar- bústað. Ég er mikill náttúruunnandi og umhverfisverndarsinni og því stingur það í stúf þegar ég fæ ekki raunverulegt tækifæri til að flokka sorp mitt úti á landi þar sem aðeins er einn ruslagámur fyrir allan úr- gang. Þangað hendir fólk öllu, s.s. spilliefnum ýmiss konar, fernum, blöðum, brotamálmum, jafnvel skila- gjaldsskyldum umbúð- um o.s.frv. Þetta felur í sér mikið álag fyrir móður jörð og er fárán- legt þar sem það eru sjálfsögð mannréttindi að allir á landsbyggð- inni fái raunverulegt tækifæri til að flokka sorp til jafns við fólk í höfuðborginni. Hugsa sér að það skuli vera árið 2010 og lítill sem enginn skilningur víða á gildi umhverf- isverndar, a.m.k. í verki. Það að kjósa að vera annt um móður jörð er ekki spurning um vinstri eða hægri pólitík heldur heilbrigða skynsemi enda er til að mynda ein ástæða mikils ótímabærs dauða milljóna manna, þar með talið barna, og fátæktar erlendis oft á tíð- um mengun og gróðurhúsaáhrif. Einn undrandi. Ást er… … notalegt axlanudd. Velvakandi Það er óvenju hlýlegt og upp-lífgandi að ganga um Egils- staði þessa dagana. Ástæðan er sú að vísur eftir Hákon Aðal- steinsson prýða veggi húsanna. Og maður finnur fyrir anda hans svífa yfir vötnum. Á vegg við bensínstöð stendur: Nú er vor um veröld alla, vaknar gróðurinn. Óðum bráðna fannir fjalla, fossar lækurinn. Annars staðar í bænum stendur á vegg fyrirtækis: Skýin við fjallsbrúnir bylgjast sem perlur á bandi, birtan skrýðir þau allskonar töfra- myndum. Þau sigla í röð framhjá svipmiklum fjallatindum, sólríkur dagur er risinn á Austur- landi. Á enn öðrum stað: Lúta höfði landsins vættir. Vindar kyrrast, vikna klettar. Sær dynur með sorgarómi, lind stein laugar tárum. Hreindýr er yfirskrift þessa brags: Uppi í grónum faðmi fjalla ferskur blærinn strýkur hjalla. Endurspegla ótal lindir öræfanna kynjamyndir. Stoltur hreinninn stendur vörð um stóra hjörð. Við háa kletta, hyldjúp síki, heiðarlandsins konungsríki, reikar frjáls um fjallasali fögur hjörð um eyðidali. Gengur létt um grænan svörð og gróna jörð. Eitt sinn rifjaði Friðrik Steingrímsson upp fyrripartinn: Vond er gigt í vinstri öxl verri þó í hægri mjöðm. Hákon Aðalsteinsson botnaði að bragði: Bólgin tunga, brotin jöxl borin von um meyja föðm. Vísnahorn pebl@mbl.is Af Hákoni og húsveggjum Tælenskur matsölustaður og sér skemmtistaður á besta stað miðsvæðis í Reykjavík til sölu - saman eða sitt í hvoru lagi. Öll leyfi og langtíma leigusamningar. Góður rekstur og tækifæri, upplýsingar í síma 660 3770 eða 6976333. Skemmtistaður/ matsölustaður Til sölu lögbýlið Tröð sem samanstendur af u.þ.b. 38 ha landspildu úr jörðinni Réttarholt við Árnes í Skeiða og Gnjúpverjahreppi ásamt eldri fjár- húsum 117,6 fm og einbýlishúsi og tvöföldum bílskúr samtals 183,7 fm í jaðri þéttbýlissins í Árnesi. Húsakostur þarfnast viðhalds. Eignir sem gefa ýmsa möguleika. Nánari upplýsingar á skrifstofu FM sími 550-3000 Landsbyggðin: LÖGBÝLIÐ TRÖÐ Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand STOFAN ER LOKUÐ Í KVÖLD. ÉG OG LÍSA ÆTLUM AÐ HORFA Á SJÓNVARPIÐ EN OKKUR ER SAMA UM SJÓNVARPIÐ... VIÐ ÆTLUM BARA AÐ HORFA Á YKKUR BLIKK BLIKK ÉG ER KOMINN HEIM ÚR SKÓLANUM! ÉG VILDI BARA LÁTA ÞIG VITA AÐ ÉG ER KOMINN! ÉG ER KOMINN HEIM, MAMMA! ÉG FÉKK LÉLEGAR EINKUNNIR. ÉG ER KOMINN HEIM! ÉG ER KOMINN HEIM! HVERNIG ÆTLAR ÞÚ AÐ MEÐHÖNDLA ÞÁ? ÚR FJARLÆGÐ! OG ÞÚ ERT MEÐ MISLINGA HRÓLFUR, NIÐURSTÖÐURNAR ÚR RANNSÓKNINNI ERU KOMNAR... HÆ, ANDREA! VIÐ ERUM KOMIN HEIM HÆ HÆ! TÓKST YKKUR AÐ FÁ BÍLINN YKKAR AFTUR? Á ENDANUM, EN ÞAÐ TÓK OKKUR HÁLFA NÓTTINA. TAKK FYRIR AÐ BÍÐA MEÐ KRÖKKUNUM EKKERT MÁL VILJIÐ ÞIÐ BORGA MÉR NÚNA EÐA Í ÁFÖNGUM? VIÐ GÁTUM EKKI TEKIÐ MEIRA ÚT ÚR HRAÐBANKANUM EF ELECTRO HRINTI EKKI MYNDAVÉLINNI MINNI... HVER GERÐI ÞAÐ ÞÁ? FRÁBÆRT! ÞÚ EYÐI- LAGÐIR FYRIR MÉR DAGINN! Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.