Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 36

Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 36
hann slökkvi á símanum sínum á meðan. Kaffi á morgnana og öl á kvöldin keyrir hann svo áfram. „Ég sef í þrjá tíma í mesta lagi. Þetta er ekkert mál, ég hef nóg af orku. Þetta er gert af einskærum áhuga … nör- dismi á háu stigi. Ég tek tónlistina stundum svipuðum tök- um og spæni þá yfir heilu katalógana.“ Atli segist að lokum vera leysidiska-áhugamaður með eindæmum og viti ekkert betra en það afspilunarform. „Hermi-myndgæði klassískra mynda eru eyðilögð á DVD og flatskjáir eru drasl,“ segir Jarlinn að lokum ákveðinn. arnart@mbl.is 36 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010  Gamla kexverksmiðjan við Skúlagötu 28 lifnar heldur betur við í kvöld þar sem Reif Pride verð- ur haldin með pomp og prakt. Þar koma m.a. fram Eric Erickson og Daniel Howe frá Svíþjóð, ásamt President Bongo, Yahamo og sjálfum Sexy Lazer. Herlegheitin hefjast kl. 22 og er aðgangur ókeypis. Reif Pride í Kexverk- smiðjunni í kvöld Fólk Honum Atla Jarli Martin, slátrara og bassaleikara gæðarokks- veitarinnar Atrum er margt til lista lagt. Fyrir stuttu lauk hann tveggja vikna bíómaraþoni þar sem hann horfði á áttatíu kvikmyndir á tveimur vikum! Ekki nóg með það, heldur póst- aði hann stuttri skýrslu um herlegheitin á Fésbókina og kennir þar ýmissa grasa. Arnold Schwarzenegger er tekinn föstum tökum (og hægt er að fræðast betur um hann hér til hliðar), Blackadder og Sherlock Holmes-seríur eins og þær leggja sig, allar Mission Impossible- myndirnar og svo má lengi telja. „Þetta er árlegur viðburður. Þegar konan fer norður dembi ég mér í þetta,“ segir Atli. „Ég skanna vefsíður og gref upp myndir sem ég á eft- ir að sjá og spinn svo út frá því. Ég setti svona ní- unda/tíunda áratugs þema í gang í þetta skiptið.“ Atli segist horfa á myndirnar stanslaust og Slátraði 80 myndum á tveimur vikum! Atli Jarl Bíóbrjálæðingur, slátrari, bassaleikari og vafa- laust eitthvað fleira...  Mikill fögnuður verður í fé- lagsheimilinu Herðubreið á Seyð- isfirði í kvöld þar sem hljóm- sveitin Miri fagnar útkomu breiðskífu sinnar, Okkar, sem Kimi Records gaf út í júní síðast- liðnum. Ásamt Miri munu Sudden Weather Change koma fram sem og hin seyðfirska hljómsveit Bro- ken Sound. Að tónleikum loknum mun það svo falla í hlut plötusnúðsins Unnsteins Manuels Stefánssonar úr Retro Stefson að halda uppi góðri stemningu. Aðgangseyrir er 1.500 kr. og hefst skemmtunin stundvíslega kl. 21.30. Miri fagnar útgáfu Okk- ar í kvöld á Seyðisfirði  Sigurður Atli Sigurðsson fagnar útgáfu á bókverkinu L’homme, l’animal de la ville, í bókabúðinni Útúrdúr í Austurstræti kl. 16 í dag. Bókverkið sem er prentað í offset prenti inniheldur ljósmyndir fundn- ar á götum Marseille, Frakklandi ásamt öðrum verkum. Verkið er prentað í 25 eintökum og verður til sýnis og sölu samhliða verkum sem tengjast því. Sigurður Atli Sigurðs- son fagnar í Útúrdúr Matthías Árni Ingimarsson matthiasarni@mbl.is Það hefur verið mikið að gera hjá hljómsveitinni Amiinu undanfarna mánuði. Sveitin hefur verið að vinna að nýrri breiðskífu, auk þess að spila á fjölda tónlistarhátíða víðs- vegar um Evrópu í sumar, m.a. á bókmenntahátíð í Þýskalandi og á Latitude-hátíðinni í Suffolk á Eng- landi við góðar undirtektir. Um helgina mun svo helmingur hljóm- sveitarinnar koma fram á tónlist- arhátíðinni Pönk á Patró á Patreks- firði. Þar verða þær Edda Rún Ólafsdóttir, María Huld Markan Sigfúsdóttir og Sólrún Sum- arliðadóttir með tónlistarsmiðju fyrir börn og unglinga í Sjóræn- ingjahúsinu ásamt því að flytja frumsamda tónlist við sígildar hreyfiklippimyndir Lotte Reiniger um þau Þyrnirós, Öskubusku og Aladdín. Blaðamaður náði í Maríu þar sem hún var í bíl á leiðinni vestur ásamt Eddu Rún og Sólrúnu og grennsl- aðist fyrir um stækkun hljómsveit- arinnar, væntanlega plötu og tón- leika sumarsins. Hljómsveitin stækkar Amiina var stofnuð af þeim Eddu Rún, Hildi Ársælsdóttur, Maríu og Sólrúnu og árið 1999 byrjuðu þær að spila með Sigur Rós á tónleikum. Sveitin hefur nú bætt við sig und- anfarin ár og hafa þeir Magnús Tryggvason Eliassen tommuleikari og Guðmundur Vignir Karlsson, betur þekktur sem Kippi Kaninus, gengið til liðs við sveitina. „Í raun- inni byrjaði þetta þannig að Maggi spilað með okkur á tónleika- ferðalagi haustið 2007, þá sem ses- sion-leikari, en hann passaði bara svo vel inn í prógrammið að hann hélt áfram að spila með okk- ur. Svo fyrir Listahátíð vorið 2008 vorum við að leita eftir að stækka útsetning- arnar okkar og feng- um Kippa til að vera með á þeim tón- leikum og okkur fannst þetta bara virka svo vel að síð- an þá hafa þeir verið í hljómsveitinni.“ María segir að nýja platan sé væntanleg í sept- ember. Hún verður fyrst gefin út á netinu en samhliða því verður hún gefin út hér á landi í samstarfi við útgáfuna Smekkleysu. Amiina mun einnig ætla að prófa að fara nýjar og öðruvísi leiðir þegar kemur að útgáfu plötunnar. „Við verðum í samstarfi við mjög öflug bandarískt netmarkaðsfyr- irtæki sem er að fara nýjar leiðir í dreifingu á tónlist, sækja á netið sem miðil og sölutæki. Það finnst okkur vera mjög spennandi.“ Margar helgarferðir í sumar Í framahaldi af útgáfu plötunnar heldur hljómsveitin í tónleika- ferðalag um Evrópu sem hefst 25. september á Írlandi og lýkur svo í Portúgal. „Það verður mjög gaman að fara í lengri ferð. Við erum búin að spila nánast allar helgar á hátíðum í sumar. Alltaf fljúga út og spila á einum tónleikum og þá er pínu erf- itt að komast almennilega í gang. Þannig að það verður fínt að fara í ferð með fleiri tónleikum.“ María segir að hljómsveitin sé sí- fellt að bæta inn nýju lögunum á tónleikum og að sumarið hafi verið notað til að prufukeyra þau og það hafi gefið góða raun. Hún bætir við að Magnúsi og Kippa fylgi mikið stuð inn í tónlist Amiinu. -Er nýr hljómur á plötunni? „Hún hljómar mjög mikið eins og Amiina en samt koma miklar breyt- ingar með Magga og Kippa,“ segir María að lokum. Amiina vex … og dafnar Ljósmynd/Matthías Árni Ingimarsson Amiina breiðir úr sér „ ...okkur fannst þetta bara virka svo vel að síðan þá hafa þeir verið í hljómsveitinni,“ segir María Huld Markan m.a. Morgunblaðið/Matthías Árni Ingimarsson Ljósadýrð Amiina á tónleikum í Bæjarbíó í Hafnarfirði fyrir ári.  Helmingurinn kemur fram á tónlistarhátíðinni Pönk á Patró í dag Ofanritaður var viðstaddur upp- tökur á nýju plötunni í apríl síð- astliðnum. „Þeir Magnús og Guðmundur Vignir standa ofan í djúpa endanum fyrir framan hljóðnema með hristur og skeljar og hrista þær listilega í takt á meðan Birgir, Edda, María og Sólrún hlusta og meta afraksturinn á bak við gler í stjórnklefa hljóðvers- ins.“ Upptökurnar SUNDLAUGIN María Huld Markan Sigfúsdóttir  Í dag koma fram í Bókabúð Máls og menningar, á Leikandi laug- ardegi, í tilefni af Gay Pride tónlist- armennirnir Kristín Bergsdóttir og Markús Bjarnason en bæði munu þau leika lög af nýútkomnum hljómplötum sínum. Kristín muna leika lög af plötunni Mubla ásamt hljómsveit og Markús flytur lög af plötunni Know I Now sem kom út fyrir skemmstu. Leikandi laugardagur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.