Morgunblaðið - 07.08.2010, Qupperneq 37
Menning 37FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010
Guðmundur Egill Árnason
gea@mbl.is
Maðurinn hnoðaði járnvilja síns í ókæfanlegubjartsýnisbáli sem vará einhvern furðulegan
hátt tendrað í uppeldi með-
almennskunnar í ómerkilegu aust-
urrísku þorpi.
„Í þá daga var ég laminn með belti
föður míns og hár mitt reitt ef ég
óhlýðnaðist. Þannig var Austurríki.
Alla átti að steypa í sama mót en ég
streittist á móti. Í mér bjó einhver sá
sem aldrei skyldi steypast í sama
mót. Ég fyrirleit sjálfa hugmyndina
um meðalmennsku.“ Rætur lík-
amlegs styrks Arnolds Schwarze-
negger eru í huga hans og sé litið á
makalaust lífshlaup hans er ljóst að
andlegum styrk er ekkert ómögu-
legt. Hann tókst á flug í vaxtarrækt
en lenti ekki þar. Allt sitt líf hefur
hann verið áræðinn markmiðasetn-
ingarmaður sem hefur sett sér árleg
markmið frá því hann var lítill
drengur. Þegar hann var kominn til
Bandaríkjanna stofnaði hann múr-
arafyrirtæki og bréfsendingafyr-
irtæki og varð þannig milljónamær-
ingur, löngu áður en hann varð
frægur. Næst einsetti hann sér að
verða leikari sem gekk víst ágætlega
og í dag er hann ríkisstjóri 7.
stærsta hagkerfis heims, Kaliforn-
íuríkis Bandaríkjanna. Lítum á Arn-
old Alois Schwarzenegger „the go-
vernator“.
Bestu kvikmyndirnar
1. Terminator 2: Judgment Day
„He’s back.“ Við fáum að njóta
Arnolds sem bandamanns í þessari
kvikmynd, þar sem við höfðum áður
borið virðingu fyrir honum sem and-
stæðingi.
2. The Terminator
Þessi kvikmynd skók heiminn
þegar hún kom fyrst út með ískyggi-
legri framtíðarsýn vélanna sem hafa
tekið yfir heiminn. Leikarinn er óað-
finnanlegur sem vélmennið óaðfinn-
anlega.
3. Predator
Veiðimaðurinn verður bráðin,
ekki ljónsins, úlfsins eða bjarnarins.
Í þetta sinn er um tvífættar vits-
munaverur sem búa yfir betri vopn-
um að ræða og hver er betri fulltrúi
mannkynsins á svo óþægilegum víg-
velli en einbeitta vöðvatröllið?
4. Total Recall
Óvenjulegur tryllir eftir Paul Ver-
hoeven og frammistaða Arnolds í að-
alhlutverki svona myndar er eins
óvænt ánægja og að finna 5000 kall,
ekki í vasanum heldur í blossandi
báli.
5. True Lies
Kaldhæðnisleg mynd þar sem
leyniþjónustumaðurinn Arnold þyk-
ist tölvusölumaður gagnvart konu
sinni sem fær leið á spennuleysi lífs-
ins. Eiginmaðurinn bregður á sín
ráð.
6. Conan: The Barbarian
Hráir vöðvahnykkir í óskammfeil-
inni bardagamynd þar sem testeste-
rónmagnið er í hámarki. Arnold stíg-
ur á svið í hlutverki
barbarans Conans
sem leysir málin
með sverðinu sínu.
7. Terminator 3
Ekki besta
myndin til að klára
epíska þríleikinn en
fín afþreying og
engum
fannst
leið-
inlegt að sjá Arnold snúa aftur á
hvíta tjaldið árið 2003 í þessari
myndaröð sem gerði hann að ódauð-
legri fígúru þemagarðanna.
Verstu kvikmyndirnar
1. Junior
Frábærlega klikkað konsept og
alveg ómögulegt nema fyrir leik-
aravalið enda frábært kontrast í að
láta hápunkt karlmennskunnar
verða ófrískan. Ekkert getur samt
sem áður bjargað þessari við-
urstyggilega lélegu kvikmynd.
2. Batman & Robin
Kvikmyndalistin er kokteill af
næmni ljósmyndarans, sköp-
unargleði tónlistarmannsins, inn-
blásnum skrifum rithöfundarins og
náttúrlegum frumleika leikarans.
Þetta er ekki kokteill listanna heldur
æla.
3. Kindergarten Cop
Er verið að vinna með kontrastinn
aftur? Stóri vöðvakarlinn að sjá um
börnin? Saklaus mynd sem kynnir til
sögunnar barnvænt ofbeldi. Það er
sennilega leiðinlegasta konsept í
heimi. Á eftir veðurfréttum á RÚV.
Ummæli
Úr ungdóminum:
Í heimildarmyndinni Pumping
Iron þar sem Schwarzenegger vinn-
ur Mr. Olympia-kraftlyftingatitilinn
sést hann reykja marijúana-jónu eft-
ir sigurinn. Um atvikið sagði hann
árið 2007: „[Marijúana] er ekki fíkni-
efni. Það er lauf. Trúðu mér, fíkni-
efnið mitt er að lyfta.“
Um hjónabandið:
„Ef þú elskar konuna þína til hins
ýtrasta og hún þig, þá er það mjög
góð byrjun. Ekki svo að segja að
hlutirnir verði ekki stundum erfiðir.
Hjónaband fer upp og niður en mað-
ur vinnur í gegnum það.“
Um foreldrahlutverkið:
„Eitt það besta sem hægt er að
gera með börnunum er að leika við
þau. Á sama tíma hegða ég mér
Úr meðalmennsku til hæstu hæða
Arnold Schwarze-
negger braust úr
auðmjúklegum
grunni með
járnviljamarkmiða-
setningu
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Þann 20.ágúst kemur út glæsilegt
sérblað um skóla og námskeið sem
mun fylgjaMorgunblaðinu
þann dag.
Í blaðinu verður fjallað um þá fjöl-
breyttu flóru sem í boði er fyrir þá
sem stefna á frekara nám í haust.
MEÐAL EFNIS:
Endurmenntun
Símenntun
Tómstundarnámskeið
Tölvunám
Háskólanám
Framhaldsskólanám
Tónlistarnám
Skólavörur
Skólatölvur
Ásamt fullt af
spennandi efni
Skó
lar o
g ná
msk
eið
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Skólar og námskeið
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 16. ágúst.
1997 Fær hjartaígræðslu úr eig-
in vefjum. Þarf nýja eftir nokkur
ár. Hann vildi ekki vélræna
ígræðslu sem dygði til fram-
búðar því þá gæti hann ekki æft
sig eins mikið.
2001 Brýtur sex rifbein í mót-
orhjólaslysi.
2004 Bjargar manni frá drukkn-
un í fríinu sínu á Hawaii.
2006 Rífur vörina í mót-
orhjólaslysi og sauma þarf 15
spor. Seinna á árinu dettur
hann á skíðum og fótbrotnar.
2009 Einkaþotan nauð-
lendir eftir að reykur
sést koma úr flug-
stjórnarklefanum.
Bjargaði manni
frá drukknun
ARNOLD HASARHETJA
HINS DAGLEGA LÍFS
Hversdagshetja
Predator Arnold Schwarzenegger er flottur í hlutverki hins sterkbyggða Dutch.
kjánalega og oft spila ég íþróttir með
þeim og leiki, stundum förum við í
hlutverkaleik í litlum leikritum.“
Um sigur markmiðanna:
„Í íþróttum lærir maður sam-
keppni sem merkir að eltast við eitt-
hvað, sigra og láta ekkert annað
trufla sig. Þetta er eitthvað
sem maður lærir og það
helst við mann. Ég tel mig
sérfræðing í að skoða
ákveðna hugmynd eða
markmið og eltast svo
við hana án þess að hafa
nokkuð annað á huganum.
Maður velur sér markmið og
eltir það, sigrar það og fær
fullnun af því.“
Um lagabreytingar svo innflytjend-
ur eins og hann geti orðið forsetar
Bandaríkjanna: „Af hverju ekki?
Eins og ég hugsa, þá skýtur maður
alltaf á toppinn.“
Stæltur
ríkisstjóri.