Morgunblaðið - 13.08.2010, Side 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010
Fyrsti áfangi af þremur í yfirlits-
sýningunni Íslenski hesturinn og á
vídeó- og ljósmyndasýningunni
Hesturinn í náttúru Íslands, verður
opnaður á morgun, laugardaginn
14. ágúst, kl. 16 í nýuppgerðu hús-
næði Söguseturs íslenska hestsins á
Hólum í Hjaltadal.
Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra opnar sýningarnar
og Jón Aðalsteinn Baldvinsson
vígslubiskup blessar húsið.
Sýningarnar verða opnar til og
með 31. ágúst alla daga kl. 10-18 og
frá og með 1. september kl. 13-16
þriðjudaga til föstudaga og eftir
samkomulagi um helgar. Sýning-
arnar verða opnar laugardags-
kvöldið 14. ágúst til kl. 22.
Morgunblaðið/Skapti
Hólar Sýningar opnaðar um helgina.
Hestar í öndvegi
Ekkert lát hefur verið á úrfellinu
vegna monsúnrigninga í Pakistan,
og er nú um 70% af öllu landinu
undir vatni. Talið er að um 14 millj-
ónir manna hafi orðið fyrir áföllum
vegna flóðanna og að um 6 milljónir
þurfi tafarlausa aðstoð. Alþjóða
Rauði krossinn kallar eftir enn
meira fjármagni í neyðarbeiðni
sína sem hljóðar upp á tvo milljarða
króna. Rauði kross Íslands hefur
þegar sent 3,5 milljónir króna úr
neyðarsjóðum sínum til hjálp-
arstarfsins og hefur einnig opnað
fyrir söfnunarsíma sinn 904 1500.
Þegar hringt er í númerið bætast
1.500 kr. við næsta símreikning.
Einnig er hægt að greiða inn á
reikning hjálparsjóðs í banka 0342,
hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-2649.
Safna fé vegna
flóðanna í Pakistan
Femínistafélag Íslands hvetur til
þess að Þjóðkirkjan taki skýra af-
stöðu gegn kynferðisofbeldi og
virkan þátt í baráttu gegn því. Í
ályktun félagsins segir: „Prestar
og aðrir trúarleiðtogar eru í
valdastöðu gagnvart þeim sem til
trúfélaga leita eða starfa innan
þeirra. Misnotkun á slíkri stöðu er
gríðarlega alvarleg.
Femínistafélagið fagnar þeim
skrefum sem Þjóðkirkjan hefur
þegar tekið til að bregðast við
kynferðisofbeldi en brýnir hana
og önnur trúfélög til frekari að-
gerða.“
Þjóðkirkjan taki
skýra afstöðu
STUTT
Lögreglan hafði afskipti af mótmæl-
anda við stjórnarráðshúsið í fyrra-
dag vegna þess að starfsmenn for-
sætisráðuneytisins kvörtuðu undan
honum og töldu mótmælin trufla rík-
isstjórnarfund sem þá stóð yfir.
Mótmælandinn var handtekinn og
færður á lögreglustöð vegna þess að
hann gaf ekki upp nafn sitt.
Lögreglan er með mann á vakt í
forsætisráðuneytinu. Hörður Jó-
hannesson aðstoðarlögreglustjóri
segir að starfsmenn hafi leitað til
hans vegna konu sem var að mót-
mæla við stjórnarráðshúsið. Hún
hafi verið upp við húsið með flautu
og hróp. Þar sem lögreglumaðurinn
hafi talið ómögulegt að tjónka við
konuna hafi hann kallað eftir aðstoð
félaga sinna. Þeir hafi beðið hana um
að færa sig frá húsinu en hún hafi
neitað að hlýða. Þá hafi hún ekki vilj-
að gera grein fyrir sér þegar lög-
reglan leitaði eftir því og hafi verið
handtekin og færð á lögreglustöð af
þeim sökum. Þar hafi málið skýrst
og konuninni verið sleppt.
Hvert tilvik metið
Mótmælandinn var kominn á
sama stað eftir fáeinar mínútur og
aftur var kvartað til lögreglu. Sömu
menn fóru á staðinn. Eftir nokkur
orðaskipti varð hún við tilmælum
þeirra um að færa sig og segir Hörð-
ur að með því hafi málið verið leyst.
Hörður tekur það fram að lög-
reglan hafi ekki haft afskipti af kon-
uninni vegna þess að hún hafi verið
að mótmæla eða gefa fuglum við
stjórnarráðshúsið, heldur vegna
þess að starfsmenn ráðuneytisins
hafi talið hana trufla starfsemi í hús-
inu með hávaða. Þarna séu oft mót-
mæli og uppákomur af ýmsu tagi en
fólkið hafi þá yfirleitt látið duga að
fara upp í tröppurnar. Hann segir að
hvert tilvik sé metið þegar húsráð-
endur kvarti undan fólki á lóðum
sínum, hvort sem það sé við stjórn-
arráðshúsið eða aðrar byggingar.
Kvartað
yfir mót-
mælanda
Morgunblaðið/Kristinn
Stjórnarráðið Alltaf fylgst með.
Talinn trufla fund
ríkisstjórnarinnar
Enn berast fréttir af tröllvöxnum löxum
Fyrr í vikunni var greint frá því að sést hefði til gríð-
arlegrar skepnu í Laxá í Aðaldal sem sjónarvottar kváðu
vera 30 pund. Veiðimaður náði þó ekki að landa skepn-
unni þó svo hann hefði náð laxinum að fótum sér. Enn
berast fréttir af stórlöxum en 108 cm lax veiddist í Skip-
hyl í Miðfjarðará í vikunni. Mikið hefur verið um stórlaxa
þar í sumar. Að sögn Rafns Vals Alfreðssonar, leigutaka
árinnar, hefur þetta goðsagnakennda tröll blasað við
veiðimönnum í hylnum síðustu vikur og fjórum sinnum
verið sett í laxinn en hann alltaf náð að losa sig. Það var
svo á þriðjudaginn sem veiðimaðurinn Björn Svein-
björnsson hafði hendur á honum, mældi og sleppti hon-
um svo aftur út í ána. Laxinn er að líkindum sá stærsti
sem veiðst hefur í sumar en hann var á að giska 24 til 26
pund að þyngd.
„Sáum laxana streyma
upp á nánast engu vatni“
Metveiði var um síðustu helgi í Glerá í Dölum en þar
veiddust 28 laxar 108 cm lax veiddist í Miðfjarðará
Ljósmynd/Geir Sigurðsson
Mokveiði Terry Douglas hafði ástæðu til að fagna góðri veiði þeirra feðga í Glerá í Dölum, skammt frá Laxá.
Þverá/Kjarrá eru efst á lista yfir
aflamestu laxveiðiárnar í sumar. Á mið-
vikudaginn höfðu veiðst 2.878 laxar þar í
sumar. Á sama tíma í fyrra voru þeir
2.371. Því næst kemur Blanda með
2.738 veidda laxa sem er aukning
miðað við 2.413 á sama tíma í
fyrra. Ytri-Rangá skipar þriðja
sætið með 2.636 veidda laxa á
sama tímabili en það er mun
minna en á sama tíma í fyrra en
þá fóru laxarnir vel yfir 10.000.
Veiðitölur má sjá á
angling.is.
Þverá/Kjarrá efstar
VEIÐIN ÞAÐ SEM AF ER SUMRI
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Fulltrúar minnihlutans í borgarráði
gagnrýna hvernig meirihlutinn
stendur að vinnu við gerð fjárhags-
áætlunar borgarinnar. Ekki hafi ver-
ið staðið við tímaáætlun sem sam-
þykkt var í borgarráði í júní. Hanna
Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálf-
stæðismanna, segir lítið að gerast
hjá meirihlutanum í þessum málum.
„Við teljum mjög alvarlegt að mik-
ilvægustu mál borgarinnar og borg-
arbúa séu látin bíða með þessum
hætti. Samkvæmt tímaáætlun sem
samþykkt var sl. vor í borgarráði átti
þessi vinna að hefjast í byrjun júní.
Okkur vitandi liggur ekkert fyrir
varðandi þessa vinnu. Stefnumótun
sem átti að hefjast í byrjun sumars
inni í fagráðum hefur ekki farið
fram, auk þess sem aðgerðarhópur
borgarstjórnar hefur ekkert fundað
vegna fjárhagsáætlunar. Okkur
finnst grafalvarlegt við þessar að-
stæður sem uppi eru í íslensku sam-
félagi, þar sem við höfum þurft að
vakta fjárhagsáætlun frá viku til
viku, að þessi vinna sé ekki hafin
ennþá.“
Hanna Birna sagðist vonast eftir
að með þessari bókun vöknuðu menn
og færu að einbeita sér að fjármálum
borgarinnar og forgangsröðun verk-
efna fyrir næsta ár.
Bíða eftir tekjuáætlun
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, segir þessa bókun koma
sér á óvart. Það hafi verið sagt frá
því fyrir nokkrum vikum að menn
myndu setjast yfir þetta þegar
tekjuáætlanir fyrir næsta ár færu að
skýrast betur. Með nýrri þjóðhags-
áætlun, sem kynnt verður í næstu
viku, fengju menn betri upplýsingar
um hvers mætti vænta á tekjuhlið.
Gagnrýna vinnubrögðin
Tímaáætlun við gerð fjárhagsáætlunar borgarinnar hefur ekki verið fylgt
Borgarfulltrúi Besta flokksins segir sumarfrí og kosningar hafa tafið vinnuna
Sameiginleg bókun
» Fulltrúar Sjálfstæðisflokks
og VG í borgarráði sendu frá
sér sameiginlega bókun í gær
þar sem vinnubrögð Samfylk-
ingar og Besta flokksins eru
gagnrýnd.
» Þeir benda á að enginn
fundur hafi verið haldinn í að-
gerðahópi borgarráðs vegna
fjármála síðustu tvo mánuði.
STANGVEIÐI
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Laxveiði þarf ekki endilega að kosta hönd og fót. Flestir
kannast við frægustu laxveiðiár landsins þar sem stöngin
kostar tugi þúsunda á dag. En víða um land leynast
minni veiðistaðir sem eru jafnvel engu síðri en þeir stóru
í það minnsta hvað skemmtanagildi varðar. Ein slík er
Glerá í Dölum sem er einnar stangar á skammt frá Laxá
í Dölum. Feðgarnir Geir Sigurðsson og Terry Douglas
voru þar við veiðar um síðustu helgi. Óhætt er að segja
að þeir hafi haft heppnina með sér þar sem þeir lönduðu
metafla það sem af er sumri í Glerá.
Sáu laxana streyma upp ánna
„Ég sagði við pabba að við fengjum kannski einn lax
yfir helgina ef við yrðum heppnir en svo fór að laxarnir
urðu 28,“ segir Terry. Það verði að teljast mokveiði í
Glerá þar sem aðeins höfðu veiðst fjórir laxar þar í allt
sumar fyrir helgina. Terry hefur áður veitt í Glerá en
segir hana aldrei hafa gefið jafn mikið og nú. Veiðiferðin
nú hafi verið sannkallað ævintýri fyrir þá feðga.
„Þetta var ótrúlegt sjónarspil því Glerá er mjög grunn
á köflum og við sáum laxana hreinlega streyma upp ána
á nánast engu vatni. Maður sá augun á þeim þar sem
þeir þröngvuðu sér upp með straumnum, sumir á hlið.“
Flestir laxarnir hafi komið á maðk en nokkrir hafi bitið á
flugu þó svo Glerá hafi ekki verið þekkt sem mikil flugu-
veiðiá.
Terry segir fiskinn hafa verið smálax, nýkominn af
hafi og grálúsugan. Flestir hafi verið í kringum 5 pund
en þeir hafi fengið nokkra 8 punda. „Ég sleppti fjórum
hrygnum því maður var eiginlega kominn með móral og
allt að því aðgerðarótta yfir allri þessari óvæntu veiði,“
segir Terry og hlær.
Bændurnir á staðnum sjá aðallega um Glerá
og menn kaupa veiðileyfin beint af þeim.
Stöngin kostar um 12 þúsund krónur á dag.
Fín veiði hefur verið í
Þverá/Kjarrá.
Ákveðið hefur verið að koma á
aukaferð Herjólfs vegna leiks
Breiðabliks og ÍBV á mánudaginn.
Þannig munu stuðningsmenn ÍBV
geta komist strax til Vestmanna-
eyja frá Landeyjahöfn eftir leik lið-
anna. Leikurinn fer fram á Kópa-
vogsvelli og hefst kl. 19:15.
Bætt við aukaferð
vegna fótboltaleiks
Morgunblaðið/RAX