Morgunblaðið - 13.08.2010, Side 36
Matthías Árni Ingimarsson
matthiasarni@mbl.is
Ef það er eitthvað sem fer vel saman,
þá er það dagurinn í dag, föstudag-
urinn þrettándi, og hrollvekjur. Þar
sem saklaust fólk reynir hvað það get-
ur að forða sér undan snaróðum morð-
ingjum sem oftar en ekki hafa vinn-
inginn og sleppa undan ráðþrota
laganna vörðum. Fyrir nærri þrjátíu
árum brá Gunnar Hansen sér í gervi
Leatherface í myndinni Texas Chain-
saw Massacre og til varð einn skelfi-
legasti morðingi sem sést hefur á
hvíta tjaldinu. Í tilefni dagsins hafði
blaðamaður samband við Gunnar og
fékk smá innsýn inn frægasta keðju-
sagarmorðingja kvikmyndasögunnar
og myndina sjálfa sem virðist alltaf
vera jafnvinsæl á meðal áhorfenda.
Heyrði af hlutverkinu fyrir
tilviljun
– Hvernig kom það til að þú fékkst
hlutverk í myndinni?
„Fyrir tilviljun var mér sagt að það
væru nokkrir kvikmyndagerðarmenn
að leita að manni til að leika morðingja
í hryllingsmynd. Það var víst búið að
ráða í hlutverkið en sá sem átti að
leika var víst fullur á einhverju móteli
að fela sig. Þannig að ég hringdi bara í
aðstandendur myndarinnar og fékk
hlutverkið.“ Hann segir
hlutverkið hafa tekið
líkamlega á. Unnið
var 16 tíma á dag í
miklum hita og oft-
ast var Gunnar á
hlaupum klæddur
grímu og vopnaður
þungri keðjusög.
Gunnar hefur leikið í þó nokkrum
hrollvekjum síðan hann tók að sér að
leika Leðurfés, en segir að hann hafi
aldrei langað að vinna sem leikari í
fullu starfi.„Ég hef alltaf haft meiri
áhuga á að skrifa. Mér var meira að
segja boðið hlutverk í
upprunalegu The
Hills Have Eyes, en
ég hafnaði því tilboði
því mig langaði ekk-
ert endilega að gera
kvikmyndir.“
Fer á hrollvekju-
ráðstefnur
Ráðstefnur tileink-
aðar hrollvekjum eru
mjög vinsælar á með-
al aðdáenda slíkra
mynda vestan hafs og eru fjölmargar
haldar ár hvert. Gunnar segist reyna
að mæta á fjórar til fimm slíkar á
hverju ári.„Það er mjög gaman að sjá
hvað fólk hefur ennþá mikinn áhuga á
myndinni eftir öll þessi ár.“
Margir tala um persónuna Leð-
urfés sem goðsögn þegar kemur að
hrollvekjum. En hvernig líst Gunnari
á þann stimpil?
„Það er alveg frábært hvað myndin
og sérstaklega Leðurfés hafa náð
langt. Mér datt aldrei í hug að mynd-
in ætti eftir að verða svona vinsæl og í
rauninni er það enn þá að koma mér á
óvart.“ Hann bætir við að fram að
fram að Chainsaw hafi hrollvekjur
verið frekar kurteislegar gagnvart
áhorfendum. Það voru alltaf nokkrar
mínútur í þeim þar sem fólkið í saln-
um fékk smápásu til að ná andanum.
En í Chainsaw var ekkert um slíka,
áhorfendum fá það aldrei á tilfinn-
inguna að þeir séu öruggir. Í þá daga
voru hrollvekjur líka frekar hægar og
það var mikið talað, en ekki í Chain-
saw, þar var allt á fullu allan tímann.
Myndin var líka gagnrýnd á sínum
tíma, en mörgum fannst ekki rétt að
morðingjanum skyldi ekki refsað í lok
myndarinnar.
Leikur fórnarlamb
Gunnar lék Pétur skipstjóra í
mynd Júlíusar Kemp, Reykjavik
Whale Watching Massacre sem kom
út á síðasta ári. Þar bregður Gunnar
sér í nýtt hlutverk og leikur fórn-
arlamb frekar en snaróðan morð-
ingja. „Það var allt öðruvísi að leika
fórnarlamb heldur en morðingja, en
ég naut þess að skipta um hlutverk að
þessu sinni,“ segir Gunnar.
Heill þér, mikla Leðurfés!
Hlutverkin „Það var allt öðruvísi að leika fórnarlamb heldur en morðingja, en ég naut þess að skipta um hlutverk að þessu sinni,“ segir Gunnar.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Skipstjórinn Gunnar við tökur á Reykjavik Whale Watching Massacre.
Gunnar Hansen lék einn hryllilegasta morðingja hvíta tjaldsins Rætt
var við hann í tilefni föstudagsins 13. Undrast enn vinsældir myndarinnar
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010
Friðrik gamli Weisshappel hef-
ur verið að gera það gott með
þvottakaffihúsið sitt í Kaupmanna-
höfn eins og alþjóð veit og brátt
verður opnað þriðja húsið þeirrar
gerðar. Weisshappel skýrir frá því í
Fésbókarfærslu að því miður muni
það ekki verða opnað á Reykjaviks-
gade við Íslandsbryggju. Húsið
muni að sönnu verða opnað en
óvissa sé í augnablikinu nákvæm-
lega hvar. Færsluna skreytir Frið-
rik með uppbyggilegum brosköll-
um og því ekki ástæða til annars en
að vera bjartsýnn.
Þriðja þvottakaffi-
húsið, en hvar?
Fólk
Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin um
helgina á Sauðárkróki og mun fjöldi hljómsveita
koma fram á hátíðinni í dag og á morgun, en
þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin. Segja
aðstandendur hennar að þetta sé jafnframt í
fyrsta sinn sem hátíð af þessu tagi er haldin í
Skagafirðnum.
Tónleikarnir verða haldnir í húsnæði Loð-
skinns á Sauðárkróki, í söltunarhluta húsnæð-
isins. Þar er eina sútunarverksmiðja landsins og
sú eina í Evrópu sem sútar fiskroð. Hugmyndin
að Gærunni var upphaflega sú að skapa stökk-
pall fyrir skagfirskar og norðlenskar hljóm-
sveitir. Fljótlega kom í ljós að mikill áhugi var
fyrir hátíðinni og mikil aðsókn í að fá að spila, en
meðal þeirra hljómsveita sem stíga á svið eru sex
úr Skagafirðinum.
Þeir sem stíga á svið í kvöld eru Davíð Jóns,
Svavar Knútur, Myrká, ástralski trúbadorinn
Jona Byron, Múgsefjun, Biggi Bix, Hoffmann,
Erpur/Sesar A og sveiflukóngurinn Geirmundur
Valtýsson. Á morgun eru það Gillon, Morning af-
ter Youth, Hælsæri, Joe Dúbíus, Fúsaleg Helgi,
Binni Rögg, Best fyrir, Dalton, Nóra, Bárujárn,
The Vintage, Sing for me Sandra og Bróðir
Svartúlfs sem skemmta gestum Gærunnar.
Miðaverð er 4000 kr. og innifalið í því er m.a.
sýningar á tónlistar-heimildarmyndunum Hand-
an Við Sjóinn, The Stars May Be Falling...but the
stars look good on you og prufusýning á Wherés
the snow, mynd um Airwaves-hátíðinna.
matthiasarni@mbl.is
Tónlistarhátíðin Gæran haldin í Skagafirðinum
Morgunblaðið/Ernir
Skagfirðingar Hljómsveitin Bróðir Svartúlfs.
Hljómsveitin Múgsefjun hefur
sent frá sér nýtt lag sem ber nafnið
Þórðargleði. Þetta er annað lagið
sem heyrist af væntanlegri plötu
Múgsefjunnar sem kemur út næsta
vetur. Af þessu tilefni mun Múgsefj-
un halda í stutta tónleikaferð og
spila á tvennum tónleikum á Norð-
urlandi. Sveitin mun koma fram á
tónlistarhátíðinni Gærunni föstu-
dagskvöldið 13. ágúst. Því næst
mun Múgsefjun halda tónleika á
Gamla bauk á Húsavík. Þessari
stuttu tónleikatörn Múgsefjunar
lýkur svo á nýja tónleikastaðnum
Faktorý við Smiðjustíg í Reykjavík.
Múgsefjun ræsir sig í
gang, nýtt lag og túr
NPR eða National Public Radio
sér um að dreifa útvarpsefni 800
stöðva í Bandaríkjunum sem víðast.
Upptaka með Jóhanni Jóhanns-
syni sem var gerð í Seattle er nú
þar í öndvegi, ekki amalegur ár-
angur það hjá tónskáldinu.
Jóhann Jóhannsson í
öndvegi hjá NPR
Hrollvekjan Texas Chain-
saw Massacre kom út árið
1974. Í henni fer Gunnar
hreinlega á kostum sem
keðjusagarmorðinginn
Leðurfés. Telst myndin
klassík er kemur að alvöru
hrollvekjum. Nokkuð hefur
verið um að reynt hafi ver-
ið að gera framhalds-
myndir af henni. En engin
þeirra hefur komist nærri
frumgerðinni.
Fjöldamorðið
ALVÖRU HROLLVEKJA
Þungarokkssveitin Wistaria fór
fyrir Íslands hönd á Wacken,
stærstu þungarokkshátíð heims og
tók þar þátt í hljómsveitakeppni.
Það var finnska sveitin Battle Beast
sem fór með sigur af hólmi en sigur
Wistaria liggur í því að koma list
sinni á framfæri við 3000 þunga-
rokkshausa. Draumar geta ræst …
Wistaria lék fyrir 3000
manns á Wacken