Morgunblaðið - 13.08.2010, Side 44
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 225. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Missti hárið í hringekjunni
2. Lengsta nafn í Evrópu
3. Sjáandi vísaði á lík
4. Draga sig í hlé frá flugeldasýningu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Einni viku eftir hátíðina Fuji Rock í
Japan er nú haldin Summersonic-
hátíðin og koma fram Jay-Z og Stevie
Wonder en enginn annar en Jónsi úr
SigurRós byrjaði með því sem lýst
var sem „töfrandi íslensku rokki.“
Jónsi steig á svið á
Summersonic í Japan
Bandaríska út-
varpið NPR hefur
ákveðið að hafa
Björk í umfjöllun
um 50 bestu
raddirnar en þar
segir meðal ann-
ars að hún þyki
hafa ótrúlega
rödd sem fái jafn-
vel suma til að velta því fyrir sér
hvort söngkonan geti verið mennsk.
Þá taka þeir viðtal við söngkonuna og
fjalla um líf hennar.
Björk með einhvers
konar geimrödd
Sér eftir að hafa
vingast við Vorhees
Í dag er föstudagurinn þrettándi og
því eðlilegt að viðfangsefni viðtals
vikunnar í aðlinum sé sjálfur Freddy
Krueger sem í aldarfjórðung hefur
stundað það að hræða líftóruna úr
fólki í draumum og margt ískyggi-
legra. Við reynum að
kynnast þessu
martraðatrýni en
hann var
ekki sáttur
við Jason
Vorhees.
»38
Á laugardag Sunnan 5-10 m/s og súld eða dálítil rigning vestantil, en heldur hægari og
úrkomulítið á austanverðu landinu. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á N- og A-landi.
Á sunnudag Sunnanátt og rigning, þó einkum S- og V-lands. Hiti breytist lítið.
Á mánudag Suðvestanátt og víða skúrir. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast A-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða rigning eða súld en dregur úr úrkomu síðdegis. Hiti yfirleitt 12
til 20 stig, hlýjast A-lands.
VEÐUR
Víkingur komst í toppsæti 1.
deildar karla í knattspyrnu í
gærkvöldi þegar liðinu
tókst að knýja fram 2:1 sig-
ur í Njarðvík. 18 ára gamall
leikmaður, Sigurður Egill
Lárusson, kom inn á sem
varamaður og tryggði Vík-
ingi sigurinn. Annar leikur
fór fram í gærkvöldi en þar
vann Fjölnir lið Gróttu 1:0
þar sem Hrafn Davíðsson
markvörður Gróttu varði
vítaspyrnu.
Víkingur á toppi
1. deildar karla
Deildakeppni Golfsambandsins hefst
í dag en um er að ræða sveitakeppnir.
Leikið er í fimm deildum hjá körl-
unum og tveimur hjá konunum. GKG
er Íslandsmeistari í
karlaflokki og
Keilir í kvenna-
flokki. 1. deild
karla fer fram á
Hvaleyrinni hjá
Keili en 1.
deild kvenna
fer fram í
Leirdalnum
hjá GKG. »4
Sveitakeppnirnar í golf-
inu byrja í dag
Geir Þorsteinsson formaður KSÍ seg-
ist í samtali við Morgunblaðið vilja
sjá landsliðsmanninn Eið Smára Guð-
johnsen brosmildari á knattspyrnu-
vellinum.
,,Ég vil sjá Eið Smára brosa inni á
vellinum sem og utan hans og að
hann hafi gaman af því sem hann er
að gera,“ sagði Geir. »1
Formaður KSÍ vill sjá
bros á vörum Eiðs
ÍÞRÓTTIR
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Feðgarnir Geir Sigurðsson og Terry
Douglas voru við veiðar í Glerá í Döl-
um um síðustu helgi. Óhætt er að
segja að þeir hafi haft heppnina með
sér þar sem þeir lönduðu metafla ár-
innar það sem af er sumri.
„Ég sagði við pabba að við fengjum
kannski einn lax yfir helgina ef við
yrðum heppnir en svo fór að laxarnir
urðu 28,“ segir Terry. Það verði að
teljast mokveiði í Glerá þar sem að-
eins höfðu veiðst fjórir laxar þar í allt
sumar fyrir helgina. Terry hefur áður
veitt í Glerá en segir hana aldrei hafa
gefið jafn mikið og nú. Veiðiferðin nú
hafi verið sannkallað ævintýri fyrir
þá feðga. Stærsti lax það sem af er
sumri veiddist í Miðfjarðará á þriðju-
daginn. Laxinn veiddist í Skiphyl í
Miðfjarðará en mikið hefur verið um
stórlaxa þar í sumar.
Tröllvaxinn lax í Miðfjarðará
Að sögn Rafns Vals Alfreðssonar,
leigutaka árinnar, hefur þetta goð-
sagnakennda tröll blasað við veiði-
mönnum í hylnum síðustu vikur og
fjórum sinnum verið sett í laxinn en
hann alltaf náð að losa sig. Það var
svo á þriðjudaginn sem veiðimaður-
inn Björn Sveinbjörnsson hafði
hendur á honum, mældi og sleppti
honum svo aftur út í ána. »14
Óvænt metveiði í Glerá
Feðgar veiddu 28 laxa um síðustu helgi í Glerá Í Miðfjarðará veiddist stærsti
lax sumarsins síðasta þriðjudag en hann var 108 cm og í kringum 25 pund
Ljósmynd/Geir Sigurðsson
Metveiði Terry og laxarnir.
Laxinn lætur sjá sig
» Aðeins 4 laxar höfðu veiðst í
Glerá í Dölum í sumar fyrir síð-
ustu helgi. Þá veiddust óvænt
28 laxar á tveimur dögum.
» Stærsti laxinn það sem af er
sumri kom á stöng í Skiphyl í
Miðfjarðará. Hann mældist 108
cm langur.
» Mest hefur veiðst í Þverá/
Kjarrá það sem af er sumri eða
um 2878 laxar.
„Ég hafði ekki
einu sinni efni á
því að fara á
þetta Evrópu-
meistaramót. Ég
fæ bara reikn-
inginn í hausinn
einhvern tíma í
haust,“ segir
Jakob Jóhann
Sveinsson, sund-
maður úr Ægi,
sem tekur þátt í Evrópumeistara-
mótinu í sundi sem fram fer í Ung-
verjalandi. Jakob er á meðal bestu
sundmanna Evrópu í 100 og 200
metra bringusundi. Hann ætlar að
taka ákvörðun um framhaldið hjá
sér í haust – en Jakob hefur skuld-
sett sig til þess að reyna að koma sér
í fremstu röð. Jakob fær 80 þúsund
krónur í B-styrk frá Afreksmanna-
sjóði ÍSÍ. » Íþróttir
Skuldsetti
sig til að
keppa
Jakob Jóhann
Sveinsson
Vissara er fyrir ferðamenn að vera með bakpoka í för
og klæða sig í regngallann þessa dagana. Ef marka má
veðurspána næstu daga er útlit fyrir að votviðrasamt
verði víða um land um helgina, fyrst vestan til í dag.
Þessar ágætu konur á Austurvelli gátu vel sungið lag
Helga Björns og Grafíkur, hafi þær kunnað textann.
Morgunblaðið/Ómar
Mér finnst rigningin góð …