Morgunblaðið - 20.08.2010, Side 10

Morgunblaðið - 20.08.2010, Side 10
Heimur minn getur um-turnast með einu flauti.Dómaraflauti. Ég er aðtala um fótbolta. Eina stundina brosi ég breitt og allt virðist ganga í haginn. Þá næstu stend ég öskrandi í móð- ursýkiskasti. Ég læt nokkur óvar- lega valin orð flakka í garð stutt- buxnaklædds manns. Sá er einfaldlega að reyna að vinna vinnuna sína. Hvað hefur breyst? Flautan var þanin og hönd stuttbuxnamanns- ins flaug í vitlausa átt, í áttina til liðs míns. Aðeins þetta tvennt sneri heiminum á hvolf – að minnsta kosti um stundarsakir. Milljón spurningar brenna á mínum vörum. Hvernig getur hann verið svona heimskur, blind- ur og ósanngjarn? Hefur hann eitthvað á móti liðinu mínu? Eru annarlegir hagsmunir í húfi? Á hann heima rétt hjá Kapla- krika og ætli hann eigi börn sem leika knatt- spyrnu fyrir yngri flokka Fimleikafélagsins? Þessu mun hann aldrei svara. Hann bara flautar, þaggar niður í tuðandi leikmönnum og lætur leikinn halda áfram. Dómarinn flautar á nýjan leik. Í hvora áttina bendir hann? Hann bendir á hitt liðið. Eins gott. Ég er samt ekki reiðubúinn að fyr- irgefa manninum fyrir mis- tökin mín- útu fyrr. Þeim mun ég aldrei gleyma. Ég held með KR, sem ef til vill skýr- ir ýmislegt í þess- um texta. Það vill nefnilega þannig til að einhvern tímann í fyrndinni ákváðu allir dómarar á Íslandi að vera vondir við KR-inga. Heim- ildum ber ekki saman um hvernig stendur á þessu. Líklegast er talið að um sé að ræða samráð annarra liða. Svona eins og þegar vondu og ljótu stelpurnar reyna að skemma fyrir góðu og sætu stelpunni, af- skræma útlit hennar og gera hana óaðlaðandi fyrir drengjunum sem þær allar þurfa að keppa um. Ná- kvæmlega þannig. Það er auðvitað engin tilviljun að Kristinn Jakobsson, besti dóm- ari landsins um árabil, er KR- ingur. Leiknum er lokið og við höf- um tapað. Í þetta sinn er það ég sem bendi. Ég vísa hend- inni á dóm- arann. Hann hefur gerst sekur um sví- virðilega tækl- ingu sem hæfði mig og alla aðra KR-inga, beint í hjartastað. Gísli Baldur Gísla- son | gislibald- ur@mbl.is »Það vill nefnilegaþannig til að ein- hvern tímann í fyrnd- inni ákváðu allir dóm- arar á Íslandi að vera vondir við KR- inga. HeimurGísla Baldurs MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 10 Daglegt líf Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Tískan er margbreytileg ogmeðal unglinga er hún oftófyrirsjáanleg. Einn daginneru allir í víðum náttbuxum og íþróttapeysum en þann næsta eru þröng föt aðalmálið. Ljóst er þó að margir vilja sýna að þeir séu með á nótunum þegar skólarnir hefjast og þeir hitta félaga sem þeir hafa jafnvel ekki séð í allt sumar. Daglega lífið ákvað að forvitnast um tískustraumana meðal nemenda í 8.-10. bekk og leitaði því til þriggja grunnskólanema, Margrétar Helgu Pálsdóttur, Magnúsar Bjarka Guð- mundssonar og Höllu Hauksdóttur. Farið var með þau í Kringluna þar sem þau völdu sér föt sem best lýsa þeirra stíl og þeim tískustraumum sem verða í grunnskólunum í vetur. Ungar stelpur orðnar mjög meðvitaðar um tískuna En hvað verður í tísku í haust? „Það sem þessir krakkar eru aðallega að taka, sérstaklega nú á haustin, eru gallabuxurnar. Háar gallabuxur eru sérstaklega vinsælar,“ segir Anna Ragnarsdóttir, verslunarstjóri Top- shop í Smáralind. „Stelpur eru orðn- ar svo meðvitaðar um hvað er að ger- ast. Allar þessar tískusíður gera það að verkum að stelpurnar eru orðnar mjög inni í því sem er að gerast í tísk- unni. Svo eru gallastuttbuxur mjög vinsælar og eru stelpurnar þá í legg- ings innan undir. Það eru þó aðallega stelpurnar sem eru í 10. bekk sem eru í þeim. Stelpur í 8.-10. bekk kaupa líka mikið af gollum en það eru frekar þessari eldri sem kaupa þykku peysurnar. Svo kaupa þær mikið af „mótíf“-bolum með prentuðum myndum á og stuttum toppum sem eru eiginlega magabolir en þær eru í hlýrabolum innanundir. Bolirnir geta verið þröngir eða víðir, einlitir eða munstraðir og stutterma eða kvar- terma.“ Að sögn Önnu verða galla- skyrtur og leggingsbuxur áfram vin- sælar en einnig verður mikið um dýramynstur í haust. „Mynstur hafa verið vinsæl og verða áfram. Í haust kemur rauði liturinn sterkt inn og líka kamel-litur og kakí-grænn. Það er að koma mikið af mynstruðum leggings en svo eru mynstraðar sokkabuxur að koma sterkt inn, með alls konar línum og mynstrum.“ Köflótt og blátt Að sögn Björns Ólafs, eiganda Brims, verður köflótt áfram vinsælt en að auki komi blái liturinn sterkt inn, bæði hjá stelpum og strákum. Stærstu merkin hjá Brimi eru Billa- bong og Element. „Allt „basic“ er í mjög björtum og skemmtilegum lit- um,“ segir hann og það á ekki síður við um skó en föt. „Krakkarnir kaupa mikið af litum í skónum, vilja hafa mikla og bjarta liti í þeim og mikil læti á meðan fullorðna fólkið vill svarta litinn.“ Skórnir sem fást í Brimi eru ekki hefðbundnir striga- skór heldur brettaskór og þar eru svonefndir mid-skór vinsælastir sem eru ekki alveg háir en þó ekki lágir heldur. Litríkt haust Sara Kristín Sigurkarlsdóttir, verslunarstjóri Blend í Kringlunni, segir að haustið verði litríkara en oft áður. „Blár og grænn koma sterkt inn í haust. Svo er fjólublátt ívaf sem heldur áfram sem var mjög vinsælt um jólin og það heldur aðeins áfram nema aðeins dýpri fjólublár núna,“ segir hún. Hún segir sniðin í karla- deildinni líka öðruvísi. „Þrengri snið um kálfana koma inn núna og síðara klof en hefur verið áður. Það er samt ekki alveg þessi „dissara“-fílingur heldur meira að hafa þær lausari að ofan og þrengri að neðanverðu.“ Hún segir kakíbuxur einnig vinsælar og seljist slíkar buxur mjög vel hjá þeim. Í kvenmannsfötum eru sniðin víðari en áður. „Það eru svolítið þessi „loose“-snið sem koma sterkt inn núna. Mikið af pilsum og meira af blúndum og pallíettum sem eru þó ekki allsráðandi heldur er frekar lítið á flíkinni. Kjólar í A-sniði koma sterkir inn og margir eru mjög hrifn- ir af því.“ Mörgum grunnskólakrökkum, sem snúa senn aftur í skólana, er ekki síður mik- ilvægt að fá ný föt fyrir haustið en nýjar bækur og skriffæri. Sérfræðingar voru spurðir um tískuna og þrír grunnskólanemar völdu fötin sem þeim þykja flottust. Gallaefni, stuttir bolir Áttu erfitt með að ákveða hverju þú ætlar að klæðast að morgni? Til að fá smá innblástur er tilvalið að fara inn á vefsíðuna Whowhatwear.com og sjá hverju fræga fólkið og fyrirsæturnar klæðast. Það er svolítið kraðak á síðunni sem er lifandi og litrík. Á forsíðunni eru tískufærslurnar, þar koma myndasyrpur af því sem er tísku, klæðaburður hjá fyrirsætum í hvers- dagslífinu er skoðaður og ráðlegg- ingar um hvernig á að klæðast ákveðnum stíl birtast reglulega, t.d. er nýleg færsla um hvernig á að klæðast síðum „maxi“-kjólum svo vel sé. Stúlka mánaðarins er líka tekin fyrir og hennar klæðaburður skoð- aður auk margs fleira. Það góða við Whowhatwear.com er víðsýnið, þar ættu allir að geta fund- ið eitthvað við sitt hæfi. Síðuhaldarar benda líka á föt, fylgihluti og snyrti- vörur sem hinn almenni borgari getur nálgast og haft efni á. Vefsíðan www.whowhatwear.com Fatastíll Jessica Alba er tekin fyrir. Lifandi og litrík tískusíða Þeir sem eru að byrja í skóla, svo við tölum nú ekki um í nýjum skóla, eiga eflaust eftir að kynnast fullt af nýju fólki næstu daga. Það er ekkert að græða á því að vera feiminn og laum- ast með veggjum, talið við bekkjar- félagana, bjóðið góðan daginn, sýnið manngæsku og verið lifandi og áhugasöm um umhverfi ykkar. Það er aldrei að vita nema mann- eskjan á næsta borði verði besti vin- ur þinn, þú veist það ekki nema yrða á hana. Eða eins og R.L. Stevenson sagði: Vinur er gjöf sem þú gefur sjálfum þér. Endilega … Vináttan Gott er að eiga góða vini. … verið vinir HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 Mikið úrval af íþróttafötum fyrir krakka ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 49 39 3 02 /1 0 SKÓLAHREYSTI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.