Morgunblaðið - 20.08.2010, Side 32
32 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010
Nítjánda Grapevine Grassroots-
kvöldið verður haldið hátíðlegt
föstudaginn 20. ágúst með tón-
leikum og myndlistarsýningu.
Fram koma eftirfarandi: Dj. flug-
vél og geimskip, Ibbagoggur, Me-
gatrónik og Corvus. Búast má við
geigvænlegu stuði.
Músík og myndlist á
Grasrót Grapevine
Fólk
Fyrri stuttu var frumsýndur á Youtube nýr ís-
lenskur grínþáttur sem heitir Dead Drunk but
Trying. Eins og nafnið kannski gefur til kynna
gengur þátturinn út á það að keppendur leysa
það sem eiga að vera auðveldar þrautir og verk-
efni eftir að hafa innbyrt fyrirfram ákveðið
magn af áfengi og sér Bandaríkamaðurinn Brian
um að lýsa herlegheitunum fyrir áhorfendum.
Magnús Ingi Sveinbjörnsson kynnir og einn af
mönnunum á bakvið Dead Drunk but Trying
segir að stuttu eftir að þátturinn birtist hefði er-
lend sjónvarpsstöð falast eftir að nota efni úr
þættinum. Hann geti þó ekki gefið upp hvaða
stöð það væri fyrr en búið væri að sýna þáttinn.
„Þeir vildu nota brot úr Dead Drunk but Trying í
þátt sem sýnir allt það fyndnasta sem er í gangi á
netinu.“ Í fyrsta þætti af Dead Drunk but Trying
eigast við tveir keppendur, sem reyna setja sam-
an kommóðu á einni klukkustund eftir að hafa
drukkið sex bjóra og pela af vodka og eru til-
raunir þeirra til þess ansi skrautlegar.
„Þetta byrjaði þannig að Haukur, einn af þátt-
takendunum í fyrsta þættinum, var með tvær
Ikea-hillur sem hann var byrjaður að setja sam-
an en við stoppuðum hann því okkur langaði að
gera eitthvað fyndið með þær og þannig kvikn-
aði þessi hugmynd,“ segir Magnús. Upptökur á
næsta þætti fari fram um helgina og í næstu viku
verði teknir upp tveir aðrir þættir. Magnús segir
að nýr þáttur verði frumsýndur hálfsmánaðar-
lega á laugardagskvöldum á Youtube.
matthiasarni@mbl.is
Blindfullir en böðlast þó áfram
Kommóðan Verkefnið í fyrsta þættinum.
Það er óhætt að segja að te-
stósterónfnykurinn hafi fyllt öll vit
í bíósölum borgarinnar er hin óvið-
jafnanlega The Expendables var
frumsýnd í fyrradag. Útsendari
menningardeildar var staddur í
Laugarásbíói og ætla má að 95%
áhorfenda hafi verið af karlkyni.
Myndin gaf enda vel í hasarnum en
sérstök hróp og köll fékk Dolph
gamli Lundgren sem fór á miklum
kostum sem hinn skandinavíski
Gunnar eða „Gönner“ eins og Sly
og félagar kölluðu hann. Slógu
hjörtu Íslendinganna rækilega í
takt með þessum frænda okkar.
„Gönner“ fór á kostum
í Hinum fórnanlegu!
Jónas Sigurðsson og Ritvélar
framtíðarinnar halda tónleika í
Hveragerði í kvöld, svona fyrir þá
sem vilja gægjast út fyrir höfuð-
borgarsteina áður en Menningar-
nótt brestur á. Tónleikarnir hefjast
kl. 20.00 og hinn kersknislega titl-
aði „Robert the Roommate“ sér um
að hita mannskapinn upp.
Jónas Sigurðsson og
félagar í Hveragerði
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Söngkonan Stína August kemur
fram með hljómsveit sinni Nistu á
Nasa í kvöld en tekur auk þess lagið
með Jóhanni G. Jóhannssyni og
Jasstríói Bjössa Thor. Þá verður
einnig boðið upp á „jam session“ eða
spunastund í lauslegri þýðingu und-
irritaðs, en á slíkri uppákomu mega
djassleikarar stíga á svið og
„djamma“ eins og þá lystir, leika af
fingrum fram. Stína er menntuð
djasssöngkona en þenur þó radd-
böndin við aðrar tónlistartegundir
einnig. Hljómsveitina Nistu skipa
eiginmaður Stínu, Tómas Gunn-
arsson gítarleikari, Phil Coulombe
trommuleikari og Jerome Payette
bassaleikari.
„Þetta er hálfkanadísk, hálf-
íslensk rokkpopp, svolítið elektró
hljómsveit,“ segir Stína þegar hún
er beðin um að lýsa hljómsveitinni
Nistu. „Við erum samt öll djass-
menntuð,“ bætir hún við. Stína segir
býsna erfitt að lýsa tónlist sveit-
arinnar, í henni sé snertur af rokki
frá 8. áratugnum og elektrópoppi og
hún syngi bæði á íslensku og ensku.
Hljómsveitin flytur aðeins frum-
samið efni en hún var stofnuð fyrir
um tveimur árum í Kanada.
Auk þess að vera í Nistu er Stína í
elektródúóinu AXE.
Fernir tónleikar í viðbót
Það er fleira framundan um
helgina hjá Stínu því hún kemur
einnig fram á Menningarnótt á
morgun sem gestasöngvari með
Guitar Islancio kl. 15.45 að Vest-
urgötu 18 og Nista leikur svo í port-
inu á bakvið verslunina Nikita á
Laugavegi kl. 17. Þá tekur hún lagið
með Birni Thoroddsen og Guðmundi
Steingrímssyni trommuleikara í
Pennanum í Austurstræti kl. 21 og á
mánudaginn heldur hún djass-
tónleika kl. 22 í Venue.
Uppstrílaður, allra handa
djassspuni á Nasa í kvöld
Kósí Nista hin kanadísk-íslenska á góðri stund í ónefndu baðherbergi. Nista
treður upp á Nasa í kvöld og í Nikita-portinu á morgun.
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Ljósmyndarinn og grafíski hönn-
uðurinn Jóhann Kjartansson, eða
Jói eins og hann er oftast kallaður,
gefur út ljósmyndabók sína Jói de
Vivre á Menningarnótt. Bókin sam-
anstendur af fimm hundruð mynd-
um úr einkasafni Jóa og gerir hún
lífi hans síðustu fimm árin góð skil.
Kominn tími til
„Ég á svo mikið af myndum sem
ég hef ekki sýnt neinum þannig að
mér fannst vera kominn góður tími
til að gera þetta upp,“ segir Jói sem
hefur verið með myndavélina á lofti
frá unga aldri. „Ég var lengi vel
manískur á digital-vél en skipti yfir
í filmu. Þetta var rökrétt framhald
því maður vandar sig meira þegar
maður tekur á filmur. Ég tek á um
30 filmur á mánuði. Þetta er algjör
vitleysa peningalega séð en ég er
búinn að sitja á þessu eins og orm-
ur á gulli.“
Að sögn Jóa eru myndirnar í ljós-
myndabókinni fjölbreyttar enda
hefur hann komið víða við á síðustu
fimm árum. „Þær eru í rauninni af
öllu; landslagi, borgarlandslagi,
fólki, fólki að skemmta sér og svo
mætti lengi telja.“
Myndavélin ávallt með í för
-Hefurðu ferðast eitthvað um Ís-
land til að taka myndir?
„Já, en ég hef samt ekki farið
gagngert í einhvern ljósmyndaleið-
angur. Myndavélin fylgir mér, frek-
ar en að ég fylgi henni. Ef ég fór til
útlanda þá tók ég líka myndir þann-
ig að það kemur inn á milli. Ég fór
til dæmis tvisvar til New York í
þrjá mánuði í senn og tók myndir
þar.“
-Eru þá textar undir hverri mynd
sem útskýra nánar hvað þú varst að
gera á hverjum tíma?
„Nei, þetta er í raun krónólóg-
ískt. Ég tek bara fram hvar mynd-
irnar eru teknar. Huldar Breiðfjörð
rithöfundur skrifaði svo innganginn.
Hann hefur skrifað inngang að sýn-
ingu sem ég hélt árið 2007 svo hann
þekkir inn á minn stíl.“
Opinberun Jóhannesar
-Er ekki svolítið skrýtið að op-
inbera líf sitt svona fyrir almenn-
ingi?
„Jú, þetta er verður smá opinber-
un Jóhannesar,“ segir Jói og hlær.
-Nú hljóta vinir þínir og ætt-
ingjar að prýða allnokkrar myndir,
hvernig taka þeir þessu?
„Ég prufukeyrði þetta
þegar ég hélt ljós-
myndasýninguna Gleði-
bankinn í Kolaportinu
rétt eftir bankahrunið.
Þar var ég með um
100 hressar myndir
af fólki og enginn
kvartaði yfir því.
Það var rosalega
góð prufu-
keyrsla. Þetta er
ágætlega sak-
laust. Ég reyni að
velja myndir af fólki
sem ég er nokkuð viss um að það
verði ánægt með.“
Einnar nætur gaman
Jói ætlar svo sannarlega að gefa
ljósmyndabók sína út með pompi og
prakt en í tilefni útgáfunnar mun
hann halda ljósmyndasýningu í
versluninni KronKron á morgun kl.
16.
„Ég er búinn að prenta út allar
myndirnar í bókinni og þek einn
vegg með þeim. Svo ætla ég að vera
með tvo skjávarpa þannig að fólk
geti séð þær stærri. Bókin er þó að-
alatriðið, sýningin er eiginlega bara
einnar nætur gaman,“ segir Jói og
hlær við.
Um kvöldið kl. 20 verður svo
haldið veglegt útgáfuhóf og þangað
eru allir velkomnir að sögn Jóa. Þar
verður stuðinu haldið gangandi með
plötusnúðum og öðrum veglegum
tónlistaratriðum.
Myndavélin
fylgir Jóa
Kjartans
Gefur út ljósmyndabók Klárar 30
filmur á mánuði Sýning í KronKron
Aaaaaaa Jói Kjartans tekur ekki einungis myndir af vinum og ættingjum.
Á heimasíðu Jóa Kjartans gefur
ljósmyndarinn fólki örlítinn for-
smekk af ljósmyndabókinni Jói
de Vivre og ljósmyndasýning-
unni sem haldin verður á Menn-
ingarnótt.
Þar er að finna fjöldann allan
af myndum frá hinum og þess-
um stöðum, af hinu og þessu
fólki og dýrum sem eru að
gera hina og þessa hluti.
Blaðamaður gleymdi
auðveldlega stað og
stund er hann renndi yfir
myndaalbúmin sem
kölluðu fram þó-
nokkur bros.
Jói á netinu
JOI.IS