Morgunblaðið - 20.08.2010, Qupperneq 40
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 232. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Gagnrýnir DNA-rannsókn
2. Andlát: Guðrún Vilmundardóttir
3. Draumamark frá Ondo
4. Manninum sleppt úr haldi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Í bókinni Jói de Vivre er að finna
fimm hundruð ljósmyndir sem ljós-
myndarinn og grafíski hönnuðurinn
Jóhann Kjartansson hefur tekið und-
anfarin fimm ár. Útgáfu bókarinnar
verður fagnað annað kvöld. »32
Búinn að prenta allar
500 myndirnar
Sýning
myndlistar-
konunnar Elínar
Hansdóttur sem
stendur yfir í i8
Gallery var á
dögunum valin
ein af fimm
bestu listsýn-
ingum í heim-
inum af listavefsíðunni Art-
info.com.
Síðasti sýningardagur er á morg-
un, á Menningarnótt.
Ein af bestu listsýn-
ingum í heiminum
Tónlistarmaðurinn Valgeir Guð-
jónsson opnar sína fyrstu myndlist-
arsýningu í Slippsalnum á morgun
kl. 13. Á vormánuðum
2010 tók skapandi
atferli Valgeirs á sig
nýja mynd sem
braust fram í eld-
móði gagnvart formi
og litum og verða átta
myndverk af-
hjúpuð til
skoðunar á
sýningunni.
Sýningin Aðrir tónar
opnuð í Slippsalnum
Á laugardag Norðan 5-13 m/s og rigning á norðanverðu landinu, en annars bjartviðri.
Hiti 7 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.
Á sunnudag Norðan 8-15 m/s og skýjað að mestu en þurrt sunnanlands, en annars
staðar rigning og talsverð úrkoma á Norðausturlandi. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Almennt bjart á SV-landi, en annars skýjað að mestu og dálítil
væta með köflum. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast SV-lands.
VEÐUR
KR-ingar eru farnir að nálg-
ast efstu lið úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu eftir
fjórða sigurleikinn í röð.
Þeir lögðu Framara að velli,
2:1, í Vesturbænum í gær-
kvöld þar sem Kjartan
Henry Finnbogason skoraði
sigurmarkið á síðustu mín-
útu leiksins. Framarar hafa
ekki fengið stig á KR-
vellinum frá árinu 2000 og
eru að dragast niður í fall-
baráttu deildarinnar. »2-3
KR-ingar nálgast
enn efstu liðin
Hannes Jón Jónsson hefur verið skip-
aður fyrirliði þýska handknattleiks-
liðsins Hannover-Burgdorf fyrir kom-
andi keppnistímabil en lið hans leikur
í efstu deild í Þýskalandi. Margir ís-
lenskir leikmenn hafa verið fyrirliðar
liða sinna síðustu árin og
Hannes hefur nú
bæst í þann
hóp. »1
Hannes Jón skipaður
fyrirliði Burgdorf
Íslands- og bikarmeistarar FH töpuðu
dýrmætum stigum í baráttunni um
Íslandsmeistaratitilinn þegar þeir
sóttu Grindvíkinga heim í gærkvöld.
FH gat saxað talsvert á forskot ÍBV
og Breiðabliks en það voru Grindvík-
ingar sem sigruðu, 3:1, og komust
þar með hjá því að lenda í fallsæti
deildarinnar. Gilles Ondo skoraði tvö
marka Suðurnesjaliðsins. »3
Grindavík setti strik
í reikning FH-inga
ÍÞRÓTTIR
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
„Flug þetta er hið frækilegasta og
flugmönnunum og Flugfélaginu til
sóma,“ sagði í Morgunblaðinu eftir
að Catalina, flugbátur Flugfélags
Íslands, flaug fyrsta flug Íslend-
inga með farþega til Norðurlanda
hinn 21. ágúst 1945. Á morgun eru
því sextíu og fimm ár frá þessum
merku tímamótum í íslenskri flug-
sögu.
Magnús Guðmundsson flug-
maður flaug vélinni en hann er í
dag 94 ára gamall. Við komu sína
til landsins árið 1945 sagði hann í
samtali við Morgunblaðið: „Öllum
leið vel á ferðinni. Greinar og við-
töl um þetta flug okkar Íslendinga
birtust í flestum eða öllum Kaup-
mannahafnarblöðunum.“ Þá
greindi Morgunblaðið einnig frá
því að flugmennirnir hefðu farið á
skemmtistaðinn Tivoli í Kaup-
mannahöfn.
Sextíu og fimm árum síðar
Í gærkvöld hitti blaðamður
Morgunblaðsins Magnús á Reykja-
víkurflugvelli sextíu og fimm árum
síðar og hafði hann engu gleymt.
„Ég flaug tvær fyrstu ferðirnar á
Catalinu á milli Kaupmannahafnar
og Reykjavíkur. Þá flugum við frá
Reykjavík til Prestwick í Skotlandi
og þaðan til Kaupmannahafnar,“
segir Magnús sem er einn af
brautryðjendum í íslenskri flug-
sögu.
Magnús hlaut atvinnuflugmanns-
réttindi í Kanada 2. júlí 1943. Í
flugdagbók hans eru skráðir 24.487
flugtímar. Þá hefur Magnús flogið
þrjátíu og sjö mismunandi flug-
vélagerðum á atvinnuferli sínum
og starfað hjá fimm flugfélögum.
Á heimavelli
Þegar Magnús og blaðamaður
sátu að spjalli á Reykjavíkur-
flugvelli lenti DC-3 flugvélin Páll
Sveinsson, sem margir þekkja sem
Landgræðsluvélina, og ók í hlað.
Magnús flaug þeirri vél í áratugi
og átti ekki í nokkrum erfiðleikum
með að klifra upp háan og lóð-
réttan stálstigann þegar flugmenn
vélarinnar buðu honum um borð í
gærkvöld. Þegar Magnús settist í
flugstjórasætið var augljóst að
hann var á heimavelli enda teljast
skráðir flugtímar hans tæp þrjú ár
samfleytt.
Magnús lét af störfum sem at-
vinnuflugmaður vegna reglna sem
kváðu á um hámarksaldur. „Ég
hætti að fljúga sextíu og þriggja
ára. Það var framlengt rétt eftir að
ég hætti upp í sextíu og fimm ára.“
Aðspurður hvort hann finni fyrir
elli, sjóndepurð eða heyrnarmissi
svarar hann um hæl: „Nei, ekki
enn,“ og kímir.
Frækilegt flug öllum til sóma
65 ár frá fyrsta
farþegafluginu frá
Íslandi til útlanda
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Flugstjórinn Magnús Guðmundsson við stýrið. Hann flaug fyrsta farþegaflug Íslendinga til útlanda hinn 21. ágúst
1945. Þá var hann einnig flugstjóri Geysis sem brotlenti á Bárðarbungu á Vatnajökli hinn 14. september árið 1950.
Magnús Guðmundsson var flug-
stjóri á Geysi, DC-4 Skymaster-
flugvél, í hinni afdrifaríku ferð hinn
14. september 1950 þegar flug-
vélin brotlenti á Bárðarbungu á
Vatnajökli.
„Við vorum að fljúga frá Lúx-
emborg til Íslands. Það var mikil
lægð sem við ætluðum að reyna að
komast framhjá. Við héldum að við
værum að nálgast Vestmannaeyjar
þegar vélin skall í jörðina. Síðar
kom í ljós að við vorum langt fyrir
austan en ekki við Vestmanna-
eyjar,“ segir
Magnús sem
kveður rannsókn-
arnefnd ekki hafa
rannsakað slysið
á réttan hátt.
„Þeir sögðu
orsök slyssins
vera að við í
áhöfninni hefð-
um ekki hvílt
okkur nógu vel, við værum allir of
þreyttir. En ég veit vel að það var
veðrið sem olli slysinu.“
Veðrið olli flugslysinu
GEYSIR BROTLENTI Á BÁRÐARBUNGU ÁRIÐ 1950
Magnús
Guðmundsson