Morgunblaðið - 26.08.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.08.2010, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 6. Á G Ú S T 2 0 1 0  Stofnað 1913  198. tölublað  98. árgangur  –– Meira fyrir lesendur fylgir með Morgu nblaði nu í da g NÝ VARA BEINT FRÁ BÓNDA Í HVERAGERÐI DIETER LASER Í HLUTVERKI ILLMENNIS SALAN Á VESTIA EKKI VERRA EN FITUSOG 32VIÐSKIPTABLAÐGRÆNMETI OG FLEIRA 11 Fréttaskýring eftir Einar Örn Gíslason Morgunblaðið/Ernir Veður Mjög heitt hefur verið í sumar og fólk hefur getað gengið léttklætt úti.  Sala á heitu vatni frá Orkuveitu Reykjavíkur er um 6% minni í sum- ar en í fyrrasumar. Það sem af er árinu er salan 2,6% minni en í fyrra. Minni notkun á heitu vatni þýðir tekjusamdrátt hjá Orkuveitunni. Heildartekjur Orkuveitunnar af sölu á heitu vatni námu 6 millj- örðum í fyrra og ef reiknað er með 2,6% minni notkun á heitu vatni yfir árið þá minnka tekjur fyrirtækisins um 150 milljónir. Ástæðan fyrir minni notkun á heitu vatni er að mjög heitt hefur verið í sumar. Svokallaður jafngild- ishiti var 12,6 gráður í júní en 10,1 gráða í júní í fyrra. Í júlí var hitinn 13,8 gráður en 12,8 gráður í júlí í fyrra. egol@mbl.is Minni sala á heitu vatni vegna góðs veðurs í sumar „Ég skildi það þannig á flokksráðsfund- inum þar sem stjórnarsáttmálinn var samþykktur og þetta mál kom upp, og ég hef nú trú á því að flestir þarna hafi gert það, að það væri bara verið að at- huga hvað væri í boði og það yrði síðan borið undir þjóðina og eftir að það hefði verið gert yrði þetta ferli hafið,“ segir Arnar Sigurbjörnsson, formaður svæðisfélags Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Suð- urnesjum, um aðlögunarferlið að Evrópusamband- inu. Ólga er í grasrót VG vegna nýrra upp- lýsinga um aðildarviðræðurnar. „En ef staðan er sú að raunverulega sé byrjað á þessu ferli hljótum við að setjast niður og endurskoða afstöðu okkar,“ sagði Arnar og sagðist treysta formanni flokksins til þess að halda utan um málið. Gísli Árnason, formaður vinstri grænna í Skagafirði, er ekki síður ósáttur við slíka þróun mála. „Mín afstaða er alveg klár í þessum efnum. Mér hugnast það ekki ef fara á í það að breyta stofn- unum og löggjöf landsins eftir einhverjum samningi áður en hann hefur verið gerður og samþykktur.“ Hann segir að þeim fjármunum sem varið verði í slíka aðlögun væri betur varið í velferðarkerfið. „Það er mjög skýrt af minni hálfu að það eigi ekk- ert að vera að keyra eitthvað svona í gegn nema fyr- ir liggi að ætlunin sé að ganga í Evrópusambandið,“ segir Ásmundur Páll Hjaltason, formaður vinstri grænna á Austfjörðum. Vilja endurskoða stöðuna  Mikil óánægja er í grasrót vinstri grænna með að aðlögun fari fram að Evrópu- sambandinu áður en fyrir liggur að samþykkt hafi verið að ganga í sambandið M Ísland er í aðlögunarferli »4 Morgunblaðið/Sverrir Öryggi Göngin stytta hringveginn um 16 kílómetra og er kostnaður áætlaður nálægt 9 milljörðum kr. Forsvarsmenn lífeyrissjóða eru ekki jafnbjartsýnir og samgönguráð- herra á að niðurstaða náist strax í næsta mánuði um þátttöku sjóðanna í fjármögnun stórframkvæmda í vegagerð. Kristján L. Möller sam- gönguráðherra hefur haldið því fram að ákvörðun þurfi að liggja fyrir í síðasta lagi í september. Viðræður ganga ágætlega en enn er uppi óvissa um ýmis atriði varð- andi arðsemi og áhættu, sérstaklega vegna áforma um Vaðlaheiðargöng. Ekki síst hversu hátt veggjaldið þarf að vera og hvað gera má ráð fyrir mikilli umferð um göngin en þau stytta hringveginn um 16 km. Í næsta mánuði á að stofna félag um gerð og rekstur ganganna sem afli allra tekna með innheimtu veggjalda til að greiða niður lán á 25 ára lánstíma. Nú er ráðgert að heild- arkostnaður við Vaðlaheiðargöng gæti orðið nálægt 9 milljörðum kr. Mismunandi útreikningar hafa verið gerðir og hefur verið rætt um að meðalfjárhæð vegtollsins þyrfti að vera 1.300 kr. miðað við að allt að 90% ökumanna fari um göngin í stað þess að aka yfir Víkurskarð. Óvissa um umferð og vegtoll  1.300 kr. veggjald miðað við að 90% bíla fari um göngin MLifnar yfir »18 Ökumenn hafa vafalaust orðið varir við þyngri umferð í Reykjavík undanfarna morgna en nú eru skólar víðsvegar um borgina að hefja starf sitt. Því fylgir aukinn umferðarþungi, enda þarf fólk að komast til mennta á einn eða annan hátt. Reykjavíkurborg telur bílafjölda á Sæbraut við Höfða, Kringlumýrarbraut í Fossvogi og í Ártúnsbrekkunni. Greinileg fjölgun hefur orðið á bílum sem fara þar um. Búist er við að há- punktinum verði náð kringum mánaðamótin. Til að létta morgunumferðina brá Háskólinn í Reykjavík á það ráð að seinka fyrstu tímum sín- um á morgnana til klukkan 8:30. Fyrstu tímar í Háskóla Íslands hefjast kl. 8:20 og er vonast til að þetta dreifi umferðinni. skulias@mbl.is Akademískur umferðarþungi í borginni við sumarlok Morgunblaðið/Eggert  Náttúrufræðistofnun Íslands hef- ur áhuga á að eignast beina- grindina úr steypireyði sem rak á land við eyðibýlið Ásbúðir á Skaga á dögunum. Dýrið er 21,8 metrar á lengd. Guðmundur Guðmundsson hjá stofnuninni segir afar sjaldgæft að slíka skepnu reki hér á land. „Við ákváðum að bregðast strax við enda er þetta í raun eina leiðin til að eignast sýnishorn af svona skepnu. Þær eru alfriðaðar.“ »8 Náttúrufræðistofn- un vill beinagrind  Útgjöld til landbúnaðarmála verða að lækka á næsta ári eins og aðrir útgjaldaliðir ríkisins, að sögn Steingríms J. Sigfússonar fjár- málaráðherra. Bændur standa því frammi fyrir 9% lækkun en bein- greiðslur til þeirra eru stærsti lið- urinn. Bændasamtökin hafa mótmælt þessari skerðingu. Ríkið hafi gert samning við bændur á síðasta ári og við hann verði að standa. „Við höfum mótmælt þessari kröfu og bent á að samningurinn hafi farið í atkvæðagreiðslu bæði á Alþingi og meðal bænda. Allar þessar for- sendur lágu fyrir þegar samning- urinn var gerður,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður BÍ. »14 Bændur mótmæla 9% skerðingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.