Morgunblaðið - 26.08.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2010
Það var eftirminnilegt þegarstækkunarstjórinn, skærasta
vonarstjarna Samfylkingarinnar á
meginlandinu, sussaði á Össur
Skarphéðinsson á sameiginlegum
blaðamannafundi í Brussel. Sá síð-
arnefndi var þá að blaðra um allar
varanlegu undanþágurnar sem
væru í pökkunum sem þjóðinni er
ætlað að kíkja í, þegar evrópsku jól-
in verða loks hringd inn.
En áður hafðistækkunarstjór-
inn hlustað á sama
Össur segja að ís-
lenska ríkisstjórnin
„stæði þétt á bak við
umsókn Íslands að
Evrópusamband-
inu“.
Veit nokkur hvern-ig stækk-
unarstjórinn hefur
það núna?
Utanríkisráðuneytið hlýtur aðhafa sagt stækkunarstjóranum
það sem haft var eftir öðrum
flokksforingja ríkisstjórnarinnar.
Steingrímur J. sagði í þessariviku: „Það er ekki þannig að
það sé stefna þessarar ríkisstjórnar
að sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu og þaðan af síður að ganga
í Evrópusambandið.“
Þarna er Steingrímur að tala umríkisstjórnina sem „stendur
þétt á bak við umsókn Íslands að
Evrópusambandinu“.
Staksteinar, sem eru, eðli sínusamkvæmt, harðir af sér, eru
nokkuð vankaðir eftir þessa mögn-
uðu yfirlýsingu Steingríms.
Og hvernig halda menn þá aðstækkunarstjóranum líði?
Steingrímur J.
Stækkunarstjóranum brugðið
Össur S.
Veður víða um heim 25.8., kl. 18.00
Reykjavík 12 heiðskírt
Bolungarvík 8 skýjað
Akureyri 10 skýjað
Egilsstaðir 8 súld
Kirkjubæjarkl. 12 léttskýjað
Nuuk 7 alskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 16 skýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 15 léttskýjað
Helsinki 16 léttskýjað
Lúxemborg 18 skýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 15 léttskýjað
Glasgow 16 léttskýjað
London 13 skúrir
París 22 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 20 skýjað
Vín 23 léttskýjað
Moskva 21 skýjað
Algarve 31 heiðskírt
Madríd 35 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 30 heiðskírt
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 20 alskýjað
New York 19 skúrir
Chicago 23 léttskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:53 21:07
ÍSAFJÖRÐUR 5:49 21:21
SIGLUFJÖRÐUR 5:31 21:05
DJÚPIVOGUR 5:20 20:39
Verð í vörulista IKEA fyrir næsta vetur
breytist í heildina lítið á milli ára að
þessu sinni, að sögn Þórarins Ævars-
sonar, framkvæmdastjóra IKEA á
Íslandi. „Sumt hækkar og annað
lækkar, þetta veltur allt á innkaupa-
verði til okkar og svo áætlun sem
við gerum fyrir árið um hversu
margir hlutir seljist,“ segir Þórarinn
og nefnir sem dæmi að leðursófar, sem einungis
seljist í 5-10 eintökum yfir árið, muni hækka um 20-
30 þúsund krónur en verð á hlutum eins
og bókahillum, sem seljist í 200 eintök-
um á viku, standi í stað. Smávaran sé
heldur að lækka, enda seljist mest af
henni.
IKEA gefur út vörulista í ágúst á
hverju ári og lofar að verð muni ekki
hækka þess á milli. Verslunin á Íslandi hef-
ur getað staðið við það loforð í ár en þurfti
að hækka allt verð um 20% í nóvember árið
2008 vegna efnahagshrunsins. Verð hækkaði svo
aftur þegar vörulistinn 2009 var gefinn út en nú
stendur verðlagið í heild stað, að sögn Þórarins.
Hins vegar hafi verði fyrir vörulistann verið skil-
að inn í lok apríl, áður en krónan tók að styrkjast,
því listinn er eitt stærsta prentverk í heimi.
„Við ákváðum að veðja á að gengið myndi hald-
ast en sáum auðvitað ekki fyrir þessa styrkingu
krónunnar. Vonandi heldur styrkingin áfram, eða
stendur í stað,“ segir Þórarinn og finnst líklegt að
verð í vörulistanum verði hámarksverð en einstaka
vörur lækki á tímabilinu. onundur@mbl.is
Litlar verðhækkanir í vörulista
IKEA ákvað verð í listann áður en krónan styrktist Verð gæti lækkað aftur
Steinn Þ. Steinsson,
fyrrverandi héraðs-
dýralæknir, lést hinn
24. þessa mánaðar, 79
ára að aldri.
Hann fæddist í
Reykjavík hinn 4.
febrúar 1931, sonur
hjónanna Þorkels
Steinssonar og Marg-
aret (Ritu) Steinsson,
f. Ritchie, en hún var
frá Pennan í Skot-
landi.
Steinn varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1952. Á
menntaskólaárunum lék hann í
Herranótt en stundaði einnig
knattspyrnu af kappi. Hann varð
fjórfaldur Íslandsmeistari með
meistaraflokki KR á „gullaldarár-
unum“ milli 1948 og 1952 og hafði
áður orðið Íslandsmeistari í öllum
yngri flokkum.
Veturinn 1952-1953 stundaði
Steinn nám í læknisfræði við Há-
skóla Íslands, en haustið 1953 hélt
hann til Kaupmannahafnar og hóf
þar nám í dýralækningum.
Eftir lokaprófið árið 1959 var
Steinn aðstoðardýralæknir hjá
Jóni Pálssyni á Selfossi um skeið
en hélt þá til Kaupmannahafnar á
ný og starfaði við almenna sýkla-
fræði við Det Veteri-
nære Serumlabora-
torium.
Árið 1960 var hann
skipaður héraðs-
dýralæknir í Skaga-
firði. Því starfi
gegndi hann í tæp 30
ár en árið 1989 var
honum veitt embætti
héraðsdýralæknis í
Gullbringu- og Kjós-
arsýslu sem hann
sinnti til ársins 1999.
Hann stóð að stofnun og byggingu
Dýraspítalans í Víðidal og vann
þar í hlutastarfi um nokkurra ára
skeið, og þar lauk hann farsælum
starfsferli sínum.
Steinn var annálaður dýralækn-
ir, ekki síst fyrir lækningar á
kúm, kindum og hrossum. Þá
hafði hann yndi af útiveru og
veiðiskap.
Kona Steins var skólasystir
hans úr menntaskóla, Þorgerður
Friðriksdóttir, f. 1932. Þau eign-
uðust fjögur börn. Þorgerður lést
um aldur fram árið 1983. Vinkona
Steins hin síðari ár var Bryndís
Guðmundsdóttir.
Steinn verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 1.
september kl. 13.
Steinn Þ. Steinsson
dýralæknir
Andlát
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Steypireyður fannst í flæðarmálinu
við eyðibýlið Ásbúð á Skaga á
mánudag. Fornleifafræðingar frá
Byggðastofnun Skagafjarðar fundu
skepnuna. Hún er um 21,8 metrar
að lengd og hefur væntanlega verið
dauð um nokkurn tíma að sögn Jac-
obs Kasper, sérfræðings hjá Haf-
rannsóknastofnun, sem vann að því
í gær að ná sýnum úr dýrinu.
Að sögn Guðmundar Guðmunds-
sonar, staðgengils forstjóra Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands, hefur
stofnunin áhuga á því að eignast
beinagrindina úr skepnunni. „Við
höfum áhuga á að fá beinagrindina
og hafa hana svo til sýnis á ein-
hverjum stað sem rúmar svona
grip. Við töldum rétt að bregðast
við strax enda er þetta í raun eina
leiðin til að eignast sýnishorn af
svona hval – þeir eru alfriðaðir.“
Guðmundur segir jafnframt að
afar sjaldgæft sé að steypireyði
reki á land. „Þetta hefur gerst hér á
landi áður en ekki á síðustu áratug-
um, það er alveg ljóst.“
Hvalreki Steypireyður er stærsta dýrategund sem hefur lifað á jörðinni.
Hvalurinn getur orðið um 30 metra langur og 150 tonn að þyngd.
Vilja beinagrind úr
steypireyði til sýnis