Morgunblaðið - 14.09.2010, Page 14
teldi að félagið hefði ekki verið
greiðslufært í mars 2008, þegar ekki
var greitt af skuldabréfaflokki sem
var á gjalddaga. Raunar getur verið
erfitt að úrskurða hvort félag er
greiðslufært eða ekki, þegar sífellt er
endurfjármagnað með nýjum lánum,
þrátt fyrir að lítið sem ekkert reiðufé
sé fyrir hendi til að standa skil á
skuldbindingum. Um þetta atriði
snýst, meðal annars, ágreiningur
þrotabús Baugs og Fjárfestinga-
félagsins Gaums, um söluna á Högum
til 1998 ehf., sem var að mestu í eigu
Gaums.
Áfram keypt meira
Þrátt fyrir að veruleg áhöld séu
uppi um stöðu Baugs allt aftur til árs-
byrjunar 2008, var ekki að sjá að
stjórnendur félagsins hygðust draga
saman seglin. Þannig kom fram að
Baugur hefði boðið í bresku verslana-
keðjuna Moss Bros í febrúar 2008.
Fram kom í fréttum að félagið hygð-
ist greiða jafnvirði 5,4 milljarða
króna fyrir fyrirtækið, miðað við þá-
verandi gengi krónunnar. Síðar um
haustið, örskömmu fyrir hrun bank-
anna, reyndi Baugur að kaupa
bresku verslanakeðjuna Woolworths
á 100 milljónir punda.
Jón Ásgeir Jóhannesson sagði í
eiðsvörnum vitnisburði sínum fyrir
dómstólum í Bretlandi að í október
2008 hefðu skuldir Baugs verið 920
milljónir punda umfram eignir.
Eignir líklega ofmetnar
Stjórnendur Baugs sögðu stöðu félagsins sterka allt fram að endanlegu hruni
bankanna Deilt um hvort félagið hafi verið greiðslufært snemma árs 2008
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2010
STUTTAR FRÉTTIR ...
● Flótti fjármagnseigenda í skuldabréf
heldur áfram, ef marka má tölur um
veltu á skuldabréfamarkaði í gær. Alls
nam veltan með ríkis- og íbúðabréf
25,55 milljörðum króna í gær og
hækkaði Skuldabréfavísitala GAMMA
um 0,77 prósent og endaði í 211,58
stigum. Verðtryggði hluti vísitölunnar
hækkaði um 0,98 prósent og hefur
hækkað um 4,07 prósent á einni viku
og um 11,07 prósent á einum mánuði.
Óverðtryggði hluti vísitölunnar
hækkaði um 0,23 prósent í gær, en á
einni viku hefur hann hins vegar lækk-
að um 0,05 prósent. Má draga þá
ályktun að fjárfestar hafi áhyggjur af
verðbólguþróun í náinni framtíð og
vilji festa fé sitt í verðtryggðum bréf-
um.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
hækkaði um 0,49 prósent í ríflega 19
milljóna króna viðskiptum í gær. Bréf
Össurar hækkuðu um 1,63 prósent,
en bréf Marels lækkuðu um 0,74 pró-
sent, Eikar banka um 0,72 prósent og
BankNordik um 0,71 prósent. Lokagildi
Úrvalsvísitölunnar var 963,08 stig.
bjarni@mbl.is
Áfram heldur skulda-
bréfavísitalan að hækka
● Rapparinn góð-
kunni Jay-Z, sem
vakti athygli í fjár-
málaheiminum fyr-
ir nokkrum árum
fyrir að taka ein-
hliða upp evru í
myndbandi sínu,
hefur lýst yfir
áhuga á því að
kaupa hlut í enska
knattspyrnufélaginu Arsenal. Jay-Z
segist, í samtali við Orange News, hafa
haldið upp á félagið síðan Thierry Henry
spilaði fyrir þess hönd. Hann segist
munu láta til sín taka, verði af fjárfest-
ingunni. „Við (Jay-Z og eiginkonan,
sönggyðjan Beyoncé) myndum þurfa
að dvelja mun meira í London. Bey veit
um áhuga minn á íþróttum og hefur
lengi verið kunnugt um áhuga minn á
Arsenal,“ segir rapparinn.
„Ég hef almennt engan áhuga á að
vera „aftursætis-fjárfestir“. Ég vil vera í
stjórninni og taka þátt í ákvörðunum,“
bætir hann við. ivarpall@mbl.is
Jay-Z vill hlut í knatt-
spyrnufélaginu Arsenal
Jay-Z
● Ótti við-
skiptavina Kabul
Bank í Afganistan
um framtíð bank-
ans leiddi til blóð-
ugra átaka þeirra
við öryggissveitir
fyrir utan útibú
bankans í Kabúl
fyrir helgi.
Ríflega fimm
hundruð rík-
isstarfsmenn, þar á meðal lög-
reglumenn, hópuðust saman fyrir utan
bankaútibúið til að taka út launin sín
fyrir langa fjögurra daga helgi. Öryggis-
lögreglumenn beittu, að margra mati,
óhóflegu ofbeldi til að halda fólkinu í
burtu og var einn ljósmyndari laminn í
andlitið.
Staða bankans hefur veikst enn eftir
að tveir framkvæmdastjórar sögðu af
sér eftir að í ljós kom að bankinn tapaði
háum fjárhæðum á lánum til Dúbaí.
Átök við Kabúlbanka
Kabúl Vörður við
bankann í Kabúl.
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Raunvaxtastig á Íslandi er of hátt
miðað við kreppuástandið, að mati
Más Guðmundssonar seðla-
bankastjóra. Kom þetta fram í við-
tali við Má fyrir Reuters-fréttastof-
una sem tekið var í Basel í Sviss.
Raunvextir á Íslandi eru nú um
3,5 prósent, miðað við að stýrivext-
ir séu nú ríflega sex prósent og
verðbólgumarkmið upp á 2,5 pró-
sent og telur Már að svigrúm sé
fyrir frekari vaxtalækkanir í fram-
tíðinni.
Már sagði jafnframt að til greina
kæmi að lækka kröfur um 16 pró-
senta eiginfjárhlutfall íslenskra
banka þegar aðstæður nálguðust
það sem eðlilegt gæti talist. Hlut-
fallið yrði þó hærra en þau sjö pró-
sent sem nýsamþykktar alþjóð-
legar reglur gerðu ráð fyrir.
Hið háa eiginfjárhlutfall, sem ís-
lensku bankarnir byggju við, hefði
verið hugsað sem öryggisnet til að
bregðast við ófyrirséðum áföllum.
Dómur Hæstaréttar í gengisl-
ánamálinu hefði verið slíkt áfall.
Sagði hann að hægt væri að skoða
slökun á eiginfjárkröfunni þegar
málin hefðu skýrst betur í nóv-
ember. Þá yrðu fleiri dómar fallnir
og eftirlitsaðilar búnir að ljúka við
úttekt á íslenska bankakerfinu.
Vextir hér of háir
miðað við aðstæður
Til greina kemur að draga úr kröf-
um um eiginfjárhlutfall banka
Morgunblaðið/Ernir
Vextir Már Guðmundsson segir svigrúm til frekari vaxtalækkana hér.
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+0+-+
++1-2+
32-3+4
+/-+,
+4-121
++.-/0
+-5/05
+,0-24
+.2-.4
++,-0,
+0+-.1
++1-51
32-31,
+/-334
+4-1.3
++4-5
+-1231
+,0-./
+.2-/0
32.-53++
++0-+.
+0+-/0
++1-4,
32-551
+/-303
+4-.
++4-43
+-124.
+,/-+3
+.+-1
Geta endurskuldsett sig
„Ég myndi áætla að safn Baugs skilaði um 500 milljónum
punda í EBITDA [hagnaður fyrir skatt, fjármagnsliði og af-
skriftir] á ári og væri skuldsett fyrir rúmlega tvisvar sinn-
um það að meðaltali. Ég held að það sé óhætt að fullyrða
það að staða okkar í Bretlandi hefur aldrei verið sterkari
en hún er núna,“ sagði Gunnar Sigurðsson, forstjóri
Baugs, í samtali við Viðskiptablaðið 23. janúar 2008.
Gunnar sagði jafnframt í samtali við Stöð 2 í apríl sama
ár, að endurskipulagning félagsins, sem fól í sér
sölu eigna milli tengdra félaga, væri ekki til
þess að fegra stöðu félagsins. Uppbygging
félagsins í skugga Baugsmálsins, hefði
„tekist gríðarlega vel til,“ og að Baugur
væri vel statt félag. Í júlí sama ár seldi
Baugur allar sínar innlendu eignir, og til-
kynnt var að heimilisfesti félagsins skyldi
flytjast til útlanda.
thg@mbl.is
„Staðan aldrei sterkari“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfuðstöðvar Jón Ásgeir Jóhannesson sagði í eiðsvörnum vitnisburði að í
október 2008 hefðu skuldir Baugs verið 920 milljónir punda umfram eignir.
FRÉTTASKÝRING
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Svo virðist sem umfangsmikil endur-
skipulagning Baugs á árinu 2008 hafi
aðallega verið til þess fallin að fresta
hinu óumflýjanlega – gjaldþroti fé-
lagsins. Skiptastjóri þrotabús félags-
ins hefur höfðað fjölda riftunarmála á
ráðstöfun eigna Baugs áður en félag-
ið var tekið til gjaldþrotaskipta. Sal-
an á Högum til 1998 ehf. er meðal
annars talin hafa farið fram á þeim
tímapunkti er félagið var þegar orðið
ógjaldfært – það er að segja, eignir
félagsins dugðu ekki fyrir skuldum.
500 milljón punda eigið fé
Morgunblaðið hefur undir höndum
hálfsársuppgjör Baugs fyrir árið
2008, en reikningurinn er ekki und-
irritaður af endurskoðanda. Stjórn
félagsins samþykkir hins vegar
reikninginn 7. október 2008. Sam-
kvæmt reikningnum voru skuldir fé-
lagsins þá tæplega 1,3 milljarðar
punda, en eignir tæplega 1,8 milljarð-
ar punda. Eigið fé félagsins er því
bókfært 500 milljónir punda um mitt
ár, en þar af er víkjandi lán 166 millj-
ónir punda og yfirverð hlutafjár 133
milljónir punda. Handbært fé Baugs
um mitt ár 2008 var rúmlega 14 millj-
ónir punda, eða 2,2 milljarðar króna.
Heimildir Morgunblaðsins herma að
þrotabú Baugs telji eignir í mörgum
tilfellum stórlega ofmetnar í efna-
hagsreikningi félagsins, sem orsaki
ógjaldfærni félagsins. Þar af leið-
andi hafi stjórnendum ekki verið
heimilt að selja Haga úr fé-
laginu á þessum tíma.
Fram kom í Morgun-
blaðinu 2. febrúar síð-
astliðinn að þrotabúið
„Það sem tók kannski tvo klukkutíma að fá afgreitt í
bankakerfinu, hvort sem var hér heima eða erlendis,
fyrir ári eða svo, tekur líklega um tvær vikur í dag að
fá í gegnum kerfið og því er það miklu meiri vinna og
tími sem fer í fjármögnun og endurfjármögnun fyr-
irtækja, en gerði áður. Blessunarlega þá eru rekstr-
arfélögin okkar mjög lítið skuldsett, þannig að um
leið og birtir til á þessum markaði, þá hafa þau tæki-
færi til þess að endurskuldsetja sig og
borga arð til móðurfélagsins,“ sagði
Jón Ásgeir Jóhannesson í samtali við
Morgunblaðið 29. júní 2008. „[É]g tel
alveg ljóst að margir eigi eftir að
heltast úr lestinni á næstu vikum og
mánuðum, en við erum alveg stað-
ráðnir í að vera ekki í þeim hópi,“
sagði Jón í sama viðtali.
thg@mbl.isJón Ásgeir
Jóhannesson
Gunnar
Sigurðsson