Morgunblaðið - 14.09.2010, Blaðsíða 20
20 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2010
✝ Haukur Haralds-son mjólkurfræð-
ingur fæddist á Húsa-
vík 17. september
1928. Hann lést á
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyrar 4. september
2010.
Foreldrar hans
voru Ásdís Baldvins-
dóttir, f. 30. okt. 1902,
d. 27. júlí 1989, og
Haraldur Jóhann-
esson, f. 1. sept. 1898,
d. 31. des. 1990. Syst-
kyni Hauks voru Jó-
hannes, f. 16. apríl 1922, d. 31. mars
2002, Baldvin, f. 8. júlí 1924, d. 5.
júlí 1943, Sigurður, f. 30. jan. 1926,
og Kristín, f. 14. júní 1932.
Haukur kvæntist 1. júlí 1951
Huldu Karlsdóttur frá Gríms-
stöðum á Fjöllum, f. 1. júlí 1926, d.
27. nóv. 1985. Börn þeirra eru
Guðný María Hauksdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 13. sept. 1951.
Hennar maki er Teitur Bergþórs-
son kennari, f. 23. ágúst 1953. Þau
búa í Reykjavík. Dætur þeirra, 1)
Hulda, f. 7. okt. 1985, maki Elís
Hólm Þórðarson, f. 25. maí 1983.
Dóttir Huldu er Nadía Sól, f. 29.
Gunnar, f. 23. nóv. 1950, maki Birg-
itta Lúðvíksdóttir, f. 23. júlí, 1962.
b. Steinn Oddgeir, f. 22. maí 1954,
maki Áslaug Ólöf Stefánsdóttir, f.
26. okt. 1959. c. Sigmundur, f. 16.
des. 1958, maki Margrét Jós-
efsdóttir, f. 7. febr. 1959, d. 14.
ágúst 2009. d. Ingi Rúnar, f. 21. okt.
1960, maki Hildur Salína Ævars-
dóttir, f. 25. sept. 1973. e. Guð-
mundur, f. 14. apr. 1967, maki
Bryndís Ýr Viggósdóttir, f. 19. júní
1967. Fyrri maður Maríu Sigríðar
var Sigurjón Steinsson, ráðunaut-
ur, f. 2. janúar 1927, d. 23. mars
1972.
Haukur ólst upp á Húsavík. Út-
skrifaðist sem gagnfræðingur 1947
og mjólkurfræðingur 1956. Hann
byrjaði feril sinn hjá Mjólk-
ursamlagi KÞ á Húsavík við upp-
byggingu þess árið 1947 og vann
þar samfellt í fimmtíu og eitt ár,
lengst sem verkstjóri. Einnig var
hann slökkviliðsstjóri til margra
ára. Hann var virkur félagi í Lions-
hreyfingunni, söng um árabil í
Karlakórnum Þrym og nú síðast í
Kór eldri borgara á Akureyri.
Haukur átti alla tíð bæði kindur og
hross sér til ánægju. Haukur flutti
til Akureyrar árið 2000.
Útför Hauks verður gerð frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 14. september
2010, og hefst kl. 10.30. Jarðsett
verður á Húsavík.
des. 2004. 2) María, f.
28. apr. 1988. Dóttir
Guðnýjar er Björg
Arnþórsdóttir, f. 3.
sept. 1973. Dóttir
Teits er Hrund Teits-
dóttir, f. 5. nóv. 1977.
Jóhannes Haukur
Hauksson mjólk-
urfræðingur, f. 27.
maí 1962, kjörsonur.
Kona 1 Sigríður
Árnadóttir, f. 2. jan.
1963. Synir þeirra eru
a. Árni Haukur, f. 30.
okt. 1983, b. Ingibjörn
f. 26. júlí 1989. Kona 2 Ásdís Krist-
rún Melsteð húsmóðir, f. 5. apr.
1974. Þau búa í Búðardal. Börn
þeirra, a. Elín Huld, f. 18. nóv. 1997,
b. Sigrún Ósk, f. 28. maí 2001, c.
Haukur Atli, f. 17. sept. 2007. Sonur
Jóhannesar er Jóhannes Haukur, f.
26. febr. 1980, maki Rósa Björk
Sveinsdóttir, f. 7. maí 1980. Dóttir
þeirra er Ólöf Halla, f. 21. nóv.
2008. Sonur Ásdísar er Aron Snær
Melsteð, f. 12. ágúst 1993.
Hinn 17. september 1988 kvænt-
ist Haukur, Maríu Sigríði Þórð-
ardóttur frá Akureyri, f. 18. maí
1931. Hennar synir eru, a. Þórður
Elsku Haukur minn, þú komst
eins og sólargeisli inn í líf mitt fyrir
23 árum þegar ég var búin að vera
ekkja í 15 ár og þú búinn að missa
þína konu. Þú féllst strax svo vel inn í
mína fjölskyldu, allir dáðu þig og
barnabörnin dýrkuðu afa sinn. Við
áttum saman yndisleg ár bæði í leik
og starfi og ferðuðumst mikið bæði
innanlands og til Evrópu og Amer-
íku, og eru þessar ferðir ógleyman-
legar. Við nutum þess að dansa sam-
an, einnig er ég minnug þess hve vel
söngur þinn hljómaði. Við byggðum
okkur sumarhús og ræktuðum gróð-
ur, í Hólsbúð áttum við margar ynd-
islegar stundir við hin ýmsu tækifæri
með fjölskyldu okkar og vinum. Og
nú síðast fengum við okkur húsbíl og
áttum þar margar ljúfar stundir
saman í góðra vina hópi. Fyrir allt
þetta vil ég þakka þér elsku vinur.
Far þú í friði.
Guð blessi minningu þína.
Þín eiginkona
Sigríður.
Elsku Haukur. Við vorum svo lán-
söm að fá þig inn í fjölskylduna okk-
ar fyrir meira en 20 árum þegar þú
og mamma kynntust. Við hefðum
ekki getað fengið betri fóstra,
tengdapabba, afa og langafa en þig.
Það er ekki orðum aukið að þú hafir
verið einstakur maður, ljúfmennska,
glaðværð og réttsýni var eitt af því
sem einkenndi þig. Eitt af sérkenn-
um þínum í huga okkar allra er þeg-
ar þú settir höndina á loft, hallaðir
höfði, brostir út í annað og sagðir
„hei“, en þannig heilsaðir þú gjarnan
og allir upplifðu sig sérstakan í sam-
vist þinni.
Börn voru yndi þitt, þú elskaðir að
atast í þeim og þeim leiddist það
heldur ekki því fyrir þeim varst þú
besti afi í heimi. Minnisstætt er þeg-
ar þau sóttu formlega um að fá að
kalla þig afa og erum við viss um að
óskin gladdi ekki síður þitt hjarta en
þeirra. Við erum svo lánsöm að hafa
fengið að njóta samvista við þig í
þessi ár. Allar stundirnar á Gríms-
stöðum, síðan við byggingu sum-
arbústaðarins, ferðalögin, jólaboðin,
afmælisveislurnar og svona mætti
lengi telja, alltaf mættir þú glaður og
hress.
Það var yndislegt að vera með
ykkur hjónunum, það geislaði af ykk-
ur og er óhætt að segja að þið hafið
bæði fengið stóra vinninginn þegar
þið hittust. Þið létuð marga drauma
ykkar rætast, meðal annars í vetur
er þið keyptuð ykkur húsbíl, brun-
uðuð ferð eftir ferð í sumar með góð-
um félögum og erum við sannfærð
um að mamma yljar sér við þær
minningar. Fyrir allt sem þú hefur
gefið okkur og ekki síst móður okkar
erum við óendanlega þakklát. Guð
geymi þig og blessi elsku Haukur.
Þórður, Oddgeir, Sigmund-
ur, Ingi Rúnar, Guðmundur
og fjölskyldur þeirra.
Elsku Haukur. Mig langar að
minnast þín í nokkrum orðum.
Það er allt svo tómlegt núna þegar
þú ert farinn en ég er svo lánsöm að
eiga margar góðar minningar um
þig. Minningar þar sem við fjölskyld-
an vorum saman með þér og Siggu í
hinu og þessu, allar stundirnar sem
við áttum saman í Hólsbúð, þar var
nú oft gaman, og vorum við t.d. alltaf
þar á páskunum þar til á þessu ári,
þar sem Hólsbúð var seld.
Þó svo að það væri nú einhver kyn-
slóðarmunur á okkur gátum við samt
alltaf talað saman um alla skapaða
hluti og vorum mjög gjarnan sömu
skoðunar, það var svo gott að ræða
við þig, þú vissir svo ótal margt. Þeg-
ar við Sigga vorum að scrabbla í
Hólsbúð var það ósjaldan sem við
leituðum til þín og gátum við þá flett
upp í þér eins og orðabók, þú vissir
svo mikið um mörg gömul orð og
stundum þegar við héldum að við
værum að bulla eitthvað gast þú fært
rök fyrir orðinu og sagt að það væri
rétt.
Þú varst líka alveg einstaklega
greiðvikinn, ef einhvern vantaði eitt-
hvað varst þú alltaf boðinn og búinn
að rétta hjálparhönd. Þegar mig
vantaði pössum fyrir krakkana varst
þú alltaf tilbúinn að hjálpa til.
Þú varst svo einstaklega glaðvær
og hress og hlýr, ég minnist þess
ekki að hafa nokkurn tímann séð þig
í vondu skapi. Af öllum þeim minn-
ingum sem ég á um þig er mér minn-
isstæðast þegar ég hitti þig fyrst, en
það var á Reykjaheiðarveginum árið
1995. Þá var ég rétt komin í fjöl-
skylduna og var komin til Húsavíkur
á undan Inga Rúnari, hann sagði
mér að fara á Reykjaheiðarveginn og
þú yrðir heima og tækir á móti mér,
hann kæmi svo tveimur klst. síðar.
Ég man svo vel þegar ég stóð á
tröppunum yfir mig stressuð yfir því
að vera að fara að banka upp á hjá
bráðókunnugu fólki, en ég þurfti
ekki að kvíða því, þú komst til dyra
svona eldhress, tókst í höndina á mér
og tókst mig svo í fangið og bauðst
mig velkomna. Það var ekki eins og
að ég væri að koma þarna í fyrsta
skiptið, þetta var meira svona eins og
við hefðum ekki sést í langan tíma.
Þetta er svo lýsandi fyrir þig, alltaf
svo hress og kátur og gafst öllum það
besta af þér.
Mér finnst ég ótrúlega lánsöm að
hafa fengið að vera tengdadóttir þín
og að börnin mín hafi fengið að eiga
þig fyrir afa því það varst þú svo
sannarlega af lífi og sál.
Elsku Haukur, þín verður sárt
saknað, takk fyrir allar góðu stund-
irnar ég mun ætíð minnast þín með
hlýju og söknuði.
Við fæðumst til að ferðast meira,
fæðing dauði er ferðalag.
Margra bíður sultur seyra
en sumum gengur allt í hag.
Öll við fáum okkar kvóta
af meðlæti og mótlæti.
Flest við munum einnig hljóta
okkar skerf af ástinni.
Farðu í friði góði vinur
Þér fylgir hugsun góð og hlý.
Sama hvað á okkur dynur
aftur hittumst við á ný.
(Magnús Eiríksson.)
Sjáumst síðar.
Hildur Salína.
Elsku afi minn. Þegar ég var lítil
var spennan alltaf í hámarki þegar
við vorum að fara norður til þín og
ömmu Siggu á Húsavík. Það var allt-
af svo gott að koma til ykkar og allt-
af svo gaman. Ég man vel eftir því
hversu gaman mér þótti að fara með
þér í fjárhúsin, eitt sumarið gafstu
mér heimalning sem ég sá ekki sól-
ina fyrir og eyddum við ófáum tím-
unum í fjárhúsunum það sumarið.
Það var svo gaman alltaf að gramsa í
öllu spennandi dótinu á háaloftinu á
Reykjaheiðarveginum. Við fórum í
ófáar gönguferðir að tjörninni og
gengum um lystigarðinn. Torg-
arahátíðin var alltaf svo skemmtileg
og margt sem rifjast upp þegar ég
hugsa um þann tíma sem við eydd-
um hjá ykkur. Mér verður hugsað til
einna áramóta. Þá fór ég með þér á
nýársdag í bíltúr að leita að fallhlíf-
um sem við fundum svo loksins á
planinu fyrir framan mjólkursam-
lagið þar sem þú starfaðir, þú hættir
ekki að leita fyrr en þú varst búinn
að finna handa mér fallhlíf. Mér
verður líka hugsað til kvöldkaffisins,
það var alltaf svo gott að koma norð-
ur því ég vissi að það væri alltaf í
boði að fá köku á kvöldin hjá afa og
ömmu fyrir svefninn. Ég verð æv-
inlega þakklát fyrir allan þann tíma
sem við höfum átt saman. Ég veit þú
munt vaka yfir ömmu Siggu, varð-
veita hana og styrkja.
Þegar þú ert sorgmæddur,
skoðaðu þá aftur hug þinn,
og þú munt sjá, að þú grætur
vegna þess sem var gleði þín.
(Kahlil Gibran)
Enginn gæti nokkurn tíma átt
betri afa en þig. Ég kveð þig stolt af
því að vera barnabarn þitt.
Elsku afi minn, minning þín lifir
að eilífu í hjarta mínu.
Ég elska þig og sakna þín,
þín afastelpa,
Hulda Teits.
Elsku afi Haukur.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín bullukolla,
Nadía Sól.
Elsku afi.
Takk fyrir að vera svo frábær og
góður, takk fyrir að vera afi okkar.
Við söknum þín mjög mikið
Guð geymi þig elsku afi.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Saknaðarkveðja,
Björg, Inga Bryndís
og Ingólfur Atli.
Elsku afi Haukur. Minning þín
mun lifa í hjarta mínu, ég kveð þig
með söknuði.
Mér finnst ég varla heill né hálfur
maður
og heldur ósjálfbjarga, því er ver.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að
segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Horfið er nú sumarið og sólin,
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Þín afastelpa,
María Teits.
Besti afi í öllum heiminum, afi
Haukur, kvaddi þetta líf daginn eftir
37 ára afmælið mitt hinn 4. septem-
ber. Ég fékk að vita að kvöldi 2. sept.
að það gæti brugðið til beggja átta og
hræðslan greip mig. Ætlaði hann
virkilega að deyja á afmælisdaginn
minn? Þetta var einn erfiðasti og
gleðisnauðasti dagur í lífi mínu.
Elsku afi minn. Þakka þér fyrir
alla þá gleðiríku daga sem við áttum
saman og takk fyrir að gefa mér alla
þá gleði og gæfu sem fylgdi því að fá
að vaxa upp í faðmi þínum sem alltaf
var opinn fyrir öllum og endalaus
þolinmæði og alltaf tilbúinn til að
leggja til hönd til hjálpar þeim sem
þurftu. Ég hefði ekki getað fengið
betri afa en þig. Þú varst mér eitt og
allt í æsku minni. Hjartans þakkir
elsku afi minn.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Hvíl í friði.
Þín
Björg.
Elsku Haukur frændi.
Alla tíð frá því ég man fyrst eftir
mér eru ótal fagrar minningar
tengdar þér. Þú varst litli bróðir
pabba míns og samband ykkar náið
og fallegt. Uppáhalds frændi minn
með þinn skemmtilega húmor, hlát-
urmildur, alltaf glens og gleði þar
sem þú varst. Léttstígur enda eins
gott að vara sig á pollunum í Mjólk-
urstöðinni heima á Húsavík en þar
starfaðir þú þar til þú fórst á eft-
irlaun. Vinsæll og vel liðinn af vinnu-
félögum þínum. Þú hafðir hljóm-
mikla og fallega bassarödd og söngst
árum saman með karlakórnum Þrym
ásamt pabba. Mest fannst mér gam-
Haukur Haraldsson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
ÓLÖF HELGADÓTTIR,
Austvaðsholti,
Landssveit,
andaðist á dvalarheimilinu Lundi 12. september.
Ólafur Grétar Óskarsson, Steinunn Thorarensen,
Sveinbjörn Benediktsson,
Helgi Benediktsson, Regula Verena Rudin,
Jón Gunnar Benediktsson, Nicole Chene,
Hjörtur Már Benediktsson, Björg Hilmisdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginkona mín, elskuleg móðir, tengda-
móðir, amma, systir og mágkona,
UNNUR INGUNN STEINÞÓRSDÓTTIR,
Krossholti 6,
Keflavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi mánu-
daginn 6. september, verður jarðsungin frá Kefla-
víkurkirkju fimmtudaginn 16. september kl. 13.00.
Jón William Magnússon,
Magnús Jónsson, Ella Björk Björnsdóttir,
Steinþór Jónsson, Hildur Sigurðardóttir,
Guðlaug Helga Jónsdóttir, Guttormur Guttormsson,
Davíð Jónsson, Eva Dögg Sigurðardóttir,
Lára Steinþórsdóttir, Bragi Magnússon
og barnabörn.