Morgunblaðið - 14.09.2010, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 257. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Torres fær það óþvegið
2. Fé slátrað að hætti múslima
3. Rán í Hólagarði
4. Stúlkan er fundin
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Föstudags-
kvöldið 1. október
mun Ómar Ragn-
arsson sýna þrjár
kvikmyndir á RIFF,
Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í
Reykjavík, en
myndirnar verða
sýndar um borð í
hvalaskoðunarskipinu Eldingu og
hefst sýning kl. 20.30. Myndirnar
kallast One Of The Wonders Of The
World, Reykjavíkurljóð og svo er um
að ræða myndskreytingu við lagið
„Maður og hvalur“.
Ómar Ragnarsson í
hvalaskoðunarskipi
Rappsveitin goðsagnakennda For-
gotten Lores ætlar að halda tónleika
og dj-set á Faktorý annað
kvöld, miðvikudags-
kvöld.
Eftir tvær tíma-
mótaplötur er sú
þriðja á leiðinni og
munu hinir fimm
fræknu taka gamalt
og gott í bland við
nýtt og ferskt efni.
Dyrnar verða
opnaðar kl. 21.
Forgotten Lores á
Faktorý
Á miðvikudag Norðan 10-18 m/s og rigning, en skýjað með köflum og þurrt á S- og V-
landi. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast syðst.
Á fimmtudag og föstudag Norðlæg átt, víða 5-10 m/s en heldur hvassara við austur-
ströndina. Léttskýjað S- og V-lands, en dálítil væta á norðaustanverðu landinu og slydda.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi norðanátt, víða 15-23 m/s síðdegis. Þurrt S-lands, annars
rigning og talsverð úrkoma á N- og NA-landi. Hiti 6 til 13 stig.
VEÐUR
Kristján Guðmundsson knatt-
spyrnuþjálfari segir að svo
virðist sem um geðþótta-
ákvörðun hafi verið að ræða
þegar hann var rekinn úr
starfi hjá færeysku meist-
urunum HB frá Þórshöfn í
gær. Kristján fundaði fyrir
helgina með forráðamönnum
félagsins um leikmannamálin
fyrir næsta tímabil og upp-
sögnin kom honum í opna
skjöldu. »1
Telur uppsögnina
geðþóttaákvörðun
Bandaríkjamenn lærðu af mistökum
undanfarinna ára í körfuboltanum og
tryggðu sér heimsmeistaratitilinn í
Tyrklandi um helgina. Þeir sofnuðu á
verðinum eftir yfirburðasigur á Ól-
ympíuleikunum 1992, aðrar þjóðir
lögðu harðar að sér og sáu til þess að
þeir urðu ekki heimsmeistarar í sex-
tán ár. »3
Bandarískir sofnuðu á
verðinum eftir ÓL 1992
Framarar eru enn með í bar-
áttunni um Evrópusæti eftir
sigur á Keflvíkingum, 2:1, í
úrvalsdeild karla í fótbolta.
Almarr Ormarsson skoraði
sigurmarkið og Fram er
með 29 stig í 5. sætinu. Fyr-
ir ofan eru Breiðablik með
37 stig, ÍBV með 36, FH með
35 og KR með 34 stig. »4
Fram á enn von
um Evrópusæti
ÍÞRÓTTIR
Atli Vigfússon
Þingeyjarsveit | „Það er gaman að
forystufénu og nauðsynlegt að hafa
það með,“ segir Agnar Krist-
jánsson, bóndi í Norðurhlíð í Að-
aldal, en hann átti fallega sauði á
Hraunsrétt sem m.a. leiddu fjár-
hópinn til réttar alla leið frá
Þeistareykjum en það er löng og
ströng ganga.
„Forystuféð þarf að njóta frels-
isins í afréttinni og það er ekki í
eðli þess að vera lokað inni í túnum
eða hólfum,“ segir Agnar en hann
fór sérstaka ferð á móti safninu til
þess að sjá hvaða forystufé það
væri sem leiddi safnið.
Þarna eru vitrar skepnur á ferð
og einn sauður Agnars sem nálgast
fermingaraldurinn fer alltaf fremst-
ur. Hann er skynsamur og þægur
og veit hvað stendur til.
Skraut í hjörðinni
Að venju var margt fólk í
Hraunsrétt og glatt á hjalla enda
var veðrið ákjósanlegt, sólskin og
logn. Mjög greiðlega gekk að draga
féð sem var vænt og vel á sig kom-
ið og víða mátti sjá mjög fallegar
kindur.
Áhugi á forystufé er heldur vax-
andi í Aðaldal og fleiri sveitum og
segist Agnar ekki tíma að farga
fallegum hreinræktuðum for-
ystulömbum og þannig sé nokkur
hætta á að forystukindunum fjölgi
heldur mikið. Eina ráðið sé að hafa
hluta af því hálfblóðs til þess að
eftirsjáin sé ekki eins mikil. Ekki
sé hægt að búa eingöngu með for-
ystufé þar sem það sé ekki eins
kjötmikið en þetta eru vitrar og at-
hyglisverðar skepnur sem skreyta
hópinn, vita á sig veður og drífa féð
áfram í smalamennskum.
Fengur í fallegu forystufé
Forystuféð
hans Agnars
Kristjánssonar
bónda leiddi fjár-
hópinn til rétta
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Bylur Forystusauðurinn Bylur ásamt eiganda sínum, Agnari Kristjánssyni í Norðurhlíð.
Merkilegir sauðir
» Ásgeir Jónsson frá Gottorp
safnaði sögum af forystufé í
bók sem gefin var út árið 1953.
» Í formála beindi Ásgeir orð-
um sínum til fjárbænda lands-
ins og hvatti þá til að eignast
gott forystufé þar sem það
veitti mikla lífsánægju og ör-
yggi við geymslu og hirðingu
hjarðarinnar.
» Til er landsþekkt forystufé
sem margar sögur hafa farið
af. Má þar nefna mógolsótta
forystusauðinn Feng sem
Björn bóndi á Gili í Svartárdal
eignaðist árið 1932.
Saman í réttunum Fólk á öllum aldri var í réttinni. Kristján Hermannsson
frá Lönguhlíð með barnabarnið Heiðdísi Dalrós sem er á fyrsta ári.
Gagnrýnandi Morgunblaðsins fer
lofsamlegum orðum um nýja plötu
Ólafar Arnalds. Segir hann m.a.:
„Áhugafólk um tónlist, sem gerð
er af hinum einu og réttu forsendum;
þ.e. af hjartahreinni þörf hins sanna
listamanns, ætti að kanna þetta verk
og það rækilega.“ » 32
Morgunblaðið/Ernir
Plata Ólafar Arnalds
fær frábæra dóma