Morgunblaðið - 16.09.2010, Page 24

Morgunblaðið - 16.09.2010, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010 ✝ Jóna Björg Páls-dóttir hjúkr- unarfræðingur fædd- ist 9. nóvember 1966 í Keflavík. Hún lést á líknardeild Bispe- bjerg Hospital í Kaupmannahöfn 4. september 2010. Foreldrar hennar voru Unnur Lár- usdóttir húsfreyja, f. á Sauðárkróki 26. mars 1930, d. í Kefla- vík 17. maí 2008 og Páll Jósteinsson sjó- maður, f. í Veiðileysu, Árneshreppi, 9. desember 1932, d. 9. febrúar 2010 í Keflavík. Hálfsystkini Jónu Bjargar, sammæðra, eru Ellen Jón- asdóttir húsmóðir, f. 1. júlí 1949, Kristinn E. Jónsson skipstjóri, f. 1. júní 1951, Nanna S. Jónsdóttir kaupmaður, f. 4. janúar 1953, Jón B.G. Jónsson yfirlæknir, f. 8. febr- úar 1960. Samfeðra er Páll Krist- berg Pálson vélvirki, f. 10. febrúar 1964. Albróðir Jónu Bjargar er Guðmundur L. Pálsson tannlæknir, þar sem Birgir var við framhalds- nám. Hún réði sig til starfa á lyflækn- ingadeild St. Jósefsspítala í Hafn- arfirði að námi loknu og starfaði þar síðan. Jafnframt því þá vann hún alltaf hluta af sumarleyfum sín- um ýmist á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi, lungnadeild Landspítalans á Vífilsstöðum, hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði eða Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Síðastliðið ár var hún í leyfi frá St. Jósefsspítala og starf- aði þá á handlækningadeild melt- ingarfæra á sjúkrahúsinu í Herlev í Kaupmannahöfn. Félagsstörf Jónu Bjargar helg- uðust af störfum fyrir kvenfélagið Hvöt í Sandgerði og Oddfellow- hreyfinguna, en hún var félagi í Re- bekkustúku nr 11, Steinunn IOOF. Þá var hún félagi í Samtökum SUMS, um sár og sárameðferð. Þá tók hún virkan þátt í fagnám- skeiðum og endurmenntun hjúkr- unarfræðinga og sótti fjölmörg námskeið og ráðstefnur. Útför Jónu Bjargar verður gerð frá safnaðarheimilinu í Sandgerði í dag, 16. september 2010, og hefst athöfnin kl. 14. Jarðsett verður í Hvalsneskirkjugarði. f. 1. nóvember 1964. Jóna Björg ólst upp í Sandgerði og lauk grunnskólaprófi frá grunnskólanum í Sandgerði. Hún fór í síðan í Mennta- skólann á Laugar- vatni og lauk þaðan stúdentsprófi árið 1988. Hún flutti til Reykjavíkur það sama ár og bjó þar á loftinu hjá Guðlaugi frænda sínum og Hólmfríði konu hans á meðan hún lagði stund á nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Ís- lands. Því námi lauk hún vorið 1993. Veturinn á eftir stundaði hún nám í táknmálstúlkun við Háskóla Íslands. Ári seinna kynnist hún eft- irlifandi eiginmanni sínum, Birgi Elíassyni rekstrarverkfræðingi, f. 3. apríl 1963. Þau byrjuðu búskap í risinu hjá Gulla frænda og Hólm- fríði en fluttu í Hafnarfjörð árið 1999 og bjuggu þar til ársins 2009 er þau fluttu til Kaupmannahafnar, Elsku Jóna, það eru undarlegar aðstæður okkar núna. Þú sefur hér á líknardeild Bispebjerg sjúkrahúss- ins í Kaupmannahöfn, við hlið mér, þú ert ekki dáin, en ég er byrjaður að skrifa minningargrein um þig. Já, við fengum að vita það fyrir nokkr- um dögum að sól lífs þíns er að setj- ast við sjóndeildarhringinn. Kannski næsta dag, kannski eftir mánuð. Lengri verður barátta þín á vígvelli heilsunnar ekki, við erum orðin vopnlaus. Þú hefur marga hildi háð við hina ýmsu sjúkdóma og ávallt haft yfirhöndina þar til nú. Þennan stutta tíma sem þú ert vakandi þá leggjum við á ráðin um framtíðina, hvað þarf að gera og hvað þarf ekki að gera, því nú er tíminn svo dýr- mætur. Þegar þú ert sofandi þá hlusta ég á andardrátt þinn og rifja upp þessi fimmtán ár sem við höfum átt sam- an. Ekki óraði mig fyrir því að ári eftir að þú fluttir út til Kaupmanna- hafnar þá stæðum við í þessum spor- um. Það var ekki af ævintýraþrá sem þú fluttir, nei, ég var búinn að vera hér í eitt ár í framhaldsnámi og þú sagðir alltaf að heimili okkar væri þar sem við værum saman. Það skipti ekki máli hvar það væri. Tíminn líður. Þetta er erfið helgi. Röddin er orðin að lágværu hvísli. Þú átt orðið erfitt með andardrátt. Stundum er eins og þú hættir að draga andann, sért að hvíla þig, ég tel upp að þrjátíu, kannski er þetta allt í lagi. Ég hef svo oft hlustað á andardrátt þinn þegar þú ert sof- andi. Líf þitt hefur alltaf verið nokk- urs konar línudans þar sem ekkert hefur mátt útaf bera til að líkaminn missi ekki jafnvægi sitt. Þetta krefst mikillar reglu og aga sem þú virðist eiga endalaust nóg af. Við erum svo ólík að því leyti. Þegar við förum í ferðalag þá er það mikið frekar flakk, London, París, Róm eru stoppistöðvar okkar, áfangastaðirn- ir eru borgir eins og Prag, Budapest, Zagreb, Belgrad, Skopje og Sofia. Ef við förum á sólarströnd þá er það Kýpur, Grikkland eða Marokkó. Við förum bara af stað án þess að vita áfangastað, förum bara útí buskann. Dagarnir líða, þú þraukar, eins og þú sért að bíða eftir einhverju. Það hefur verið gestagangur, ættingjar og vinir eru að kveðja. Allir í síðasta sinn, þú veist að þú sérð þá ekki aft- ur. Það hlýtur að taka á að vera að kveðja alla í síðasta sinn. En þú bug- ast aldrei, ótrúlegt jafnvægi, ég vildi að ég hefði þennan aga. En þú ert óróleg, sefur stutt og vaknar sífellt til að elda eða baka. Þér finnst þú alltaf vera að taka á móti gestum. Það er eitt það skemmtilegasta sem þú gerir, að taka á móti gestum. Þeir eru ófáir sem hafa notið gestrisni þinnar. Við erum að fara heim. Þetta er okkar síðasta ferðalag saman. Ekk- ert flakk að þessu sinni. Áfangastað- urinn er Hvalsneskirkjugarður. Því verður ekki breytt. Þú ert dáin. Það gerðist nákvæmlega eins og þú varst búin að segja mér að það myndi ger- ast. Nú er orrustunni lokið og við yf- irgefum vígvöllinn. Flugið til Kefla- víkur er framundan og þú ert komin um borð. Þetta er í fyrsta skipti sem við sitjum ekki saman í flugvél. Elsku Jóna Björg, sár er söknuður- inn og mikill er missirinn, en minn- ing þín lifir. Birgir Elíasson. Meira: mbl.is/minningar Það er komið að kveðjustund. Systir mín Jóna Björg verður borinn til grafar í dag. Hún lést á sjúkra- húsi í Kaupmannahöfn 4. sept. sl. eftir erfiða sjúkdómslegu aðeins 43 ára gömul. Lífshlaup Jónu var eng- inn dans á rósum. Hún veiktist sem barn að aldri af alvarlegum sjúk- dómi. Hún þurfti að dvelja á sjúkra- húsi stóran hluta af sinni barnæsku og unglingsárum. Það markaði djúp spor í hennar lífshlaup. Hún átti þó sínar góðu stundir þegar veikindin voru minni en meiri. Þann tíma not- aði hún til að mennta sig. Hún lauk stúdentsprófi og í kjölfarið hóf hún nám í hjúkrunarfræði og lauk því með sóma. Jóna var vinnusöm og hafði mik- inn metnað. Þrátt fyrir erfið veikindi sinnti hún krefjandi vinnu bæði hér heima og erlendis. Síðast vann hún sem hjúkrunarfræðingur við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn. Komin til Kaupmannahafnar í krefj- andi og skemmtilegt starf virtist nú sem hún væri komin fyrir vind en þá skellur sjúkdómurinn á henni með fullum þunga og þrátt fyrir bestu læknishjálp varð ekki við neitt ráðið og Jóna lést 4. september sl. Það var aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig hún tókst á við erfið veikindi af kjarki og yfirvegun. Hug- urinn var óbugaður fram á síðustu stund þótt líkaminn gæfi eftir. Hvíl í friði, kæra systir. Jón B. G. Jónsson. Eitt af því síðasta, sem þú sagðir við mig, elsku systir, var hvort ég myndi ekki skrifa minningargrein um þig. Á þeirri stundu fannst mér sem sá tími kæmi ekki nærri strax, þrátt fyrir að ég gerði mér grein fyr- ir því hversu veik þú varst orðin og vonaði innst inni að þú myndir vinna þessa baráttu. Mér fannst nóg um þau áföll, sem við höfum gengið í gegnum í fjölskyldunni frá því í maí 2008 þegar elskuleg móðir okkar lést og síðan kvaddi yndislegur faðir okkar í febrúar síðastliðnum. Þrátt fyrir að það værir þú sem væri mikið veik og lægir fyrir dauðanum þá varst það þú, elsku systir, sem með ótrúlegu jafnaðargeði og styrk huggaðir mig og okkur ástvini þína sem sátu við sjúkrabeð þitt. Ég bjóst ekki við að þú færir svona fljótt, kannski einkum vegna þess að á þinni stuttu ævi hefur þú sigrast á veikindum, sem hrjáð hafa þig allt frá því að við vorum börn. Allt frá 8 ára aldri hefur þú átt við veikindi að stríða. Það er með ólík- indum og sýnir styrk þinn og metnað að þú sért hjúkrunarfræðingur, þar sem þú misstir úr nær allan grunn- skólann þar sem þú lást löngum á Landspítalanum. Oft var þér vart hugað líf en alltaf barðist þú gegn dauðanum og komst á fætur aftur. Nokkur jólin héldum við hjá þér á spítalanum, þá var mottóið að halda næstu jól heima. Erfiðast fannst mér að hafa þig í Danmörku, að berjast fyrir lífi þínu, en þangað fluttir þú einungis fyrir tæpu ári til Birgis þíns sem er að ljúka þar námi en þú byrjaðir að vinna á sjúkrahúsi. Það var gaman fyrir okkur Ólöfu að koma í heim- sókn til ykkar í júní síðastliðnum, þar sem þú stjanaðir við okkur eins og ávallt, því þú varst höfðingi heim að sækja. Það var mér því svolítið reiðarslag, þegar þú sagðir mér, eitt sinn er við fórum tvö út að ganga saman að þú hefðir tilfinningu fyrir því að þetta myndi ekki enda vel. Því miður reyndist þú sannspá, en allt gerðist þetta svo hratt og kom okkur öllum á óvart. Elsku systir, faðmaðu mömmu og pabba frá mér og minni fjölskyldu og vonandi fæ ég eitthvað af styrk þínum og æðruleysi til að komast yf- ir þann mikla missi sem ég hef mátt þola. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þinn bróðir Guðmundur. Elsku Jóna Björg. Hugsunin er óbærileg að fá ekki að sjá þig aftur, elsku litla systir mín. Ég læt hugann reika aftur í til baka til þess tíma er þú komst í heiminn. Ég man að ég hljóp heim úr skólanum í löngu frímínútum til þess að fá að taka þig upp úr körfunni og knúsa þig. Þú varst heilbrigð og ró- legt barn en um 8 ára aldur veiktist þú og varst mánuðum saman á spít- ala og þar fór þín skólaganga að mestu fram. Ekki léstu þar við sitja, heldur hélst þú áfram og fórst á Laugarvatn, kláraðir stúdentinn og fórst síðan í hjúkrunarfræði. Allt þetta afrekaðir þú með smá hléum vegna veikindanna og oft komu góð- ir kaflar inn á milli og þá var ekki slegið slöku við. Þú kláraðir námið með stæl. Allan þinn starfsferil varstu á Skt. Jósefsspítala í Hafn- arfirði og þar leið þér vel í vinnu. Þú eignaðast einstakan lífsförunaut, hann Birgi þinn sem stóð eins og klettur við hlið þér í blíðu og stríðu. Ykkur leið vel saman og nutuð lífs- ins. Þú greindist með krabbamein 2007 sem var talið á algeru byrjun- arstigi. Allt leit vel út eftir meðferð- ina en ekki var þrautagöngu þinni þó lokið. Árið 2009 kom svo stóra högg- ið og krabbameinið tók sig upp aftur. Þú varst svo sterk og tókst á þessu eins og þú hafðir gert í þínum veik- indum, af miklum styrk með Birgi þér við hlið. Þessi vágestur sem krabbameinið er dró þig svo til dauða, aðeins 43 ára að aldri. Ég trúi, elsku Jóna mín, að þú sért komin á betri stað, laus við þennan veika líkama. Þér hlýtur að vera ætl- að stærra hlutverk hjá æðri mátt- arvöldum með mömmu og pabba þinn þér við hlið. Þið hafið öll kvatt þetta jarðlíf á aðeins 2 árum og það er mikill söknuður að ykkur öllum. Ég kveð þig, elsku systir, og bið góð- an Guð að létta þér ferðina yfir á annað tilverustig. Ég veit að við munum sjást aftur. Þín systir Nanna. Kallið er komið, komin er nú stundin, viðskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðasta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Elsku Jóna mín! Þá hefur þú kvatt eftir stutta en hetjulega baráttu við krabbamein og ert komin í faðm for- eldra þinna. Allt frá því að ég kynntist þér fyr- ir tæpum 30 árum hefur þú átt í bar- áttu við erfið veikindi en ávallt staðið uppi sem sigurvegari þar til nú. Efst í huga mér er heimsókn okk- ar Guðmundar til þín og Birgis til Kaupmannahafnar í júní síðastliðn- um, þar sem þú dekraðir við okkur á allan hátt, enda húsmóðir fram í fingurgóma. Þrátt fyrir að þú hefðir verið mjög veik þá hikaðir þú ekki við að keyra um allt með okkur og sýna okkur marga fallega staði í ná- grenni við heimili ykkar. Ég minnist einnig með miklu þakklæti okkar síðustu samveru- stundar á sjúkrabeði þínum, um miðjan ágúst. Þú sast uppi í rúminu þínu með fallegan brúðarvönd í vasa á borðinu við hlið þér og sagðir mér hversu hamingjusöm þú værir að vera orðin eiginkona þíns elskulega Birgis, sem hafði verið unnusti þinn í 15 ár. Þegar við síðan kvöddumst í síðasta sinn, þakkaðir þú mér full æðruleysis fyrir góðar samveru- stundir á liðnum árum en baðst mig jafnframt að hlúa vel að Guðmundi bróður þínum og ekki síst að mér sjálfri. Elsku Jóna mín, við hittumst aftur þegar minn tími kemur en þangað til mun ég hugga mig við góðar minn- ingar um yndislega konu. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það, sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því, sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli. Þín mágkona, Ólöf. Manni finnst það ekki gangur lífs- ins að skrifa minningarorð um tæp- lega 44 ára gamla manneskju. En hún mágkona mín Jóna Björg lést 4. september sl., fædd 9. nóvember 1966. Jóna Björg átti við langvar- andi veikindi að stríða frá unga aldri en inn á milli komu góðir tímar þar sem hún reyndi eftir fremsta megni að lifa lífinu. Hún var mjög dugleg að eðlisfari og framkvæmdi marga hluti sem heilbrigð manneskja hefði verið stolt af að geta gert. Hún náði að útskrifast sem hjúkka og vann sem slík lengst af á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Jóna Björg fluttist til Köben sl. haust til að geta verið með honum Birgi sínum sem þar er við nám. Þar vann hún á Rigshospitalet þar til veikindin tóku sig upp aftur og ekki varð aftur snúið. Jóna Björg var skapmikil manneskja og lét mann heyra það óþvegið ef henni mislíkaði eitthvað, og þannig var hún bara, hún var ekkert að skafa utan af hlut- unum. Sumir gátu tekið þannig framkomu en aðrir ekki, sjálfsagt hafa hennar veikindi markað hennar karakter. Jóna Björg var mjög fylgin sjálfri sér og með ríka réttlæt- iskennd, hún var ekki allra en mjög góð og einlæg við þá sem komust inn fyrir skelina hjá henni. Jóna Björg missti mikið þegar mamma hennar lést fyrir rúmum tveimur árum því þær voru mjög nánar og Jóna Björg henni einstaklega góð. Enn var höggvið skarð í líf Jónu Bjargar þegar svo pabbi hennar lést í febrúar sl. Birgir eiginmaður Jónu Bjargar hefur staðið eins og klettur við hlið hennar í öllum þessum veik- indum síðan þau kynntust fyrir all- mörgum árum og missir þinn, Birgir minn, er mikill og sár. Ég vil þakka mágkonu minni samfylgdina sl. 26 ár og megir þú hvíla í friði, elsku Jóna Björg mín . Ingibjörg Guðmundsdóttir. Elsku Jóna Björg frænka mín. Mikið sakna ég þín sárt. Og Biggi minn, mikið átt þú erfiða tíma í vændum án Jónu. Það er ekki hægt að hugsa sér ykkur tvö hjónakornin hvor án annars. Yndislegt að þið lét- uð gefa ykkur saman á síðustu stundunum í ykkar lífi saman. Jóna Björg var svo hamingjusöm með það. Það fyrsta sem hún gerði þegar ég kom til hennar á spítalann var að sýna mér brúðarmyndina. Við áttum svo margar góðar stundir saman, frænka. Það hefur alltaf verið svo mikill kærleikur á milli okkar. Nú ylja minningarnar manni um hjartaræturnar og eru svo mikilvægar á þessum erfiða tíma. Það var svo notalegt að vera hjá ykkur á heimili ykkar í Kaupa- mannahöfn nú í vetur. Þegar ég spurði þig hvort ég mætti koma í heimsókn svaraðir þú, „Já, endilega komdu sem fyrst og vertu sem lengst“. Mér þykir erfitt að hugsa til þess að þú sért búin að kveðja en erfiðara fannst mér að sjá þig svona las- burða. Það er stutt á milli þín, afa og ömmu. Ótrúlegt að vera að kveðja ykkur öll á aðeins tveimur árum. Þau taka eflaust vel á móti þér, mín kæra. Elsku Biggi, ég sendi þér hlýja strauma og bið að guð veiti þér styrk í sorginni. Ragnheiður. Elsku frænka. Minningarnar sækja á mig þegar ég sest niður til að skrifa nokkur orð til að minnast þín. Það eru til mörg falleg orð til að lýsa þér, orð eins og gjafmild, hjartahlý, sanngjörn, vinnusöm og baráttuglöð. Mér fannst gott að koma til þín á efri hæðina hjá Gulla frænda og Hólmfríði á Miklubrautinni þegar ég var í Iðnskólanum í Reykjavík. Þú hafðir sannarlega ósvikinn áhuga á því sem aðrir voru að gera og þegar við spjölluðum um það sem ég var að gera í skólanum þá léstu mér finnast eins og ég væri í stórkostlega merki- legu námi. Þú áttir auðvelt með að láta fólki líða vel með sig sjálft og vera þakklátt fyrir það sem það hef- ur fengið í lífinu. Veikindi settu sín spor á líf þitt og ég minnist þess að hlusta á mömmu og ömmu tala um hvað þú værir veik og að það stæðu allir ráðþrota gagn- vart því sem hrjáði þig. Sjúkdóm- urinn sem hafði rænt þig svo stórum hluta þinnar barnæsku og ung- lingsára var loks greindur Það var þó ekki fyrr en eftir að amma hafði fengið það samþykkt að þú fengir að komast undir hendur sérfræðinga á Englandi. Upp frá því lá leiðin upp á við og þú sóttir þér þína menntun. Sú menntun sem þú sóttir þér lýsir þér og þinni skapgerð og hjartalagi, hjúkrunarfræði. Lokabarátta þín í lífinu reyndist vera við illvígt krabbamein. Það hefði ekki komið mér vitund á óvart að þú myndir sigrast á því eins og öðrum áskorunum í lífi þínu. Þú Jóna Björg Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.