Morgunblaðið - 16.09.2010, Síða 26

Morgunblaðið - 16.09.2010, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010 ✝ Unnur IngunnSteinþórsdóttir fæddist í Keflavík 13. febrúar 1942. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Hlévangi 6. sept- ember sl. Foreldrar henn- ar voru hjónin Steinþór Sig- hvatsson, inn- heimtumaður, fæddur á Gunn- laugsstöðum á Hér- aði 15. janúar 1906, d. 25. nóvember 1991, og Sigríður Stefánsdóttir, húsmóðir, fædd í Hafnarfirði 10. október 1914, d. 7. janúar 1998. Systir Unnar er Lára, húsmóðir, f. 12. nóvember 1939, gift Braga Magnússyni járn- smíðameistara, f. 6. ágúst 1936. Börn þeirra eru: Sigríður, f. 20. janúar 1958, Bryndís, hár- greiðslumeistari, f. 9. september 1959, og Steinþór, tæknifræð- ingur, f. 3. júlí 1969. Unnur Ingunn giftist 7. október 1961 eftirlifandi eiginmanni sín- um Jóni William Magnússyni framkvæmdastjóra, f. 16. desem- ber 1940. Foreldrar hans voru Magnús Jónsson, sjómaður, fædd- ur á Kálfsá, Ólafsfirði 18. apríl 1893, d. 4. júní 1973, og Guðlaug Helga Jóhannesdóttir, húsmóðir, fædd á Grund, Ólafsfirði 22. ágúst 1894, d. 29. júlí 1970. Unnur og Börn Guttorms eru Örvar, f. 23. mars 1987, Ásdís, f. 27. desember 1992, og Ólöf Rún, f. 28. maí 1997. 4) Davíð, aðstoðarhótelstjóri, f. 16. ágúst 1976, kvæntur Evu Dögg Sigurðardóttur, f. 10. des- ember 1976. Börn þeirra eru Lovísa Björk, f. 10. desember 2004, Snorri Rafn William, f. 16. desember 2007, og nýfæddur son- ur, f. 2. september sl. Unnur ólst upp hjá foreldrum sínum í Keflavík, fyrst að Hafn- argötu 49 og síðar að Vatns- nesvegi 36. Unnur Ingunn og Jón William hófu búskap sinn að Sól- vallagötu 44 en bjuggu sér síðan fallegt heimili að Krossholti 6 í Keflavík. Að loknu námi á Hús- mæðraskólanum Ósk á Ísafirði hóf hún störf sem deildarstjóri hjá Kaupfélagi Suðurnesja en helgaði síðan fjölskyldunni og fjölskyldufyrirtækjum starfs- krafta sína. Þau hjónin stofnuðu ásamt öðrum Ofnasmiðju Suð- urnesja en eignuðust síðar fyr- irtækið og ráku saman í 33 ár. Ár- ið 1986 reistu þau ásamt fjölskyldunni fyrsta hótel bæj- arins, Hótel Keflavík, en þar starfaði Unnur fyrstu árin við ým- is störf. Aðaláhugamál Unnar voru líknar- og mannúðarmál og hafði hún mikið yndi af að hjálpa öldruðum og þeim sem minna máttu sín. Þá tók hún virkan þátt sem leiðbeinandi í Biblíubréfa- skóla Aðventista. Unnur dvaldi síðustu tvö æviár- in Hlévangi þar sem hún naut góðrar umhyggju starfsfólks. Útför Unnar Ingunnar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 16. september 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Jón eignuðust fjög- ur börn: 1) Magnús, sjómaður, f. 2. febr- úar 1962, kvæntur Ellu Björk Björns- dóttur húsmóður, f. 25. mars 1967. Börn þeirra eru Sigrún Ella, f. 17. maí 1992, Jón Þór, f. 10. mars 1994, og Anna Marý, f. 22. febrúar 1997. 2) Steinþór, hótelstjóri, f. 22. október 1963, kvæntur Hildi Sig- urðardóttur leikskólakennara, f. 11. maí 1966. Dætur þeirra eru Lilja Karen, f. 29. september 1987, unnusti Viggó Helgi Viggósson, f. 11. október 1987, Katrín Helga, f. 21. september 1989, unnusti Aron Örn Grét- arsson, f. 21. júní 1988, Unnur María, f. 6. nóvember 1995, og Guðríður Emma f. 30. júní 1997. 3) Guðlaug Helga, kennari, f. 31. október 1966, gift Guttormi Gutt- ormssyni tæknifræðingi, f. 14. júlí 1966. Synir Guðlaugar eru Sam- úel Albert William, f. 24. nóv- ember 1987, unnusta Þórunn Kristjánsdóttir f. 17. nóvember 1992, Jakob Elvar William, f. 25. ágúst 1989, unnusta Áslaug Erla Hansdóttir, f. 1. maí 1993, og Sig- urður Haukur William, f. 30. des- ember 1990, unnusta Tinna Snorradóttir, f. 6. október 1992. Það er með þakklæti og virðingu fyrir móður minni sem ég tekst á við sorgina á þessum erfiða tíma. Það hefur verið yndislegt að heyra frásagnirnar um mömmu síð- ustu daga frá fólki sem hún gladdi og minnist hennar sem góðrar konu sem gerði góðverk í hljóði og ein- lægni. Slíkt segir meira en mörg orð um heilindi hennar og trú- mennsku. Mínar minningar snúa frekar að daglegu lífi og þeim forréttindum sem lítill drengur fékk að njóta hjá heimavinnandi móður sem lagði allt sitt kapp á að gera okkur fallegt og vinalegt heimili. Snyrtimennska og skipulag var henni mikilvægt. Hver einasta máltíð og kaffitímarnir voru daglegir fjölskyldufundir sem báru vitni um ást hennar og kærleika. Ég minnist líka ferðanna á sumr- in til ömmu og afa á Ólafsfirði. Það var ævintýri líkast að koma í fallega fjörðinn þar sem öldurnar skullu á svörtum sandinum rétt við húsið og við systkinin fengum að njóta okkar við leik og frjálsræði. Veiði- og berjaferðir voru í uppáhaldi en ekki þótti mér það leiðinlegt að heim- sækja alla sem mamma sótti heim til að gefa gjafir, enda ís og ávextir oft á borðum í þakklætisskyni. Síð- asta ferð mömmu var upp að Með- alfellsvatni í bústaðina okkar í sum- ar þar sem við nutum samvista á yndislegum stað og mamma naut útiverunnar í síðasta sinn. Mamma var brautryðjandi og vann af heilum hug að uppbyggingu fyrirtækja okkar og hvatti okkur áfram. Í hennar huga snerist þetta aldrei um eitthvað sem hún vildi eignast, heldur vilja til að skapa vinnu og gera eitthvað jákvætt fyrir samfélagið. Ég mun seint geta þakkað henni og pabba fyrir að hafa fengið að taka svo virkan þátt í lífi þeirra og fyrirtækjarekstri og finna það traust sem ég hef alltaf notið. Ég mun alltaf geyma kortin sem hún skrifaði með fallegu skriftinni sinni en öllum hamingjuóskum hennar fylgdu þakklæti og hand- skrifaður boðskapur um hvernig við ættum að lifa lífinu. Hún hafði gam- an af að taka myndir en aðallega þó að koma þeim til viðkomandi. Þetta fengum við fjölskyldan og svo margir aðrir að upplifa. Enginn sem ég þekki hefur sýnt það betur en mamma að sælla er að gefa en þiggja. Þar var hún heil í gegn. Veikindi mömmu hafa verið mikil og langvinn. Hún kvartaði aldrei og gekk í gegnum lífið af miklu æðru- leysi og óhrædd við það sem koma skyldi. Hún minnti okkur reglulega á þá velgengni sem við fjölskyldan höfum notið án þess að sjá sína eig- in stöðu eða veikindi í því samhengi. Með þessari jákvæðni og trúnni á Guð náði hún að vinna óteljandi baráttur gegn öllum líkum. Elsku pabbi, þú hefur staðið þig eins og hetja allan þennan tíma þannig að eftir var tekið. En við vit- um líka báðir að það hefði verið eins ef hlutunum hefði verið öfugt farið. Megi góður Guð, sem mamma treysti fyrir öllu, styrkja okkur í sorginni. Elsku mamma mín, ég mun aldr- ei gleyma því sem þú varst mér. Við Hildur og stelpurnar kveðjum þig með eilífu þakklæti fyrir það sem þú hefur kennt okkur með lífshlaupi þínu. Guð gefi þér góða nótt, elsku mamma mín. Þinn elskandi sonur, Steinþór. Meira: mbl.is/minningar Elsku mamma og tengdamamma. Þvílíkur heiður að hafa verið dóttir ykkar pabba. Yndislegasta móðir, hérna kemur versið þitt: Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drott- inn er í nánd. Verið ekki hugsjúkir um neitt heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugs- anir yðar í Kristi Jesú. (Fil.4:4.) Þar til Kristur kemur aftur í skýjum himinsins. Guð blessi þig. Þín elskandi, Guðlaug og Guttormur. Elsku amma mín. Ég ákvað að setjast ein með sjálfri mér og skrifa til þín mína hinstu kveðju. Söknuði mínum er vart lýsandi með orðum og ég á erfitt með að trúa því að þú sért í raun búin að kveðja þennan heim. Ég mun leita mér huggunar í orði Guðs eins og þú hefðir sagt mér að gera. Sunnudagsnóttin 6. september síðastliðinn er ég kom til þín upp á Hlévang var ein erfiðasta stund lífs míns. Þó að veikindi þín hefðu hrjáð þig lengi þá var ég ekki tilbúin að kveðja þig strax. Þú barð- ist hetjulega, kvartaðir aldrei og sýndir ekkert nema styrk, svo innst inni hélt ég ávallt enn í vonina. En hvíld þurftir þú á að halda, elsku amma mín og hana áttir þú skilið. Þú lifðir góðu lífi og kvaddir okkur með frið í hjarta. Nú sefur þú vært og ert laus við þær byrðar sem sjúkdómurinn olli þér. Þó mér finn- ist óréttlátt að þú varðst að fara svo fljótt frá okkur þá er ég afar þakk- lát fyrir þann tíma sem ég átti með þér og fyrir allt það sem þú kenndir mér. Minningarnar um þig munu fylgja mér alla mína lífstíð. Á stundu sem þessari hellist yfir mig heilt haf af yndislegum minn- ingum sem styrkja mig í þessum þunga harmi. Ég minnist þess þeg- ar ég var lítil og var í pössun hjá þér að við horfðum saman á uppá- halds kvikmyndina þína „Sound of Music“; eins okkar vikulegu ævin- týraferðir með þér og afa Nonna og öllum barnabörnunum. Fara í klipp- ingu hjá þér með háværu rakvélinni þinni, fylgjast með þér sauma og sjá hvað þú varst flink í höndunum. Eins þegar þú varst vön að koma heim til okkar færandi gjafir af engu sérstöku tilefni. Fylgjast með þér takandi ljósmyndir sem urðu ávallt að vera fullkomnar og allir á myndinni urðu að vera rétt upp- stilltir og vel greiddir. Hlusta á þig lesa upp úr þinni Biblíu og biðja bænir fyrir svefninn og kyssa mig svo góða nótt. Ég minnist einnig allra þeirra litlu hluta eins og það eitt að halda í höndina á þér, þitt innilega bros og fallega rauða hárið, fallega rithöndin þín og að hlusta á þig syngja fallegt lag á góðri stundu. Það er svo margt sem ég hef lært af þér sem ég kem til með að hafa að leiðarljósi. Það helsta sem ég mun tileinka mér er hjálp- semi þín og gjafmildi. Þú gast alltaf fundið tíma, ástæðu og leiðir til að hjálpa öðrum. Allir þeir sem þekktu eitthvað til þín vissu af þessum eig- inleikum þínum. Ég mun leitast við að halda minningu þinni á lofti um ókomin ár. Ég held áfram lífsins leið með orð þín og minningar að veganesti og geymi þig í hjarta mínu um ókomna tíð. En ég veit að við munum hittast aftur á ný svo þangað til næst, elsku amma mín, megi Guð varð- veita þig og geyma. Ég bið Guð um að passa afa Nonna, börnin þín, barnabörn og aðra ættingja. Ég enda kveðju þessa með þeim hinstu orðum er ég sagði við þig: Góða nótt, elsku amma mín og sofðu rótt. Ég hugsa til þín. Þitt elsta barnabarn, Lilja Karen Steinþórsdóttir. Okkur langar að minnast frænku okkar Unnar Ingunnar í nokkrum orðum. Það fyrsta sem kemur í hugann þegar við hugsum um Unni er hversu gjafmild hún var og hve vel hún hugsaði um alla í kringum sig. Í nánast hvert skipti sem við komum til Keflavíkur þá fórum við heim með ýmsar gjafir t.d. sokka, spegla, greiður og á hverju heimili í fjölskyldunni eru til mörg hand- klæði merkt með nöfnum okkar ísaumuðum. Unnur var líka með töluvert magn af gjöfum tilbúið í bílnum sínum til að gefa ef hún hitti einhvern á leið sinni. Hún var alltaf að hugsa um að gera öðrum gott. Unnur hafði alveg sérstakan áhuga á ljósmyndun og notaði öll tækifæri til að mynda stórfjölskyld- una. Hún tók hvern og einn fjöl- skyldumeðlim afsíðis og stillti hon- um upp þar sem bakgrunnurinn var góður, t.d. við hurð sem hún notaði oft sem ramma. Við eigum nokkur hundruð mynda frá Unni úr brúð- kaupum, skírnum, fermingar- veislum og myndir sem teknar voru við önnur tækifæri. Unnur lagði sig alla fram við ljósmyndunina, ef henni fannst lýsingin ekki nógu góð úr framkölluninni lét hún náttúru- lega laga það. Hún var nánast alltaf með myndavélina í þeim veislum sem henni var boðið í, sem voru ekki fáar. Þeir sem náðust á mynd fengu hana senda og voru þær að sjálfsögðu settar í plast og merktar af Unni. Það fór alveg gríðarlegur tími hjá Unni að vinna úr öllum myndunum sem hún tók og erum við afar þakklátar fyrir það og fyrir þær minningar sem fylgja mynd- unum. Unnur hélt alltaf góðu sambandi við okkur og hringdi hún oft í okk- ur, oftar en ekki hringdi hún nokk- ur símtöl í röð sama kvöldið því hún gleymdi alltaf einhverju sem hún ætlaði að segja okkur. Unnur frænka okkar var mjög trúuð kona. Afmælis- og jólakortin frá henni og fjölskyldunni báru vott um það, en þau voru undantekning- arlaust með tilvitnun í hin ýmsu guðspjöll, eftir því sem við átti. Hún sá til þess að fermingarbörnin eign- uðust biblíur og gaf börnunum í fjölskyldunni bækurnar Trúfastir vinir, sem voru áritaðar af henni. Í sumar var ég að leita að lesefni fyrir Hafdísi, barnabarnið mitt og fann bækurnar sem móðir hennar hafði fengið frá Unni frænku. Þvílík hamingja hjá barninu þegar hún komst í bækurnar og spurði strax hvort hún mætti eiga þessar bækur. Blessuð sé minning Unnar frænku. Við vitum að amma og afi taka á móti henni opnum örmum. Við vottum Nonna, Magga, Steina, Gullu, Davíð og fjölskyldum okkar dýpstu samúð. Sigríður, Bryndís og Arna Lára. Hún var að taka myndir þegar ég sá hana fyrst. Var ekki sama hvern- ig fólkið raðaði sér upp og lét það í ljós. Við þekktumst ekkert en ég átti samt að vera með. Svo vildi hún taka mynd af mér einni. Ég var ekki á því, – sagðist myndast svo illa, – hefði aldrei slegið í gegn í þöglu myndunum! En hún brosti bara og smellti af, mörgum sinnum. Ég fékk svo sent þykkt umslag fullt af myndum, filmurnar líka. Góðar myndir. Unnur gerði allt vel. Þann- ig hófust kynni okkar og kær vin- átta. Marga myndina hef ég síðan þegið frá Unni minni og ófáar aðrar gjafir. Hún var örlátasta manneskja sem ég hef kynnst. Við hétum sama nafni, eiginmenn okkar líka og áttum saman margar ógleymanlegar stundir. Ferðirnar til Ólafsfjarðar voru ævintýr með Jón William sem fararstjóra, um hans æskuslóðir. Heimboðin að Hótel Keflavík og veislurnar þar og ferðirnar með Bergmáli vítt og breitt um landið. Ekki má heldur gleyma heimsóknum í Lindina, – við Meðalfellsvatn þar sem fjöl- skyldu-paradísin þeirra er staðsett. Og þá ekki síður í ævintýrahöllina „Lækinn“ sem er nýjasta viðbótin þar. Þarna naut Unnur sín vel enda staðurinn henni einkar kær, nátt- úrufegurð allt um kring og töfrar í loftinu. Bergmál, líknar- og vinafélag, var Unni líka hugleikið. Þau hjón voru stofnfélagar. Eftir að heilsan versn- aði var hún oft þátttakandi í orlofs- vikum félagsins, bæði að Hlíðar- dalsskóla og Sólheimum og naut þar hvíldar og hressingar. Hún var afar þakklát fyrir og við sem stóð- um að orlofinu ekki síður að hafa hana hjá okkur. Öllum þótti vænt um Unni og fyrir hönd félagsins þökkum við áralanga vináttu þeirra hjóna og sendum samúðarkveðjur Unnur Ingunn Steinþórsdóttir HINSTA KVEÐJA Ó þú minn Jesús þess ég bið, sem ert svo góður börnum við að láta okkur aldrei skilja. Ef að þú Jesús ert mér hjá, er ég gott barn og læri þá míns Guðs að gera vilja. (G.H.J.) Elsku amma. Við viljum þakka þér fyrir allar góðu bæn- irnar þínar. Elskum þig. Hvíl í friði. Samúel William, Jakob Willi- am og Sigurður William. Þökkum áralanga vináttu og umhyggju, sérstaklega fyrir Klöru. Guð blessi þig fyrir það. Sjöfn og Björn. Elsku pabbi, tengdapabbi, afi og langafi. Takk fyrir samveruna í gegnum árin. Við söknum þín sárt. Dökkur skuggi á daginn fellur, dimmir yfir landsbyggðina. Köldum hljómi klukkan gellur, kveðjustund er milli vina. Fallinn dómur æðri anda, aðstandendur setur hljóða. Kunningjarnir klökkir standa, Haukur Haraldsson ✝ Haukur Haralds-son mjólkurfræð- ingur fæddist á Húsa- vík 17. september 1928. Hann lést á sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 4. september 2010. Útför Hauks var gerð frá Akureyr- arkirkju 14. sept- ember 2010. komið skarð í hópinn góða. Gangan með þér æviárin okkur líður seint úr minni. Við sem fellum tre- gatárin trúum varla brottför þinni. Þína leið til ljóssins bjarta lýsi drottins vernd- arkraftur. Með kærleiksorð í klökku hjarta kveðjumst núna, sjáumst aftur. (Hákon Aðalsteinsson.) Jóhannes Haukur, Ásdís, Jóhannes Haukur, Rósa Björk, Ólöf Halla, Árni Haukur, Ingibjörn, Aron Snær, Elín Huld, Sigrún Ósk og Haukur Atli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.