Morgunblaðið - 16.09.2010, Qupperneq 36
LISTIN AÐ KYSSA
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Það er list að kyssa og eittþað skemmtilegasta við þálistgrein er að æfinginn
skapar meistarann. Jú, jú, það eru
til ýmis konar bækur sem eiga að
vera einskonar masterskúrs í fag-
inu en verklegi parturinn virkar
langbest! Fyrsti kosinn hefur mik-
ið að segja og því mikilvægt að
vanda til verksins, en þegar
lengra líður á er auðveldlega hægt
að hlæja að misheppnuðum og illa
tímasettum kossum.
Mikilvægt er að fara hægtog rólega í fyrsta kossinn.
Það vill enginn láta stökkva á sig
og sitja svo eftir svekktur og
blautur í framan. Samanber kossa-
stíl herramanns sem Charlotte í
Sex and the City fór á stefnumót
með og fannst andlit sitt hafa ver-
ið misnotað eftir á. Þá er ljúfur
bíómyndakoss betri þar sem hend-
ur hans leita í hár stúlkunnar en
hendur hennar að bringu drengs-
ins. Þannig vefja einstaklingarnir
sig saman þar til varirnar mætast
heitar og seiðandi. Næsta stig er
svo að hleypa tungunni að og
keyra hana ekki ofan í kok á mót-
leikaranum heldur að leyfa henni
að gæla ljúflega við tungu hans.
Þannig geta tungurnar kynnst í
rólegheitum og fundið út hvað
þeim finnst best. Síðan er líka
gott að hafa í huga á hvaða vett-
vangi kossinn er framkvæmdur
því aðferðin getur breyst sam-
kvæmt því.
Kossar kysstir í mesta ná-rými tveggja einstaklinga
eru gjarnan ástríðufyllri og æstari
en gengur og gerist. Þá er allt í
lagi að gleyma reglunum og hafa
bara gaman af þessu.
Þá má ekki gleyma hinum
margfræga skemmtistaðasleik, en
þegar hann er framkvæmdur eru
fæstir í nokkru ástandi til að fara
eftir reglunum. Það er svo sem
allt í lagi við og við en skemmti-
legra er þó að æfa þessa list í ró-
legheitum heima við. Í slíkum til-
fellum er mikilvægt að skapa rétta
stemningu og vera vel undirbúinn.
Listin að kyssa vel og
vandlega
Reuters
Kyss,kyss Þessi tvö eru greinilega á leiðinni að skella sér í einn góðan koss.
Góður varasalvi er alveg nauðsyn-
legur til að halda vörunum kyssi-
legum og þær þurfa líka á honum
að halda eftir sífelldar æfingar.
Dálítið eins og þarft er að teygja á
eftir góða útrás í ræktinni.
Á fyrstu skrefum nýs sam-bands er ágætt að lauma
stöku léttum kossum að hér og
þar. Til að mynda í eldhúsinu ef
þið eruð að elda saman eða annar
fyrir hinn. Notið tækifærið til að
skapa smá spennu en hafið koss-
ana litla og snögga. Eins og smá
forrétt að girnilegu hlaðborði.
Þreifið ykkur síðan áfram í nota-
legheitum í sófanum og eftir
nokkrar góðar æfingar ættu tveir
einstaklingar að hafa náð að stilla
saman strengi sína. Nema auðvit-
að að þeir eigi bara kyssilega ekki
saman, það getur alveg komið fyr-
ir. En ef allt gengur vel jaðrar við
alsælu sú stund þegar tveir ein-
staklingar ná hámarks tækni í list-
inni að kyssa. Þá er fyrsta skref-
inu náð og hægt að þróa leikni
einstaklinganna áfram og lengra á
nýjar brautir.
»Notið tækifærið tilað skapa smá spennu
en hafið kossana litla og
snögga. Eins og smá-
vegis forrétt að girni-
legu hlaðborði.
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
Robert Pattinson
stórstjarnan úr
Twilight mynd-
unum, sýnir
magnaðan leik
í sínu besta
hlutverki til
þessa.
HHH
„BESTA MYND ROBERT
PATTINSONS TIL ÞESSA“
- EMPIRE
HHH
„VIRKILEGA VEL GERÐ MYND.“
- R.EBERT CHICAGO SUN TIMES
Mynd sem kemur
virkilega á óvart.Sveppi, uppáhald allra!!!
Og nú í þrívídd (3D)
STÆRSTA HELGAROPNUN ÁRSINS
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
STÆRSTA ÍSLENSKA
3D MYNDIN
FYRR OG SÍÐAR
HHH
„FYNDIN OG HRESS
GAMANMYND.“
„BARNABARNIÐ
VILDI GEFA Í ÞAÐ
MINNSTA FJÓRAR
EF EKKI FIMM
STJÖRNUR.“
- S.V. – MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
„VIRKILEGA VEL
HEPPNUÐ FJÖLSKYLDU-
MYND, BÆÐI SPENNAN-
DI OG SKEMMTILEG“
„MAÐUR GETUR HREIN-
LEGA EKKI BEÐIÐ EFTIR
NÆSTU MYND SVEPPA.“
„SVEPPI, TAKK FYRIR
AÐ SKEMMTA BÖRN-
UNUM OKKAR.“
- K.I. – PRESSAN.IS
BESTA SKEMMTUNIN
ALGJÖR SVEPPI OG DULARFULLA HÓTEL... kl.63D -83D L STEP UP 3 - 3D kl.83D -10:103D 7
ALGJÖR SVEPPI OG DULARFULLA HÓTEL... kl.6 L HUNDAR OG KETTIR 2 - 3D m. ísl. tali kl.63D L
REMEMBER ME kl.8 -10 L LETTERS TO JULIET kl.8 -10:20 L
AULINN ÉG m. ísl. tali kl.6 L INCEPTION kl.10:20 L
THE GHOST WRITER kl.8 -10:30 12 SHREK: SÆLL ALLA DAGA m. ísl. tali kl.6 L
THE GHOST WRITER kl.5:30-8-10:30 VIP-LÚXUS
/ ÁLFABAKKA
ALGJÖR SVEPPI OG DULARFULLA HÓTELHERB... kl.63D -83D -10:203D L
THE GHOST WRITER kl.10 12
STEP UP 3 - 3D kl.5:403D -83D 7
INCEPTION kl. 8 -10:40 12
LEIKFANGASAGA 3 m. ísl. tali kl. 5:50 L
/ KRINGLUNNI
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Nýrokksveitin Amusement Parks
On Fire lenti á Keflavíkurvelli í
gær og hafði Gylfi Blöndal, skipu-
leggjandi tónleikanna, þá óðar
fært leiðtoga sveitarinnar, Michael
Feerick, símtól. Feerick var eld-
hress, og að baki honum mátti
greina hlátrasköll, enda sveitin
komin aftur til lands elds og ísa
eftir nokkurra ára fjarveru. Þann-
ig er nefnilega að önnur plata
sveitarinnar, Out of the Angeles
(2006), var hljóðrituð í Sundlaug
Sigur Rósar um hávetur. Í dag er
sveitin hins vegar í stuttu stoppi
hérna áður en lagt verður í hann
til Bandaríkjanna, þar sem nýj-
asta platan, Road Eye, verður
kynnt.
„Já, við vorum hérna fyrir fjór-
um árum,“ útskýrir Feerick glað-
hlakkalega. „Ég veit eiginlega
ekki af hverju við komum hingað.
Útgáfan okkar átti slatta af pen-
ingum og ég notaði tækifærið og
lét senda okkur hingað um hávet-
ur. Það var dásamlegt! Síðan tók-
um við upp þessa nýjustu að
sumri til í Los Angeles. Tókum al-
gera u-beygju (hlær).“
Sveit hans hefur verið nokk far-
sæl undanfarin misseri en Feerick
segist vera hræddur við að halda
sig einhvers staðar annars staðar
en á jörðinni.
„Við megum ekki vera of æstir.
Þú veist hvernig þessi bransi er.
Við erum bara að njóta þessa
meðan þetta varir. Það er mikil
stemning í hópnum og vonandi
skilar það sér til áhorfenda í
kvöld.“
Rokk Amusement Parks On Fire.
Algjört indí
Nottinghamsveitin Amusement
Parks On Fire spilar á Sódómu í kvöld
Húsið verður opnað kl. 21 og að-
gangseyrir er 1.200 krónur. For a
Minor Reflection hitar upp.