Morgunblaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2010 Elsku afi minn, núna ertu kominn á staðinn sem þér líður vel á, staðinn sem þú varst í rauninni löngu tilbúinn til að fara á. Þinni þraut er lokið og þú ert laus við allar þjáningar. Ég efast ekki í eina mínútu um það að þú sért farinn að synda skrið- sund í einhverri sundlaug og jafn- vel farinn að taka einhver júdó- brögð. Reglulega kom ég til ykkar ömmu eftir skóla þegar ég var lít- il, þá sótti amma mig í Fossvogs- skóla og svo var farið heim að fá sér goggol (Cheerios), litað, spilað á píanóið og margt annað. Alltaf man ég eftir þér, elsku afi minn, sem einstaklega flottum í tauinu, allt í stíl alveg sama hvort það voru jakkaföt, hversdagsföt eða íþróttaföt. Alla tíð varstu dugnað- arforkur og eru margir sem geta litið upp til þín hvað varðar að vera duglegur í vinnu. Ef ég segi rétt frá að þá varstu veikur í 14 daga í bankanum á þessum 50 ár- Jóhann Ágústsson ✝ Jóhann Ágústssonfæddist í Reykja- vík 4. maí 1930. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð 23. september 2010. Jóhann var jarð- sunginn frá Bústaða- kirkju 30. september 2010. um sem þú varst þar. Þér fannst afskap- lega leiðinlegt að þurfa að hætta að vinna enda langt frá því að vera tilbúinn til þess. Þegar þú varst orðinn mikið veikur dvaldir þú á Sunnu- hlíð, þú varst ekkert voðalega sáttur við það fyrst en það lag- aðist þó. Ég heim- sótti þig reglulega og alltaf varstu jafnánægður að sjá einhvern koma til þín. Þú varst mikill sundgarpur alla tíð og þín daglega rútína var að fara í laugarnar eldsnemma á morgnana, synda og spjalla við hina gömlu kallana í pottunum um daginn og veginn. Undir lokin gastu ekki stundað sundið en við fjölskyldan þín vorum svo heppin að fá aðgang að sundlaug rétt hjá heima og gátum við farið með þig í nokkur skipti þangað. Ég þakka Guði fyrir í dag að hafa fengið að fara með þig í sund fimmtudeg- inum áður en ég flutti til Eng- lands. Þér fannst yndislegt að vera í vatninu, því þar varstu frjáls. Í sundinu tók ég eftir að þú hafðir engu gleymt hvað varðaði sundtökin, já þau voru svo sann- arlega enn til staðar. Ég man þá setningu sem þú sagðir við mig þegar ég sagði þér að það þýddi nú lítið að hafa hendurnar í loft- inu að reyna að synda, ég bað þig vinsamlegast um að hafa hend- urnar ofan í vatninu (með ákveð- inni röddu en samt smáhlæjandi). Þá sagðir þú: „Díana, þú ert hör- kukvendi.“ Já, það er ég kannski, sagði ég á móti og þú brostir þínu blíðasta og hélst áfram að synda. Við áttum góðar stundir saman, þú og ég, og ég veit að þér þótti afar vænt um mig. Ég kvaddi þig vel og lengi áður en ég flutti til Englands í júlí því innst inni vissi ég að það yrði mitt síðasta skipti sem ég myndi spjalla við þig. Þú varst úti í garðinum með hinu fólkinu sem býr á Sunnuhlíð, þið voruð öll með derhúfur í ann- aðhvort gulum eða gráum lit, þú auðvitað varst með gula húfu, því gulur fór þér einstaka vel. Þið sátuð í stólunum ykkar og nutuð sólarinnar og er það mín síðasta minning um þig elsku afi minn, ljúf, falleg og björt. Ég kveð þig með söknuði, elsku afi minn, og ég veit að þú ert um- kringdur fólki sem er annt um þig. Við pössum upp á ömmu fyrir þig, þú þarft engar áhyggjur að hafa. Þín Díana Íris. Skömmu eftir að ég, sem algjör nýgræðingur, hóf störf hjá Landsbanka Íslands, Austurbæj- arútibúi, þá ungur maður, um tví- tugt, kom annar ungur maður, rúmlega þrítutugur, til starfa þar, sem skrifstofustjóri útibúsins. Þessi maður var Jóhann Ágústs- son, reynslubolti þó ungur væri, sem hafði verið yfirmaður gjald- eyrisdeildar aðalbankans um nokkurt skeið og unnið víða ann- ars staðar í bankanum. Jóhann varð síðan útibússtjóri og enn síð- ar starfsmannastjóri Landsbank- ans og að síðustu tók hann við starfi aðstoðarbankastjóra Lands- bankans en því starfi gegndi hann allt þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Ég held að Jóhann hafi kennt mér meira í bankafræðunum, en nokkur annar maður, á þeim 44 árum sem ég starfaði í bankakerf- inu eins og það var í þá daga, það er fyrir hrun. Leiðir okkar Jó- hanns lágu víða saman. Í um ára- tug var hann næsti yfirmaður minn í Austurbæjarútibúi bank- ans og síðar lágu leiðir okkar saman í aðalbankanum eftir að ég kom heim frá London þar sem ég starfaði í um 1 ½ ár hjá Scand- inavian Bank Ltd. En lengst og kannski nánast störfuðum við saman i stjórn VISA Ísland – Greiðslumiðlun hf. Jóhann vann að undirbúningi að stofnun Visa Ísland fyrir Landsbankann og ég fyrir Bún- aðarbankann ásamt með mörgum öðrum góðum mönnum frá hinum bönkunum og sparisjóðunum. Jó- hann var svo stjórnarformaður fé- lagsins fyrstu 15 árin og ég vara- formaður allan þann tíma. Aldrei minnist ég þess að greiða hafi þurft atkvæði á fundum félagsins. Allt var ákveðið samhljóða. Það var ekki síst Jóhanni að þakka. Hann var mannasættir. Það eru margar ánægjulegar minningar frá þessum langa tíma. Við Jóna fórum mörg ferðalögin með þeim Jóhanni og Svölu, bæði innanlands og utan en öll þau æv- intýri væri of langt að telja upp hér. Eitt sinn vorum við báðir að fara á aðalfund VISA Internatio- nal sem í það sinnið skyldi hald- inn í Vínarborg. Við vorum ekki samferða en áttum að hittast í Vínarborg á ákveðnum degi. Ég notaði ferðina og heimsótti nokkra banka sem Búnaðarbank- inn var í viðskiptum við. Meðal annars var komið til München og um kvöldið vorum við hjónin á gangi um aðaltorgið og Jóna seg- ir: „Ég finn það á mér að við hitt- um Jóhann og Svölu hérna.“ „Það getur ekki verið, þau eru á leið- inni til Vínarborgar,“ segi ég. Í því er kallað á okkur frá einu úti- veitingahúsinu og þar eru komin Jóhann og Svala. „Nei, nú finnst mér sambandið vera orðið fullná- ið,“ varð mér þá að orði. Leiðir okkar Jóhanns lágu einnig saman, þegar hann stjórn- aði fundi í Frímúrarareglunni, þegar ég var tekinn inn í Regl- una. Hin síðari ár, á meðan heilsa Jóhanns leyfði, höfum við hjónin hitt þau Jóhann og Svölu eina kvöldstund árlega, ásamt gömlum Landsbankamanni, Helga H. Steingrímssyni og Völu konu hans. Það hafa verið gefandi stundir fyrir okkur öll. Við viljum nú þakka fyrir sam- verustundirnar, sem allar voru ánægjulegar, hvort sem var við leik eða störf. Elsku Svala, úr fjarlægð send- um við þér og fjölskyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jóna Árnadóttir og Sólon R. Sigurðsson. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Gisting Hjá okkur gista hópar og fjölskyldur allt árið Frábær aðstaða fyrir ættarmót, fyrir- tæki. Heitir pottar, grill og samkomu- salur. Ódýr gisting á góðum stað. www.minniborgir.is Sími 868-3592 Atvinnuhúsnæði Til leigu nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Rvk. Securitas- öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð samnýting. Uppl. í síma 896 9629. Geymslur Geymi tjaldvagna, fellihýsi ofl. Ímynd gæða. Fjögurra stjörnu. 13 ára reynsla. Í símaskrá ja.is undir; geymsla asgeirs eirikssonar ehf. Upplýsingar 897 1731 klettar@heimsnet.is Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratugareynsla. Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Námskeið Hjartanærandi uppeldi f. erfið börn Námskeið í Hjartanærandi uppeldi f. foreldra erfiðra barna verður í Ólafsvík 8.-11. okt. Viltu upp- lifa kraftaverk? Skráning í s. 6152161 eða greta@lifogframtid.net. Til sölu Steypusög - Til sölu Partner K-3500 steypusög (þessi gamla góða) og dælustöð. Vel yfirfarin. Upplýsingar í síma 897-7162. Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is STIGA – borðtennisborð Mikið úrval, sjá; www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2.h.), S. 568 3920. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Upp. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Blómaskór. Margir litir. Eitt par 1.200 kr., tvö pör 2000 kr. Ný sending af kínaskóm kr. 1500 Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. s persónuleg spil ...þegar þú vilt þægindi Kr. 12.990,- Klossar. Litir: Svart - Hvítt stærð 36- 46 Bonito ehf. Praxis Faxafeni 10, 108 Reykjavík Sími: 568 2878 Opnunartími: mánud.-föstud. kl. 11.00-17.00 www.praxis.is TILBOÐ Þægilegir bandaskór úr leðri. Stakar stærðir. Verð: 3.500.- Sími: 551 2070, opið: mán.- fös. 10 - 18. laugardaga 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Nýkomið – Úlpur Dúnúlpa, litir svart,grá, St.S-XXXL. Hálfsíð úlpa, létt, litir svart, blágrá. St S-XXXL. Sími 588 8050 Dömur! Inniskór og sandallar úr leðri í úrvali. Margar gerðir. Verð: 10.900 - og 11.870.- Sími: 551 2070, opið: mán.- fös. 10 - 18. laugardaga 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílar Range Rover Vouge 2004 Á 22” felgum og með öllum búnaði. Ekinn 64 þ. km. Bíllinn er sem nýr. Hvort vilt þú þremur árum nýrri Kia jeppling eða þennan glæsivagn á svipuðu verði? Verð aðeins 4.250 þús. www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Bílaþjónusta Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.