Morgunblaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 37
Complicite’s A Disappearing Number 14. október 2010 Hamlet 9. desember FELA! 13. janúar 2011 Donmar Warehouse’s King Lear 3. febrúar 2011 Frankenstein 17. mars 2011 The Cherry Orchard 30. júní 2011 ÞAÐ BESTA Í BRESKU LEIKHÚSI Í BEINNI ÚTSENDINGU Í BÍÓ Miðasala er hafin í miðasölu sambíóanna Kringlunni, boðið er upp á númeruð sæti Afsláttarkort á allar sýningar komin í sölu Í KVÖLD KL. 10:10 MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2010 Ég er það ungur að ég hafði aldrei svigrúm til að taka afstöðu gegn Yoko Ono (sem allir karlkyns Bítla- aðdáendur yfir fimmtugu virðast gera). Fyrir mér var hún bara snotur japönsk kona sem átti nokkur skrít- in og skemmtileg lög á plötunni Double Fantasy sem var ein af plötunum sem fengu að rúlla á æskuheimili mínu. Ono hefur allt frá því að hún kynntist Lennon rekið sólóferil og margt af því sem hún gerði á áttunda áratugnum var framsækið og byltingarkennt og átti eftir að hafa áhrif á seinni tíma tilraunarokkara. Þessi nýja útgáfa af Plastic Ono Band, sem við fáum að berja augum á laug- ardaginn, skilar hér inn torræðu, tilraunaglöðu verki sem er vel sambærilegt við fyrri afrek Yoko Ono á því sviðinu, og aðra áþekka tónlist sem er verið að gera í dag ef því er að skipta. Ekki slæm- ur árangur hjá 77 ára gamalli konu. Lítið popp, meiri sýra Yoko Ono Plastic Ono Band – Between My Head And The Sky bbbmn Arnar Eggert Thoroddsen Erlendar plötur Eins og allir aðdáendur Johns heitins Lennons vita þá hefði hann orðið sjötugur 9. október nk. Af því tilefni hefur verið gefin út platan sem hér er rýnt í, Power to the People – the Hits. Plata þessi hefur að geyma fimm- tán smelli eftir Lennon, þ.e. lög sem hann gaf út eftir að samstarfinu við Bítlana lauk. Og hvað er hægt að segja um slíka plötu? John Lennon var vissulega tónlistarsnillingur, eftir hann liggur mikill fjöldi sígildra laga. Það hlýtur því að hafa verið erfitt verk að velja 15 „hittara“ á plötu og Len- non-fræðingar súpa sjálfsagt hveljur yfir slíkum gjörningi. En plata á borð við þessa er kjörin fyrir þá sem eru ekki Lennon-fræðingar, t.d. ungt fólk. Hér er verið að lóðsa fólk inn í tónlistarheim Lennons og ekk- ert svo sem við því að segja. „Woman“, Instant Karma“, „Jelous Guy“ og „Imagine“ eru t.d. á plöt- unni. En þeir sem vilja umfangsmeiri úttekt á goðinu þurfa eitthvað meira. Power to the People – The Hits bbbbn Lennon fyrir byrjendur Helgi Snær Sigurðsson Þá er þér boðið í Jeppaferð fjölskyldunnar laugardaginn 9. október Skráning í síma 590 2000 eða með tölvupósti á benni@benni.is Samstarfsaðilar Nánari upplýsingar á www.benni.is Átt þú jeppa frá Bílabúð Benna? Í tilefni jeppaferðarinnar bjóðum við öllum 15% afslátt* af Toyo vetrar- og jeppadekkjum til 9. október. Komdu við á nýja dekkjaverkstæðinu okkar að Tangarhöfða 8 og við afgreiðum þig fljótt og vel. Dekkjatilboð! *T il b o ð g il d ir a f st a ð g re ið sl u o g g il d ir e k k im e ð ö ð ru m ti lb o ð u m . Mikið hefur verið fjallað um uppsetn- ingu Borgarleikhússins og Vest- urports á Faust í leikhúsinu Young Vic í Lundúnum í breskum fjölmiðlum undanfarna daga. Vikuritið Time Out, sem segja má að sé biblía þeirra sem búa í London og vilja vita hvað er að gerast í menningarlífinu, setur sýninguna í fyrsta sæti yfir þær sem mælt er með í leikhúskafla ritsins, sk. Critic’s Choice dálki, þ.e. vali gagn- rýnenda. Gagnrýnendur Time Out eru með því að segja að sýningin sé sú sem fólk eigi helst að sjá í leikhúsum borgarinnar og fær hún fjórar stjörn- ur í gagnrýni, sem er afar gott. Þá er orðið uppselt á allar sýningar á Faust í London. Vefurinn What’s on Stage tekur saman gagnrýni breskra fjölmiðla á sýninguna en gagnrýnandi þess mið- ils gefur henni þrjár stjörnur. Sjá má samantektina á whatsonstage.com undir flipanum Review Round-Ups. Leiksýningin Faust fyrsta val gagnrýnenda Time Out Nr. 1 Björn Hlynur Haraldsson og Hilmir Snær Guðnason í Faust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.