Morgunblaðið - 04.11.2010, Page 2

Morgunblaðið - 04.11.2010, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Opið virka daga 9-18 • Laugardaga 10-16 Laugavegi 29 • Sími 552 4320 • www.brynja.is • brynja@brynja.is Tifsagir Tifsagir og sagarblöð í úrvali Norðurál hefur kannað möguleika á að flytja súrál vegna 1. áfanga álvers- ins í Helguvík landleiðina frá Grund- artanga. Umhverfisstofnun hefur staðfest að slíkir flutningar myndu rúmast innan starfsleyfis. Tankbíll, svipaður sementsflutningabílum, færi frá Grundartanga á tveggja klukku- stunda fresti yrði þessi aðferð valin. Um 170.000 tonn af súráli þarf til að framleiða 90.000 tonn af áli. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, benti á að búnaður til að taka við súráli úr skipum væri dýr og væri jafnan keyptur vegna meiri framleiðslu en sem nemur 90.000 tonnum, líkt og álverið á að framleiða í 1. áfanga. Þegar framleiðsla hæfist í 2. áfanga yrði hætt að flytja súrálið með skipum. „Það liggur þó ekkert fyrir um þetta ennþá.“ Í Peningamálum Seðlabankans sem komu út í gær er því spáð að framkvæmdir við álverið fari á fullt skrið árið 2012. Samið um orku í nóvember? Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að samkvæmt upplýsingum hans stefndi jafnvel í að orkusölusamningar tækjust í þessum mánuði. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, sagði að ef samningar kláruðust á þessu ári færu fram- kvæmdir af stað fljótlega í kjölfarið. Meira hangir þó á spýtunni. Ragn- ar benti á að enn væri beðið eftir leyfi fyrir meiri vinnslu í Reykjanesvirkj- un. Þá væri ekki búið að staðfesta skipulag í Ölfusi. Skoða möguleika á að flytja súrálið með bílum Morgunblaðið/Golli Álver Til að framleiða 90.000 tonn af áli þarf 170.000 tonn af súráli.  Færi um höfnina í Helgu- vík í 2. áfanga Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er fyrst og fremst varnarbar- átta sem snýst um að stöðva þá kaup- máttarrýrnun sem verið hefur og byggja síðan ofan á þann grunn,“ segir Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR. Stjórn félagsins er að undirbúa kröfugerð vegna komandi kjarasamn- inga og fékk í gær niðurstöður könn- unar Félagsvísindastofnunar á við- horfum félagsmanna. Í könnuninni kemur fram að flestir félagsmenn leggja áherslu á að tryggja kaupmátt launa, eða um 43%, fjórðungur setur beinar launahækkan- ir í forgang og annar fjórðungur nefnir atvinnuöryggi. Yngri félagsmenn með minni menntun og lægri tekjur leggja áherslu á beinar launahækkanir og at- vinnuöryggi en áhersla á aukinn kaup- mátt eykst eftir því sem fólk er eldra og með meiri menntun og tekjur. Þjóðin sameinist um lausnir Mikill meirihluti svarenda kveðst hlynntur því að lögð verði sérstök áhersla á hækkun lægstu launa, jafn- vel þótt það þýði minni almennar hækkanir. Tveir þriðju þeirra sem þátt tóku í könnuninni segjast hlynntir hugmynd- inni um heildarsátt milli stéttarfélaga, atvinnurekenda og stjórnvalda þar sem lögð verði áhersla á lækkun verð- lags í stað launahækkana en liðlega fimmtungur er andvígur. Þegar spurt er um áherslur í sameiginlegum kröf- um verkalýðshreyfingarinnar eru að- gerðir til að draga úr skuldavanda heimilanna og atvinnuleysi efst í huga svarenda ásamt afnámi verðtrygging- ar. „Krafan er mjög einföld. Fólk vill sjá aukinn kaupmátt og meiri ráðstöf- unartekjur, hvort sem það verði gert með launahækkunum eða í gegn um skattkerfið og að unnið verði að lausn á skuldavanda heimilanna,“ segir Krist- inn Örn. Hann segir að könnunin sýni að fólk sé ekki með upphrópanir um hækkun launa ef það skili ekki kaup- máttaraukningu. „Þetta er einnig ákall okkar fé- lagsmanna um að þjóðin sameinist um raunhæfa áætlun út úr vandanum. Ég lít svo á að kjarasamningar séu ágætis tækifæri til að draga stjórnmálamenn að því verki með aðilum vinnumark- aðarins,“ segir hann. Flestir vilja tryggja kaupmátt launa  Varnarbarátta, segir formaður VR um viðhorf félagsmanna í komandi kjarasamningum? Að tryggja kaupmátt launa 43% Beinar launahækkanir 26% Atvinnuöryggi 25% Aukin réttindi 5% Starfsumhverfi 1% Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands 43% 26% 25% 5% 1% Hvað vilja félagsmenn VR leggja áherslu á Stöðug snjókoma var nær allan gærdag á Akureyri. Úrkoma var þó ekki mikil, en hvítur dúkurinn hylur bæjarfélagið allt og nærsveitir. Norðanmenn láta fölið ekki hafa áhrif á sig og lífið gengur sinn vanagang. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lífsins gangur í snjónum Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ekki stendur til að banna „sígilda söngva, dansa, leiki eða handíðir sem teljast hluti af gamalgrónum hátíð- um og frídögum þjóðarinnar“ eins og það er orðað í tillögu mannréttinda- ráðs Reykjavíkurborgar sem vísað var til umsagnar menntaráðs, vel- ferðarráðs og íþrótta- og tómstunda- ráðs eftir aukafund þess í gær. Tillagan nú er mun ítarlegri en þau drög sem áður hafði verið fjallað um en Margrét Sverrisdóttir, for- maður mannréttindaráðs, segir að skerpt hafi verið á orðalagi tillög- unnar. Þá sé nú gert ráð fyrir að reynslan af reglunum sem lagðar eru til verði metin þegar tvö ár séu liðin frá gildistöku þeirra og þær endur- skoðaðar ef þörf krefji. Trúboð alfarið úr leikskólum Í tillögunni segir að hlutverk skóla borgarinnar sé að fræða nemendur um ólík trúarbrögð og lífsskoðanir samkvæmt gildandi aðalnámskrá en bænahald og aðrar trúariðkanir séu hluti af trúaruppeldi foreldra. Því er tekið fyrir heimsóknir fulltrúa trúar- eða lífsskoðunarhópa og dreifingu á boðandi efni á skólatíma frístunda- heimila, leik- og grunnskóla. Skóla- stjórnendur grunnskóla geti hins vegar boðið slíkum fulltrúum að heimsækja kennslustundir sem lið í fræðslu um trú og lífsskoðanir sam- kvæmt aðalnámskrá undir hand- leiðslu kennara. Hið sama gildir um heimsóknir í helgi- og samkomustaði eins og kirkjur. Í leikskólum er lagt til að fræðsla um kristilegt siðferði og aðrar lífsskoðanir verði alfarið á hendi leikskólakennara og fari fram innan veggja leikskólans. Segja samráði hafnað Fulltrúar Sjálfstæðisflokks létu bóka á fundinum andstöðu sína við tillöguna og að samráð og samstarf við foreldra hefði ekki verið tryggt. Sagði í bókuninni að vandaðri vinnu- brögð væru að hefja vinnu við að ná víðtækri samstöðu við foreldra, skóla, nemendur, fræðimenn, þjóð- kirkju og trúar- og lífsskoðunarfélög með það að markmiði að leggja mat á hvort ástæða væri til þess að end- urmeta samstarf trúar- og lífsskoð- unarfélaga við grunnskóla og leik- skóla. Lagði flokkurinn fram tillögu þess efnis og var hún einnig send sömu ráðum til umsagnar. Meirihlutinn lét á móti bóka að víðtækt samráð hefði þegar farið fram og vísaði til erindisbréfs stýri- hóps um samstarf kirkju og skóla frá árinu 2007. Þar hefði verið lagt til að settar yrðu reglur um þessi sam- skipti. Því væri ekki ástæða til að hefja samráðsferli að nýju.  Prestar mega enn heimsækja skóla Trúartákn Ekki verður leyfilegt að gefa trúarrit eða -tákn í skólum. Fleiri tillögur ráðsins » Fermingarfræðsla og barna- starf trufli ekki skólastarf og leiði ekki til mismununar nem- enda utan tiltekinna trúar- og lífsskoðunarfélaga. » Áfallaráð tryggi að fagaðilar óbundnir trúar- og lífsskoð- unarfélögum komi að sálræn- um áföllum en kalla megi til fagaðila frá trúfélagi að höfðu samráði við foreldra. » Boðandi efni er skilgreint sem hlutir sem gefnir eru eða notaðir sem hluti af trúboði, það er tákngripir, fjölfölduð trúar- og lífsskoðunarrit, bæk- ur, auglýsingar, hljóðrit, prent- myndir og kvikmyndir. Því má ekki dreifa á skólatíma ef til- lögurnar verða samþykktar. Stendur ekki til að banna litlu jólin í skólum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.