Morgunblaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010 „Við heyrum af mönnum sem lang- ar að fara yfir. Það eru margir spenntir,“ segir Steinn Leó Sveins- son, verkefnisstjóri hjá Ræktunar- sambandi Skeiða og Flóa. Starfs- menn fyrirtækisins og undirverktaka eru að ganga frá nýju brúnni á Hvítá við Bræðra- tungu en hún verður opnuð fyrir al- menna umferð undir lok mánaðar- ins. Nýja Hvítárbrúin tengir betur saman Biskupstungur og Hruna- mannahrepp og þar með helstu þjónustukjarna sveitanna, þar á meðal Reykholt og Flúðir. Hún kemur í kjölfar nýs vegar um Lyngdalsheiði, á milli Þingvalla og Laugarvatns. Mikil samgöngubót Nýja brúin er 270 metrar að lengd. Starfsmenn undirverktakans JÁ verks eru að ganga frá hand- riðum og öðru slíku. Þá er Rækt- unarsambandið að ganga frá veg- tengingum sem alls eru um 9 kílómetrar. Þá eru Fossvélar við efnisvinnslu. Samkvæmt samningi á að vera hægt að hleypa umferð á veginn í nóvember. Steinn Leó segir að það verði gert undir lok mánaðarins. „Þetta verður mikil samgöngubót,“ bætir hann við. Vegurinn verður látinn síga í vetur og klæðning lögð á hann næsta vor. Verkinu á að vera að fullu lokið 15. júní á næsta ári. helgi@mbl.is Spenntir að komast yfir Morgunblaðið/RAX Brúargerð Hvítárbrúin er 270 metra löng og um 9 kílómetra vegur að.  Umferð verður hleypt á Hvítárbrú við Bræðratungu undir lok mánaðarins  Verktakar eru að ganga frá vegi og brú Sjávarútvegsráðherra ákvað í gær 40 þúsund tonna upphafskvóta á ís- lenskri sumargotssíld. 25 þúsund tonnum verður úthlutað að þessu sinni því um miðjan síðasta mánuð var úthlutað 15 þúsund tonnum. Ákvörðunin er tekin í framhaldi af nýrri ráðgjöf Hafrannsóknastofn- unar þar sem lagt er til að heildar- aflamark vertíðarinnar fari ekki yfir 40 þúsund tonn. Í frétt frá stofn- uninni um ástand síldarstofnsins og ráðgjöf fyrir vertíðina kemur fram um 35% síldarinnar eru talin vera sýkt og er þetta þriðja vertíðin sem sýking er í stofninum. Niðurstöður bergmálsmælinga benda til þess að veiðistofn síldar sé um 27% minni í fjölda en hann var í október 2009, en framreikningar Hafrannsóknastofnunarinnar í júní síðastliðnum gerðu ráð fyrir enn minni stofni en nú mældist. Nið- urstöður stofnmats benda til þess að hrygningarstofninn verði um 370 þúsund tonn í byrjun árs 2011. Lágt hlutfall nýsmits „Um 35% þess lífmassa er metinn vera sýktur nú í haust í samanburði við 32% og 40% haustin 2008 og 2009. Samkvæmt ofangreindu stofn- mati hefur hrygningarstofninn farið ört minnkandi frá árinu 2006 er hann metinn hafa verið um 700 þús- und tonn. Þrátt fyrir að hlutfall sýktrar síldar í stofninum sé enn hátt er hlutfall nýsmits lágt. Mestur hluti sýktu síldarinnar er með sýk- ingu sem er langt gengin. Þessar niðurstöður eru ólíkar því sem sést hefur á undanförnum tveim árum þar sem hlutfall lítið sýktrar síldar var hæst í október en minnkaði þegar leið á veturinn á sama tíma og hlutfall mikið sýktrar síldar jókst. Gæti þetta verið vís- bending um að sýkingarfaraldurinn sé í rénun. Eins var stóran hluta 2007 ár- gangsins, sem kemur inn í veiðina á næsta ári, að finna nánast ósýktan í Breiðamerkurdjúpi,“ segir í frétt Hafrannsóknastofnunarinnar. aij@mbl.is Sýking er enn í þriðju hverri síld Afli fari ekki yfir 40 þúsund tonn í vetur Síldarafli í þúsundum tonna Veiðiár Afli 2000 – 2001 100 2001 – 2002 95 2002 – 2003 94 2003 – 2004 126 2004 – 2005 115 2005 – 2006 103 2006 – 2007 135 2007 – 2008 159 2008 – 2009 152 2009 – 2010 46

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.