Morgunblaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010 Mér þótti vænt um að sjá það í grein Ög- mundar Jónassonar ráðherra í Morg- unblaðinu á þriðjudag- inn að hann hefur áhyggjur af því eins og Jón Grunnvíkingur á sínum tíma hve baga- leg fábreytni í atvinnu- málum sé. Báðir eru nútímamenn í hugsun. Grunnvíkingurinn vitnar til séra Narfa á Útnyrðingsstöðum um verk- legar nýjungar, en það orð lá á að séra Narfi kynni að búa til peninga og bláan lit úr steinum. Ögmundur vill „huga að orðum Jóns frá Grunnavík og lofta út“. Það er rétt hjá Ögmundi að um hálfrar aldar skeið hef ég verið áhugamaður um stóriðju og vísast til ályktunar ungra sjálfstæðismanna á Akureyri árið 1961 um þau efni. En alþýðubandalagsmenn (vinstri græn- ir) vildu eitthvað annað þótt þeir létu sér ekki detta í hug fjallagrös á þeim tíma. Þeir voru hræddir við útlend- inga í atvinnurekstri, einkum banda- ríska. Einar Olgeirsson hvessti augun á Ólaf Thors og Bjarna Benediktsson og sagði: „Þér, villidýr í frumskógum auðvaldsins.“ Talað var um Mið- nesheiði til að lýsa andúð á varnarlið- inu og Nató eins og nú er talað um Hádegismóa út af Morgunblaðinu. Atvinnuleysi fer vaxandi, ungt fólk hverfur úr landi og æ fleiri fjöl- skyldur sjá ekki fram úr fjárhagsvanda sínum. Forsætisráðherra talar um græna atvinnu- stefnu. Það kallast spilli- bloti í harðindum, þegar þiðnar, en of lítið þó til að auðni. Næsta frost myndar harðfenni eða svell og tekur fyrir alla beit. Þvílík eru loforð ríkisstjórnarinnar til bjargar atvinnulausum og heimilunum í landinu – loforðin eru spillibloti í harðindum. . Eitt er sameiginlegt með Ögmundi ráðherra og Grunnvíkingnum, báðir trúa á kynjasögur frá fjarlægum slóð- um. Grunnvíkingurinn spurði Jón Hreggviðsson hvað væri nýjast af Ís- landi og hann sagði honum frá sjók- indum á Akranesi og væru sumar ljótar. Ögmundur sá roðann í austri. Og báðir fundu það sem þeir leituðu að. En þó hefur ekkert breyst – at- vinnuleysið eykst og leitin endalausa að einhverju öðru heldur áfram. Leitin endalausa að einhverju öðru Eftir Halldór Blöndal Halldór Blöndal »Eitt er sameiginlegt með Ögmundi ráð- herra og Grunnvík- ingnum, báðir trúa á kynjasögur frá fjar- lægum slóðum. Höfundur var forseti Alþingis. Það er skoðun okkar hollvina og Konráðs Lúðvíkssonar læknis að hægt sé að koma í veg fyrir að fæðingar- og skurðlæknaþjónusta hér á Heilbrigðisstofn- un Suðurnesja verði áfram í Reykjavík ef stjórnendur HSS og ráðuneytið vinni saman af heilum hug í málinu. Við hollvinir og Konráð Lúðvíksson læknir áttum fund með heilbrigðis- ráðherra Álfheiði Ingadóttir í vor þar sem við kynntum hugmyndir okkar um lausn sem gæti tryggt áfram þjón- ustuna á HSS. Þar segir meðal ann- ars: „Að heilbrigðisráðherra veiti leyfi til að nýta umfram rými á skurðstofu til útleigu enda sé tryggt að allur ágóði renni óskertur til HSS til að standa straum af þeirri lágmarks skurðþjón- ustu sem starfrækt væri samtímis í þágu íbúa Suðurnesja. Hér skal undir- strikað að um er að ræða leigutekjur sem renna óskertar til HSS.“ Ráðherra lét í framhaldi af þessari beiðni reikna út hver áætlaður kostn- aður væri af rekstri skurðstofunnar, miða við þá starfsemi sem verið hefði og liggur sú áætlun fyrir. Einnig fengum við upplýsingar frá starfsmönnum heilbrigðisráðuneytis- ins að þeirra túlkun væri að næsta skef varðandi umsókn um þetta form á rekstri væri í höndum framkvæmda- stjórnar HSS. Framkvæmdastjórnin hefur hins vegar tekið þá afstöðu að þær umsóknir sem berast um leigu á skurðstofu skuli fara beint til heil- brigðisráðuneytisins. Hollvinir telja að það verði að fá nið- urstöðu í þetta aðkallandi mál. Við heitum á heilbrigðisráðherra Guð- bjart Hannesson og framkvæmda- stjórn HSS að leysa þetta brýna mál hið bráðasta. Fæðandi konur á Suð- urnesjum og aðrir íbúar eiga fyllsta öryggi í heilbrigðismálum skilið. Þetta er rifjað upp núna að gefnu tilefni og vegna þess sem fram kom á fundinum um atvinnumál í Stapa 28. október en þar mátti skilja á við- brögðum nokkra fundarmanna að við undirrituð værum andvíg útleigu á skurðstofum. Eins og rakið er hér að framan höfum við lagt til og munum leggja áherslu á að skurðstofurnar verði leigðar út ef það gæti orðið til þess að þjónustan yrði áfram hér á Suðurnesjum. Hollvinir Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Eftir Eyjólf Eysteinsson og Sólveigu Þórðardóttur » „Að heilbrigðisráð- herra veiti leyfi til að nýta umfram rými á skurðstofu til útleigu enda sé tryggt að allur ágóði renni óskertur til HSS.“ Sólveig Þórðardóttir Eyjólfur Eysteinsson er fomaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum Sólveig Þórðardóttir er ljósmóðir. Eyjólfur Eysteinsson Skurðstofur sjúkrahússins verði leigðar útSunnudagskvöldið31.10. var sýnd í Sjón-varpinu óvenjulega vönduð heimildamynd um kirkjugluggana frá Coventry sem voru upprunalega í dóm- kirkjunni þar. Myndin var gerð af Hjálmtý Heiðdal og Karl Smári Hreinsson var sögu- maður en hann hefur um árabil rannsakað þetta ein- kennilega mál. Eftir myndina verður eðlilega til spurning sem brennur á vörum fjöl- margra: Eigum við Íslendingar að skreyta kirkjurnar okkar með mis- jafnlega vel fengnum munum sem auk þess bera tákn sem eiga sér enga skírskotun í okkar kirkjusögu? Hvaða erindi á t.d. heilagur Georg í íslenskar kirkjur og hvað þá breski konungsfáninn Union Jack frá fyrri öldum? Þessir munir voru gefnir dómkirkjunni í Coventry á Englandi til minningar um enskt hefðarfólk. Þessar rúður eru því mjög framandi og jafnvel ankannalegar í okkar guðshúsum. Við Íslendingar búum svo vel að meðal okkar er frábært listafólk sem með list sinni, hugviti sínu og frábæru hand- verki, hefur gert mjög fögur listaverk sem prýða kirkjur okkar. Eru þessi íslensku lista- verk ekki eðlilega mun heppilegri í kirkjunum okkar sem eru okkur til lofs en ekki lasts. Má þar nefna kirkjuglugga Skálholts- dómkirkju, Bessastaðakirkju, Ak- ureyrarkirkju og fjölmargra annarra kirkna. Í síðastnefndu kirkjunni er að finna í kór kirkjunnar mjög framandi glugga sem í ljós hefur komið að eru þýfi sem hvarf úr kirkjugóssi og kom- ið var fyrir í geymslu snemma í stríð- inu en hvarf af óútskýranlegan hátt og barst hingað til lands af ókunnum ástæðum. Ber okkur Íslendingum ekki siðferðislegur réttur og lagaleg skylda að skila hlutum sem vitað er að geta ekki verið annað en þýfi? Gildir einu þó að einhverjir telji sig hafa komist yfir þessa muni á lögleg- an hátt á sínum tíma. Brigðaréttur upphaflegs eiganda er óumdeil- anlegur og fyrir hendi enda hefur allt- af legið fyrir vitneskja um að um þýfi væri að ræða. Við getum minnst þess að um aldamótin 1900 keypti ensk ferðakona fyrir örfáar krónur gömlu altaristöfluna í Þingvallakirkju. Alt- aristöfluna gerði Ófeigur Jónsson, bóndi í Heiðarbæ, og er mjög fallegur gripur og tengist alþýðulist fyrri hluta 19. aldar. Heimkomin gaf þessi ferðakona sóknarkirkjunni á eynni Wright í Suður-Englandi þessa alt- aristöflu. Þó svo að þessi kirkjumunur væri upphaflega vel fenginn þar sem presturinn hafði látið hann af hendi frjáls gegn greiðslu brugðust Eng- lendingar vel við tilmælum Magnúsar Magnússonar sem var kunnur BBC- maður í Edinborg af íslenskum ætt- um. Magnús benti með hægversku sinni á að þessi einstaki kirkjumunur ætti fremur heima á upprunalegum stað í Þingvallakirkju fremur en breskri kirkju. Þessu listaverki var skilað 1974 og tilefnið var Þjóðhátíðin sem haldin var þá um sumarið. Það var Bretum til mikils sóma og okkur sem nú lifum til eftirbreytni. Við Ís- lendingar eigum að sýna öðrum þjóð- um þann skilning að skila merkum gripum, sem eru heimamönnum kær- ir, án undanbragða. Þurfum við að tengja muni kirknanna okkar við ein- hver myrkraverk? Kirkjumunir – gamalt þýfi? Eftir Guðjón Jensson »Við Íslendingar eig- um að sýna öðrum þjóðum þann skilning að skila merkum gripum, sem eru heimamönnum kærir, án undanbragða. Guðjón Jensson Höfundur er bókasafnsfræðingur og leiðsögumaður. Morgunblaðið birtir alla útgáfu- daga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í sam- ráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Þeir sem þurfa að senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti og grein- ar sem sendar eru á aðra miðla eru ekki birtar. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarks- lengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefnum. Móttaka aðsendra greina Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Í jólablaðinu í ár komum við víða við, heimsækjum fjölda fólks og verðum með fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa. JÓLABLAÐIÐ sérblað Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt jólablað, laugardaginn 27. nóvember 2010 PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 22. nóvember NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 –– Meira fyrir lesendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.