Morgunblaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Núna fer ég norður!“ er heiti há- tíðar sem haldin verður á Þórshöfn um helgina. Bættar samgöngur með tilkomu Hófaskarðsleiðar er tilefni hátíðarinnar. Hófaskarðsleið liggur þvert yfir Melrakkasléttu og styttir leið- ina á milli Þórshafnar og annarra bæja á Norðurlandi um liðlega fimmtíu kílómetra og eykur jafn- framt öryggi. Þá er Raufarhöfn tengd inn á þennan veg. Hófa- skarðsleiðin kemur í stað vegarins fyrir Melrakkasléttu og gamals sumarvegar um Öxafjarðarheiði. Nýi vegurinn var opnaður fyrir umferð í lok ágúst. Þarf að vekja athygli þjóðar „Þetta skiptir miklu máli fyrir samfélagið,“ segir Halldóra Gunn- arsdóttir, menningar- og ferða- fulltrúi Langanesbyggðar. Hún segir að full þörf sé á því að vekja athygli þjóðarinnar á því að ekki sé lengur allt of langt til Þórshafnar og vegir of vondir til að hægt sé að skreppa þangað. Með sama hætti hafi nú Þórshöfn dregist inn í stærra samfélag. Auðveldara verði fyrir íbúa sveitarfélagsins að taka þátt í viðburðum á Húsavík eða Akureyri, svo dæmi séu tekin. Eftir að menningarfulltrúinn byrjaði að skipuleggja hátíð til að vekja athygli á veginum komu ein- staklingar og fyrirtæki með sína atburði og uppákomur inn í dag- skrána. Sömuleiðis nágrannar á Raufarhöfn, Kópaskeri og í Öxar- firði.Vegagerðin og samgönguráðu- neytið gengu til liðs við heimamenn og ákveðið var að opna veginn með borðaklippingu og viðhöfn þannig að nú er með sanni hægt að nefna þetta vegopnunarhátíð. Athöfnin fer fram við áning- arstað í Hófaskarði og hefst klukk- an 11 á laugardag. Þá munu Ög- mundur Jónasson samgöngu- ráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri klippa á borða sem strengdur verður yfir veginn. Gest- um er síðan boðið í kaffisamsæti í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn. Ekki lengur of langt  Þórshafnarbúar og nágrannar fagna bættum samgöngum með Hófaskarðsleið með hátíðinni „Núna fer ég norður!“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Vegagerð Framkvæmdum við veginn um Hófaskarð og Raufarhafnarveg lauk í sumar og var umferð hleypt á vegina í ágústmánuði. Vegopnunarhátíð » Hátíðin hefst á föstudags- kvöld með konukvöldi á Eyr- inni. » Markaðsdagur verður í íþróttamiðstöðinni á Þórshöfn á laugardag. » Píanótónleikar Þórarins Stefánssonar verða í Þórshafn- arkirkju kl. 18. » Hátíðinni lýkur á sunnu- dag með Héraðsmóti HSÞ í knattspyrnu 12 ára og yngri. sveitar Norðurlands í útsetningum Högna Egilssonar.    Helgi og hljóðfæraleikararnir eru með tónleika á Græna Hattinum annað kvöld og á laugardagskvöldið verða Hjálmar á hattinum; kynna þar afurðina Frá Keflavík til Kings- ton – ljósmyndabók og disk.    Tíu ár voru liðin á þriðjudaginn frá því að verslunarmiðstöðin Gler- ártorg var opnuð. Afmælisveisla hefst í dag og stendur fram á sunnu- dag. Í dag verður m.a. boðið upp á 30 metra langa afmælistertu frá kl. 14 til 18.    Paradísarland er þjónusturými ætlað börnum, sem opnað verður á Glerártorgi í dag. Það er ekki „geymsla“ heldur „ekki síst hugsað sem samverustaður fyrir foreldra og börn,“ segir Ásdís Elva Rögnvalds- dóttir sem þar ræður ríkjum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Snjór Sumir hjóluðu í vinnuna í gær og þurftu að skafa fyrir heimför. Af pörupiltum og hvunndagshetjum ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Einhverjir óknyttadrengir (eða stúlkur) skemmtu sér við það að aka vélsleða og fjórhjóli um golfvöllinn að Jaðri í vikunni. Spóluðu m.a. marga hringi á hjólinu á flötunum við 10. og 12. braut.    Ég geri ekki ráð fyrir því að kylf- ingar séu almennt hrifnir af snjó og frosti, en þær aðstæður koma von- andi í veg fyrir miklar skemmdir að Jaðri. Er ekki nóg pláss annars stað- ar til að leika sér?    Fjöldi fólks var í Hofi á þriðju- dagskvöld og stemningin mjög góð, en þar voru haldnir tónleikar til stuðnings Sævari Darra Sveinssyni og foreldrum hans. Sævar Darri, sem er 8 ára, greindist með hvít- blæði í byrjun september.    Margir tónlistarmenn komu fram í Hofi og gáfu allir vinnu sína. Frá- bært framtak, og þeim sem vilja styðja fjölskylduna er bent á styrkt- arreikninginn 0515-14-405236, kennitala: 140780-3759.    Spennandi tónleikar verða í Hofi annað kvöld; hljómsveitin Hjaltalín leikur þar efni af plötunum Sleepdrunk season og Terminal ásamt meðlimum Sinfóníuhljóm- Helgi Björns syngur Hauk Morthens Trommur Einar Valur Scheving Bassi Róbert Þórhallsson Gítar Stefán Már Magnússon Píanó Kjartan Valdimarsson Bakraddir Erna Hrönn Ólafsdóttir Rósa Guðrún Sveinsdóttir Stefán Örn Gunnlaugsson Salurinn Kópavogur, Hamraborg 6 Miðapantarnir í síma 570 0400 og á miði.is ÍS LE N SK A /S IA .I S /I S L 51 82 2 10 /1 0 Vegna mikillar aðsóknar og fjölda áskorana hefur verið bætt við aukatónleikum sunnudaginn 7. nóvember kl. 20:00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.