Morgunblaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010
M.MBL.IS FÆRIR ÞÉR
ERLENDAR FRÉTTIR
Á FERÐINNI
Erlent
- V I L T U V I T A M E I R A ?
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/M
O
R
51
87
2
11
/1
0
Gefum
heimilum
von
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins kynna tillögur flokksins um aðgerðir til að stuðla
að sátt við heimilin, verja velferð, efla atvinnulífið og fjölga störfum á opnum
fundum, laugardaginn 6. nóvember og mánudaginn 8. nóvember.
Allir velkomnir Sjálfstæðisflokkurinn
Haukshúsum, Álftanesi,
kl. 10.00.
Birgir Ármannsson
Menntaskóla Borgarfjarðar,
Borgarnesi, kl. 11.00.
Bjarni Benediktsson
Valhöll, Reykjavík,
kl. 10.30.
Ólöf Nordal
Félagsheimili sjálfstæðismanna
við Háholt í Mosfellsbæ
kl. 11.00.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Sjálfstæðishúsinu við
Norðurbakka, Hafnarfirði,
kl. 10.30.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Hótel Selfossi,
Eyravegi 2,
kl. 11.00.
Ragnheiður Elín Árnadóttir
og Unnur Brá Konráðsdóttir
Sjálfstæðissalnum,
Hlíðasmára 19, Kópavogi,
kl. 10.30.
Jón Gunnarsson
Hótel KEA, Akureyri,
mánudaginn 8. nóvember
kl. 20.00.
Kristján Þór Júlíusson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Repúblikanar unnu mikinn sigur í
þingkosningum í fyrradag er þeir
bættu við sig minnst 61 sæti í full-
trúadeildinni á kostnað demókrata
sem hafa nú nauman meirihluta í öld-
ungadeildinni. Umskiptin eru söguleg
enda hafa repúblikanar ekki unnið
svo stóran sigur í fulltrúadeildinni frá
miðju fyrra kjörtímabili Bills Clin-
tons, fv. forseta, árið 1994.
Úrslitin þýða að ný staða er komin
upp í bandarískum stjórnmálum og
hafa repúblikanar heitið því að vinda
ofan af stefnumálum Obama, einkum í
heilbrigðismálum, einu helsta bar-
áttumáli hans á kjörtímabilinu.
Ný staða í þinginu
Fyrir kosningarnar höfðu demó-
kratar 255 sæti í fulltrúadeildinni en
hafa nú í minnsta lagi 185 sæti þegar
enn er óljóst hvorum megin 11 sæti
lenda. 435 sæti eru í deildinni og duga
218 sæti því til meirihluta.
Hundrað sæti eru í öldungadeild-
inni og hafa demókratar nú að
minnsta kosti 51 sæti en repúblikanar
46 þegar þrjú sæti eru óákveðin.
Það eru slæm tíðindi fyrir demó-
krata því repúblikanar þykja eiga
góða möguleika á að bæta við sig sæt-
um þegar forseta- og þingkosningar
fara fram 2012, í ljósi þess að demó-
kratar þurfa þá að verja 23 öldunga-
deildarsæti en repúblikanar 10.
Útkoman þýðir að repúblikaninn
John Boehner verður forseti fulltrúa-
deildarinnar í stað demókratans
Nancy Pelosi og verður þar með
helsti talsmaður repúblikana í Wash-
ington. Hann var á valdi tilfinning-
anna þegar sigurinn var í höfn.
Vann sig upp metorðastigann
„Ég byrjaði á því að skúra gólf, af-
greiða til borðs og við barborðið á krá
föður míns. Ég gaf hjarta mitt og sál í
smáfyrirtæki. Og þegar ég sá hversu
mjög Washington var úr takt [við
þjóðina] … bauð ég mig fram,“ sagði
Boehner og barðist við tárin.
Kosið var til ríkisstjóra í 37 sam-
bandsríkjum og unnu repúblikanar
þar á eins og kortið ber með sér.
Munu vinna gegn stefnu Obama
Repúblikanar sigurvegarar þingkosninganna Endurheimtu meirihluta sinn í fulltrúadeildinni
Demókratar halda meirihluta í öldungadeildinni Repúblikanar eiga nú fleiri ríkisstjóra
Reuters
Gleðitár John Boehner fer nú fyrir
repúblikönum í fulltrúadeildinni.
19 18 19 18
Heimildir: Bandaríska öldunga- og fulltrúadeildin, Real Clear Politics * Að tveimur óháðum þingmönnum meðtöldum.
ÞINGKOSNINGAR Í BANDARÍKJUNUM
Staðan eins og hún var klukkan 19.30 að ísl. tíma í gærkvöldi
ÖLDUNGADEILDIN
37 sæti voru í boði
Demókratar
57
FYRIR KOSNINGAR
Repúblikanar
41
Óháð. 2
100
sæti
Demókratar
51*
ÚRSLIT
Repúblikanar
46
Óstaðfest 3
100
sæti
RÍKISSTJÓRAR
37 sæti voru í boði
Demókratar
26
FYRIR KOSNINGAR
50
sæti
Repúblikanar
24
Demókratar
16
ÚRSLIT Óstaðfest 4
Óháðir 1
50
sæti
Repúblikanar
29
Demókratar
255
Repúblikanar
178
Laus
2
FYRIR KOSNINGAR
FULLTRÚADEILDIN
Öll 435 sætin voru í boði
435
sæti
Demókratar
185
Repúblikanar
239
Óstaðfest 11ÚRSLIT
435
sæti