Morgunblaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.11.2010, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010 Sunnlensk safnahelgi verður sett í Listasafni Árnesinga í Hveragerði kl. 17 í dag. Safna- helgin er nú haldin í þriðja skipti og er samstarf safna, setra og safnvísa á Suðurlandi. Þá eru veitingastaðir á Suður- landi með sérstaka safnahelg- arrétti á matseðlum sínum. Ýmsir listamenn troða upp víða á svæðinu. Meðal dagskrárliða má nefna að boðið er upp á portert-ljósmyndun hjá Anne Marie Sörensen milli kl. 13 og 15 á laug- ardag og sunnudag, í Listamannaíbúðinni Varma- hlíð í Hveragerði. Dagskrána má sjá á www.sunnanmenning.is. Safnahelgi Sunnlensk safna- helgi sett í dag Listasafn Árnesinga. Arkitektarnir Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason stofnuðu arki- tektastofuna Kurtogpí árið 2004. Í kvöld, fimmtudag, kl. 20, munu fulltrúar stofunnar kynna verkefni, lausnir og sjónarmið sín í Hafnarhúsi. Í tilkynningu segir að Kurt- ogpí nálgast öll sín verkefni í þeirri trú að lausnin sé falin í umhverfinu, manngerðu og náttúrulegu jafnt sem félagslegu og sögulegu. Lausnin er dregin fram í arkitektúr sem bæði undirstrikar og talar við umhverfið og elur á til- finningu og ábyrgð fyrir því. Meðal verkefna stof- unnar er Menntaskóli Borgarfjarðar. Arkitektúr Kynna verkefni og lausnir Kurtogpí Steinþór Kári Kárason Fjórar góðkunnar myndlist- arkonur hafa opnað sýningu í Lækjarkoti, nýjum sýning- arstað í Borgarbyggð. Þær sem sýna þar verk sín eru Ása Ólafsdóttir, Bryndís Jónsdóttir, Kristín Geirsdóttir og Magdalena Margrét Kjart- ansdóttir. Á sýningunni eru málverk, textílverk, leir- og gler- skúlptúrar og grafíkverk. Sýningin er haldin í nýjum sýningarsal sem tengist vinnustofu Ásu Ólafsdóttur. Lækjarkot stendur við þjóðveg númer eitt um sex km norðan við Borgarnes. Sýningin er opin um helgina frá klukkan 14-18 og lýkur á sunnudag. Myndlist Samspil mynd- verka í Lækjarkoti Frá opnun sýningarinnar. Um helgina verður haldin í Hafn- arhúsinu ráðstefna um samtímalist á Norðurlöndum, í tengslum við Ting – norræna listahátíð. Ráð- stefnan er haldin í samstarfi Lista- safns Reykjavíkur, Norræna húss- ins, Nýlistasafnsins og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Heiti ráðstefnunnar er Alterna- tive North og þar munu koma sam- an sýningastjórar, menningarrýnar og safnstjórar til að ræða um stöðu samtímamyndlistar á Norð- urlöndum. Sjónum verður einkum beint að nýsköpun og óháðum sýn- ingarstöðum, með sérstakri áherslu á tilraunalist og krítíska umræðu. Á dagskránni verða ýmist kynningar og pallborðsumræður, meðal annars um þróun og ástand þessarra mála í hverju Norðurlandanna, hvað er líkt og hvað sérstakt og hvaða tækifæri standa listamönnum til boða. Ráðstefnan er sett á föstudags- kvöldið en formleg dagskrá er bæði laugardag og sunnudag. Ráðstefnan fer fram á ensku og er öllum opin en gestir eru beðnir um að skrá sig hjá Listasafni Reykjavík- ur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Í Nýlistasafninu Rætt verður um nýsköpun og tilraunalist á þinginu. Málþing um sam- tímalistina Rætt um stöðuna á Norðurlöndum Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Ég bjó til stutta sögu í myndbandi þar sem mávar leika öll hlutverkin,“ segir Bjarni massi (Bjarni Þór Sig- urbjörnsson) um sýninguna Allir um borð sem hann opnar í D-sal Hafn- arhúss Listasafns Reykjavíkur í dag klukkan 17. Listasafnið vekur at- hygli á ungum myndlistarmönnum í sýningaröðinni sem kennd er við sal- inn og er þetta sú 18. í röðinni. Bjarni varpar verkinu á stóran vegg í salnum og segist einnig vera með þrívíð verk byggð á fuglunum. „Ég bjó til dúklagt borð sem flýt- ur úti í firði, og fæ máva til að koma og leika fyrir mig,“ segir hann. Forsaga verksins nær aftur til 2008 þegar Kling og Bang flutti inn- viði barsins Sirkuss til London, en Bjarni sá um að setja leikmyndina saman í Johnson & Kaaber-húsinu. „Í húsinu vann þá listamaður sem setti rusl alltaf út fyrir húsið. Þegar maður mætti á morgnana var eins og maður hefði misst af einhverju svakalegu partíi, allt var útatað og mávarnir í tómu rugli,“ segir Bjarni og hlær. Síðan hefur hann verið að hugsa um mávaveisluna. „Ég býð mávunum í mat úti á sjó. Myndin er eins og dagur í lífi máv- anna úti á firði. Það byrjar á auðu borði og endar í allsherjar sódómu. Saman við myndbandið mixa ég gömlum sjómannalögum, völsum og slíku; ég blanda saman hinum og þessum hljóðum og fær fólk að upp- lifa mávahljóð ásamt hljóðum úr ýmsum leynigestum. Þetta er eins og hljóðsetning í árdaga hljóðsetn- ingar, maður tengir það sem maður heyrir við kvikmyndina en er ekki alveg viss,“ segir Bjarni en hann vinnur talsvert með myndbandsverk og segist yfirleitt vera að segja sög- ur í þeim, með fólki, en nú komi máv- arnir í þess stað. Má segja að verkið fjalli á ein- hvern hátt um græðgi? „Ég vil ekki fullyrða að verkið fjalli um neyslugeðveiki en kannski hvarflar það að einhverjum,“ segir hann. „Líklega er gargandi symból- ismi í verkinu – ég get sagt það án þess að ljúga nokkru.“ Bjarni massi vann verkið sér- staklega fyrir sýninguna þar sem hann dvaldi vestur á fjörðum síðasta hálfa árið, á Flateyri þar sem hann á hús. Hann segir mikilvægt fyrir sig og sína sköpun að sækja út á land. „Það hefur áhrif á mann að búa í litlu sjávarþorpi – og það hefur líka áhrif á endanlega útkomu verksins. Fyrst ætlaði ég að taka myndbandið upp í smíðaðri leikmynd en síðan sá ég að ekkert toppar náttúruna fyrir vestan,“ segir Bjarni. Morgunblaðið/Ernir Bjarni massi „Ég vil ekki fullyrða að verkið fjalli um neyslugeðveiki en kannski hvarflar það að einhverjum,“ segir listamaðurinn. „Ekkert toppar náttúruna fyrir vestan“ Nýtt myndbandsverk » Sýning Bjarna massa (Bjarna Þórs Sigurbjörns- sonar) sem opnar í dag kl. 17 er 18. verkefnið í röð sýninga sem kenndar eru við D-sal Hafnarhússins. » Bjarni sýnir myndbandsverk sem hann kallar Allir um borð, auk þrívíðra myndverka.  Bjarni massi sýnir verk með mávum Maríus Sverrisson tenórsöngvari kemur fram á hádegistónleikum Hafnarborgar í dag, fimmtu- dag, ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara. Hefj- ast tónleikarnir, sem þau kalla Allskonar ást, klukkan 12. „Efnisskráin byggist á þýskum og aust- urrískum óperettum sem voru mjög vinsælar um aldamótin 1900, í bland við tónlist úr amer- ískum söngleikjum,“ segir Maríus. „Þetta eru allt klassískar melódíur sem mjög margir þekkja. Þetta verða mjög léttir og skemmtilegir tón- leikar. Antonía er ættuð frá Ungverjalandi og er með þessa tónlist í blóðinu. Ég ólst upp í Vín að hluta og hef þetta líka í blóðinu, það er því gaman að flytja þetta með henni. Við höf- um bæði lært í Vín á ákveðnu tímabili í okkar lífi.“ Maríus hefur gert nokkuð af því að syngja óperettutónlist á tónleikum og hefur einnig komið fram í klassískum söngleikjum, en hann lærði söng og leiklist í Vínarborg, New York og Hamborg. Hann hefur tekið þátt í fjölda leiksýninga víðsvegar í Evrópu, og í söng- leikjum, og í fyrravetur kom hann víða fram með stórsýningunni Apassionata. „Ég hef verið svo lengi erlendis að ég ætla að vera á Íslandi í vetur og leyfa fólki að heyra í mér,“ segir hann. efi@mbl.is Flytja klassískar melódí- ur sem allir þekkja Morgunblaðið/Ernir Maríus Sverrisson og Antonía Hevesi „Þetta verða mjög léttir og skemmtilegir tónleikar,“ segir hann. Kórin Vox feminae, undir listrænni stjórn Margrétar Pálmadóttur, flyt- ur að vanda í ár trúarlega tónlist um allra heilagrar messuleytið. Að þessu sinni verða tvennir tónleikar, undir heitinu O magnum mysteinum og eru þeir fyrri í Kristskirkju í Landakoti í kvöld, fimmtudag, og hefjast klukkan 20.30. Síðari tónleik- arnir verða á miðvikudaginn kemur, 10. nóvember, í Hafnafjarðarkirkju. Þá verður hluti dagskrárinnar jafn- framt fluttur við og eftir messu í Reykholtskirkju í Borgarfirði á sunnudaginn kemur, 7. nóvember, klukkan 14. Á tónleikunum spinnur Stefán S. Stefánsson á saxófón við sum verk- anna. Fyrir tónleikana hefur Margrét valið úrval fagurra trúarlegra verka frá endurreisnartímanum, meðal annars eftir tónskáldin Palestrina, Orlando di Lassio og Tomás Luis de Victoria. Að auki flytur kórinn tvo sálma Þorkels Sigurbjörnssonar sem bera með sér anda liðins tíma. Að tónleikunum loknum mun Margrét J. Pálmadóttir kórstjóri árita nýútkomna bók, Vox feminae, de capo. Bókinni fylgir geisladiskur með nokkrum verkum sem kórinn hefur flutt og hljóðritað á liðnum ár- um. Vox feminae með trúarlega tónlist Fyrri tónleikarnir í Kristskirkju í kvöld Morgunblaðið/Eggert Vox Feminae Kórinn flytur trúar- lega tónlist á tónleikunum. Þarna voru frábærir leikarar, dansarar, söngvarar og tónlistar- menn … 36 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.