Morgunblaðið - 04.11.2010, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Björgunarsveitarmenn þurfa ekki
endilega að keyra út úr bænum og
klífa fjöll til að æfa björgun í erfiðu
fjalllendi. Í Öskjuhlíðinni er nefni-
lega að finna hið ágætasta æf-
ingasvæði og í gærkvöldi var þar
undanfaraflokkur Hjálparsveitar
skáta í Kópavogi við stífar æfingar.
„Við létum sem sjúklingurinn hefði
hrunið ofan í gil og æfðum björgun
hans,“ segir Atli Pálsson, formaður
undanfaraflokksins.
Í undanfaraflokkum eru þeir
björgunarsveitarmenn sem eru
best þjálfaðir í fjallamennsku og
klifri. Þeir eru kallaðir fyrstir út
þegar alvarleg slys verða í fjallendi
og þeirra kjörlendi er á jöklum,
klettum og hvarvetna þar sem
landinu hallar óþyrmilega. „Við
erum lóðrétta deildin,“ segir
Atli og bætir um leið við að
undanfarar séu kallaðir út
þegar björgunarsveitarmenn
þurfa að fóta sig í kolvitlausu
veðri, á ís, í klettum, háum
byggingum o.s.frv.
Í undanfaraflokknum í
Kópavogi eru tíu undanfarar.
Flokkurinn æfir saman um
3-4 sinnum í mánuði, oft í um
fimm klukkutíma í senn, en
síðan eru sameiginlegar æfing-
ar fyrir alla undanfara á höf-
uðborgarsvæðinu einu sinni í
mánuði. Um 40 undanfarar eru
á höfuðborgarsvæðinu og Atli
telur að um tveir fimmtu hlutar séu
kvenkyns. „Flest okkar hafa skíða-
mennsku og klifur að áhugamáli og
margir að atvinnu. Stór hluti af
okkur er fjallaleiðsögumenn,“ seg-
ir hann.
Búnaðurinn vegur 15 kíló
Í venjulegu útkalli bera und-
anfarar með sér búnað sem vegur
um 15 kíló. Í mörgum útköllum
snýst starf þeirra um að fara á und-
an öðrum björgunarsveit-
armönnum og kanna aðstæður.
„Við erum farnir að starfa meira
og meira með Landhelgisgæslunni.
Núna er það orðið þannig að þegar
slys verður í fjalllendi og Gæslan er
sett í viðbragðsstöðu, þá fara und-
anfarar í þyrluskýlið og þrír und-
anfarar fara með þyrlunni. Við
leysum allt að helmingi útkalla með
því að þyrlan setur undanfarana út,
þeir koma sjúklingnum á stað þar
sem hægt er að hífa hann upp,“
segir Atli. Þetta samstarf hafi m.a.
sannað gildi sitt þegar ungum
dreng var bjargað upp úr sprungu
á Langjökli í febrúar á þessu ári.
Atli segir að fyrstu undanfar-
arnir hafi tekið til starfa fyrir um
20 árum. Þá hafði ný tækni rutt sér
rúms, símboðar. Fáir símboðar
voru til og þeim var aðeins dreift
til þeirra sem best voru þjálfaðir.
Þeir fengu fyrstir fréttir af útköll-
um og því voru þeir kallaðir und-
anfarar.
Lóðrétta deildin æfir
björgun í Öskjuhlíð
Undanfarar eru fyrstir á vettvang í erfiðum aðstæðum
Félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg hafa staðið í ströngu á
árinu. Árið byrjaði með erfiðum björgunarstörfum á Haítí og
síðan tóku við umfangsmestu aðgerðir þeirra hér á landi frá
Vestmannaeyjagosinu; eldgosið á Fimmvörðuhálsi og í Eyja-
fjallajökli. Þessu fylgir meðal annars slit og bilanir á tækjum, á
fatnaði og á búnaði alls kyns, að ógleymdum olíukostnaði, segir
Ólöf S. Baldursdóttir, upplýsinga- og kynningarfulltrúi Lands-
bjargar.
Nú stendur yfir ein af mikilvægustu fjáröflunum Landsbjargar,
salan á Neyðarkallinum. Þetta er fimmta árið sem hann er boðinn
til sölu. Að þessu sinni er hann í líki rústabjörgunarmanns. Einn
neyðarkall kostar 1.500 krónur.
Stórar og dýrar aðgerðir
LANDSBJÖRG SELUR NEYÐARKALLINN Á 1500 KRÓNUR
Neyðarkall
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfun Félagar í undanfarasveit Hjálparsveitar skáta í Kópavogi æfðu björgun manns upp úr gili í gærkvöldi.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Fánar blöktu hressilega undir
Esjuhlíðum og kjötsúpuilmur barst
út á hlað Klébergsskóla á Kjal-
arnesi í gærmorgun, þegar Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands
og Dorrit Moussaief forsetafrú
sóttu skólann heim.
Tilefnið var Forvarnadagurinn,
sem nú var haldinn í fimmta sinn
að frumkvæði forseta Íslands. Að
deginum standa einnig Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands, Ung-
mennafélag Íslands, Bandalag ís-
lenskra skáta, Samband íslenskra
sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og
Actavis.
Á Forvarnadaginn er lögð
megináhersla á að samvera ung-
menna og foreldra og þátttaka í
skipulögðu tómstundastarfi skilar
mestum árangri í forvörnum gegn
fíkniefnum. „Það er líka afar mik-
ilvægt að fresta því sem lengst að
neyta áfengis,“ sagði Ólafur Ragn-
ar. Hann segir að áherslur í for-
vörnum hafi breyst mikið á und-
anförnum árum. „Fyrir 10-15 árum
var efling lögreglunnar talin vera
besta aðferðin. En nú sýna rann-
sóknir að þessar jákvæðu aðferðir
og samræður foreldra og barna
skila mestum árangri.“
Unglingar um allt land unnu í
umræðuhópum í gær, þar sem rætt
var um samveru unglinga og for-
eldra, íþrótta- og tómstundastarf og
að það skiptir máli að bíða með að
hefja neyslu áfengis.
Að mati Lindu Katrínar Frið-
riksdóttur, nemanda í Klébergs-
skóla, hefur það mikið að segja að
hafa sérstakan forvarnadag. Undir
það tóku skólasystur hennar, þær
Agnes Ýr Gunnarsdóttir og Aþena
Valý Orradóttir og sögðu að marg-
ar góðar hugmyndir hefðu komið
fram í umræðunum um morguninn.
Þær sögðust telja að það skipti
miklu máli að bíða með að hefja
neyslu áfengis.
„Það verður þjóðfundur næstu
helgi. En það er ekki síður þjóð-
fundur núna, þjóðfundur unga
fólksins í skólum landsins um for-
varnir,“ sagði Ólafur Ragnar.
„Þessi fundur er miklu fjölmennari
og ég er viss um að hann á eftir að
hafa mikil áhrif.“
Áhrifaríkur þjóðfundur
um forvarnir í skólum
Morgunblaðið/Kristinn
Forvarnardagurinn Nemendur í Klébergsskóla á Kjalarnesi tóku vel á móti
forsetahjónunum Dorrit Moussaief og Ólafi Ragnari Grímssyni.
Nemendur í Klébergsskóla tóku vel á móti forseta Íslands
Viðarhöfða 6 - Reykjavík
www.sindri.is / sími 575 0000
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
10
2
71
0
Loading
iðnaðarhurðir
Frí uppsetning í nóvember!*
Gildir ekki með öðrum tilboðum*
FRÍ
UPPSE
TNING
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Töluverð ólga er meðal geislafræð-
inga á Landspítalanum vegna launa-
kjara og uppsagna. Tveir hafa sagt
upp vegna óánægju með yfirmenn
sína en þrír til viðbótar láta nú einn-
ig af störfum af ýmsum ástæðum.
Fimm segja upp starfi sínu vegna
ýmissa ástæðna en einn verður ráð-
inn í staðinn. Í kjölfar undangeng-
inna breytinga verða samtals sjö
færri geislafræðingar að mynda á
Landspítalanum. Þeir tveir sem
segja upp vegna óánægju með yf-
irmenn sína hafa ekki í nein önnur
störf að venda. Katrín Sigurð-
ardóttir, formaður Félags geisla-
fræðinga, staðfestir óánægju meðal
geislafræðinga í samtali við Morg-
unblaðið.
Hún kveður tæplega þrjátíu
geislafræðinga starfa á Landspít-
alanum í Fossvogi. „Á Landspít-
alanum er mikil óánægja meðal
geislafræðinga vegna launakjara og
uppsagna.“
Katrín segir geislafræðinga ekki
eiga möguleika á að þéna jafnmikið
og áður þar sem vaktafyr-
irkomulagi deildarinnar var breytt.
„Það má segja að grunnlaun séu
mjög lág en vaktafyrirkomulagið
hefur tryggt eftirvinnu sem hefur
vegið þar upp á móti. Eftir að vakta-
kerfinu var breytt er minni eft-
irvinna og færri vaktir og þannig
hafa tekjumöguleikar geislafræð-
inga minnkað. Þeir hafa minni
vinnu.“
Skv. heimildum Morgunblaðsins
hafa geislafræðingar sagt upp
vegna óánægju með yfirmenn
deilda sinna og stjórnun þeirra.
„Það er að segja sjálft upp þó það
hafi ekki í nein önnur störf að
venda.“
Uppsagnir meðal
geislafræðinga
Hafa ekki í önnur störf að venda