Morgunblaðið - 04.11.2010, Síða 11
Morgunblaðið/Golli
Glöð Ásta Þorleifsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Austurlands.
menn höfðu hundana undir borði í
gamla daga. Það eru engin sérstök
nútímaþægindi þarna svo þetta er
pínulítið eins og að vera boðið til
veislu til Bjarts í Sumarhúsum.
Lappaveislan verður aftur í ár, laug-
ardagskvöldið 13. nóvember. Það er
myrkraganga á undan og maður
dettur um eigin tær ef það er ekki
þeim mun stjörnubjartara. Það er
fullt af draugum og skemmtilegum
fyrirbærum þarna í kring, til dæmis
verður að varast sækýrnar. Eftir
myrkragönguna er svo veisla með
haustmat eins og tíðkaðist áður fyrr.
Ég mæti þangað aftur núna,“ segir
Ásta sem er augljóslega spennt fyrir
komandi dögum.
„Ég er líka að velta fyrir mér
hvort ég eigi ekki að fara í svartnætti
á Skálanesi á laugardagskvöldið. Þar
verður spennandi kvöldmatur með
frygðarlegu ívafi, gisting og morg-
unmatur á sunnudeginum.“
Rómantík og kærleikur
Það eru ekki bara draugar, for-
ynjur og myrkur á Dögum myrkurs
því á Eskifirði eru ástardagar sem
hefjast í dag.
„Það er áberandi skemmtileg
dagskrá á Eskifirði, þar eru allir í
rómantík og kærleika. Bærinn er
skreyttur fallega með hjörtum og
ástarljósum og í dag kl. 17.10 fara
þeir í kærleiksgöngu. Svo er ást-
areldur, rómantískur laugardagur,
bílabíó og félagsvist við kertaljós svo
eitthvað sé nefnt,“ segir Ásta og bæt-
ir við að það sé hægt að gera
skemmtilega hluti fyrir lítinn pening
á Dögum myrkurs, það þurfi aðeins
að vera þátttakandi.
„Á öllum stöðunum er lifandi
tónlist í sundlaugunum, friðarkerti
og fiðluleikarar. Það er verið að spila
víða, það verður t.d. lomber-kvöld á
Skriðuklaustri, svo eru ljóðakvöld
víða þar sem lesin eru upp ljóð og
hagyrðingar koma saman. Það er
gríðarlega mikil fjölbreytni og margt
sem er að gerast.
Á Seyðisfirði er afturganga, þá
slekkur bærinn á sér og allir fara í
draugalega skrúðgöngu sem er
gengin aftur á bak. Annað mjög spes
er í skóginum við Djúpavog þar sem
farið verður í Faðirvorhlaup,“ segir
Ásta og hlær. Hún segir Daga myrk-
urs vera skemmtilega menning-
arhátíð, líflega og þjóðlega, sem býð-
ur upp á viðburði sem flestir geti
takið þátt í.
Nánari upplýsingar um Daga
myrkurs má finna á vefsíðunni
www.east.is.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010
Fimmtudag, föstudag og langan laugardag
23.500 - 29.500
15.900
Fjarðarkaup
Gildir 4.-6. nóv. verð nú áður mælie. verð
Svínalundir úr kjötborði .............. 1.398 2.198 1.398 kr. kg
Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 998 1.498 998 kr. kg
Nautainnralæri úr kjötborði......... 2.490 3.195 2.490 kr. kg
Nautagúllas úr kjötborði ............. 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Fjallalambs frosin lifrarpylsa ....... 598 797 598 kr. kg
Fjallalambs frosinn blóðmör ....... 568 757 568 kr. kg
Fjallalambs súpukjöt, frosið ........ 538 598 538 kr. kg
FK reykt folaldakjöt .................... 598 798 598 kr. kg
Hamborgarar, 2x115 g m/brauði 358 438 358 kr. pk.
FK kindabjúgu ........................... 425 598 425 kr. kg
Hagkaup
Gildir 4.-7. nóv. verð nú áður mælie. verð
Íslandsnaut, Ribeye ................... 2.587 3.695 2.587 kr. kg
Holta kjúklingabringur ................ 1.946 2.595 1.946 kr. kg
Holta kjúklingabitar.................... 559 798 559 kr. kg
SS VSOP lambafile .................... 3.334 4.168 3.334 kr. kg
Goodfellas pitsa thin – 3 teg. ...... 398 549 398 kr. stk.
Fjörís – 4 tegundir ...................... 449 739 449 kr. stk.
Smoove djús – nokkrar teg.......... 199 228 199 kr. stk.
Myllu jólabrauð ......................... 199 299 199 kr. stk.
Jói Fel – tilbúið smákökudeig ...... 499 529 499 kr. pk.
Myllu jólasmákökur – nokkrar
teg. ..........................................
599 599 599 kr. pk.
Kostur
Gildir 4.-7. nóv. verð nú áður mælie. verð
Kjarnafæði ávaxtaf. lambaframp. 1.389 2.315 1.389 kr. kg
GV Toasted Oats morgunkorn ...... 389 479 389 kr. pk.
Husets kaffi, 400 g .................... 349 395 349 kr. pk.
Aro Wc pappír, 10 rúllur ............. 489 539 489 kr. pk.
Aro eldhúspappír, 4 rúllur ........... 429 469 429 kr. pk.
Aro þvottaduft, 10 kg ................. 2.198 2.598 2.198 kr. pk.
Best Yet maísbaunir, 432 g......... 111 139 111 kr. stk.
Best Yet grænar baunir, 411 g..... 103 129 103 kr. stk.
Best Yet bl. ávextir, 432 g ........... 156 195 156 kr. stk.
Best Yest niðurs. ferskjur, 432 g .. 156 195 156 kr. stk.
Krónan
Gildir 4.-7. nóv. .........................verð nú áður mælie. verð
Kinda innanlærisvöðvi ................ 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Kindafile ................................... 2.698 3.398 2.698 kr. kg
Grísasnitsel ............................... 799 1.698 799 kr. kg
Grísagúllas................................ 799 1.598 799 kr. kg
Grísakótilettur ............................ 899 1.498 899 kr. kg
SS rauðvínslegin helgarsteik ....... 1.982 2.478 1.982 kr. kg
Krónu hangiálegg ...................... 1.876 2.345 1.876 kr. kg
Bautabúrs ungnautahakk ........... 989 989 989 kr. kg
Skólaostur, sneiddur .................. 1.483 1.648 1.483 kr. kg
Allra majónes ............................ 199 239 199 kr. pk.
Nóatún
Gildir 4.-7. nóv. verð nú áður mælie. verð
Folaldagúllas ............................ 1.598 1.798 1.598 kr. kg
Folaldafile................................. 2.299 2.959 2.299 kr. kg
Folaldalundir............................. 2.998 3.389 2.998 kr. kg
Folaldasnitsel............................ 1.698 1.998 1.698 kr. kg
Folalda innralæri ....................... 1.982 2.898 1.982 kr. kg
Lambalæri ................................ 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Laxaflök beinhreinsuð ................ 1.798 1.998 1.798 kr. kg
Laxasneiðar .............................. 1.438 1.598 1.438 kr. kg
Myllu massarínukaka ................. 499 779 499 kr. stk.
Toscana brauð........................... 289 429 289 kr. stk.
Þín verslun
Gildir 4.-7. nóv. verð nú áður mælie. verð
Sprite, 1 l.................................. 175 229 175 kr. ltr
Myllu beyglur, 6 stk.................... 359 448 60 kr. stk.
MS Pizzaostur, rifinn, 200 g ........ 285 342 1.425 kr. kg
Casa Fiesta Torti. Chips, 200 g.... 239 299 1.195 kr. kg
Casa F. Taco-sósa, mild, 225 g.... 252 315 1.120 kr. kg
Maryland kexkökur, 150 g .......... 110 129 734 kr. kg
Pickwick te English Breakfast...... 295 359 15 kr. stk.
Lambalæri úr kjötborði ............... 1.098 1.698 1.098 kr. kg
Lambahryggur úr kjötborði .......... 1.298 1.949 1.298 kr. kg
Helgartilboðin
Kjötskrokkar Haustslátrun sauðfjár er nú að ljúka
og nýtt kjöt komið í verslanir neytendum til góða.
Flestir þekkja kakósúpu og muna eft-
ir hversu góð þeim þótti hún í æsku,
sérstaklega er gott að ylja sér við
hana á köldum vetrardögum eins og
nú.
Þó að kakósúpa sé ekkert holl-
ustufæði er allt í lagi að bjóða upp á
hana einstöku sinnum, þá helst í eft-
irmat svo ekki sé borðað yfir sig af
henni.
Í kakósúpu þarf:
3 msk. kakó
3 msk. sykur
400 ml vatn
800 ml mjólk
1 msk. kartöflumjöl
salt
Kakó, sykur og mestallt vatnið sett
í pott og hrært þar til kominn er
sléttur jafningur. Hitað að suðu, þá er
mjólkinni hellt út í, súpan hituð að
suðu og látin malla í 2-3 mín. Kart-
öflumjölið hrært út í vatninu sem eft-
ir er, potturinn tekinn af hitanum og
súpan jöfnuð og söltuð ögn.
Gott er að bera Kakósúpuna fram
með tvíbökum og rjóma til hátíð-
arbrigða.
Endilega …
… berið fram
kakósúpu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Súpið á Kakósúpa er ekki ólík kakói.