Morgunblaðið - 04.11.2010, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Sífellt fleirumer að verðaljóst að
landið er eins og
stjórnlaust rekald
í haugasjó með Jó-
hönnu Sigurðardóttur í
brúnni og Steingrím Sigfús-
son í vélarrúminu. En þá væri
huggun harmi gegn ef stjórn
höfuðborgarinnar væri í
styrkum höndum. Því trúa fá-
ir eftir viðtal sjónvarpsins við
borgarstjórann um málefni
orkuveitunnar, uppsagnir,
gjaldskrárhækkanir og út-
svarshækkun. Það fór þannig
fram í uppskrift þótt ekki nái
hún sömu hæðum og mynd-
birting þess:
„Borgarstjóri: Ja það má
búast við því, en það er samt
ekkert útséð með það, það er
nokkuð sem mig persónulega
langar ekki að gera, og mig
langar til þess að leita allra
leiða, raunveruleikinn er samt
sá að tekjur borgarinnar hafa
dregist rosalega mikið saman
og við þurfum að brúa eða
fylla upp í stórt gat og erum
að reyna að leita allra leiða til
þess að gera það.
Fréttamaður: Í nýrri fjár-
hagsáætlun Orkuveitu
Reykjavíkur er gert ráð fyrir
fjögurra og hálfs milljarðs
króna hagnaði á næsta ári.
Fréttastofa spurði hvort upp-
sagnir og gjaldskrárhækkanir
Orkuveitunnar væru nauð-
synlegar í þessu ljósi.
Borgarstjóri: Þetta er
svona einhverjir
talnaleikir sem að,
ég kann ekki einu
sinni að útskýra
þá sko.
Fréttamaður:
Fjögurra og hálfs milljarðs
króna hagnaður, það hljómar
ekki eins og illa statt fyr-
irtæki, hvort sem þetta eru
talnaleikir eða ekki.
Borgarstjóri: Nei ég bara
ég skil ekki, skil ekki hvernig
hægt er að fá þetta út, fá þetta
út, ég man ekki hvað orðin
heita einu sinni sem að eru
notuð til þess að setja þetta
svona upp.
Fréttamaður: En en en...
Borgarstjóri (snýr sér við):
Björn, hvað heitir þetta aftur?
Björn Blöndal (aðstoð-
armaður borgarstjóra, birtist
undan vegg): Þið verðið nátt-
úrlega að skoða skuldirnar,
sko, áður en að þið spurjið
svona...
Drengur með jólasveina-
húfu hleypur í burtu.
Borgarstjóri: Já það er eitt-
hvað svoleiðis, já þetta er eitt-
hvað...
Björn Blöndal: Það eru tals-
vert stórir gjalddagar á næsta
ári.
Borgarstjóri: Já.
Björn Blöndal: Sem þarf að
eiga fyrir.“
Óskaplega hljóta þeir borg-
arbúar að vera stoltir sem
kusu Besta flokkinn til að
refsa pólitíkusum. Hverjir
sitja uppi með refsinguna?
Kosningaævintýrinu
í borginni lauk fyrr
en vænst var}
Ríki og borg
og leiðtogarnir
Kosningar íBandaríkj-
unum fóru að
mestu eins og spáð
hafði verið. Sigur
repúblikana í full-
trúadeildinni var í
samræmi við
bjartsýnustu spár, en árang-
urinn í öldungadeildinni í sam-
ræmi við varfærnari spár. En
þótt niðurstaða kosninganna
sýni mikla hreyfingu á fylgi
frá vinstri til hægri þýðir það
ekki að repúblikanar hafi afl
til þess að vinda ofan af þeim
ákvörðunum Bandaríkja-
forseta og fyrrverandi meiri-
hluta hans, sem stjórnarand-
staðan var áköfust á móti.
Þótt staða demókrata-
flokksins hafi veikst halda þeir
enn meirihluta í öldungadeild
þingsins, og forsetinn býr yfir
hinu virka neitunarvaldi og
hefur að auki ríkulegt stjórn-
arskrárbundið vald, ekki síst á
sviðum sem tengj-
ast samskiptum við
erlend ríki og í
varnarmálum.
En hafi forsetinn
haft áform um rót-
tækar breytingar á
síðari hluta kjör-
tímabilsins hafa kostir hans
þrengst til muna. Þar ræður
ekki aðeins breytt valdahlutfall
flokkanna í þinginu heldur eins
hitt að þingmenn demókrata
hafa fengið áminningu um að
flokkshollustan við forsetann
er ekki endilega líkleg til að
reynast þeim vel næst þegar
þeir þurfa að eiga allt sitt undir
kjósendum. Þeir munu því
verða mun tregari í taumi en til
þessa. Sjálfsagt munu flestir
þeirra vilja halda sig nær miðju
stjórnmálanna en þeir gerðu í
kjölfar glæsilegs sigurs Obama
og að auki er líklegt að miðjan
sjálf hafi færst dálítið til hægri
með kosningaúrslitunum.
Hið stjórnmálalega
landslag hefur
breyst í Bandaríkj-
unum. En áhrif þess
má þó ekki ofmeta.}
Hægri sveifla
Í
íslensku samfélagi er orðinn nær dag-
legur siður að menn stígi fram og biðji
alþjóð afsökunar á orðum sem þeir
létu falla í hita leiksins eða voru sögð í
hálfkæringi. Þetta gerist vegna þess
að smásálarlegir siðapostular standa sam-
viskusamlega vaktina, benda ásakandi á þann
sem hefur ekki tekið nægilega hyggindalega til
orða og krefja hann um afsökunarbeiðni og
sanna iðrun. Og undan þessum þrýstingi er
látið. Þess vegna fær þjóðin afsökunarbeiðni
svo að segja á hverjum degi. Einstaklingar
hafa ekki lengur leyfi til að taka sterkt til orða,
nota líkingamál eða móðga. Þjóðfélagið er að
fyllast af pempíum sem hrína eins og stungnir
grísir ef þeim mislíkar. Og pempíum mislíkar
ansi margt.
Á dögunum líkti stjórnmálamaður pólitísk-
um andstæðingi sínum við kerlingu. Orðið kerling er
gamalgróið íslenskt orð, rétt eins og karl, og er bæði not-
að í jákvæðri og neikvæðri merkingu. Þarna var því
greinilega ætlað að vera móðgandi. Í pólitík eins og í lífinu
sjálfu segja menn ýmislegt, stundum sitthvað miður fal-
legt, og engin ástæða er til að amast við því fari menn
ekki rækilega yfir strikið. Það var ekki gert þarna. En
stjórnmálamaðurinn hafði vart sleppt orðinu þegar upp
reis einn af mörgum vælukjóum Samfylkingar og hóf upp
hefðbundið forsjárhyggjugagg. Fleiri vælukjóar sáu
ástæðu til að tóna með og stjórnmálamaðurinn var sak-
aður um kvenfyrirlitningu og sérstaklega átalinn fyrir að
hafa viðhaft ummælin svo skömmu eftir
kvennafrídaginn. Rétt eins og konur væru
orðnar guðlegar verur, strax eftir kvennafrí-
dag, sökum göfugs kynferðis síns.
Stjórnmálamaðurinn hafði svo ekki meiri
kjark en það að hann féll á hnén, sýndi iðrun
og bað margfaldlegrar afsökunar. Samkvæmt
orðabók er ein merking orðsins kerling
„kjarklítill karlmaður“. Þarna breyttist
stjórnmálamaður í kerlingu á einu auga-
bragði. Hann hefði átt að sýna þor og hlæja að
gagnrýnendum sínum. Menn eiga ekki að
smækka sig með því að taka mark á vitleys-
um. Af þeim er nóg í þjóðfélagi samtímans og
nauðsynlegt er að berjast gegn þeim, ekki
gefa eftir og verða samdauna þeim.
Orðið kerling er oft notað í neikvæðri merk-
ingu. Orðin karlfauskur, karlhlunkur og karla-
legur eru hljómmikil og kröftug og auðga íslenskt mál, en
hafa einungis neikvæða merkingu. Eigum við að þurrka
þau út úr málinu af því þau eru særandi fyrir karlkynið?
Stöðugt er þrengt að frelsi einstaklingsins í þjóðfélagi
sem færist æ meir í átt að forsjárhyggju. Hvers virði er
frelsi einstaklingsins ef hann hefur ekki frelsi til að
móðga? Frelsi sem byggist á því að allir hugsi eins, og
hegði sér eins, er ekki frelsi heldur helsi. Og ef þurrka á
út öll orð sem mögulega er hægt að nota til að móðga ein-
stakling þá lifum við í þjóðfélagi andlegrar fátæktar og
ritskoðunar. Þessa dagana eru ansi margir uppteknir við
að skapa slíkt samfélag. kolbrun@mbl.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
Pistill
Frelsi til að móðga
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
B
úist er við að upphafskvóti
verði gefinn til loðnu-
veiða fljótlega eftir að
leiðangri Hafrann-
sóknastofnunarinnar
lýkur. Í honum hefur þegar fundist
talsvert meira en þau 400 þúsund tonn
sem aflaregla kveður á um að sé skilið
eftir til hrygningar. Upphafskvóti gæti
orðið á bilinu 2-400 þúsund tonn.
Það væri í raun í samræmi við það
sem segir í nýlegri frétt frá Hafrann-
sóknastofnuninni. Þar segir annars
vegar að eldri loðna sem hefur fundist
sé í „góðu ástandi og í meira mæli en
fundist hefur undanfarin ár“. Hins
vegar segir þar að mælingar bendi þó
til „að hrygningarstofn loðnu sé enn
mun minni en hann var í lok síðustu
aldar“.
Niðurstöður fagnaðarefni
Á síðustu árum hefur loðnuafli á
Íslandsmiðum minnkað verulega og
mikil óvissa verið um veiðar. Um þver-
bak keyrði veturinn 2009 er aðeins var
leyft að veiða fimmtán þúsund tonn.
Engin sumarveiði hefur verið frá árinu
2004 og haustveiðin verið mjög lítil allt
frá því að stofninn minnkaði mikið vet-
urinn 1990/1991. Vetrarafli vertíðanna
2006 til 2010 var sá minnsti frá 1972 ef
frá eru taldar vertíðarnar 1981 til 1983
og 1991.
Lítið fannst af ungloðnu í leið-
angri haustið 2009 og niðurstöður
þeirrar mælingar voru „langt undir því
magni sem þarf til að hægt sé að mæla
með upphafsaflamarki fyrir vertíðina
2010/2011“, segir í ástandsskýrslu
Hafró síðastliðið sumar. Þær nið-
urstöður sem nú þegar liggja fyrir um
loðnumælingar haustsins eru því ef-
laust fagnaðarefni útgerða og fólks í
þeim byggðum sem reiða sig á vinnu
við uppsjávartegundir.
Breytt útbreiðslusvæði loðnunnar
hefur valdið fiskifræðingum heilabrot-
um, en venjan var sú að loðnan kæmi
beint úr norðri frá Jan Mayen inn á Ís-
landsmið. Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur velti þeim möguleika upp
árið 2004 að loðnan héldi sig í auknum
mæli við Austur-Grænland. Það hefur
fengist staðfest í leiðangrinum, sem nú
stendur yfir, sem er fyrr á ferðinni en
undanfarin ár og skilyrði hafa verið
góð til leitar, t.d. er óvenjulítill ís á
þessu svæði.
Þorsteinn
Sigurðsson,
sviðsstjóri nytja-
stofnasviðs hjá
Hafrann-
sóknastofn-
uninni, skýrir
breytt út-
breiðslusvæði
fyrst og fremst
með hlýnun sjáv-
ar norður af
landinu.
Straumakerfi og
hitastig við
A-Grænland virðast henta loðnunni nú
orðið. Eldri loðnan, sem hrygnir í vet-
ur, fannst einkum á tiltölulega mjóu
belti frá norðvesturmiðum, allt norður
fyrir Scoresbysund við austurströnd
Grænlands.
Áhrif af hlýnun sjávar
Í leiðangrinum hefur þegar fund-
ist meira af ungloðnu en mælst hefur í
mörg ár. Hún kemur inn í veiðina vet-
urinn 2011-12. Ungloðnunnar hefði fyr-
ir nokkrum árum verið leitað fyrir
Norðurlandi og austur að Glettingi á
þessum árstíma, en nú er hana að finna
við Grænland. Það má væntanlega
einnig rekja til hlýnunar og hugsanlega
hefur hún borist vestur á bóginn sem
seiði. Haldi ungloðnan áfram að bragg-
ast má gera ráð fyrir að upphafskvóti á
loðnu verði gefinn út í júní á næsta ári
eins og venja er með aðrar tegundir.
G R
Æ
N L
A N
D
Í S L A N D
Dreifing loðnu
Leiðangur Árna Friðrikssonar sem hófst 24. september.
Ferillinn sýnir siglingaleið skipsins.
Litirnir tákna magn loðnu:
Mest Minnst
Loðnan að braggast
og aflamark fljótlega
Sveiflur
» Miklar sveiflur einkenna veið-
ar á uppsjávartegundum.
» Verulegur samdráttur hefur
orðið í loðnuveiðum, sérstaklega
þrjú síðustu árin.
» Á sama tímabili hefur makríll
farið að veiðast og hafa verið
veidd 112 til 122 þúsund tonn að
þessu ári meðtöldu.
» Sýking er í íslenskri sum-
argotssíld og á síðustu vertíð voru
veidd 46 þúsund tonn á móti 152
þúsund tonnum árið á undan. Nú
er gerð tillaga um 40 þúsund.
» Á næsta ári mega Íslendingar
veiða um sjö þúsund tonn af kol-
munna á móti 88 þúsund tonnum
í ár.
» Veiðar Íslendinga á norsk-
íslenskri síld verða skornar niður
um 72 þúsund tonn, úr 215 þús-
und tonnum í 143 þúsund.
» Gulldepla kom til sögunnar
2009, en þá veiddust 46 þúsund
tonn og um 16 þúsund í ár.
» Nokkuð virðist hafa rofað til í
ástandi loðnunnar og aflamark
verður gefið út fljótlega.
Loðnuafli í
þúsundum tonna
99/00 934
00/01 1.071
01/02 1.249
02/03 988
03/04 742
04/05 784
05/06 238
06/07 377
07/08 203
08/09 15
09/10 151