Morgunblaðið - 04.11.2010, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.11.2010, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010 Elsku, besti afi. Okkur langar til þess að kveðja þig og minnast þín hér með nokkrum orðum. Það er erfitt að átta sig á því allt í einu að þú ert ekki leng- ur á meðal okkar, en eftir standa allar minningarnar og fyrst og fremst gleðin og þakklætið yfir því að hafa átt svona frábæran afa. Í árlegum heimsóknum okkar systkinanna hingað til Íslands voru heimsóknirnar til þín og Guðrúnar á Hvammstanga auðvitað alltaf ómiss- andi og um leið ótrúlega spennandi. Það var svo mikill kraftur í þér og í kringum þig, það mátti engan tíma missa, við vorum alltaf að gera eitt- hvað skemmtilegt. Þú elskaðir sjóinn, báta, veiði og bryggjulíf. Þessu miðl- aðir þú til okkar og dreifst okkur iðu- lega út á fjörðinn á bátnum þínum til þess að renna fyrir fisk. Einnig fórum við í silungsveiði í ýmsar ár eða vötn í sveitinni, og þú taldir það ekki eftir þér að keyra aðeins lengra ef von væri á meiri veiði einhvers staðar annars staðar. Útilíf og ferðalög voru alla tíð þín ástríða og þú varst alltaf boðinn og búinn og til í hvað sem var, sérstaklega allt annað en að sitja heima. Minnisstæðir eru göngu- túrarnir okkar til þess að skoða selina úti á Vatnsnesi, og stríða kríunum svolítið í leiðinni. Þér fannst ekkert mál að „skutlast“ með okkur krakk- ana til Akureyrar ef þannig stóð á en svo gátum við líka bara eytt löngum stundum við að henda steinum og fleyta kerlingar í fjörunni á Hvamms- tanga. Þú lagðir þig alltaf allan fram um að hlutirnir gengju upp og þér var mjög umhugað um að við „útlending- arnir“ nytum okkar á Íslandi og upp- lifðum nýja hluti. Það tókst þér svo sannarlega. Elsku afi, þú varst mjög sérstakur maður, kraftur þinn, dugnaður og vilji er okkur hin besta fyrirmynd og gott veganesti. Það var virkilega gaman að vera með þér, þú hafðir áhuga á öllu og öllum og alltaf var stutt í kímnina. Við söknum þín nú þegar, afi, og heimsóknir okkar til Íslands verða ekki eins héðan í frá. En við vitum að þú munt fylgjast með okkur sem fyrr Hreinn Halldórsson ✝ Hreinn Hall-dórsson fæddist á Hvammstanga 29. júlí 1934. Hann lést á sjúkrahúsinu á Hvammstanga 21. október 2010. Útför Hreins fór fram frá Hvamms- tangakirkju 1. nóv- ember 2010. og þú munt ævinlega vera í huga okkar og hjarta. Þín Eva Marín, Óskar og Antonio Karl. Elsku bróðir. Ég ætla að minnast þín í fáum orðum og þakka fyrir að hafa átt þig, svo góðan bróður, öll þessi ár. Við vorum þrjú systkinin, ólumst upp hjá yndislegum foreldrum þar sem tónlistin átti stór- an sess og leiklistin líka. Öll lærðum við að hlusta og njóta. Þegar þú varst unglingur lærðir þú að spila á gítar, fórst einn veturinn vikulega til kenn- ara í Reykjavík með Laxfossi. Ein- hverjum þætti það nú dálítið vesen að leggja á sig sjóveiki og aðra vanlíðan því ekki var alltaf gott í sjóinn á þess- ari leið. Svo fórst þú að spila í Danshljóm- sveit Borgarness sem var vinsæl á þessum árum enda margir góðir þar innanborðs. Þá varst þú bara sautján ára. Eftir það fórstu í Samvinnuskól- ann, seinna út að læra kjötiðn, vannst við það hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, svo í Melabúðinni þar sem þú varst líka verslunarstjóri hjá Sigurði Magnússyni. Ýmislegt annað tókstu þér fyrir hendur; rækjuverksmiðjuna Meleyri, plastframleiðslu, keyptir bát og fórst á skak o.fl. Aldrei að gera ekki neitt. Í gamla daga kenndir þú mér gít- argrip og hjálpaðir mér að spila á gít- arinn minn. Þetta var allt ljómandi gaman. Sigurður bróðir okkar, sem var yngstur okkar systkina, spilaði líka og ég held að hann hafi nú slegið okkur rækilega við enda alger snill- ingur. Hann lést fyrir nokkrum árum eftir löng og erfið veikindi. Nú sakna ég ykkar beggja, elsku bræður mínir, en er alveg viss um að ykkur líður vel þar sem þið eruð nú, ég trúi því að þið farið að spila saman á gítarana ykkar. Svo kem ég seinna og slæst í hópinn. Þegar veikindin fóru að draga frá þér kraftana var æðruleysi þitt aðdá- unarvert og ótrúlega stutt í húmorinn sem fylgdi þér alltaf. Nú seinast gát- um við talað saman á skype og þá gat ég séð þig. Eftir að þú fluttir norður komuð þið Guðrún oft við hjá mér í kaffisopa. Þú hringdir þá stundum á leiðinni og sagðir passlegt að ég hellti á könnuna, slegið var oft í vöfflur og ekki þótti þér verra að fá rjóma með. Það var alltaf gott að hitta ykkur og þú slakaðir vel á, leist í blöðin, tókum svo stundum rúnt um Borgarnes sem þú áttir svo sterkar taugar til. Lítill drengur ljós og fagur prúður og glaður. Þannig komst þú mér fyrir sjónir þegar þú varst lítill hnokki. Ég dáðist oft að því hvað þú varst ró- legur og kurteis. Þessa kosti hafðir þú til að bera þegar þú varst ungur mað- ur. Duglegur sjómaður og góður frændi. Við söknum þín elsku vinur. Guð blessi minningu þína. Elsku Ruth systir, Guðmundur, Auður, Jón, Guðrún, Kjartan, Daníel og Bríet. Megi Guð styrkja ykkur. Guðný frænka og fjölskylda. Elsku Árni Freyr. Takk fyrir að hafa fengið að kynn- ast þér. Þín verður sárt saknað. Minning þín lifir. Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer. En ég vona bara hann hugsi soldið hlýlega til mín og leiði mig á endanum aftur til þín. (Megas) Þinn frændi, Árni Özur. Elskulegi vinur okkar, nú kveðjum við þig með miklum söknuði og hugs- um til baka um allar þær frábæru og skemmtilegu samverustundir sem við höfum átt. Þú kallaðir ekki allt ömmu þína og vildir enga aumingja í þitt lið eins og þú sagðir oft sjálfur. Þessi setning lýsir þér vel þar sem þú sjálf- ur varst enginn aumingi. Þú varst ósérhlífinn og duglegur og gerðir allt af miklum krafti og tókst alltaf vel á því. Það skipti engu máli hvort þú varst að stunda handbolta, fótbolta, hjólabretti, snjóbretti, mótorkross, kickbox, tennis eða golf. Sjómennsku stundaðir þú frá unga aldri og sagðir oft „við erum hetjur hafsins eða stríðsmenn þjóðarinnar“ og fylltist miklu stolti af sjómannsstarfinu. Þú varst harður FH-ingur og góð- ur og gildur þegn FH-mafíunnar, einnig áttir þú þitt uppáhaldslið í enska boltanum sem var Liverpool. Við vinirnir vorum ekki allir á eitt Árni Freyr Guðmundsson ✝ Árni Freyr Guð-mundsson fæddist 29. apríl 1981. Hann lést af slysförum 22. október 2010. Útför Árna Freys fór fram frá Víði- staðakirkju 2. nóv- ember 2010. sáttir um hvað var besta liðið í ensku deildinni, en það skipti ekki máli því vinskap- urinn okkar á milli var æðri, sterkari og mik- ilvægari en fylgið við ensku félagsliðin. Þú varst sannur vin- ur vina þinna, kátur, lífsglaður forystusauð- ur vinahópsins sem leiddir hópinn oft í margar eftirminnileg- ar og skemmtilegar uppákomur svo vægt sé til orða tekið. Samverustundir okk- ar verða ekki fleiri og sú hugsun er bæði sár og sorgleg. Skemmtilegar minningar eigum við um þig kæri vin- ur og þær munu lifa með okkur og verða ekki frá okkur teknar. Við rifj- um upp allt sem við gerðum saman. Það skiptir ekki máli hvort það var úti á sjó eða í landi í Reykjavík, Hafn- arfirði, Akureyri, Ibiza, London eða á Roskilde festival í Danmörku, allt eru þetta stórkostlegar og góðar minn- ingar sem auðvelda okkur lífið án þín í dag. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Hvíldu í friði kæri vinur. Dagfinnur, Daníel, Hallur, Ármann, Orri Freyr, Draupnir og Gunnbjörn. Hann Árni var vinur vina sinna. Það var einn hans góðu eiginleika og það voru fyrst og fremst þeir sem fengu að kynnast þeim gullmola sem í honum leyndist. Og þessir sömu vinir vissu að hann var sérstakur. Hann var einn fárra sem ég þekki sem voru „þeir sjálfir“ og reyndi aldr- ei að vera neinn annar. Lét sér fátt um finnast hvað öðrum þótti. Þess vegna leit ég upp til Árna. Önnur ástæða þess að hann var mér svo kær og átti svo stóran hlut í hjarta mínu er að hann reyndist vinur í raun á erfiðum tímum í lífi mínu. Þá sýndi hann svo sannarlega hvaða mann hann hafði að geyma og hvern- ig það er að styðja aðra í raunum. Fyrir það næ ég aldrei að fullþakka. Þetta lærði ég af honum og vona að ég hafi næga visku til að miðla áfram til annarra. Elsku Árni, ég vildi óska að ég gæti fylgt þér hinstu skrefin, en ég mun hins vegar koma og heimsækja þig þegar ég kem næst heim til Íslands. Elsku Rut, Guðmundur, Guðrún og Jón Örn, Auður, Daffi og allir hinir sem voru svo heppnir að þekkja Árna; ég votta ykkur alla samúð mína og hugsa til ykkar í þessum erfiðu sporum sem þið nú standið í. Lilja Særós Jónsdóttir. Það er alls ekki auðvelt að sitja hér fyrir framan tölvuna og minnast þín, Árni Freyr. Þú varst minn fyrsti og besti vinur. Þú varst líka mjög vinsæll og vinamargur og allir kepptust við að vera vinir þínir, enda varst þú mjög sterk persóna með sterkar skoðanir. Þess vegna fannst mér ég svolítið sérstakur þegar þú sagðir að ég væri besti vinur þinn. Minningarnar um þig eru sterkar og við gerðum nánast allt saman. Við vorum mikið saman á Vesturvangin- um og það var alltaf gott að vera heima hjá þér. Nánast á hverjum degi fórum við heim til þín eftir skóla og grilluðum okkur samloku með osti og arómati og böðuðum svo samlokuna í kokteilsósu, fórum svo inn í stofu og spjölluðum saman. Ég man að þú sagðir mér eitt sinn að pabbi þinn ætti spíttbát og þá gat ég ekki verið minni maður og sagði að pabbi minn ætti sko tíu spíttbáta. Bara til að vera eins og þú. Ég fékk oft að gista hjá þér og stálumst við þá oft inn til bróð- ur þíns og hlustuðum á The Smith’s og GCD og tókum hrikalega lúftgír- ara þangað til við vorum annaðhvort gripnir af stelpunum sem horfðu á okkur í gegnum gluggana eða vorum einfaldlega of sveittir og þreyttir til að halda áfram. Við byrjuðum að stunda íþróttir á svipuðum tíma og vorum alltaf sam- an, bæði í fótboltanum og handbolt- anum. Það voru ófáir tímarnir sem við spiluðum fótbolta á C-vellinum hjá Engidalsskóla. Við ferðuðumst líka um landið og ég man eins og það hafi gerst í gær þegar við fórum til Svíþjóðar á Partille Cup og þú varðir markið eins og berserkur. Endalaus- ar minningar og góðir tímar sem ég á alltaf eftir að minnast með bros á vör. Þegar þú fluttir til Akureyrar og varst kominn í mótorkrossið eins og ég við hittumst nokkrum sinnum til að hjóla saman. Þá vonaðist ég til að við myndum ná aftur saman, en þú varst mikið á sjónum, þar sem ég held reyndar að þér hafi alltaf liðið best, og hafðir því ekki mikinn tíma í landi. Þú hafðir lítið breyst og varst sami gamli góði Árni Freyr og mér fannst frá- bært að fá að hitta þig og rifja upp gömlu góðu dagana. Ég tel mig heppinn að hafa kynnst þér, Árni Freyr, og fengið að vera þinn besti vinur. Mér finnst rosalega sárt að kveðja þig. Innst inni vonaðist ég alltaf til þess að við myndum ná aftur saman eftir að okkar leiðir skildu um tvítugt, en nú þarf ég bara að bíða og hitta þig þegar minn tími kemur. Og þá gerum við allt það sem ekki mátti gera. Ég sendi fjölskyldu þinni innilegar samúðarkveðjur og þakkir fyrir að fá að vera svona mikið inni á heimilinu ykkar. Megi Guð geyma þig vel á himnum. Þinn besti vinur, Unnar Sveinn Helgason. Árni Freyr Guðmundsson, skips- félagi minn, er látinn. Dugnaðarforkur, ósérhlífinn, hrað- virkur, vandvirkur og mikill keppn- ismaður. Þetta eru fyrstu orðin sem mér koma til hugar til að lýsa Árna. Samviskusemi á líka heima þarna svo og hreinskilni. Einstaklega alþýðleg- ur og almennilegur drengur, fjörugur og fór talsvert fyrir honum á stund- um. Hnyttinn var hann og skarpur í tilsvörum og átti það til að slá menn algerlega út af laginu. En allt í góðu, því hann var einstakt ljúfmenni, hann Árni. Hann er öllum sem til hans þekktu mikill harmdauði og verður hans sárt saknað. Mínar innilegustu samúðarkveðjur sendi ég foreldrum hans, unnustu, systkinum og öllum öðrum ættingjum og vinum. Kristján Elíasson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON, Blönduhlíð 18, lést föstudaginn 22. október á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Margrét Unnur Jóhannsdóttir, Stefanía Björg Þorsteinsdóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir og fjölskyldur. ✝ Hjartans þakkir til allra er auðsýndu okkur samúð og vinarþel við fráfall ástkærrar systur okkar, AGNESAR GUÐFINNU STEINADÓTTUR. Petrína Steinadóttir, Helgi V. Guðmundsson og aðrir aðstandendur. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 29. október var spil- að á 15 borðum. Úrslit urðu þessi í NS: Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 369 Albert Þorsteinss.– Auðunn Guðmss. 359 Oliver Kristóferss.– Magnús Oddsson 359 Örn Einarsson – Ágúst Stefánsson 351 A/V Knútur Björnss.– Birgir Sigurðsson 402 Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 369 Friðrik. Jónss.– Jóhannes Guðmannss. 345 Karl Stefánss.– Helga Haraldsd. 341 Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningur spilaður í Ásgarði, Stangarhyl 4, mánudaginn 1. nóvem- ber. Spilað var á 12 borðum. Með- alskor: 216 stig. Árangur N/S: Ólafur Gíslason – Guðm. Sigurjónsson 273 Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 260 Ingibj. Stefánsd. – Margrét Margeirsd. 246 Björn Svavarss. – Jóhannes Guðmannss. 244 Árangur A-V: Magnús Jónsson – Gunnar Jónsson 263 Gunnar Hersir – Hörður Guðmundss. 250 Oddur Halldórsson – Ragnar Björnss. 241 Friðrik Jónsson – Hulda Mogensen 233 Bergur Ingimundars. – Axel Láruss. 233 Örn Einarsson og Jens Karlsson Íslandsmeistarar Þeir Örn Einarsson og Jens Karlsson hömpuðu Íslandsmeistara- titli eldri spilara í tvímenningi en mótið fór fram sl. laugardag en þeir félagar enduðu með 58,1% skor. Í öðru sæti urðu Guðrún Jörgensen og Guðlaugur Sveinsson og Hjálmar S. Pálsson og Kristján B. Snorrason þriðju. Alls tóku 29 pör þátt í mótinu. Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Sunnudaginn 31/10 var spilaður tvímenningur á 13 borðum. Spilaður var Monrad barometer. Hæsta skor kvöldsins: Sigurjóna Björgvinsd.– Freyst. Björgvss. 401 Oddur Hannesson – Árni Hannesson 385 Kristín Andrews – Jón Þ. Karlsson 358 Þorleifur Þórarinss. – Haraldur Sverriss.358 Unnar A. Guðmss. – Garðar V. Jónsson 347 Næsta sunnudag verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum klukkan 19. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.