Morgunblaðið - 04.11.2010, Síða 30
30 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
2
5 6 7 9 1
3 2 1 8
9 3 7
8
1 5 6
1 9 2 7 5
7 2
3
5 3 6 2
8 7
2 1
4 2 1
5 6 2
1 4 3
8 6 4 3
4 7 6 8
6 1 5
8
1 6 3
4 1 7
3 5
6 2 4
7
5 4 3 6
4 7 3 9
8 3 2 5 4 1 9 6 7
4 5 7 9 6 8 2 3 1
9 6 1 2 3 7 5 8 4
2 9 6 1 7 5 3 4 8
5 7 4 3 8 2 6 1 9
3 1 8 4 9 6 7 2 5
6 8 5 7 2 4 1 9 3
7 4 9 6 1 3 8 5 2
1 2 3 8 5 9 4 7 6
6 2 7 8 9 1 5 4 3
8 9 1 5 3 4 7 2 6
3 5 4 7 2 6 8 9 1
7 8 3 6 1 9 2 5 4
9 6 5 4 7 2 1 3 8
4 1 2 3 8 5 6 7 9
2 3 6 9 5 8 4 1 7
1 4 9 2 6 7 3 8 5
5 7 8 1 4 3 9 6 2
4 2 6 1 7 5 9 3 8
5 9 3 6 8 2 7 4 1
8 7 1 9 4 3 6 2 5
1 4 2 8 6 7 5 9 3
6 3 7 2 5 9 8 1 4
9 8 5 4 3 1 2 6 7
2 6 8 7 1 4 3 5 9
3 1 9 5 2 8 4 7 6
7 5 4 3 9 6 1 8 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 4. nóvember,
308. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa
öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir
hann enn ekki eins og þekkja ber.
(I.Kor. 8, 2.)
Víkverji er aðeins farinn að blaða íjólabókunum og líst vel á það
sem hann hefur séð. Morgunengill
eftir Árna Þórarinsson er skemmti-
leg og spennandi. Víkverji hefur
hingað til gleypt bækur Árna í sig og
á því var engin undantekning nú.
Árni fjallar um samtímann, Ísland
eftir bankahrun, af innsæi og fléttan
gengur upp. Á einum stað í bókinni er
vitnað í franska rithöfundinn Honoré
de Balzac: „Bak við mikla auðsöfnun
leynist ævinlega glæpur.“ Þessi um-
mæli minntu Víkverja á orð banda-
ríska auðjöfursins J.P. Morgans eitt
sinn þegar hann fór í viðtal: „Þú mátt
spyrja mig um allt nema hvernig ég
varð mér úti um fyrstu milljónina.“
x x x
Árni hefur nefnt verk sín eftirdægurlögum, sem koma síðan
með einhverjum hætti við sögu. Að
þessu sinni tekur hann lagið Angel of
the Morning eftir Chip Taylor. Vík-
verji ákvað að rifja upp kynni sín af
laginu og sló því upp á vefnum You-
Tube. Þar er það í mörgum útgáfum,
allt frá þeirri fyrstu frá 1967 með
Evie Sands til jafn ólíkra flytjenda og
Chrissie Hynde úr The Pretenders
og djasssöngkonunnar Ninu Simone.
x x x
Víkverji las einnig Hreinsun eftirfinnska rithöfundinn Sofi Oks-
anen af áfergju. Mikið er látið með
Oksanen þessa dagana og verðlaunin
hlaðast upp hjá henni. Hreinsun ger-
ist að mestu í Eistlandi. Söguhetjurn-
ar eru tvær konur. Önnur er fórn-
arlamb sovéska kerfisins, hin
fórnarlamb mansals eftir hrun járn-
tjaldsins. Hreinsun er spennandi og
full af leyndarmálum sem smám sam-
an eru afhjúpuð.
x x x
Tímaritið Der Spiegel ætlar greini-lega að taka upp sömu stefnu og
þeir, sem eru að vinna þýsku þýð-
inguna á Íslendingasögunum, sem á
að koma út á næsta ári, og nota ís-
lenska stafi í íslenskum nöfnum. Í
slúðurdálki nýjasta tölublaðsins er
Björk Guðmundsdóttir skrifuð ná-
kvæmlega svona, með ö-i, ð-i og ó-i.
víkverji@mbl.is
Víkverji skrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sanka saman, 4
rithöfundur, 7 sóttkveikju, 8
ber, 9 elska, 11 einkenni,
13 sprota, 14 fljót, 15 fánýti,
17 mjög, 20 sjór, 22 hræ-
fugla, 23 truntu, 24 trjá-
gróður, 25 mikilleiki.
.
Lóðrétt | 1 púði, 2 segl, 3
fiska, 4 raunveruleg, 5 sjó-
fuglinn, 6 slóra, 10 geta um,
12 ber, 13 karlfugls, 15 lund,
16 trylltan, 18 valur, 19
blómið, 20 skott, 21 lengra í
burtu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skinhelgi, 8 tæpur, 9 neita, 10 rói, 11 renni, 13 ræddi,
15 skass,
18 satan, 21 kál, 22 andrá, 23 ágóði, 24 ragmennið.
Lóðrétt: 2 kæpan, 3 nærri, 4 ernir, 5 grind, 6 stór, 7 gati, 12
nes, 14 æða,
15 skap, 16 aldna, 17 skálm, 18 sláin, 19 tjóni, 20 náið
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 d5 2. exd5 Dxd5 3. Rc3 Dd6 4.
d4 Rf6 5. Bc4 c6 6. Rge2 Bf5 7. Bf4
Db4 8. Bb3 e6 9. 0-0 Rbd7 10. He1 0-
0-0 11. Rg3 Bg6 12. a3 Db6 13. Df3
Rd5 14. Rxd5 exd5 15. c4 dxc4 16.
Bxc4 Dxd4
Staðan kom upp í B-flokki Haust-
móts Taflfélags Reykjavíkur sem
lauk fyrir skömmu. Sigurvegari
mótsins, Stefán Bergsson (2.102),
hafði hvítt gegn Jóhanni H. Ragn-
arssyni (2.081). 17. Dxc6+! og svart-
ur gafst upp enda yrði hann mát eft-
ir 17. … bxc6 18. Ba6#. Lokastaða
efstu manna varð þessi: 1. Stefán
Bergsson (2.102) 7½ vinning af 9
mögulegum. 2.-3. Sævar Bjarnason
(2.148) og Ögmundur Kristinsson
(2.050) 6½ v. 4. Eiríkur K. Björnsson
(2.038) 5 v. 5. Jóhann H. Ragnarsson
(2.081) 4½ v.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Norður
♠ÁK65
♥832
♦–
♣ÁD10987
Vestur Austur
♠742 ♠DG83
♥DG105 ♥94
♦9432 ♦ÁG75
♣53 ♣KG2
Suður
♠109
♥ÁK76
♦KD1086
♣64
Suður spilar 6♣.
Þær fregnir flugu um keppnissal-
inn að Matt Granovetter hefði unnið
6♣ í spilinu að ofan. „Getur ekki ver-
ið,“ sögðu menn sem til þekktu:
„Áttir hljóta að hafa snúist.“ En leg-
an var sú sama hjá Matthew og öll-
um hinum. Útspilið var líka eðlilegt –
♥D.
Keppnisformið var tvímenningur
og Matthew ákvað að lágmarka skað-
ann með því að víxltrompa eins og
hægt væri. Hann drap á ♥Á, stakk
tígul, fór heim á ♥K og trompaði
annan tígul. Spilaði næst ♠Á-K og
trompaði spaða með ♣4. Trompaði
enn tígul og síðasta spaðann með ♣6
heima. Og viti menn – sexan átti
slaginn! Tígull var þá stunginn í
fjórða sinn og hjarta spilað úr borði í
þriðja spila endastöðu. Austur átti
♣KG2, varð að trompa með tvist-
inum og spila upp í ♣ÁD. Tólf slagir.
4. nóvember 1942
Áhöfn Brúarfoss bjargaði öll-
um 47 skipbrotsmönnunum af
enska flutningaskipinu Daleby
sem þýski kafbáturinn U-89
sökkti suðaustur af Græn-
landi. Skipin voru í skipalest á
leiðinni frá Bandaríkjunum til
Íslands. Stjórn Eimskipa-
félagsins heiðraði björg-
unarmennina.
4. nóvember 1959
Fyrsti þáttur framhalds-
leikritsins „Umhverfis jörðina
á 80 dögum,“ eftir sögu Jules
Verne, var á dagskrá Útvarps-
ins. Það varð mjög vinsælt.
4. nóvember 1963
Unglingar grýttu Alþing-
ishúsið í kjölfar útifundar þar
sem mótmælt var frumvarpi
um stöðvun launahækkana.
Margar rúður brotnuðu og
„voru eggjasletturnar upp um
alla veggi hússins,“ að sögn
Morgunblaðsins. Lögreglan
handtók sextíu unglinga.
4. nóvember 1969
Strætisvagnar skullu saman á
Skúlagötu í Reykjavík. Fimm-
tán farþegar slösuðust og báð-
ir bílstjórarnir. Þetta voru
Vogar hraðferð og Kleppur
hraðferð. Eldur kom upp í
öðrum vagninum við árekst-
urinn.
4. nóvember 1996
Þyrlur lentu í fyrsta sinn á
fjalli sem myndaðist ofan í
ísgjá við eldgos hjá Bárð-
arbungu á Vatnajökli. Ómar
Ragnarsson steig fyrstur fæti
á hið nýja land.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Ég hef alltaf haldið upp á afmælið mitt en mis-
jafnlega mikið,“ segir Marta Pálsdóttir, leiðsögu-
maður með meiru, sem er sjötug í dag. Hún hefur
nóg að gera, bæði með eiginmanninum Leifi Þor-
leifssyni og í vinnunni. „Ég er ekki þekkt fyrir að
halda kyrru fyrir,“ segir hún og vísar til leiðsögu-
starfanna á sumrin og skrifstofustarfa sinna hjá
Háskóla Íslands. Hún tók fyrsta prófið sem leið-
sögumaður hjá Vigdísi Finnbogadóttur, síðar for-
seta, 1972, en notaði réttindin ekki mikið. Síðan
lærði hún þýsku til viðbótar við dönskuna og ensk-
una, fór aftur í skólann fyrir 15 árum og hefur
unnið við leiðsögn síðan. Marta segir skemmtilegast að fara á vit nátt-
úrunnar og hálendið sé í sérstöku uppáhaldi. Margir mjög for-
vitnilegir litlir staðir hafi bæst við og gaman sé að sýna framtakssemi
Íslendinga eins og til dæmis Landnámssetrið í Borgarnesi, víkinga-
heimasafnið á Suðurnesjum og Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit.
Marta er tryggur ÍR-ingur og fer reglulega í skíðaferðir til Austur-
ríkis og Ítalíu. Hún er líka í fimleikum í Stjörnunni og segir að gaman
hafi verið að fara í keppnisferðir með leikfimissystrum sínum til út-
landa. „Ég nýt hvers dags og aldursins hverju sinni,“ segir hún.
Marta Pálsdóttir leiðsögumaður 70 ára
Nýtur þess að vera til
Flóðogfjara
4. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.31 3,9 10.46 0,5 16.47 4,0 23.03 0,3 9.21 17.03
Ísafjörður 0.24 0,2 6.36 2,1 12.49 0,3 18.43 2,2 9.40 16.54
Siglufjörður 2.28 0,2 8.47 1,3 14.50 0,1 21.11 1,3 9.23 16.36
Djúpivogur 1.36 2,2 7.51 0,5 14.00 2,1 20.03 0,5 8.54 16.29
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Hrútur Talaðu þér ekki þvert um geð til þess
eins að halda friðinn við aðra. Gerðu fyr-
irspurnir og þér opnast nýir heimar. Þú munt
ferðast mikið á næsta ári.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur áhyggjur af reikningum, skött-
um, skuldum. Taktu til í sálinni og gerðu
áætlun. Taktu þér tíma fyrir sjálfa/n þig og
sinntu þeim, sem þér standa næst.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert ósátt/ur við eitthvað innan
heimilisins en finnst þú þó ekki geta rætt það
við heimilisfólkið. Þér tekst að gleyma öllum
áhyggjum þínum, það er hið besta mál.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Stundum er svaranna að leita á ólík-
legustu stöðum og þú verður umfram allt að
sýna hugkvæmni ef þú vilt ná einhverjum ár-
angri. Einhver segir brandara á þinn kostnað.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sumir hlutir virðast of góðir til þess að
vera sannir. Njóttu árangursins og haltu svo
ótrauð/ur áfram. Einhver gefur þér gætur í
laumi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er ástæðulaust að streitast á móti
tilfinningunum. Galdurinn felst í því að láta
engan hafa áhrif á sig, sérstaklega ekki þá
sem þú elskar og lítur upp til.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Láttu ekki hugfallast þótt samskipti þín
og vinnufélaga þinna gangi ekki snurðulaust
með öllu. Gakktu svo hraustlega til verks og
kláraðu eitt atriði í einu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Í dag er kjörið tækifæri til að
hreinsa til í þínu nánasta umhverfi. Um leið
og þú ákveður eitthvað af heilum hug sam-
þykkir alheimurinn það.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú kynnist vissum nýjungum, og
það reynir á. Hvernig var með líkamsrækt-
ina? Gleymdist hún?
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þótt það sé stundum gott að fá at-
hygli skaltu gæta þess að það sé ekki á ann-
arra kostnað. Njóttu frístundanna með þínum
nánustu, þeim tíma er vel varið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Gætið þess að lenda ekki í milli
þegar vinir ykkar eiga í deilum. Samkomulag
þitt við maka og nána vini er gott, allir elska
þig hreinlega.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Hlustaðu á þá sem vilja leiðbeina þér
og gefa þér góð ráð, því þeir tala af reynslu.
Reyndu að taka á málunum af stillingu.
Stjörnuspá
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is