Morgunblaðið - 04.11.2010, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 04.11.2010, Qupperneq 31
VELVAKANDI 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÓGEÐSLEGA SVÍNIÐ ÞITT! LEYFIRÐU HONUM AÐ TALA SVONA VIÐ ÞIG? HANN VAR AÐ TALA VIÐ ÞIG ÓGEÐIÐ ÞITT! KÆRI SNOOPY, HVERNIG LÍÐUR ÞÉR Á DÝRASPÍTALANUM? ÉG VONA AÐ ÞÉR LÍÐI BETUR. ALLIR VINIR ÞÍNIR SAKNA ÞÍN LÁTTU ÞÉR BATNA SEM FYRST SVO ÞÚ GETIR KOMIÐ AFTUR HEIM ÞINN VINUR, KALLI BJARNA P.S. PASSAÐU ÞIG Á FRÖNSKU HJÚKKUNUM, SÉRSTAKLEGA POODLE-HUNDUNUM HVERT ERTU AÐ FARA? OG MUNDU... ...AÐ EF ÞÚ LÝGUR ÞÁ DETTA HORNIN AF HJÁLMINUM ÞÍNUM! ÉG ÆTLA AÐ FARA OG SKOÐA BLÓMASKREYTINGAR Í LYSTIGARÐINUM ÉG ÞARF HORNIN HVORT SEM ER EKKI Á BARNUM ÞAÐ ER BOXER UPPREISN Í GANGI!HLÍÐNISKÓLI HVAÐ VARÐ UM PLASTPOKANA? ÉG FÓR MEÐ ÞÁ Í ENDURVINNSLUNA ÉG KEYPTI UMHVERFISVÆNA OG ENDURNÝTANLEGA POKA Í STAÐINN EITTHVAÐ VERÐ ÉG AÐ NOTA UNDIR KATTASANDINN HVAÐ ÆTLARÐU AÐ GERA VIÐ ÞENNANN GJAFAPOKA? MUNTU Í ALVÖRUNNI GEFAST UPP EF ÉG FER MEÐ ÞIG Á SPÍTALANN? SÍÐAN KONAN MÍN DÓ ÞÁ ER HANN MÉR ALLT! ÉG GERI HVAÐ SEM ER FYRIR HANN! GOTT OG VEL! EF ÞÚ GEFST UPP ÞÁ SKAL ÉG FARA MEÐ ÞÉR AÐ HITTA TOMMY Atvinnuleysi meira en tölur segja Þegar talað er um 7,1% atvinnuleysi á landinu er ekki tekinn með í útreikningum allur sá fjöldi atvinnu- lausra sem flutt hefur til útlanda til starfa og heldur ekki hinir fjöl- mörgu sem hafa farið í nám eftir atvinnumissi. Fróðlegt væri ef þessir hópar væru teknir inn í áðurgreint prósentuhlutfall. Ellý. Áróður Fámennur hópur andkristins fólks heldur hér uppi áróðri sem hlýtur að flokkast undir trúarofsóknir á hendur þeim sem ekki eru sama sinnis. Okkur, sem játum kristna trú, er slétt sama um þeirra skoð- anir og óskum þeim alls velfarnaðar en för- um fram á að okkur sé sýnd sama tillitssemi. Nú er svo langt gengið að mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar hefur snúist á sveif með trúboði þessa hóps með tillögum sem eru vægst sagt ekki til að auka álit almenn- ings á nefnd sem treyst er fyrir slíku hlutverki. Þóra Jónsdóttir. Hvar fást postu- línsdúkkur? Veit einhver hvar postulínsdúkkur fást? Sé svo vinsamlegast hringið í Bettý, s. 820-1542. Ást er… … þegar síminn er alltaf á tali. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, gönguhópur II kl. 10.30, vatnsleikfimi kl. 10.45, myndlist/prjónakaffi kl. 13, bók- menntakl. kl. 13.15, jóga kl. 18. Árskógar 4 | Handavinna/smíðar/ útskurður kl. 9, botsía kl. 9.30, helgi- stund kl. 10.30, myndlist kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist kl. 9, bók- band 13, handavinna. Á morgun kl. 10 helgistund með sr. Hans Markúsi og bingó kl. 13.15. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9, handavinna kl. 10, botsía kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefn- aður kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15, málm- og silfursmíði kl. 9.30, bókband kl. 13, haustfagnaður kl. 14. Á dagskrá m.a: Kór Snælandsskóla, stj. Svava Ingólfsd. og nokkrir úr Ritlistarhópi Kópavogs lesa úr ljóðabókinni Augsýn. Vöffluhlaðborð. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa- vinna kl. 9, ganga kl. 10, handavinna og brids kl. 13, jóga kl. 18. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Gönguhóp. kl. 11, handav./karlaleikf.kl. 13, botsía kl. 14, Garðakórinn, æf.kl. 16. Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund í samstarfi v/Fella og Hólakirkju kl. 10.30. Frá hádegi vinnustofur opnar, m.a. myndlist, perlu og bútasaumur. Félag heyrnarlausra kl. 11. Laugard. 20. nóv. kl. 15 dagskrá á Breiðholtsdögum, Guðrún frá Lundi lifir enn, umsj. Marín Guðrún Hrafnsd. Félagsþjónustan Hraunbæ 105 | Fé- lagsvist kl. 13.30. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, qi-gong kl. 10, leikfimi kl. 11.20, glerskurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30, næsta opið hús 11. nóv. kl. 14. Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10, hann- yrðir kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópavogsskóla kl. 17 Korpúlfar Grafarvogi | Listasmiðjan er opin kl. 13. Á morgun er sundleikfimi kl. 9.30 í Grafarvogssundlaug. Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10, handa- vinna og útskurður með leiðbeinanda kl. 9 og 13-16, leirlistarnámskeið kl. 9 og 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók- band og postulínsmálun kl. 9, morg- unstund kl. 9.30, botsía kl. 10, framhss. kl. 12.30, handavinnustofa eftir hádegi, spil og stóladans kl. 13. Í kjölfar heitra umræðna umskóla og kristin fræði á Leirn- um, póstlista hagyrðinga, brá Ár- mann Þorgrímsson á leik með vísu: Hvað sem líður kristnum sið og kvennafari presta allir glaðir una við ástir, vín og hesta. Sigrún Haraldsdóttir lagði orð í belg: Þakklátir af þessu enn þegnar flestir hrífast; um það jafnvel æstir menn ekki þurfa að rífast. Þá Jón Arnljótsson: Deilum veldur ástin enn. Illt er sagt um drykkju. Heyra má oft hestamenn hnakkrífast um bykkju. Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía á Sandi, klykkti út með: Þó ég fari í kirkju kát og kunni að heilsa presti á mér hef ég alltaf gát ef ég mæti hesti. Sjálfsagt er að greina frá því, að út er komin bókin Tólf alda tryggð eftir góðvin Vísnahornsins, Ragnar Inga Aðalsteinsson, en það er athugun á þróun stuðlasetn- ingar frá elsta norrænum kveð- skap fram til nútímans. Þetta er doktorsritgerð um stuðlasetningu sem Ragnar Ingi varði 29. október og má nálgast bókina hjá höfundi í gegnum netfangið ria@ismennt- .is. Í tengslum við þessar rann- sóknir Ragnars Inga gerði Þór- arinn Eldjárn vísu um hann: Sú ritgerð er rammlega byggð – og rekur burt vesin og hryggð – sem byggist á tólf alda tryggð og tengslum við stuðlanna dyggð. Andinn kom líka yfir Snorra Aðalsteinsson: Fyrir masgjarna menningarþjóð er málfræðidallurinn fullkomnaður. Til rökhyggju þroskuðust rímuð ljóð og Ragnar Ingi er fullorðinn maður. Loks orti Höskuldur Þráinsson: Mat hann stuðla strangur, lengi, í tölvu taldi stafi. Hlaut að launum lof og gráðu, Ragnar reginkunni. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af prestum og tólf öldum - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.