Morgunblaðið - 04.11.2010, Page 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010
Hljómsveitin Orphic Oxtra gaf
hinn 1. nóvember út plötu sem ber
nafn hljómsveitarinnar. Í tilkynn-
ingu vegna þessa bendir hljóm-
sveitin á að útgáfudagurinn hafi
þótt afspyrnu hentugur sökum þess
að dagsetningin myndi samhverfu,
hana megi lesa áfram og aftur á
bak án þess að hún breytist.
01.11.10. Segir um hljómsveitina að
hún spili „lífræna og dansvæna tón-
list undir sterkum balkneskum
áhrifum sem er þó heimabrugguð í
Reykjavík af stórum hópi samsær-
ismanna sem eiga það sameiginlegt
að stunda nám í hljóðfæraleik við
LHÍ eða FÍH.“ Þá er tónsmíðum
sveitarinnar líkt við „hljómmiklar
flugeldasýningar framandi tóna og
takta“ og fullyrt að tónlistin veki
líkamleg viðbrögð hjá fólki.
Útgáfudagsetningin
01.11.10 þótti hentug
Tukthúslimurinn Kenneth Máni
sem sló í gegn í Fangavaktinni er í
aðalhlutverki í myndbandi sem
starfsmenn Icelandair Group létu
gera fyrir árshátíð fyrirtækisins.
Myndbandið hefst á frétt Stöðvar 2
um að Kenneth Máni hafi ekki skil-
að sér úr vorlitaferð listaakademíu
Litla-Hrauns og að líklega muni
hann reyna að komast úr landi. Í
kjölfarið er fylgst með tilraunum
hans til þess að komast úr landi,
m.a. kostulegum samskiptum við
starfsmann Icelandair á Leifsstöð.
„Þurfa allir að borga?“ spyr Ken-
neth Máni þegar starfsmaður segir
honum að fargjaldið til Bandaríkj-
anna kosti 200 þúsund. Hann biður
þá um vatnsglas og þegar starfs-
maður sækir það stelur hann mið-
anum. Skömmu síðar kemst Ken-
neth Máni að því að hann þurfi
vegabréf til að komast úr landi.
„Get ég fengið lánað vegabréf hjá
einhverjum?“ spyr hann starfs-
mann í innritun en það er því miður
ekki hægt. Þá grípur hann til sinna
ráða, eins og honum einum er lagið.
Kenneth Máni strýkur
af Litla-Hrauni
Þáttaröðin Með öngulinn í rass-
inum er nú komin út á mynddiski,
sex þættir sem sýndir voru á Skjá
einum sl. vor. Um þættina sáu tví-
burabræðurnir Ásmundur og
Gunnar Helgasynir og snerust þeir
um veiðikeppni bræðranna, hvor
veiddi stærri lax og hvor fengi fleiri
laxa. Auk þess fengu þeir gesti í
þættina til sín. Þá er Gunnar að
gefa út bók með Björgvini Franz
Gíslasyni, Nornina og dularfullu
gauksklukkuna og ku hún vera í
anda sígildra ævintýra.
Tvíburar með öngul í
rassinum á mynddiski
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Ferill Thomas Vinterberg er orðinn
bæði langur og einstaklega áhuga-
verður þótt hann sé aðeins rétt rúm-
lega fertugur og eigi enn eftir sín
bestu ár í kvikmyndaleikstjórninni.
Hann var ekki orðinn tvítugur þegar
hann hóf nám í danska kvikmynda-
skólanum og stuttmyndirnar hans
„Sidste omgang“ og „Drengen der
gik baglæns“ vöktu mikla athygli og
unnu til alþjóðlegra verðlauna. Hann
var 27 ára þegar hann gerði sína
fyrstu bíómynd, „De störste helte“
og við gerð hennar kynntist hann Ís-
lendingnum Valdísi Óskarsdóttur.
„Já, við lentum eitthvað í vandræð-
um með klippið á þeirri mynd og hún
kom og reddaði því,“ segir Thomas
Vinterberg og bætir við; „hún er ein-
faldlega besti klipparinn.“ Þegar
Vinterberg var 29 ára kom út eftir
hann bíómyndin „Festen“ sem sló í
gegn út um allan heim en Valdís var
fengin til að klippa hana. „Festen“
var fyrsta bíómyndin sem fylgdi
reglum Dogma95 yfirlýsingarinnar.
En þremur árum áður en Festen var
gerð höfðu Vinterberg, Lars von
Trier, Kristian Levring og Sören
Kragh-Jacobsen gefið út manifestó
um hvernig ætti að gera bíómyndir á
tímum vídeósins. Manifestóið var
kallað Dogma95 og hafði mikil áhrif
víða um heim. Þeir notuðu ódýrar
kamerur, brutu flestar reglur í með-
ferð kamerunnar og hvernig klippt
var á milli sjónarhorna. Þá var önn-
ur lýsing en náttúruleg ljós á staðn-
um ekki leyfð, auk þess sem ekki
mátti nota brellur í eftirávinnslu
myndanna. „Festen“ er fjöl-
skyldudrama undir áhrifum frá Guð-
föður-myndum Coppola. Þó sjást
engir bófar eða mafíósar, heldur er
um fjölskyldudrama að ræða. Hún
vann til margra verðlauna, meðal
annars fékk hún sérstök verðlaun
dómnefndar á Cannes-kvik-
myndahátíðinni. Í stað þess að fylgja
þessum árangri eftir með öðrum
svipuðum dogma- eða dramamynd-
um þá fór Vinterberg í allt aðrar til-
raunir. „Já, ég vildi fara á aðrar
brautir, ég vildi ekki festast í sama
farinu. Ef ég hefði haldið áfram í
sama stíl þá hefði það alltaf orðið
eitthvað hallærislegt Festen II,“
segir Vinterberg. Hann skrifaði
handrit að Science-fiction myndinni
It́s all about love, leikstýrði og fram-
leiddi sjálfur myndina. Hún fékk
hvorki góða aðsókn né góða gagn-
rýni en Vinterberg segir að sér þyki
hvað vænst um hana. „Ég var í fyrra
í Austurríki þar sem var verið að
sýna leikrit eftir mig og þar var mik-
ið af ungu fólki sem einmitt féll best
við þá mynd eftir mig. Mér þótti
vænt um það,“ segir hann. „Þegar ég
geri mynd vil ég að hún skilji eitt-
hvað eftir sig.“ Næstu tvær myndir
fengu annarsvegar „Dear Wendy“
15.000 áhorfendur en hinsvegar „En
mand kommer hjem“ rúm 30.000, en
fengu báðar mun betri gagnrýni.
Í myndinni Submarino er hann
kominn aftur á heimaslóðir í efn-
istökum. „Já, mér finnst ég vera að
færast aftur heim í lítillar danskrar
sögu með þessari mynd. Þessvegna
þykir mér líka mjög vænt um að fá
þessi norrænu verðlaun, því ég vil
gera myndir hér í þessu umhverfi.
Það hljómar mjög sexý að fara út í
heim og gera myndir í Hollywood en
það er ekki eitthvað sem heillar mig.
Þá verður maður að gera myndir
sem hafa ekki höfundareinkenni
manns. Hér getur maður gert bíó-
myndir sem hafa karakter. Næsta
mynd mun einmitt eiga sér stað í
Svíþjóð eða Danmörku, þetta er lítil
saga sem við erum að klára. Við er-
um á síðustu metrunum í handrits-
gerðinni og því verð ég að fljúga
beint heim eftir að hafa tekið við
verðlaununum,“ segir Vinterberg.
Svartar sögur Danans
Vinterbergs verðlaunaðar
Verðlaunaþríeykið Danski handritshöfundurinn Tobias Lindholm, danski kvikmyndaleikstjórinn Thomas Vinterberg og framleiðandinn Morten Kauf-
mann hlutu Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Submarino og voru þau afhent í Íslensku óperunni í gærkvöldi.
Verðlaun Myndin fjallar um tvo bræður sem fóru ekki vel útúr æskuár-
unum. Þeir meina vel, en annar er eiturlyfjaneytandi og hinn alkóhólisti.
Eftir að hafa slegið í gegn með Festen hefur Vinterberg farið víða í efnistökum
sínum Bíómyndin Submarino er jafnvel svartari en Festen
Morgunblaðið/Eggert
Thomas Vinterberg ólst upp á
meðal hippa og bjó sjálfur um
tíma í kommúnu. Hann mun því
ekki láta markaðinn trufla sig í
að segja þær sögur sem hann
langar til að segja. Submarino
er mögnuð saga sem hefur
fengið mikið lof gagnrýnenda.
Vinterberg hrósar íslenska leik-
stjóranum Degi Kára mikið og
kallar hann snilling. Vinterberg
tók við kvikmyndaverðlaunum
Norðurlandaráðs í gærkvöldi.
Ljúfi hippinn
KVIKMYNDAGERÐ
Fólk
Faust sem fékk góðar viðtökur á Íslandi í fyrra
fór í frægðarför til London þar sem viðtökurnar
voru jafnvel enn betri. Hið virta Young Vic leik-
hús valdi Faust sem 40 ára afmælissýningu húss-
ins og var hún í boði sjö sinnum í viku, sex vikur í
röð. Uppselt var á allar sýningar verksins og
langar biðraðir voru eftir ósóttum pöntunum
alla síðustu vikuna. Sýningin fékk misjafna
gagnrýni en oftast mjög jákvæða og var hún val-
in „Critićs choice“ í Time Out blaðinu. Að-
spurður hvað gleðji leikstjórann mest í þessu
segir Gísli Örn Garðarson að eins og flestir leik-
stjórar óski hann þess að öllum líði vel. „Að leik-
urum líði vel á sviðinu og að vel sé fjallað um þá,
að fólkið sem komi til að sjá sýninguna sé ánægt
og þegar það næst einsog í þessu tilviki þá er
maður mjög ánægður. Það kitlar mann á sér-
stakan hátt að koma í leikhúsið og sjá fólk sem
hefur beðið í biðröð eftir miða á sýninguna frá
því klukkan níu um morguninn,“ segir Gísli Örn.
En á sama tíma og á sýningum stóð kom tilkynn-
ingin um að þau hefðu hlotið Evrópuverðlaunin í
leiklist í flokknum „New Realities“. Borgarleik-
húsið og Vesturport settu sýninguna upp og er
Magnús Geir leikhússtjóri að vonum ánægður
með árangurinn. „Í framhaldinu hafa komið
mörg tilboð um að sýna í Þýskalandi, Rússlandi,
Japan, Kóreu og Kanada,“ segir Magnús Geir.
Þessi tilboð eru í skoðun en búið er að ákveða að
sýna verkið aftur í Borgarleikhúsinu í janúar svo
að þeir Íslendingar sem misstu af verkinu í fyrra
fá tækifæri til að sjá það. borkur@mbl.is
Fáum Faust aftur í Borgarleikhúsið
Leiksigur Þorsteinn Gunnarsson í hlutverki sínu.