Morgunblaðið - 24.12.2010, Page 2
2 24. desember 2010
Við mælum með
24. desember
Jólahátíðin er gengin í garð. Kveikj-
um á kertum, höfum fallegt í kring-
um okkur og fáum okkur gott að
borða. Föðmum okkar nánustu og
munum að mesta jólagleðin kemur
að innan. Tökum því rólega og leyf-
um jólaandanum að umvefja okk-
ur. Það eru jú bara jól einu sinni á
ári og þau líða alltaf svo ósköp
hratt.
Höfum notalegt og fallegt í kringum okkur um jólin, nú er tíminn til að njóta og hafa það gott.
Jólin eru komin
4 Vikuspeglar
Dularfullt mannslát, maðurinn með silungagrímuna og hráu röddina
og hinn lífseigi stjórnandi sir Alex Ferguson í Vikuspeglum.
10 Dagur í lífi hreindýrsins
Annasamur dagur hjá íbúum norðurpólsins í aðdraganda jóla.
11 Í gini Stalíns
Anna Birta Tryggvadóttir er leiklistarnemi í Grikklandi þar sem hún ólst
upp að hluta og þreytti nýlega frumraun sína á atvinnuleiksviði.
13 Betra samfélag
Eyrún Guðjónsdóttir segir kolefnismarkaði öflug stjórntæki til að
hvetja fyrirtæki til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
27 Mörg andlit Grýlu
Við lítum í myndaalbúm sjálfrar Grýlu jóla-
sveinamóður og virðum fyrir okkur ófrýni-
legar myndirnar af þessari furðuskepnu.
42 Gróðavænlegur
Gúllíver
Kvikmyndin um Gúllíver í Putalandi er talin
líklegust nýrra kvikmynda til að draga til sín
áhorfendur yfir hátíðarnar.
Lesbók
52 Heyr, rímnasmiður
Hinn ofurvinsæli rappari Jay-Z haslar sér völl sem rithöfundur og situr
sjálfsævisöguleg bók hans nú á metsölulista New York Times.
55 Ástin og skákin
Huldar Breiðfjörð ræðir ástina yfir reitum skákborðsins
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Ragnar Axelsson á suðurskautinu.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags-
moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hugrún
Halldórsdóttir, Hólmfríður Gísladóttir, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, Orri
Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson.
38
28
Augnablikið
S
egja má að frystitogarinn Vilhelm Þor-
steinsson EA standi undir tegundarnafni
þar sem hann liggur bundinn við bryggju
á Akureyri! Það er miðvikudagskvöld, 22.
desember, jólastemningin orðin allsráðandi, hlýj-
an hefur tekið völd í hjörtum en Vetur konungur
heldur sínu striki.
Það er fallegt í höfuðstað Norðurlands. Frost-
stillur eru það líkast til hvar sem er.
Þorraþræll Fjallaskáldsins kemur upp í hugann
og ég byrja skyndilega að söngla:
Nú er frost á Fróni,
frýs í æðum blóð
Fjölskyldan er í bíltúr til að koma nokkrum
jólakortum á sinn stað og stefnan tekin niður að
höfn í leiðinni. Ekki það að ég hafi migið í saltan
sjó, en forfeðurnir og önnur skyldmenni lifðu
sumir á sjónum og lifa enn og fiskur er í uppá-
haldi. Það er næg tenging fyrir mig. Svo vill
ábyrgur faðir minna dæturnar á hvar peningarnir
verða til í alvörunni; á hverju þjóðin hefur lifað og
mun væntanlega lifa að miklu leyti um ókomin ár.
Það er hlýtt og notalegt í bílnum en úti bítur
frostið. Alls 15 gráður, segir mælirinn í bílnum en
þó bara sýnishorn af því sem ku framundan á
norðausturlandi, austur í Mývatnssveit og á Hóla-
sandi. Þar fara gráðurnar á þriðja tug í mínus.
Fræg Akureyrarstillan gerir það að verkum að
engum verður meint af í kvöld; ég byði ekki í það
ef hreyfði vind eða meiri raki væri í lofti.
Það er rokkið, frostþoka liggur yfir Pollinum og
marrið í snjónum eykur á dulúðina. Hún magnast
enn þegar máttarvöldin feykja þokunni af stað og
skyndilega hverfur Vilhelm að mestu.
Kveður kuldaljóð,
Kári í jötun móð.
Kuldaljóð já, en enginn er hríðarbylurinn, engin
mararbára blá sem brotnar unnar steinum á, þung
og há eða yggld og grett á brá. Fjarri því. Í þessu
vetrarljóði ríkir fegurðin og kyrrðin. Mátturinn og
dýrðin.
Yfir aflatjóni æðrast skipstjórinn.
Harmar hlutinn sinn, hásetinn.
Þetta á sannarlega ekki við heldur. Að minnsta
kosti ekki fyrri línan og þótt ég hafi ekki hugmynd
um launakjör sjómanna er harla ólíklegt að háset-
inn kvarti.
Í fyrirlestri kvöldsins í bílnum kemur fram að
þetta glæsilega skip hafi nýlega sett Íslandsmet.
Að eftir síðasta túr ársins sé aflaverðmætið komið í
3,3 milljarða króna. Veit ekki hvort dætur mínar
átta sig á því í raun hve það eru margir peningar.
Kannski skil ég upphæðina varla sjálfur.
Ég óska hetjunum á Baldvini svo gleðilegra jóla í
huganum, og farsældar á nýju ári. Hugsa líka hlý-
lega til annarra landsmanna og ek burt í frostinu.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Vilhelm Þorsteinsson EA, frystitogari Samherja, hálffalinn í frostþokunni á Akureyri á miðvikudagskvöldið.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Frýs í æðum blóð
Eftirvæntingin og gleðin skín úr andliti jórdanskrar skólastúlku á
jólaballi sem haldið var fyrir múslima og kristna í Small World-
skólanum í Amman í gær. Á meðan flestir skólafélagar hennar létu
nægja að setja upp rauðar jólasveinahúfur skreytti sú stutta sig með
sérlega glæsilegri jólasveinahárspöng í tilefni dagsins.
Úr myndasafni
Reuters
Jólasveinar í hárinu
24. desember
Miðnæturguðs-
þjónusta í Frí-
kirkjunni í
Reykjavík. Páll
Óskar og Monika Abendroth koma
fram ásamt strengjasveit og Kór
Fríkirkjunnar. Einsöngur Anna Sig-
ríður Helgadóttir. Prestur Séra
Hjörtur Magni Jóhannsson.
26. desember
Fegurð er vanmetin, Diskókvöld
Margeirs snýr aftur á skemmti-
staðnum Austur.
29. desember
Árlegir aðventutónleikar Mót-
ettukórsins í Hallgrímskirkju. Sér-
stakur gestur er Kristinn Sig-
mundsson.