Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 11
24. desember 2010 11 E ftirvæntingin er óttablandin þegar hún er óvænt beðin um að syngja fyrir sjálfan Jósef Stalín – í einrúmi – enda leiðtoginn frægur fyrir vandlæti og allt eins líklegur til að leiða listamenn til slátrunar mislíki honum flutningur þeirra. Hún veðjar á óperu, enda fast- ráðin við Bolshoj, en allt kemur fyrir ekki. Stalín vill bara heyra þjóðlög og hetjusöngva um sjálfan sig. Hann bregst því ókvæða við og henni verður ekki bjargað. Hryggileg saga en til allrar hamingju ósönn. Hér er nefnilega um leikrit að ræða, Kvöldverð með Stalín, eftir moldavíska leikskáldið Ion Droutse, sem sjá má á fjölum Árstíða-leikhússins í Aþenu um þessar mundir. Hvað kemur það okkur Íslend- ingum svo sem við, gætu menn spurt. Jú, til að fullkomna fjölþjóðlegt yfirbragð sýningarinnar fer 25 ára íslensk leikkona, Anna Birta Tryggvadóttir, með hlutverk söngkonunnar seinheppnu. Um er að ræða frumraun hennar á atvinnuleiksviði en Anna Birta lýkur þriggja ára námi við leiklist- arskólann Traga í Aþenu næsta vor. Eiginlega súrrealískt „Kennari minn, Iannis Mortzos, sem er marg- reyndur leikhúsmaður hér í Grikklandi og lék með Melinu Mercouri í gamla daga, prufaði okkur nokkur í hlutverk söngkonunnar í sýningunni og ég hreppti hnossið,“ segir Anna Birta í símasamtali frá Aþenu. Hún þurfti ekki að hugsa sig um tvisv- ar. „Það var eiginlega súrrealískt að vera boðið þetta hlutverk en frábært tækifæri til að leika í grísku atvinnuleikhúsi áður en ég klára námið.“ Þrjú hlutverk eru í sýningunni, Stalín, einka- þjónn hans og söngkonan ógæfusama. „Þeg- ar allt er komið í óefni grípur hún til þess ráðs að sjá sýnir og verður öll á trúarlegum nótum. Það er auðvitað eit- ur í beinum Stalíns sem hendir aum- ingja söngkonunni út og lætur drepa hana. Þetta er pólitísk grínádeila með dramatísku ívafi og fólk hefur skemmt sér mjög vel,“ útskýrir Anna Birta sem syngur hástöfum á rússnesku í sýningunni. Spurð hvort hún hafi kunnað eitthvað fyrir sér í því ágæta tungumáli skellir hún upp úr. „Nei, nei, ég kunni ekki orð.“ Í Grikklandi er til siðs að áhorfendur heilsi upp á leikendur að sýningu lokinni og kann Anna Birta því vel. „Það er alltaf gaman að fá hrós en mér finnst alltaf jafnfyndið þegar ég er beðin um að gefa eiginhandaráritun!“ Fer vonandi til Rússlands Leikritið verður sýnt fram á vor í Aþenu, fimm sinnum í viku, en þá verður lagt upp í leikferð um landið, auk þess sem farið verður í viku til Kýpur. „Það kemur líka til greina að fara með sýninguna til Rússlands, þar sem leikritið hefur vakið athygli, og vonandi verður af því,“ segir Anna Birta en lík- legt þykir að sýningin verði tekin aftur upp í Aþenu næsta haust. Spurð um framhaldið staðfestir Anna Birta að hún verði áfram í Grikklandi – alltént um sinn. „Ég er búin að fá nokkur tilboð í kjölfar sýningarinnar og er að skoða þau þessa dagana. Mér stendur til dæmis til boða að leika í sjónvarpi hér í Grikklandi eftir áramótin. Ég á ekki von á að fara héðan á næstunni, alla vega ekki næstu tvö árin.“ Þess má geta að Anna Birta lék í sinni fyrstu kvik- mynd ytra í sumar, In the Outbreak of the Moon, og var hún frumsýnd á dögunum. „Þetta er frekar lítið hlut- verk en skrifað sérstaklega fyrir mig eftir áheyrn- arprufurnar. Þetta var mjög skemmtileg reynsla en svo- lítið furðulegt að sjá sjálfa sig á hvíta tjaldinu,“ segir hún hlæjandi. Spurð hvort hún hafi ekki áhuga á að spreyta sig á ís- lensku leiksviði í framtíðinni svarar Anna Birta afdrátt- arlaust játandi. Upplýsir raunar að ákveðið verkefni sé í farvatninu. „Lísbet Harðar Ólafardóttir vinkona mín er að skrifa fyrir mig einleik og stefnum að því að sækja um á Act Alone-hátíðinni sem haldin er á Vestfjörðum. Við sjáum hvað setur.“ Nytsamur túlkur þriggja ára Þetta er ekki fyrsta dvöl Önnu Birtu í Grikklandi, hún flutti þangað ung með móður sinni, Ingibjörgu Inga- dóttur, og ólst þar upp til átta ára aldurs. „Anna Birta drakk í sig tungumál þjóðarinnar, tónlist, dans og öll samskipti, auk þess að tileinka sér svipbrigði og lát- bragð á örskömmum tíma. Strax þriggja ára var hún ákaflega nytsamur túlkur fyrir mig,“ segir móðir henn- ar. Faðir Önnu Birtu, Tryggvi Ingason, lést áður en hún fæddist en Ingibjörg var um tíma gift grískum manni, Antonis Lionarakis og á með honum tvö börn. Anna Birta er í góðu sambandi við Antonis og lítur á hann sem fósturföður sinn. Notar raunar ættarnafn hans enda þykir Tryggvadóttir hinn mesti tungubrjótur þar syðra. „Ég var fljót að kom- ast aftur inn í samfélagið þegar ég kom hing- að aftur. Ég var svolítið ryðguð í málinu til að byrja með og fann verulega fyrir því þegar ég sat með tragedíurnar á fornmáli í fanginu í skólanum,“ segir hún og hlær. „Ég var þó fljót að ná mér á strik og tala grískuna núna eins og innfædd. Ég kann ofsalega vel við Grikki en í hjarta mér verð ég alltaf Íslendingur.“ Anna Birta er raunar réttnefndur heimsborgari. Sem barn bjó hún um fimm ára skeið í Bretlandi en ung- lingsárin átti hún heima á Íslandi og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði, þar sem hún tók virkan þátt í leiklistar- og sönglífinu. Eitt ár var Anna Birta skiptinemi í Brasilíu. Hún verður seint skömmuð fyrir að fara troðnar slóðir, stúlkan. Með námi í Aþenu hefur Anna Birta unnið á sumrin sem leiðsögumaður um grísku eyjarnar og líkar það stórvel. Hóparnir sem hún sér um eru frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Ástralíu og er farið í vikuferðir í senn. „Þetta er æðislega skemmtileg vinna og ég reikna fastlega með að halda henni áfram næsta sumar,“ segir hún. Það er að segja ef Talía bankar ekki þeim mun fastar upp á … Í gini Stalíns Anna Birta Tryggvadóttir ólst að hluta til upp í Grikklandi. Nú er hún snúin þangað aftur sem leiklistarnemi og hlaut á dögunum eldskírn sína á at- vinnuleiksviði sem söngkona sem leidd er fyrir sjálfan Stalín. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Anna Birta Tryggvadóttir, Petros Xekoukis og Iannis Mortzos í hlutverkum sínum í Kvöldverði með Stalín. Anna Birta Tryggvadóttir lýk- ur leiklistarprófi frá Traga- skólanum í Aþenu í vor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.