Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 14
14 24. desember 2010 A fdrep segirðu. Merkilegt orð, afdrep. Er það ekki bara annað orð yfir kirkjugarð?“ Ómar Ragnarsson kemur á hæla mér upp stigann í Hádegismóum. Hann greip orðið á lofti enda lengi haft yndi af því að smíða ný orð og ekki síður að leggja nýja merkingu í gömul orð. „Ég er reyndar með annað orð yfir kirkjugarð,“ segir hann galsafenginni röddu. „Nábýli.“ Ómar er enn fyrir aftan mig en ég þarf ekki að snúa mér við – heyri hann taka bakföll. Ég minnist ekki á það en velti fyrir mér hvað hefði gerst hefði ég notað orðið kytra. „Þetta hefur verið ár hinna óvæntu at- burða,“ upplýsir Ómar þegar við höfum fundið okkur afdrep – nú eða kirkjugarð. „Það átti að verða allt öðruvísi en það varð. Árið 2010 ætlaði ég að nota til að gera upp mína samveru með þjóðinni sem skemmtikraftur en komst ekki í það fyrr en undir lokin vegna óvæntra anna á allt öðrum vettvangi.“ Fyrsti atburðurinn sem ekki var á dag- skrá en togaði Ómar til sín var eldgosið í Eyjafjallajökli. „Það byrjaði í mars, þann 21. ef ég man rétt,“ segir Ómar og seilist í brjóstvasann eftir minnisbókinni. „Jú, jú, stendur heima, aðfaranótt 21. mars. Þá byrjaði ballið.“ Ég hef heyrt talað um minnisbækur Ómars Ragnarssonar. Þar er engu logið. Bjó í bílnum fyrir austan Alla vega. Ómar lét ekki segja sér það tvisvar, brenndi austur og dvaldist þar meira og minna næstu vikurnar. „Ég bjó við gosstöðvarnar í pínulitla bílnum mín- um. Það er svo þægilegt að sofa í honum, hann er eins og svefnpoki.“ Það er ekki bara íslenska þjóðin sem tengir Ómar við eldgos og aðrar jarðhrær- ingar. Hann hefur liðsinnt fjölmörgum er- lendum fréttamönnum gegnum tíðina, flogið með þá og verið þeim innan handar. Ekki leið heldur á löngu áður en sími Ómars var orðinn ámóta heitur og eldgígurinn sjálfur. „Ég hafði verið viðriðinn 21 eldgos á undan þessu og kynnst fjölmörgum erlend- um blaða- og fréttamönnum. Nú byrjuðu þeir að hringja og spyrja frétta. Þetta var heilmikil vinna, að mestu kauplaus, enda sáu sumir miðlarnir ástæðu til að fjalla um mig í leiðinni. Ísraelska sjónvarpið gerði til dæmis heilan þátt. Þetta voru meiri lætin. Sumir eru ennþá að moða úr sínu efni, svo sem National Geographic.“ Ein stærsta sjónvarpsstöð heims, Al Ja- zeera, gat ekki sent mann strax á vettvang og brá fyrir vikið á það ráð að taka Ómar „traustataki“, eins og hann orðar það. „Allt í einu var ég bara kominn í uppistand hjá þeim fyrir framan milljónir manna, beint í gegnum hnött.“ Ísgjáin barin augum Ómar er sannfærður um að gosið í Eyja- fjallajökli verði lengi í minnum haft, ekki bara sakir umfangs þess og röskunar á hög- um milljóna manna, heldur líka vegna sér- stöðu þess. Nefnir hann þar annars vegar magnaðar hljóðbylgjurnar, sem hann man ekki eftir nema í Heklugosinu 1980, og hins vegar að mannlegt auga hafi fengið að líta ísgjána. „Óvíst er að það muni gerast aft- ur.“ Annar atburður sem breytti áformum Ómars á árinu kom líka eins og þruma úr heiðskíru lofti. „Ég var úti á landi á flandri með Andra [útvarpsmanni á Rás 2] þegar ég frétti að bláókunnugur maður búsettur í Danmörku hefði hrint af stað peninga- söfnun mér til handa í tilefni af sjötugs- afmæli mínu. Ég ætlaði ekki að trúa þessu. Hann hugðist víst bera þetta undir mig fyrst en náði ekki sambandi.“ Söfnun þessi, sem Friðrik Weisshappel, veitingamaður, stóð fyrir fór fram úr björt- ustu vonum. „Þetta var eins og himnasend- ing en á þessum tíma var ég fjárhagslega að Stund milli stríða. Ómar hvílir lúin bein á Hvolsvelli. Hann var vakinn og sofinn yfir gosinu í Eyjafjallajökli. Frúin skammt undan sem endranær. Eins og bylgjur sjávarins Árið 2010 hefur verið ár Ómars Ragnars- sonar. Eyjafjallajökull gaus, honum barst óvæntur fjárstyrkur, afmælisdagurinn hans var gerður að degi íslenskrar náttúru og hann var kjörinn á stjórnlagaþing. Þá hélt Ómar upp á sjötugsafmælið og gerði upp líf sitt með þjóðinni sem skemmtikraftur. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Ljósmynd: Ragnar Axelsson rax@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.