Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 13
24. desember 2010 13 Hvað? „Kyoto-bókunin leggur grunn að viðskiptamörkuðum þar sem hægt er að stunda viðskipti með losunarheimildir gróð- urhúsalofttegunda. Bókunin var samþykkt af flestum aðild- arríkjum Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna árið 1997. Í framhaldi af Kyoto-bókuninni réðst Evrópusambandið í vinnu við að stofna kolefnismarkað innan aðildarríkja þess. Við- skiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir opnaði kolefnismarkað sinn 1. janúar 2005. Kolefnismarkaður felur í sér viðskipti með gróðurhúsaloftegundir sem uppreiknað hefur verið í kolefnisheimildir, einnig nefndar losunarheimildir, sem sam- svara einu tonni af koldíoxíð (CO2). Auk viðskiptakerfis Evrópusambandsins eru víða sjálfstætt starfandi markaðir, til dæmis í Noregi og á Nýja-Sjálandi. Í Bandaríkjunum er einnig óháður markaður þar sem ekki eru tak- markanir á losun gróðurhúsaloftegunda líkt og þekkist í Kyoto- sáttmálanum. Virði kolefnismarkaðarins hefur farið ört vaxandi undafarin ár. Markaðurinn tvöfaldaðist að virði á milli áranna 2007 og 2008 úr tæplega 64 milljörðum bandaríkjadala í 126 milljarða. Milli ár- anna 2008 og 2009 jókst virði markaðarins lítillega þrátt fyrir talsverða aukningu í stærð og umfangi. Stærð kolefnismarkaðarins hefur að sama skapi farið ört vax- andi og fleiri eiga viðskipti með losunarheimildir en áður. Fjöldi viðskipta með losunarheimildir jókst um um 60% á milli áranna 2007 og 2008 úr tæplega 2,4 milljörðum í 4,9 milljarða tonna og aftur um 80% frá 2008 til 2009 í 8,7 milljarða tonna.“ Hvernig? „Kyoto-bókunin kveður á um tölulegar magntak- markanir á losun tiltekinna gróðurhúsalofttegunda frá iðnríkjum og viðskipti með losunarheimildir. Viðskipti með losunarheimildir eru dæmi um hagrænt stjórn- kerfi í umhverfisvernd sem miðar að því að draga úr útblæstri tiltekinna gróðurhúsalofttegunda. Í grunninn má skipta kolefn- ismörkuðum í tvo hluta, annars vegar markaði sem fylgja Kyoto- bókuninni og hins vegar Evrópusambandsmarkaðinn. Viðskiptin geta virst flókin við fyrstu sýn en í raun er um að ræða fjármálagjörninga þar sem tveir aðilar skipta sín á milli vöru – losunarheimildum – og fjármagni. Fyrirtæki sem ann- aðhvort skortir heimildir eða sér fram á að eiga umframheimildir á ákveðnu tímabili getur þannig selt eða keypt heimildir til dæmis í gegnum viðskiptamiðlun KOLKU. Þar að auki eru fjár- festar aðilar að þessum markaði en þeir geta lagt fjármagn í verkefni sem annaðhvort draga úr útblæstri gróðurhúsaloftteg- unda eða binda þær með ýmsum hætti. Þessi verkefni skapa heimildir sem eru seljanlegar á almennum markaði. Með Kyoto-bókuninni var sett á laggirnar viðskiptakerfi sem samanstendur af þremur mismunandi viðskiptagjörningum, sem eru JI-verkefni eða samvinnuverkefni eins og þau eru skilgreind, en það eru verkefni sem fara fram í iðnríkjunum. Þá eru það CDM-verkefni sem talað er um sem loftslagsvæn þróunarverk- efni og fara fram í vanþróaðri ríkjunum og sú þriðja er svo hrein viðskipti með losunarheimildir. Hver viðskiptagjörningur leiðir af sér mismunandi tegundir losunarheimilda sem hver gefur rétt á losun á einu tonni af CO2 eða ígildi þess á ársgrundvelli.“ Hvar? „Kyoto-heimildir eru skráðar á rafrænan hátt og er því um að ræða rafræn viðskipti. Afhending losunarheimilda fer fram á þann hátt að á ákveðnum tíma eru þær fluttar úr landsskrá seljandans yfir í landsskrá kaupandans. Aðilar sem koma að kolefnisviðskiptum og markaði með kol- efnisheimildir eru fyrirtæki sem eru skuldbundin samkvæmt Kyoto-bókuninni, fjárfestingafyrirtæki, miðlarar og ráðgjaf- arfyrirtæki, Umhverfisstofnun og Landsmiðstöð loftslagsmála, einnig nefnd DNA-skrifstofa. Fyrirtæki sem eru skuldbundin samkvæmt Kyoto-bókuninni fá bæði úthlutað ákveðnu magni af heimildum og þurfa svo að afla sér heimilda á markaði ef úthlutaðar heimildir duga ekki fyrir væntanlegum útblæstri. Fjárfestar geta tekið þátt í mótvægisverkefnum og fengið í staðinn úthlutað heimildum sem þeir geta selt á markaði. Miðlarar og ráðgjafarfyrirtæki afla heimilda fyrir fyrirtæki sem þurfa losunarheimildir og veita innsýn í markaðs- og verðþró- un. Umhverfisstofnun skráir og heldur bókhald um heimildir í gangi og úthlutar jafnframt heimildum án endurgjalds. Landsmiðstöð loftslagsmála sér um leyfisveitingu fyrir mót- vægisverkefni og hefur eftirlit með bindingu CO2 og hversu margar heimildir mótvægisaðgerðir fá.“ Hvers vegna? „Megintilgangur kolefnismarkaðarins er sá að dregið verði úr útblæstri á sem hagkvæmastan hátt. Meginmarkmið markaðarins er að stuðla að því að ríki og fyr- irtæki sjái sér hag í að nota sem fæstar losunarheimildir og koma þannig umframheimildum í verð og þannig á sama tíma fara í aðgerðir sem draga úr heildarlosun. Kerfið stuðlar að hag- kvæmni og veitir aðildarríkjum kost á sveigjanleika við efndir skuldbindinga sinna og getur leitt til þess að ríki séu frekar tilbúin að taka á sig strangari skuldbindingar í loftslagsmálum en ella. Iðnfyrirtæki sem framleiða vöru sína með mikilli brennslu jarðefnaeldsneytis þurfa til dæmis fleiri losunarheimildir en ef um endurnýjanlegan orkugjafa er að ræða. Því myndast hvati fyrir fyrirtæki að færa sig frá nýtingu jarðefnaeldsneytis yfir í að nota endurnýjanlega orku. Með þessu er vonast til að fyrirtæki jafnt sem einstaklingar leggist á eitt í baráttunni gegn loftslags- breytingum, til dæmis með skilvirkari orkunotkun. Markaðsöflin ýta undir loftslagsvænni lausnir sem og breytta hegðun fólks, umhverfinu til heilla.“ Hvenær? „Ísland verður virkur aðili að viðskiptakerfi Evr- ópusambandsins í upphafi ársins 2013 en íslensk stjórnvöld hafa gert samning við ESB sem felur meðal annars í sér samkomulag varðandi sameiginlega framkvæmd á nýjum alþjóðlegum lofts- lagssamningi sem ætlað er að taka við af Kyoto-bókuninni að árinu 2012 liðnu. Með þessu samkomulagi er einnig staðfest að stór hluti losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi muni falla undir viðskiptakerfi ESB frá og með 1. janúar 2013 en áætlað er að það muni vera um 40% af allri losun CO2 á Íslandi, þar á meðal öll losun frá stóriðju. Nú eru aðeins rétt rúm tvö ár til stefnu og því mikilvægt að hefjast handa við þann undirbúning sem þarf að eiga sér stað fyrir nýtt skuldbindingartímabíl bæði hjá stjórnvöldum sem og þeim fyrirtækjum sem skuldbundin eru því í þessum málum gildir að framtíðin er í dag!“ Hagrænt stjórnkerfi í umhverf- isvernd Hugmyndir að betra samfélagi Eyrún Guðjónsdóttir hefur aflað sér víðtækrar þekkingar um kolefn- ismarkaði og virkni þeirra. Hún er þeirrar skoðunar að kolefnismark- aðir séu öflugt stjórntæki til að hvetja fyrirtæki til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is „Meginmarkmið markaðarins er að stuðla að því að ríki og fyrirtæki sjái sér hag í að nota sem fæstar los- unarheimildir og koma þannig umframheimildum í verð og þannig á sama tíma fara í aðgerðir sem draga úr heild- arlosun,“ segir Eyrún meðal annars í viðtalinu. Eyrún Guðjónsdóttir er 32 ára Skaga- mær búsett í Reykjavík. Eyrún er framkvæmdastjóri fyr- irtækisins KOLKA – kolefnisviðskipti & ráðgjöf og er jafnframt einn stofn- enda fyrirtækisins og meirihlutaeig- andi. Hún er með B.Sc-gráðu í við- skiptalögfræði og M.Sc-gráðu í al- þjóðafjármálum og bankstarfsemi. Meistararitgerð Eyrúnar ber heitið Viðskipti til varnar náttúru (2008). Ey- rún hefur mikinn áhuga á loftslags- málunum og ýmsum tengdum mál- efnum, sérstaklega hefur hún lagt áherslu á að afla sér víðtækrar þekk- ingar á öllu því sem tengist kolefn- ismörkuðum á einn eða annan hátt Nánar má sjá um KOLKU ásamt ýmsum fróðlegum upplýsingum um málefnið á vefsíðu fyrirtækisins www.kolka.is. Hver er konan?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.