Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 53
24. desember 2010 53 LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar KARL KVARAN 17.11. 2010 - 13.2. 2011 ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012 SAFNBÚÐ Listasafns Íslands LAGERÚTSALA á listaverkabókum og gjafakortum. Allt að 70% afsláttur. OPIÐ Á ÞORLÁKSMESSU, kl. 11-17. EINNIG 28. - 29. OG 30. DESEMBER KL. 11-17. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. „Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta. Í ljósi næsta dags. Sýning um þýðingarstörf, skáldverk og baráttumál Sigurðar A. Magnússonar, rithöfundar. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is „SIGGA HEIMIS“ 11.9.2010 - 30.1. 2011 Falleg íslensk hönnun í Kraum, nýjar jólavörur og margt spennandi Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Verslunin Kraum í anddyri og kaffiveitingar. Garðatorgi 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Listasafn Kópavogs Gerðarsafn Veiðimenn Norðursins Andlit Aldanna Ljósmyndir Ragnars Axelssonar Sýningin stendur til 30.12.2010 Ókeypis aðgangur Safnið er opið kl. 11-17 alla daga nema mánudaga www.gerdasafn.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Gleðileg jól! Opið á aðfangadag 11-12. Kertasníkir kemur! Lokað á jóladag, gamlársdag og nýjársdag Opið aðra daga nema mánudaga 11-17 Endurfundir Sýningin stendur til 31. desember Fjölbreyttar sýningar fyrir alla fjölskylduna Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is 30. október – 2. janúar 2011 Gjörningaklúbburinn - TIGHT Eggert Pétursson - Málverk Lokað 25. desember Opið 26. desember frá kl. 12-17 Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Verið velkomin U m þetta leyti er til siðs að líta yfir árið og velja bestu bækur, bestu kvikmyndir, bestu tónlist, bestu leiksýningar og svo má telja. Víða ytra eru ýmsir miðlar löngu komnir af stað með slíkt og hér er samantekt yfir nokkra árslista sem þegar hafa birst á bókasviðinu: Breska dagblaðið Daily Telegraph vel- ur bók Edmunds de Waals, The Hare with Amber Eyes, sem bók ársins, en hún segir frá örlögum japanskra smámynda, net- suke, sem frændi langalangafa de Waals keypti um 1870, rekur leið myndanna aftur til Japans hundrað árum síðar og segir í senn sögu fjölskyldu de Waals og sögu Evrópu á þessum hundrað árum. Aðrar bækur á listanum: Freedom eftir Jonathan Franzen, Letters to Monica eftir Philip Larkin, The Collected Stories eftir Lydia Davis, MI6 eftir Keith Jeffery, What to Look for in Winter eftir Candia McWilliam, Chasing the Sun eftir Richard Cohen, Life eftir Keith Richards, Solar eftir Ian McEwan og A History of the World in 100 Objects eftir Neil MacGre- gor, sem tengist útvarpsþáttum á BBC þar sem forstjóri enska þjóðarsafnins, British Museum, ræðir um 100 gripi safnsins. Annað breskt blað, The Guardian, fór þá leið að fá rithöfunda, lesendur og gagnrýnendur í lið með sér við að velja bækur og raðaði þeim síðan upp á mynd- rænan hátt eftir því hve margir nefndu viðkomandi bók. Flestir nefndu Freedom og þar næst The Hare with Amber Eyes eftir Edmunds de Waals og The Thousand Autumns of Jacob de Zoet eftir David Mitchell. Þar á eftir koma margar fleiri, læt nægja að nefna Skippy Dies eftir Paul Murray, Human Chain eftir Seamus Hea- ney, Room eftir Emmu Donoghue, The Pregnant Widow eftir Martin Amis, To the end of the Land eftir David Gross- man, Hitch-22 eftir Christopher Hitch- ens og Booker-verðlaunabókina The Finkler Question eftir Howard Jacobson. Bandaríska stórblaðið New York Times velur annars vegar bestu bækur ársins og hins vegar 100 eftirtektarverðar bækur. Það kemur ekki á óvart að Freedom eftir Jonathan Franzen sé þar valin skáldsaga ársins, en aðrar á skáldsögulistanum eru The New Yorker Stories eftir Ann Beattie, Room eftir Emmu Donoghue, Selected Stories eftir William Trevor, A Visit From The Goon Squad eftir Jennifer Egan. Af fræðibókum og bókum almenns eðlis stendur fremst Apollo’s Angels: A Hist- ory of Ballet eftir Jennifer Homans, Cleo- patra: A Life eftir Stacy Schiff þar næst, svo The Emperor Of All Maladies: A Bio- graphy of Cancer eftir Siddhartha Muk- herjee, Finishing the Hat: Collected Lyr- ics (1954-1981) With Attendant Comm- ents, Principles, Heresies, Grudges, Whines and Anecdotes eftir lagasmiðinn Stephen Sondheim og The Warmth of Other Suns: The Epic Story of America’s Great Migration eftir Isabel Wilkerson, sem segir frá þjóðflutningum blökku- manna innan Bandaríkjanna. Bóksalinn mikli, Amazon, velur líka bestu bækur ársins og ekki færri en 100 bækur, ekki er vert að birta allan listann hér, en látum tíu bestu bækurnar fylgja: The Immortal Life of Henrietta Lacks eft- ir Rebeccu Skloot, Faithful Place eftir Tönu French, Matterhorn eftir Karl Marl- antes, Unbroken eftir Lauru Hillenbrand, The Warmth of Other Suns eftir Isabel Wilkerson, Freedom eftir Jonathan Fran- zen, The Girl Who Kicked the Hornet’s Nest eftir Stieg Larsson, To the End of the Land eftir David Grossman, Just Kids eft- ir Patti Smith og The Big Short: Inside the Doomsday Machine eftir Michael Lewis. Systursetur Amazon, Amazon í Bret- landi, velur líka bækur ársins, en blandar þeim ekki saman. Topp tíu skáldverk eru Freedom eftir Jonathan Franzen, Sister eftir Rosamund Lupton, Fall of Giants eftir Ken Follett, Room eftir Emmu Do- noghue, The Distant Hours eftir Kate Morton, The Finkler Question eftir How- ard Jacobson, The Slap eftir Christos Tsi- olkas, The Thousand Autumns of Jacob De Zoet eftir David Mitchell, The Good Man Jesus and the Scoundrel Christ eftir Philip Pullman og Sunset Park eftir Paul Auster. Tíu bestu ævisögur eru Life eftir Keith Richards, The Fry Chronicles eftir Steph- en Fry, A Journey eftir Tony Blair, Wait For Me: Memoirs of the Youngest Mitford Sister eftir Deborah Devonshire, The Devil Rides Out eftir Paul O’Grady, The Third Man: Life at the Heart of New Labour eftir Peter Mandelson, Nothing to Envy: Real Lives in North Korea eftir Barböru Demick, Caravaggio: A Life Sac- red and Profane eftir Andrew Graham- Dixon, My Bonnie: How dementia stole the love of my life eftir John Suchet og Must You Go? My Life with Harold Pinter eftir Antoniu Fraser. Bækur árins vestan hafs og austan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.