Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 6
6 24. desember 2010
Kunnugir bera Gareth Williams almennt vel söguna. Hann
hafi verið ljúfur, kurteis og áreiðanlegur. Enginn virtist þó
vita við hvað hann starfaði, að ekki sé talað um hvað hann
sýslaði í frístundum. Breska dagblaðið The Guardian hefur
eftir fyrrverandi leigusala hans að Williams hafi verið
„draumaleigjandi“. „Ég meina, það heyrðist aldrei bofs í
honum. Hann átti hvorki sjónvarp né plötuspilara,“ sagði
leigusalinn, Jenny Elliot.
Það var systir Williams, Ceri, sem tilkynnti hvarf hans í
ágúst. Þau voru í litlu sambandi en höfðu hist fyrr um sum-
arið í Lundúnum og skemmt sér vonum framar. Eftir það
hafði Ceri rætt við bróður sinn í síma. Þegar hann hætti
skyndilega að svara símtölum hennar varð henni ekki um
sel. Gareth mun hafa verið eins og svissneskt úr. Hún hafði
því samband við lögreglu sem grennslaðist fyrir um málið.
Kom þá í ljós að Williams hafði ekki mætt í vinnuna í
nokkra daga.
Lögreglumaður var þá sendur að heimili hans í næsta ná-
grenni við höfuðstöðvar bresku leyniþjónustunnar. Hús-
vörður hleypti honum inn og við fyrstu sýn virtist allt með
felldu. Stofan var flekklaus, símar og minnisbók á borðinu.
Í baðherberginu blasti hins vegar hryllingurinn við. Ofan í
baðkarinu var undarlegur poki með hengilás að utan. Úr
honum vætlaði rauður vessi …
Ljúflingur sem enginn þekkti í raun
E
itt snúnasta málið sem morðdeild
Scotland Yard hefur glímt við á árinu
er fráfall njósnarans Gareths Williams
en lík fannst fannst illa leikið í poka á
heimili hans í ágúst síðastliðnum. Pokanum
hafði verið lokað að utanverðu með hengilás og
það sem meira er – lykillinn að lásnum var inni
í pokanum.
Í fyrstu taldi lögregla að dauði Williams
tengdist starfi hans fyrir bresku leyniþjón-
ustuna, þar sem sérsvið hans var dulmál, en í
vikunni komu fram nýjar upplýsingar sem
benda til þess að afbrigðileg hegðun í einkalíf-
inu hafi hugsanlega reynst honum dýrkeypt.
Lögregla telur að Williams hafi legið látinn í
pokanum í að minnsta kosti viku áður en lík
hans fannst hinn 23. ágúst. Lengi vel gekk
hvorki né rak við rannsóknina en engin um-
merki voru um átök á heimili Williams eða að
brotist hefði verið þar inn. Ekkert benti til þess
að hinum látna hefði verið byrlað eitur. Eftir
stendur að útilokað er að Williams hafi lokað
sig sjálfur inni í pokanum, þannig að fleiri
hljóta að hafa verið á vettvangi. Sérfræðingur
fullyrðir að óhugsandi sé að Williams hafi getað
tórað lengur en í hálfa klukkustund inni í pok-
anum eftir að honum var rennt upp.
Við eftirgrennslan komst Scotland Yard að
því að Williams, sem þótti dulur maður, átti
sér skrautlegra einkalíf en samstarfsmönnum
og fjölskyldu var kunnugt um. Í fyrsta lagi
hafði hann notað iPhoninn sinn til að heim-
sækja vefsíður um fjötra og flótta úr fjötrum
mánuðina fyrir andlát sitt. Í annan stað segjast
vitni hafa séð Williams á kunnum homma-
klúbbi í Lundúnum vikurnar áður en hann dó
og staðfest er að hann fór að sjá drag-sýningu
fjórum dögum áður og átti miða á aðra slíka
sýningu. Í skápum á heimili Williams fundust
ónotaðir kjólar og önnur kvenmannsklæði eftir
Stellu McCartney, Christopher Kane, Loubout-
in og fleiri að verðmæti um þrjár milljónir
króna, skór og hárkollur. Upp úr krafsinu kom
líka að Williams hafði setið tvö námskeið í
fatahönnun við háskóla í Lundúnum á þessu og
síðasta ári.
Eftir að þessar upplýsingar komu fram í vik-
unni hefur lögregla mikinn áhuga á að ná tali af
ungu suðurevrópsku pari, sennilega á þrítugs-
aldri. Á par þetta að hafa komið í fjölbýlis-
húsið, þar sem Williams bjó, og haldið því fram
við annan íbúa sem hleypti því inn að það hefði
lykil að íbúð hans. Myndir af parinu voru birtar
í fjölmiðlum í vikunni.
Þjónar rannsóknarhagsmunum
Í samtali við fjölmiðla í vikunni kvaðst Hamish
Campbell, yfirmaður morðdeildar Scotland
Yard, ekki vera í vafa um að dauði Williams
tengdist einkalífi hans en ekki vinnu. Í máli
hans kom fram að lögregla hefði verið treg að
veita upplýsingar um hagi hins látna í virðing-
arskyni við ættingja hans og vini en nú væri
svo komið að það þjónaði rannsóknarhags-
munum að þessar upplýsingar kæmu fram.
Lykilmarkmið lögreglu er vitaskuld að leysa
málið. „Við viljum ræða við fólk sem notar vef-
síður um fjötra og hefur tengsl inn í drag-
heiminn,“ sagði Campbell. Á þessu stigi rann-
sóknarinnar vildi Campbell ekkert um það
segja hvort litið væri á dauða Williams sem
morð, manndráp eða kynlífsleik sem fór úr
böndum.
Campbell staðfesti að einhver hlyti að hafa
verið á staðnum þegar Williams fór viljugur eða
óviljugur inn í pokann. „Gefum okkur að þetta
hafi verið leikur sem fór í handaskolum. Hvers
vegna var hann þá ekki frelsaður úr pokanum
eða hringt á sjúkrabíl? Hinn möguleikinn er sá
að menn hafi haft eitthvað illt í huga. Við vitum
það ekki enn.“
Á líkinu voru aðeins tveir litlir marblettir, á
olnbogum. Lögregla getur sér til að þeir hafi
komið þegar Williams fór að brjótast um í pok-
anum vegna súrefnisskorts. Ekkert bendir til
þess að fórnarlambið hafi verið rotað en Camp-
bell gat þó ekki útilokað þann möguleika að
einhvers konar karate-höggi hefði verið beitt.
Slík högg skilja ekki alltaf eftir sig áverka.
Dánarorsök liggur ekki ennþá fyrir en mest-
ar líkur eru á því að Williams hafi kafnað.
„Samt getum við ekki verið viss.“
Hinn látni
hrifinn af
fjötrum
Ný gögn í rann-
sókn á dular-
fullu mannsláti
Líklega síðasta myndin sem tekin var af Gareth Williams. Hún er úr öryggismyndavél verslunar daginn áður en hann dó.
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Williams var mikill áhugamaður um fjötra. Scotland Yard er í basli með rannsókn málsins.
Gareth Williams var
aðeins 31 árs að
aldri þegar hann lést.
Hann var frá Anglesey
í Norður-Wales en
hafði búið í Lund-
únum um skeið og
starfað hjá eftirlits-
stofnun hins opin-
bera og síðar hjá
bresku leyniþjónust-
unni.
Aðeins 31
árs gamall