Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 4
4 24. desember 2010 Myndin framan á albúmi plötunnar Trout Mask Replica gef- ur til kynna hvað koma skal og sömuleiðis heiti laganna. Frownland heitir eitt og mætti alveg vera nýr viðkomu- staður í jólalaginu sívinsæla, Dachau Blues annað, Dali’s Car það þriðja, allt í allt 28 lög. Nöfn hljóðfæraleikaranna eru ekki síðri. Zoot Horn Rollo, sem í raun heitir Bill Harkle- road, og Antennae Jimmy Semens spila á gítar og John „Drumbo“ French á trommur. Frank Zappa var upptökustjóri plötunnar, sem er fjöl- breyttur samsetningur, oft ómstríður, með sterkum áhrifum úr blús, tilraunadjassi og rokki. Í umsögn í vikublaðinu Die Zeit segir að platan veiti „sýn yfir landslag utangarðstón- listar í Bandaríkjunum á 20. öld. Frá þjóðlagablús kreppu- áranna til hömlulausra hljómárása Howlin’ Wolf og sælu- kenndrar tunguleikfimi Johns Coltranes eða Erics Dolphys.“ Ýmsar sögur hafa verið sagðar um plötuna og áhöld um sannleiksgildi þeirra. Einn þeirra er að Van Vliet, sem form- lega hafði ekki lært á neitt hljóðfæri, hefði sest við píanóið, kveikt á segulbandinu og samið megnið af plötunni í einni lotu á átta og hálfri klukkustund. Síðan hafi hann látið hljómsveitina tileinka sér tónlistina. John French hefur skrifað rækilega úttekt á Captain Beefheart and The Magic Band, Through The Eyes of Ma- gic, þar sem önnur útgáfa er sögð af gerð hinnar sögu- frægu plötu. French segir að það hafi tekið Van Vleit þrjár vikur að semja hljómlistina, en eitt kvöldið meðan á því stóð hafi myndin 8½ eftir Federico Fellini verið sýnd í sjón- varpinu og þannig varð goðsögnin um 8½ klukkustund til. French lýsir því hvernig hann skráði og útsetti tónlistina, sem Van Vliet kom til skila til hans með því að flauta, syngja og spila á píanó. Hljómsveitin hafi síðan notað nót- urnar sínar til að æfa lögin. French segir að kunnáttuleysi Van Vliets á hljóðfæri hafi nánast útilokað að hann gæti komið hugmyndum sínum til skila til hljómsveitarinnar, eitt sinn sagði hann trommuleik- aranum að spila eins og hann þyrfti spila eins og hann þyrfti að halda jafnvægi á diski með kúlulegum. Fyrir vikið hafi Van Vliet fengið að gera það sem hann vildi með fanta- brögðum og fláttskap. „Þegar kemur að list er í mér fasistaþráður,“ sagði Van Vliet í samtali við The New York Times 1990. „Ég vil að hlutirnir séu nákvæmlega eins og ég hugsaði mér þá og ef einni línu er breytt hugsa ég með mér: „Fjandinn hafi það, ég þarf ekki á þessu að halda.“ French lýsir því hvernig hann mátti sæta svívirðingum og barsmíðum af hálfu Van Vliets, sem eitt sinn henti honum meira að segja niður stiga. Hans er ekki getið á albúmi Trout Mask Replica þrátt fyrir vinnuna, sem hann lagði í plötuna. Ekki hefur martröðin þó verið alger því að French sneri aftur til The Magic Band og spilaði á fjórum plötum til viðbótar. Að halda jafnvægi á diski með kúlulegum C aptain Beefheart var alltaf sveipaður undarlegum ljóma. Maðurinn með sil- ungagrímuna og hráu röddina, sem hann sagði sjálfur einhverju sinni að spannaði sjö áttundir og næði allt úr undirdjúpunum upp í efstu hæðir. Hann gæti auðveldlega sprengt gler með röddinni, en hefði bara ekki efni á að stunda það. Captain Beefheart hét réttu nafni Don Van Vliet. Hann lést 17. desember vegna MS-sjúkdóms- ins, heila- og mænusiggs, sem hann hafði strítt við um árabil. Van Vliet var aldrei atkvæðamikill á vinsældalist- um og má segja að áhrif hans hafi verið í öfugu hlutfalli við almenna hylli hans. Í andlátsfréttum er endalaus listi yfir hljómsveitir, sem voru undir áhrifum frá honum: Devo, The Residents, Pere Ubu, The Fall, Public Image Limited, Nick Cave, P.J. Harvey og The White Stripes, svo einhverjar séu nefndar. Tom Waits er sérstakur aðdáandi: „Þegar maður hefur einu sinni heyrt í Beefheart er erfitt að ná honum úr fötunum. Hann skilur eftir blett eins og kaffi eða blóð.“ Don Vliet fæddist í Glendale í Kaliforníu 15. jan- úar 1941og varð síðar Don Van Vliet. Foreldrar hans voru innflytjendur frá Hollandi. Frásagnir af æsku hans hljóma eins og þjóðsögur. Foreldrar hans virðast hafa talið að hann væri undrabarn í listum og við þær fékkst hann frá fimm ára aldri. Í viðtali við David Letterman sagði hann að skólaganga sín hefði verið hálfur dagur í leikskóla og það hefði jafnvel verið of mikið. Hann hefði læst sig inn í her- bergi til að gera myndastyttur og neitað að koma út. Foreldrar sínir hefðu rennt til sín mat undir hurð- ina. Van Vliet þótti sýna hæfileika og þegar hann var 13 ára bauðst honum styrkur til að fara til náms í höggmyndalist í Evrópu, en foreldrar hans bönn- uðu honum að fara og fluttu til bæjarins Lancaster í Mojave-eyðimörkinni. Van Vliet kynntist tónlistarmanninum Frank Zappa í menntaskóla og leiðir þeirra áttu eftir að liggja saman, þótt ekki ríkti alltaf sátt á milli þeirra. Hann hóf nám í listfræði í háskóla, en hætti eftir eitt misseri. Í upphafi sjöunda áratugar liðinnar aldar fór hann að vinna í hljóðveri Zappa í Cucamonga í Kaliforníu. Þeir unnu saman að rokkóperu, sem til þessa hefur hvorki verið sett upp né gefin út. Þeir skrifuðu einnig hluta af handriti myndar, sem átti að heita Captain Beefheart vs. the Grunt People. Hljómsveitin Captain Beefheart and His Magic Band var stofnuð 1965. Platan Safe As Milk kom út 1967 og gegndi gítarleikarinn Ry Cooder þar lykil- hlutverki. Næsta plata, Strictly Personal, kom 1968, en bautasteinninn kom árið eftir, tvöfalda albúmið Trout Mask Replica. Á lista tímaritsins Rolling Stone yfir 500 bestu plötur allra tíma er sú plata í 58. sæti. Van Vliet kom sjaldan fram en hélt áfram að gefa út plötur. Árið 1975 sættust Van Vliet og Zappa eftir langvinnar deilur, fóru í tónleikaferð og gáfu út plötuna Bongo Fury. Á níunda áratugnum tók Van Vliet upp tvær plöt- ur með ungum hljómlistarmönnum, sem höfðu til- beðið hann í uppvexti sínum. Sú síðari, Ice Cream for Crows, kom út 1982 og reyndist hans síðasta plata. Eftir það helgaði Van Vliet sig málaralistinni. Captain Beefheart með hattinn ómissandi. Maðurinn með silungagrímuna Captain Beefheart hlaut ómælda viðurkenningu þótt vinsældir létu á sér standa Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Frank Zappa og Captain Beefheart áttu samleið. „Þegar ég fyrst heyrði Trout Mask Replica fannst mér hún vera óskipulagður glundroði, ég heyrði ekki grunnbygginguna … og hún er orðin platan, sem ég kann best að meta … í raun hef- ur ekkert slegið henni við sem listrænni yfirlýsingu án mála- miðlunar. Satt að segja eftir að hafa hlustað á Captain Beefheart virðist allt annað fremur meinlaust.“ Tom Waits Yfirlýsing án málamiðlunar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.