Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 20
20 24. desember 2010 þeirra. Hljóðin frá dýrunum blandast saman og þau hljóma eins og kliður í stórborg, bara aðeins vinalegri. Í hópnum á ströndinni eru vís- indamenn sem hafa rannsakað hlýnun á norðurslóðum í nær 30 ár. Vísindamenn- irnir segja að suðurskautið sé líka að bráðna, hlýnun austan megin en vestari hlutinn heldur í horfinu. Fyrir tveimur árum brotnuðu tveir risaflekar úr ís- breiðunni, um 40 kílómetrar á kant, flutu burt og bráðnuðu. Þetta er eins og að vera í teiknimynd. Lífið er einhvern veginn einfaldara, en samt búa þessi dýr við einhver verstu veðurskilyrði á jörðinni. Skyndilega klýfur skerandi angist- arvein loftið „Víííííííííííí, vííííííííí, úúúúú, víííííííí.“ Við lítum snögglega við og sjáum japanskan mann á harðahlaupum og þrjú karlkyns sæljón á eftir honum, maðurinn hafði hætt sér of nálægt þeim og þau voru að verja svæðið sitt. Jap- aninn hljóp í allar áttir, þó aðallega í norður, við erum svo sunnarlega á hnett- inum, fyrst til vinstri, svo til hægri og svo eina þrjátíu metra beint með mengandi óhljóðum í eyrum dýranna. Sæljónin hlupu á eftir honum þar til hann komst í var undan þeim. Þá lulluðu þau hálfbros- andi til baka á yfirráðasvæðin sín. Eitt af því sem alls ekki má gera er að hlaupa undan sæljónum, það á að standa kyrr og slá saman tveimur steinum eða klappa saman höndunum. Þá stoppa sæljónin rétt hjá manni og hörfa á ný. Bit frá þess- um dýrum getur valdið mikilli sýkingu og langt er að sækja læknishjálp á þessum slóðum. Ný tegund af óhljóðum Það kom fljótt ró á hópinn eftir þessa uppákomu en þetta var alveg ný tegund af óhljóðum á ströndinni. Það var alveg ljóst. Mörgæsirnar flautuðu nokkrar góð- ar rokur á Japanann sem var hálfskömm- ustulegur að sjá. Við erum í heimi dýra sem hræðast okkur ekki, fuglar koma meira að segja og kíkja á okkur. Skúm- urinn, sem er sennilega eini fuglinn á Ís- landi sem hefur drepið mann, kemur ’ Upp í hugann koma heimskautafararnir sem kepptust við að verða fyrstir á pólinn. Því- líkt þrekvirki það hefur verið. Sumir komust á pól- inn, eins og Scott, en týndu lífi á leiðinni til baka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.