Morgunblaðið - 24.12.2010, Page 8
8 24. desember 2010
Sir Alex Ferguson er langsig-
ursælasti þjálfarinn í sögu ensku
knattspyrnunnar. Árangurinn er í
einu orði sagt ótrúlegur. Í tveimur
orðum: Lyginni líkastur.
Manchester United hefur 11
sinnum orðið enskur meistari und-
ir stjórn Skotans, 1993, 1994,
1996, 1997, 1999, 2000, 2001,
2003, 2007, 2008 og 2009.
Ferguson hefur fimm sinnum
orðið enskur bikarmeistari með
United, fjórum sinnum deildarbik-
armeistari og tvisvar hefur félagið
sigrað í Meistaradeild Evrópu.
Þá stýrði Ferguson liði United
einu sinni til sigurs í Evrópu-
keppni bikarhafa (sem var og hét)
auk þess sem félagið hefur einu
sinni orðið heimsmeistari fé-
lagsliða síðan hann tók við.
Eini breski stjórinn sem hægt
er að nefna í sömu andrá og
Ferguson, með fjölda meist-
aratitla í huga, er Bob Paisley
sem stýrði Liverpool frá 1974 til
1983, en á þeim níu árum vann
liðið til alls 20 titla, varð m.a. sex
sinnum Englandsmeistari og sigr-
aði þrisvar sinnum í Evrópukeppni
Meistaraliða, sem nú er Meist-
aradeild Evrópu.
Fróðlegt verður að fylgjast með
Portúgalanum Jose Mourinho,
sem nú þjálfari Real Madrid, og
Spánverjanum Pep Guardiola hjá
Barcelona. Báðir eru ungir og
hafa þegar náð frábærum árangri
og raunar báðir verið orðaðir við
þjálfarastarfið hjá United þegar
Ferguson sest í helgan stein.
Áður en Ferguson kom til Unit-
ed gerði hann Aberdeen þrisvar
að skoskum meisturum, sem
vakti verulega athygli því stórliðin
Rangers og Celtic frá Glasgow
höfðu verið nær einráð á þeim
vettvangi. Aberdeen varð líka fjór-
um sinnum bikarmeistari þau átta
ár sem Ferguson stýrði liðinu,
einu sinni varð liðið deildarbik-
armeistari og Aberdeen fagnaði
einu sinni sigri í Evrópukeppni
bikarhafa undir stjórn Fergusons.
Enginn kemst með tærnar að hælum Fergusons
Innilegur fögnuður eftir sigur Man.
United í Meistaradeildinni 1999.
Reuters
E
kki blés byrlega hjá enska knattspyrnu-
félaginu Manchester United þegar Skot-
inn Alex Ferguson var ráðinn aðalþjálfari
– liðseinvaldur – 6. nóvember 1986. Lið
hans átti erfitt uppdráttar fyrstu misserin en síðan
Ferguson braut loks ísinn eftir þrjú og hálft ár í
starfi er árangurinn undraverður.
Sir Matt Busby, maðurinn sem lagði grunninn að
stórveldinu á sínum tíma, var goðsögn þegar í lif-
anda lífi og aldrei hafði hvarflað að neinum að bera
aðra dauðlega menn í herbúðum félagsins saman
við hann. Ekki þar til Ferguson landi hans fór að
láta til sína taka.
Busby tók við liði United 1945 og var við stjórn-
völinn í 24 ár, einn mánuð og 13 daga. Það átti sér
ekki hliðstæðu á síðari tímum en Ferguson hefur
nú bætt um betur. Um síðustu helgi hafði hann
verið einum degi lengur í starfi.
Sígilt umfjöllunarefni er að minnstu hafi munað
að Ferguson yrði rekinn í janúar 1990 ef liðið tap-
aði bikarleik gegn Nottingham Forest. Að þar með
bættist hann í hóp eftirmanna Busbys sem mistek-
ist hefði að koma glæsifleyinu aftur á réttan kjöl.
Í stórgóðri ævisögu Fergusons, Managing My
Life, sem kom út fyrir röskum áratug, segir hann
orðróminn hins vegar ekki réttan. „Á föstudeg-
inum var ég kallaður á fund Martins Edwards
[stjórnarformanns Man. Utd] og tilkynnt að jafn-
vel þótt við töpuðum stæði ekki til að segja mér
upp.“ Leikurinn vannst 1:0 og um vorið vann
Ferguson fyrsta titilinn; liðið varð enskur bik-
armeistari og sigraði Barcelona í úrslitaleik Evr-
ópukeppni bikarhafa ári síðar.
Ferguson rifjar upp í bókinni að þegar hann réð
sig til starfa hjá United hafi honum verið boðin
lægri árslaun en hann hafði hjá Aberdeen í Skot-
landi þar sem hann hafði unnið kraftaverk. Hann
lét sig hafa það, sem og að forráðamenn United til-
kynntu honum að enga peninga yrði að hafa á
næstunni til þess að kaupa leikmenn; ekki eitt ein-
asta pund, því félagið hefði ekki efni á því!
Manchester United varð Evrópumeistari fyrst
enskra liða 1968, aðeins tíu árum eftir hörmulegt
flugslys þar sem lunginn úr frábæru liði fórst. Matt
Busby slórslasaðist en sneri aftur til starfa og
byggði upp lið sem var enskur meistari 1967 og
komst á spjöld sögunnar vorið eftir sem fyrr
greinir. Eftir að Busby hætti hallaði undan fæti.
Félagið varð reyndar bikarmeistari 1977, 1983 og
1985 en þegar Ferguson tók við voru liðin 19 ár frá
því þetta merka félag varð Englandsmeistari.
Unglingastarfið var í molum á þessum tíma og
leikmenn United alræmdir fyrir drykkjuskap eins
og Ferguson fjallar um í bókinni á opinskáan hátt.
Stjórinn vatt sér í að breyta þessu atriði og síðan
öðru hægt og bítandi. Ein fyrsta reglan var þessi:
Ég ræð! Hún hefur ekki breyst og Ferguson er ein-
mitt frægur fyrir að losa sig við leikmenn, jafnvel
stærstu stjörnurnar, sem honum finnst ekki ganga
í takt eða lúta stjórn nægilega vel. Sigurgangan
heldur samt áfram, og það skiptir öllu máli.
Ferguson er harður stuðningsmaður Verka-
mannaflokksins og hefur stutt hann fjárhagslega.
Stjórinn er alinn upp á meðal verkmanna og segir
að úr þeim jarðvegi sé sprottinn hæfileikinn til
þess að fara með mannaforráð, að fá leikmenn til
að sýna hollustu og vinna saman sem heild. Að all-
ir lúti einum vilja. Það sé lykillinn að velgengni.
Hér ræð ég og
get ekki annað
Alex Ferguson hefur stjórnað
United lengur en Matt Busby
Sir Alex Ferguson með enska meistarabikarinn einu sinni sem oftar.
Sigurganga Man. Utd. hefur verið ótrúleg síðan Ferguson kom til starfa.
Reuters
Goðsagnirnar Alex Ferguson og Sir Matt Busby.
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Alexander Chapman Fergu-
son fæddist 31. desember
1941 í Govan í Glasgow.
Ferguson kvæntist Cathy
(fædd Holding), sem einnig er
skosk, 1966. Þau eiga þrjá
syni, Mark, Darren og Jason.
Myndin af Alex og Cathy er frá
1999 þegar knattspyrnuþjálf-
arinn var aðlaður af Elísabetu
drottningu – varð Sir Alex.
Ferguson var
aðlaður 1999
- nýr auglýsingamiðill
Nýtt og betra atvinnublað
alla fimmtudaga
Sendu pöntun á finnur@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í blaðinu og á mbl.is
ERATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?