Morgunblaðið - 24.12.2010, Page 25

Morgunblaðið - 24.12.2010, Page 25
24. desember 2010 25 anum. Það er engin lógík í fælni. Þess vegna er ekki hægt að mæta henni með rökum. Mann- eskjan verður að mæta því sem hún óttast með nýjum ráðum. Ári seinna, eftir meðferðina, fór ég með vinum mínum að ganga á Skjaldbreið. Þegar ég var næstum komin upp á toppinn gaf annað hnéð sig svo ég sagði vinum mínum að fara á und- an mér. Það var ekki fyrr en vinir mínir voru horfnir að ég uppgötvaði að ég væri líklega í ótta- legustu aðstæðum sem víðáttufælin manneskja getur verið í; ein uppi á fjalli og enginn nálægur. Ég fann ekki fyrir ótta. Ég held að það sé sterkasta frelsistilfinning sem ég hef á ævi minni upplifað.“ Ekki ákvörðun að vera ein Það hlýtur að hjálpa þér í starfi að hafa gengið í gegnum erfiðleika? „Já, það hefur hjálpað mér í starfi að hafa geng- ið í gegnum erfiða tíma. Hremmingar krefja mann um að kynnast sjálfum sér, þar er ekkert annað í boði. Ég ætla ekki að halda því fram að prestar þurfi að hafa lent í erfiðri reynslu til að geta verið góðir prestar. Fyrst og fremst held ég að þeir þurfi að þekkja sjálfa sig vel, nógu vel til að vita að lífið getur leikið við þá og sömuleiðis leikið þá grátt eins og alla aðra. Ég er mjög fegin því að ég skyldi ekki verða prestur þegar ég var ung kona haldin fullkomn- unaráráttu og með sterka þörf fyrir að halda því leyndu ef mér leið illa. Það hefði verið ömurlegt að fara í prestskap með þessa lífssýn. Það er nógu erfitt fyrir prest að leita sér hjálpar, af því þeir eru alltaf í hlutverki þess sem hjálpar.“ Er ekki erfitt starf að vera prestur? „Auðvitað er það erfitt, en það var líka oft og tíðum erfitt að vera ráðgjafi og það gat verið erfitt að vera kennari því mörg barnanna gengu í gegn- um alls kyns hremmingar, sem var erfitt að vita af. Sem ráðgjafi þarf maður að hlusta á allt mögu- legt, en þar lærði ég að maður gerir engum greiða með því að taka líðan annarra inn á sig. Oft eru það mjög ákveðnir og sterkir einstaklingar sem ganga í gegnum erfiðleika og þeir kunna því mjög illa að einhver taki þeirra áhyggjur inn á sig. Það er mikill munur á því hvort einhver grætur með manni eða út af manni. Maður finnur greinilegan mun á þessu tvennu þegar maður gengur í gegn- um erfiðleika.“ Hvað með einkalífið, ertu gift í dag? „Nei.“ Hvernig finnst þér að vera ein? „Ég kann því vel að því leyti að ég lifi góðu lífi og á dásamleg börn, tengdabörn og barnabörn, en það var alltaf metnaður minn í gamla daga að vera eiginkona og fjölskyldumanneskja. Það er ekki endilega ákvörðun mín að vera ein, alls ekki. Lífið hefur bara ekki boðið mér upp á neitt annað ennþá. Ég er búin að heyra margar skýringar frá fólki á því af hverju ég sé ekki í hjónabandi. Það er sagt að ég sé of sterk og að ég sé ekki að senda rétt skilaboð. Á tímabili fóru þessar útskýringar fyrir brjóstið á mér en núna finnst mér þær bara fyndnar. Svo má alveg eins snúa þessum útskýr- ingum upp á þá sem spyrja. Hver og einn getur þá litið í eigin barm og spurt sjálfan sig: „Af hverju er ég í mínu sambandi? Er það af því ég er ekki nægi- lega sterkur og sjálfstæður einstaklingur?“ Ég veit að fólk vill vel þegar það kemur með svona skýr- ingar, en staðreyndin er sú að sumt er ekki hægt að útskýra.“ Vonin er drifkraftur Hvað með trúna? Sumir segja að hún sé á und- anhaldi og eigi í vök að verjast. Hvað finnst þér? „Ég hef ekki tilfinningu fyrir því að trúin sé á undanhaldi. Þörf mannsins til að trúa á æðri mátt og treysta á það sem er okkur æðra mun aldrei hverfa. Vonin er drifkraftur í lífi heilbrigðrar manneskju og vonin og trúin eru samþættar. Mér finnst kynslóð barna minna á margan hátt þrosk- aðri en við foreldrarnir vorum á þeirra aldri og mun andlega sinnaðri en mín kynslóð. Unga fólkið lætur skíra börnin sín, eins og við gerðum reyndar líka, í Dómkirkjunni og í öðrum kirkjum landsins tökum við prestarnir á móti fjölda ung- linga á hverju ári til fermingarfræðslu, hjónaefni óska eftir kristilegri hjónavígslu og flestir óska eftir kristinni jarðarför þegar þeir kveðja ástvini sína. Það er mjög algengt að fólk víki sér að mér í búðinni eða bara úti á götu og segi: „Ég er í sókn- inni þinni, þú ert presturinn minn.“ Þetta er fólk sem er meðvitað um kirkjuna sína, kannski ekki fólk sem ég sé í kirkju á sunnudögum, en engu að síður vill það vita af kirkjunni, það vill geta leitað þangað og það vill kirkjunni sinni vel. Mér finnst það skipta miklu máli. Stofnanir eiga nú mjög undir högg að sækja, hvort heldur er Alþingi, dómstólar eða kirkjan. Fólk er eðlilega ekki tilbúið að taka því þegjandi og hljóðalaust ef það verða brestir í þessum stofnunum. Ég las einhvern tímann að það hættulegasta sem fyrir kristna kirkju gæti komið væri ef hún teldi sig vera í svo öruggri höfn að hún hætti að skilgreina sig og skilja hvað hún er. Og trú okkar má ekki verða eins og steinbarn, hún á að vera lifandi veruleiki sem umbreytir lífi okkar til góðs. Nú eru að koma jól og á hverjum jólum minnumst við þess að barn kom í heiminn, barn sem gaf okkur nýtt líf, barn sem breytti heiminum og heldur áfram að umbreyta hon- um.“ Morgunblaðið/Kristinn Anna Sigríður: Og trú okkar má ekki verða eins og steinfóstur, hún á að vera lifandi veruleiki sem umbreytir lífi okkar til góðs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.