Morgunblaðið - 24.12.2010, Page 30
30 24. desember 2010
baugaframleiðslu í aðdraganda sýningarinnar
sem gekk með ágætum – í öllu falli þurfti ekki
nokkur engill að líða skort á dýrðarljóma að
þessu sinni.
Auk hinna himnesku herskara og ungu
hjónanna sem áður var getið voru vitringarnir
þrír á sínum stað sem og fríður hópur fjárhirða í
litskrúðugum klæðum. Aðalpersónan, sjálft
Jesúbarnið, lét sig heldur ekki vanta en hlutverk
þess hreppti dúkkan Baby Born í ár, líkt og svo
oft áður.
Það var ekki laust við að söngvarar og leik-
endur fyndu hvorutveggja fyrir tilhlökkun og
kvíða fyrir flutninginn, enda meira en að segja
það að hafa svo ábyrgðarmiklu hlutverki að
gegna – að færa skólafélögunum jól í sál og sinn.
Spennan var engu minni hjá áhorfendum sem
voru úr 1. til 7. bekk skólans en þeir bíða þess
ætíð með óþreyju að sjá þetta hátíðlega leikverk
flutt á litlu jólunum.
Þá lagði töluverður hópur foreldra leið sína í
kirkjuna í ár til að sjá englana sína troða upp –
hvort sem þeir gegndu því hlutverki formlega
eða ekki. Má gera því skóna að einhverjir hafi
fundið fyrir tári læðast í hvarm og hjarta fyllast
af stolti við að sjá barnið sitt og félaga þess fara
með rullurnar sínar, enda muna margir eftir
þeirri eftirvæntingu sem fylgdi flutningi viðlíka
skólasýninga á eigin æskuárum.
Var það mál manna að uppfærslan hefði
heppnast einstaklega vel í ár og að með henni
hefði markmiðið náðst – að sá fræjum hátíðleika
hjá bæði þátttakendum og áhorfendum sem
vonandi nær svo að blómstra um jólin.
Það er engu líkara en að drifhvítur og heilagur andi haldi þarna innreið sína í Seltjarnarneskirkju svo ekki er nema von að áhorfendur fylgist með.
Himnesk ánægja. Englar hafa líka húmor og bregða gjarnan á leik.
Fullorðna fólkið var englum til aðstoðar við að máta. Fjárhirðar í haga í fagurlitum klæðum glöddu augu og eyru áhorfenda þegar þeir komu fram með stafi sína.
Sannkallað englaspil. M.a.s. hinar heilögustu verur þurfa að stytta sér stundir þegar beðið er milli atriða.