Morgunblaðið - 11.01.2011, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2011
STUTTAR FRÉTTIR
● Gert er ráð fyrir
því að niðurstöður
fáist í viðræður
Framtakssjóðs Ís-
lands og evrópska
fjárfestingarsjóðs-
ins Triton, um kaup
Tritons á hluta af
eignum Icelandic
Group í lok mán-
aðarins.
Fram kemur á heimasíðu Framtaks-
sjóðs Íslands, að gert sé ráð fyrir að
markaðs- og sölukerfið, sem þjónar ís-
lenskum framleiðendum, verði áfram
alfarið í eigu Íslendinga en að erlenda
verksmiðjustarfsemin verði að meiri-
hluta í eigu Tritons. Stefnt sé að sam-
starfi milli þessara tveggja rekstarein-
inga í framtíðinni til að ná því
sameiginlega markmiði að þjóna við-
skiptavinum þeirra sem allra best.
Kanadíska félagið High Liner Foods
tilkynnti í síðustu viku, að það hefði
gert tilboð í Icelandic Group, sem hljóð-
aði upp á 52,4 milljarða króna. Þá kom
jafnframt fram, að Framtakssjóðurinn
ætti í viðræðum við Triton og myndi
ekki ræða við aðra á meðan þær við-
ræður stæðu yfir.
Búist við niðurstöðum
viðræðna í lok janúar
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Tillögur stjórnarmanns í VR um
breytingar á lögum félagsins eru
glórulausar að mati formanns stjórn-
ar VR. Tillögur Bjarka Steingríms-
sonar eru tvær, annars vegar sú að
„stjórnarmenn Lífeyrissjóðs Versl-
unarmanna og aðrir þeir er kunna að
koma að ákvörðunum um fjárfest-
ingar sjóðsins skulu ávallt undir-
gangast hæfismat Fjármálaeftirlits-
ins. Skal hæfismat stjórnarmanna
staðfest á aðalfundi félagsins árlega.
Engar undanþágur eru veittar frá
grein þessari og eða verklagi við mat
á hæfisreglum útgefnum af Fjár-
málaeftirlitinu 10. febrúar 2010.“
Hin tillagan er að allir reikningar
VR ásamt skýringum skuli vera að-
gengilegir á vef félagsins.
Kristinn Örn Jóhannsson segir til-
lögurnar glórulausar og moðreyk.
„Fyrst ber að nefna að Fjármála-
eftirlitið leggur mat á hæfi allra
stjórnarmanna í lífeyrissjóðum,
enda lögbundið hlutverk þeirra.
Hvaða aðferðum eða verklags-
reglum FME beitir er alfarið þeirra
mál og FME tekur ekki tilmælum
frá öðrum hvað það varðar. Hvaða
tilgangi á það að þjóna að aðalfundur
VR staðfesti slíkt mat árlega er mér
líka hulin ráðgáta,“ segir Kristinn.
„Hitt er að ársreikningar VR
ásamt skýringum hafa legið frammi
og á vef félagsins um árabil. Að því
er ég best veit er VR eina félagið
sem gerir það. Þetta er því moðreyk-
ur, að vanda, úr þessari átt.“
Samkvæmt verklagsreglum, sem
FME setti þann tíunda febrúar síð-
astliðinn, skal framkvæma hæfismat
á hverjum þeim sem tekur sæti í
stjórn lífeyrissjóðs og skal tilkynna
um breytingar á stjórn til FME án
tafar.
Morgunblaðið/Golli
Lífeyrissjóðir Í fyrra ákvað meirihluti stjórnar VR að skipta út þremur af
fjórum fulltrúum félagsins í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna.
„Glórulausar“
tillögur hjá VR
Formaður VR gefur lítið fyrir
lagabreytingatillögur stjórnarmanns
Bjarni Ólafsson og Egill Ólafsson
Kaup ástralska fyrirtækisins Wasabi
Energy á orkustöð Orkuveitu Húsa-
víkur eru háð samþykki nefndar um
erlenda fjárfestingu. Nefndin tekur
fyrir öll kaup erlendra aðila í orkuiðn-
aði, sjávarútvegi og flugsamgöngum,
en ekki hefur enn verið ákveðið hve-
nær hún hittist til að fjalla um málefni
Wasabi og OH, samkvæmt upplýsing-
um frá efnahags- og viðskiptaráðu-
neyti.
Guðrún Erla Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur,
segir að samningurinn sem OH gerði
við Global Geothermal Limited, dótt-
urfélag Wasabi, feli í sér viðgerð og
endurbætur á orkustöð fyrirtækisins
sem framleiðir rafmagn með svokall-
aðri Kalina-tækni. Global Geothermal
Limited leysi til sín stöðina og skili
henni aftur þegar sýnt hafi verið fram
á rekstrarhæfni hennar.
Guðrún Erla segir að Global Geo-
thermal muni yfirtaka stöðina meðan
viðgerð fer fram og verði viðgerðar-
kostnaður greiddur af Global Geo-
thermal. OH muni síðan leysa stöðina
til sín aftur þegar sýnt hafi verið fram
á rekstrarhæfni hennar.
Guðrún Erla segir ekki tímabært
að svara því hvað ráðast þurfi í mikla
fjárfestingu til að koma stöðinni í
gang að nýju. Hún segist reikna með
að hún hefji rafmagnsframleiðslu á ný
eftir u.þ.b. ár.
Guðrún Erla segir að samningurinn
við Global Geothermal feli ekki í sér
neitt framsal á auðlindum og ekki sé
verið að selja Orkuveitu Húsavíkur.
Þegar orkuveitan taki við rekstrinum
á ný verði fyrirtækið komið með tekju-
aflandi einingu sem styrki reksturinn.
Wasabi Energy er sem fyrr segir
ástralskt fyrirtæki og skráð á hluta-
bréfamarkað þar í landi. Það á eign-
arhluti í fyrirtækjum sem það telur að
geti komið fram með lausnir á orku-
og umhverfismálum heimsins.
Orkustöðin á Húsavík var sú fyrsta í
heiminum til að framleiða rafmagn úr
jarðvarma með svokallaðri Kalina-
tækni, sem Global Geothermal hefur
einkaleyfi fyrir. Þrálátar bilanir hafa
gert rekstur orkustöðvarinnar erfiðan
frá því að stöðin var tekin í notkun árið
2000.
Engin orkuframleiðsla hefur verið í
stöðinni frá því bilun varð í janúar
2008. Guðrún Erla segir að Global
Geothermal sé kappsmál að raforku-
framleiðsla hefjist að nýju í orkustöð-
inni og hafi því falið dótturfyrirtæki
sínu, Recurrent Engineering, að yf-
irfara vélbúnað stöðvarinnar, sinna
viðgerðum og koma orkustöðinni í
fulla vinnslu á ný. Hún segir það ekki
gott fyrir ímynd Global Geothermal
að stöðin skuli ekki vera að framleiða
rafmagn.
Fjárfestingarnefnd þarf
að samþykkja kaupin
Erlent fyrirtæki kaupir orkustöð Engar orkulindir fylgja með í kaupunum
Orkustöð Þrálátar bilanir hafa hrjáð orkustöð OH frá opnun hennar og hef-
ur hún ekki framleitt neina orku frá árinu 2008 af þeim sökum.
Orkustöðin
» Með Kalina-tækni er raforka
framleidd með varma frá lág-
hitasvæði.
» Með henni framleiðir Orku-
stöð Orkuveitu Húsavíkur raf-
magn úr 121 gráðu heitu vatni,
áður en vatnið er nýtt fyrir
hitaveitu bæjarins.
» Þrálátar bilanir hafa plagað
orkustöðina frá upphafi og
hefur engin orka verið fram-
leidd í henni frá árinu 2008.
» Kaupandi stöðvarinnar,
Global Geothermal, á einka-
leyfi á Kalina-tækni.
Vöruskipti við útlönd voru jákvæð
um 11,5 milljarða króna í desem-
bermánuði, samkvæmt bráða-
birgðatölum frá Hagstofunni. Flutt-
ar voru vörur út fyrir 47,3 milljarða
og inn fyrir 38,5 milljarða króna.
Mestar útflutningstekjur voru af
iðnaðarvörum, eða 28 milljarðar
króna, og sjávarútvegsvörum, eða
rúmir 17 milljarðar króna. Mest var
flutt inn af hrávörum og rekstrar-
vörum, fyrir 10 milljarða króna, og
fjárfestingavörum; fyrir 8,5 millj-
arða króna.
Afgangurinn er þó minni en í
desember í fyrra, þegar hann nam
rúmum 13 milljörðum. Þegar litið
er til alls ársins 2010 er ljóst að af-
gangur af vöruskiptum var meiri
en nokkru sinni áður, eða yfir 120
milljarðar króna. Árið 2009 var
vöruskiptajöfnuðurinn jákvæður
um 90 milljarða króna.
ivarpall@mbl.is
Vöruskipti
jákvæð
Aldrei meiri afgang-
ur en árið 2010
Evrópski seðlabankinn keypti rík-
isskuldabréf Portúgals í gærmorgun
og við það lækkaði ávöxtunarkrafa á
bréfin um níu punkta, niður í 6,9%.
Áhyggjur af fjárhagslegri heilsu
portúgalska ríkisins hafa farið mjög
vaxandi að undanförnu og í gær
neyddist forseti landsins, Aníbal Ca-
vaco Silva, til þess að vísa því á bug að
Portúgal hygðist leita til Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins og Evrópusambandsins
um neyðarlán. Áður hélt þýska blaðið
Der Spiegel því fram að Þjóðverjar og
Frakkar þrýstu á Portúgali um að
þiggja slíkt lán. ivarpall@mbl.is
Darraðardans
í Portúgal
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.+
+/0-/0
++/-1.
01-203
+.-,3,
+,-144
+00-14
+-2+,
+,.-44
+40-+4
++/-+.
+/3-05
++/-22
01-2/3
+.-,.4
+,-+14
+00-3.
+-20++
+/1-1.
+40-4/
01/-,.32
++/-2,
+/3-,
++/-,.
01-423
+.-/43
+,-+44
+00-,3
+-2040
+/1-53
+43-1+
● Hrein erlend staða Seðlabanka Íslands við útlönd batnaði um 71 milljarð króna í
desember og voru erlendar eignir bankans 379 milljörðum króna hærri en skuldir.
Munar þar mestu um kaup bankans á gjaldeyri viðskiptabankanna, sem tilkynnt
var um í byrjun árs og áttu sér stað fyrir áramót, en alls bættu þau gjaldeyrisstöðu
Seðlabankans um 72,5 milljarða króna. Erlendar eignir bankans jukust um 124
milljarða króna í desember og námu 668 milljörðum króna og erlendar skuldir juk-
ust um 53 milljarða og námu 288 milljörðum. ivarpall@mbl.is
Erlend staða Seðlabankans batnar