Morgunblaðið - 19.02.2011, Síða 1
L A U G A R D A G U R 1 9. F E B R Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 42. tölublað 99. árgangur
FÖGUR TÁR OG
FÓTABLÆTI Í
BACHELORETTE
ÞARF AÐ LEIKA
FARSA EINS OG
TRAGEDÍU
LÉTTARI Á SÉR,
FRJÁLSARI OG
LÍÐUR BETUR
SUNNUDAGSMOGGINN Í STUTTBUXUM Í MARKI ÍÞRÓTTIRÓSVIKIN SKEMMTUN 42
Brynjar Níels-
son, formaður
Lögmanna-
félagsins, er í
viðtali í sunnu-
dagsblaði Morg-
unblaðsins. Um
mál umhverfis-
ráðherra, Svan-
dísar Svavars-
dóttur, segir
hann: „Umhverf-
isráðherrann brást hins vegar við
dómi Hæstaréttar með því að segja:
Ég er í pólitík og vil láta náttúruna
njóta vafans og vísaði til almanna-
hagsmuna. En málið snýst ekki um
það, málið snýst um að fara að lög-
um,“ segir Brynjar og bætir við:
„Margir hafa sagt: Gott hjá um-
hverfisráðherranum að standa við
sína pólitísku sannfæringu. En
hann er ekki bara pólitískur ráð-
herra, hann er líka embættismaður
sem hefur úrskurðarvald, og getur
því ekki farið eftir pólitískum línum
eða því pólitíska réttlæti sem hann
býr sér til, ekki frekar en dómarar
Hæstaréttar í málum sem þar eru
til úrlausnar.“
Umhverfisráðherra
á að fara að lögum
Brynjar
Níelsson
Vel heppnaðar aðgerðir
» Norska strandgæslan, Eim-
skip og umhverfissamtök hafa
unnið saman að björgunar-
aðgerðum.
» Eimskip sendi fjóra fulltrúa
til Fredrikstad í gærmorgun.
» Norskir ráðherrar fóru á
vettvang til að skoða að-
stæður.
Ágúst Ingi Jónsson
Gísli Baldur Gíslason
Goðafoss verður að öllum líkindum
færður af strandstað í dag, en hann
hefur setið fastur á skeri skammt
frá Fredrikstad í Noregi síðan í
fyrrakvöld. Um 800 tonn af olíu
voru í tönkum Goðafoss og var í
fyrstu óttast að slysið myndi hafa
gríðarlega alvarlegar afleiðingar
fyrir náttúruna á svæðinu. Með
tveimur olíugirðingum tókst í gær-
dag að ná tökum á olíulekanum úr
skipinu. Afleiðingarnar virðast því
ekki ætla að verða jafnslæmar og
haldið var í fyrstu. Undirbúningur
að dælingu úr skipinu var hafinn í
gær.
Fjórtán manna áhöfn er á Goða-
fossi og er hún ekki talin í hættu.
Áhöfnin er öll um borð í skipinu
ennþá og mun halda kyrru fyrir um
borð.
Skipstjóri Goðafoss var kallaður í
skýrslutöku hjá lögreglu í gær til að
gera grein fyrir orsökum slyssins.
Norska dagblaðið Aftenposten
greindi frá því í gærkvöldi að skip-
stjórinn hefði viðurkennt að hafa
misreiknað stefnuna og farið út af
réttri leið með þeim afleiðingum að
skipið tók niðri á rifi.
Um borð í Goðafossi eru 430 gám-
ar. Flestir innihalda almennan farm
en dýnamít er þó í einum þeirra.
Eimskip hefur þegar gert ráð-
stafanir vegna slyssins og hefur fé-
lagið leigt skip til að sinna verk-
efnum Goðafoss.
Fjárhagstjón vegna slyssins
hleypur sennilega á tugum milljóna
króna, hið minnsta.
MSkárra en fyrst var talið » 18
Aðgerðir afstýrðu stórslysi
Goðafoss situr enn fastur en verður líklega færður í dag Áhöfnin enn um borð
í skipinu Fjárhagslegt tjón hleypur að minnsta kosti á tugum milljóna króna
Scanpix
Goðafoss Tvær olíugirðingar voru lagðar í kringum skipið til að koma í veg fyrir mengun. Sú þriðja er enn til taks, en ekki er talið að þörf verði á henni.
Kristján B. Jónasson, formaður Fé-
lags bókaútgefenda, segir að bókaút-
gefendur telji að þeir tapi um 50
milljónum króna á gjaldþroti Máls
og menningar við Laugaveg. Þeir
hafi ekki fengið greitt fyrir seldar
bækur í búðinni frá því fyrir jól og fái
væntanlega ekki til baka óseldar
bækur.
Kristján segir að bókaútgefendur
beri sig mjög illa vegna gjaldþrots-
ins. Þeir megi ekki við neinum áföll-
um og því hafi svona skellur mjög al-
varleg áhrif á stöðu þeirra auk þess
sem hann dragi kjark úr mönnum.
„Þetta er mjög mikil blóðtaka,“ segir
hann. „Þetta er stærsta gjaldþrot í
greininni og mjög mikið áfall. Helvít-
is högg.“
Iða utan bankanna
Arndís B. Sigurgeirsdóttir, sem
rekur bókaverslunina Iðu við Lækj-
argötu, segir að nánast öll bóksala
nema hjá Iðu sé í eigu bankanna og
því sé hún í samkeppni við mikið
peningaveldi. Viðskiptavinirnir viti
það og eins að samkeppnin stuðli að
lægra verði. Fyrir vikið gangi mjög
vel hjá henni. »6
Útgefendur tapa
Mál og menning skuldar mörgum
Heildartekjur
ríkissjóðs af
vanrækslugjaldi
vegna ökutækja
sem ekki voru
færð til að-
alskoðunar eða
endurskoðunar
voru orðnar
523,6 milljónir
um síðustu ára-
mót. Innheimta
gjaldsins hófst 1. apríl 2009. Um
áramótin síðustu voru óinn-
heimtar 206,3 milljónir.
Jónas Guðmundsson, sýslumað-
ur í Bolungarvík, en embættið
innheimtir gjaldið, telur að nokk-
uð sé um að gjaldið sé lagt á bíla
sem í raun eru ekki til nema á
ökutækjaskrá. Umferðarstofa
býst við að afskráningarferli
ökutækja verði einfaldað á þessu
ári. » 14
Vanrækslugjald er
drjúg tekjulind
Gjald er lagt á þá
sem trassa skoðun.
Fíkniefnasalar hafa í auknum
mæli brugðið á það ráð að skilja á
milli framleiðslu á marijúana og
sölu, að sögn Karls Steinars Vals-
sonar, yfirmanns fíkniefnadeildar
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Með því móti verður sölunet
þeirra ekki fyrir jafnmiklum skaða
ef lögregla kemur upp um rækt-
unina.
Einn stórræktandi getur fram-
leitt fíkniefni fyrir milljónatugi.
Á árunum 2008 og 2009 gerði
lögregla sérstakt átak í að uppræta
marijúanaræktun. Enn er þó mikið
ræktað hér á landi og til marks um
það er að lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu lagði í fyrra hald á 8.149
marijúanaplöntur og 23,5 kíló af
fíkniefninu. »24
Einn ræktar mari-
júana og annar selur