Morgunblaðið - 19.02.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011
Stuðningsmenn aðildar Íslands aðEvrópusambandinu eru iðnir
við að stofna samtök, ekki síst svo-
kölluð þverpólitísk samtök.
Ein slík litudagsins ljós í
vikunni og eru
kölluð Já Ísland,
en ættu frekar að
heita Nei Ísland,
eða að minnsta
kosti Já Evrópa. Eiginlega allt ann-
að en Já Ísland.
Þessum já-Evrópusambands-samtökum er ætlað að vera
„samnefnari fyrir málefnalega um-
fjöllun og upplýsingamiðlun um að-
ild Íslands að ESB og leggja þannig
grunn að því að Íslendingar geti
tekið upplýsta ákvörðun þegar að-
ildarsamningur liggur fyrir,“ að því
er segir í frétt frá samtökunum.
Þetta er auðvitað mjög trúverð-ugt, sérstaklega í ljósi heilsíðu-
auglýsingar samtakanna, þar sem
innantómum frösum og öfugmælum
var slett fram án nokkurs rökstuðn-
ings.
Öfugmælin „Við lækkum vexti“eru að mati samtakanna mál-
efnaleg umfjöllun.
Hið sama má segja um öf-ugmælin „Við eflum raun-
verulegt fullveldi“.
Vissulega má segja að samtöksem berjast fyrir aðild Íslands
að ESB og telja slík öfugmæli flokk-
ast undir málefnalega umfjöllun,
geti vel heitið Já Ísland.
Það er fullkomið samræmi á millinafngiftarinnar og áróð-
ursfrasanna, en barátta samtakanna
verður ekki trúverðugri fyrir vikið.
Já eða nei, Ísland
eða Evrópa?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.2., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Bolungarvík 1 heiðskírt
Akureyri 1 skýjað
Egilsstaðir 2 skýjað
Kirkjubæjarkl. 3 skýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 6 léttskýjað
Ósló -8 skýjað
Kaupmannahöfn -1 skýjað
Stokkhólmur -10 léttskýjað
Helsinki -18 heiðskírt
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 2 þoka
Dublin 7 skúrir
Glasgow 6 skýjað
London 5 skýjað
París 5 skýjað
Amsterdam 1 skýjað
Hamborg 0 skýjað
Berlín -2 skýjað
Vín 3 alskýjað
Moskva -20 heiðskírt
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 17 skýjað
Aþena 16 alskýjað
Winnipeg -17 skafrenningur
Montreal 7 skúrir
New York 13 heiðskírt
Chicago 5 léttskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:11 18:14
ÍSAFJÖRÐUR 9:24 18:10
SIGLUFJÖRÐUR 9:08 17:52
DJÚPIVOGUR 8:42 17:41
Um leið og velferðarsvið Reykjavík-
urborgar fagnar umræðunni um
börn og heimilisofbeldi, í kjölfar út-
gáfu skýrslu Barnaheilla á fimmtu-
dag, bendir það á ákveðnar rang-
færslur sem í henni má finna.
Í skýrslunni komi fram að lítil
áhersla sé lögð á það innan fé-
lagsþjónustunnar að ræða við börn
sem búa við eða hafa orðið vitni að
heimilisofbeldi og að skortur sé á að-
gengilegum úrræðum fyrir börn sem
eiga í tilfinningavanda. Í tilkynningu
frá velferðarsviði segir að sérstak-
lega hafi verið fylgst með börnum og
ungmennum eftir efnahagshrunið.
Þá sé sérstaklega horft á líðan þeirra
á öllum þjónustumiðstöðvum borg-
arinnar og m.a. boðið upp á skamm-
tímameðferð sálfræðinga vegna til-
finningavanda þessa aldurshóps.
Þá bendir velferðarsvið á að meiri-
hluta tilkynninga um heimilisofbeldi
til Barnaverndar Reykjavíkur sé
ekki vísað frá, líkt og fullyrt hefur
verið. „Þegar þessi mál eru skoðuð
nánar hefði í sumum tilvikum vissu-
lega mátt ganga markvissar til verks
hvað varðar það ofbeldi, sem börnin
höfðu orðið vitni að.“
Að sögn Petrínu Ásgeirsdóttur,
framkvæmdastjóra Barnaheilla,
standa samtökin við skýrsluna, sem
byggist á viðtölum við fagfólk frá
lögreglu, félagsþjónustu/sérfræði-
þjónustu grunn- og leikskóla, dóms-
kerfinu, Kvennaathvarfinu, Barna-
vernd og heilbrigðiskerfinu.
Petrína segir samtökin jafnframt
hlakka til að vinna áfram með Vel-
ferðarsviði Reykjavíkur að því að
auka stuðning og þjónustu við þau
börn sem verða vitni að ofbeldi á
heimilum sínum. hugrun@mbl.is
Borgin bendir
á rangfærslur
Barnaheill standa við skýrsluna
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Hraunbær - Hveragerði
Austurmörk 4,
Hveragerði,
www.byrfasteign.is
sími 483 5800
Soffía Theodórsdóttir,
löggiltur fasteignasali
Glæsilegt fjögurra herbergja enda-
raðhús með innbyggðum bílskúr,
opið svæði er fyrir aftan eignina.
Eignin er sérlega snyrtileg með fal-
legum innréttingum og vönduðum
gólfefnum. Innangengt er í bílskúr
og útgengt frá stofu út á suðurver-
önd. Verð kr. 28,7 millj.
Dynskógar – Hveragerði
Einstaklega vel staðsett og fallegt
einbýlishús með útsýni yfir Hamar-
inn í Hveragerði. Þrjú herbergi eru í
húsinu sem er 100 fm að stærð, bíl-
skúrinn er 40 fm. Verð kr. 22,2 millj.
Skyrterta með hindberjum og hvítu súkkulaði
KAKA ÁRSINS 2011