Morgunblaðið - 19.02.2011, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.02.2011, Qupperneq 18
18 Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011 Strand Goðafoss Ágúst Ingi Jónsson Gísli Baldur Gíslason Með tveimur olíugirðingum tókst í gærdag að ná tökum á olíulekanum úr Goðafossi, sem strandaði í fyrra- kvöld nokkrar sjómílur út af Fred- rikstad í Noregi. Skipið situr enn fast á skeri um 100-200 metra frá landi, en undirbúningur að dælingu úr skipinu var hafinn í gær. Ekki er víst hvenær og hvernig reynt verð- ur að ná skipinu af strandstað, en það verður að öllum líkindum gert snemma í dag. Í fyrstu var óttast að olíu- mengunin myndi hafa gríðarlega al- varlegar afleiðingar fyrir náttúruna í kring. Afleiðingarnar virðast ekki ætla að verða jafnslæmar og haldið var í fyrstu. Áhöfnin enn um borð Fjórtán manna áhöfn er á Goða- fossi og er hún ekki talin í hættu. Gott veður hefur verið á slysstað og talið að svo verði áfram næstu daga. „Áhöfnin er öll um borð í skipinu ennþá. Hún mun halda kyrru fyrir um borð. Á meðan aðstæður breyt- ast ekki þá telja menn ekki ástæðu til þess að annað verði,“ segir Ólaf- ur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips. Misreiknaði stefnuna Skipstjóri Goðafoss var kallaður í skýrslutöku hjá lögreglu í gær til að gera grein fyrir orsökum slyssins. Fjölmiðillinn Aftenposten í Noregi greindi frá því í gærkvöldi að skip- stjórinn hefði viðurkennt að hafa misreiknað stefnuna og farið útaf réttri leið með þeim afleiðingum að skipið tók niðri á rifi. Þá hefði hann verið einn í brúnni þegar slysið átti sér stað. Ólafur William segir að Eimskip hafi ekki fengið neinar upplýsingar um efni skýrslunnar enn og geti því ekki tjáð sig um rannsóknina að svo stöddu. Eimskip hafði ekki haft samband við skipstjórann eftir að frétt Aftenposten birtist, en hann var þá að hvílast. Ekki liggur fyrir hvenær sjópróf verður haldið vegna slyssins. Dýnamít en engin eiturefni Um borð í Goðafossi eru 430 gámar. Að sögn Ólafs Williams inni- halda þeir flestir almennan farm. Fram kom á heimasíðu norsku sigl- ingastofnunarinnar í gær að um borð væru meðal annars tólf tonn af sprengiefni og auk þess hvellhettur. Sagt var að þessi efni sköpuðu ekki hættu við óbreyttar aðstæður, en ástæða væri til aðgæslu. „Það er dýnamít í einum gámnum en svo er fiskur, neysluvörur, raf- tæki og annað. Það eru engin eitur- efni um borð,“ segir Ólafur William. Hann segir að farmurinn sé örugg- ur um borð eins og er. „Við- skiptavinir okkar sem eiga farm í skipinu hafa sýnt mikla stillingu og bíða frekari fregna af farminum.“ Margra milljóna tjón Eimskip hefur þegar gert ráð- stafanir vegna slyssins og hefur fé- lagið leigt skip til að sinna verk- efnum Goðafoss. „Það er annað skip komið í rútu fyrir Goðafoss og fyllir upp í það skarð sem skapast á meðan hann er ekki siglingarhæfur. Það er eitt skip núna á leið til Evrópu og mun halda þessari rútu áfram,“ segir Ólafur. Ljóst er að Eimskip mun bíða mikið tjón af slysinu. Ólafur segir að tjónið hlaupi sennilega á tugum milljóna hið minnsta. Fjárhagslegt tjón vegna slyssins er þó ekki efst á baugi hjá Eimskip, að sögn Ólafs. „Við einbeitum okkur fyrst og fremst að því að koma í veg fyrir umhverfisslys og að starfsfólk okk- ar og áhöfn sé örugg.“ Spila í takt á strandstað Norskir ráðherrar voru upplýstir um slysið og fóru á vettvang til að skoða aðstæður. Norska strand- gæslan, Eimskip og umhverf- issamtök hafa unnið saman að björgunaraðgerðum. Eimskip sendi fjóra fulltrúa til Fredrikstad í gær- morgun. Norska strandgæslan hef- ur yfirumsjón með aðgerðum sem snúa að verndun náttúrunnar á staðnum. Ólafur segir samstarfið hafa gengið vel. „Allur þessi hópur er að vinna saman eins og vel þjálfuð hljóm- sveit, það eru allir að spila í takt.“ Norskt björgunarfyrirtæki und- irbjó í gær áætlun um hvernig hægt yrði að bjarga skipi og farmi. Áður en hafist verður handa þurfa yf- irvöld í Noregi að yfirfara slíkar áætlanir og gæti það orðið fyrir há- degi í dag. Siglingaleiðin þar sem Goðafoss strandaði er opin, en sjó- farendum er bent á að fara með gát. Um 800 tonn af olíu voru í tönk- um Goðafoss og virðist leki hafa komið að tveimur tönkum miðskips og jafnvel þeim þriðja. Eins og áður greinir voru tvær olíugirðingar sett- ar umhverfis skipið í gær. Sú þriðja var til taks. Í gær var verið að meta hvort og hvenær gámarnir yrðu fluttir frá borði. Norska siglingastofnunin afl- aði í gær upplýsinga um hvaða farmur er í gámunum. Mikið af skerjum Goðafoss var á leið frá Fredrik- stad í Noregi til Helsingborg í Sví- þjóð þegar hann strandaði á átt- unda tímanum í fyrrakvöld, nokkrar sjómílur út af Fredrikstad. Sigl- ingaleiðin á svæðinu er mjög þröng og er mikið af skerjum þar, segir í frétt Eimskips. Þar sem skipið strandaði er þjóðgarður á landi, sjó og skerjum. Skárra en fyrst var talið  Goðafoss situr enn fastur skammt frá Fredrikstad í Noregi  Verður sennilega færður af strandstað í dag  Skipstjóri segist hafa misreiknað stefnuna  Dýnamít í einum af 430 gámum sem eru um borð Sökkt undan Garðskaga E/S Goðafoss var 1.542 lesta eimskip Eimskipa- félags Íslands, smíðað í Danmörku 1921. Skipið var á leið heim til Íslands í skipalestinni UR-142, en var sökkt skammt undan Garðskaga 10. nóvember 1944 af þýska kafbátnum U-300 undir stjórn Fritz Heins. Með Goða- fossi fórust 24, en 19 var bjargað og var það mesta manntjón Íslendinga á einum degi í seinni heimsstyrjöldinni. Strandaði á Straumnesi Gufuskipið Goðafoss strandaði á Straum- nesi norðan Aðalvíkur aðfaranótt fimmtudags- ins 30. nóvember 1916 á leiðinni norður fyrir land. Farþegar og áhöfn björguðust, flestir eftir meira en tveggja sólarhringa vist um borð í strönduðu skipinu í ofsa- veðri. Þegar Goðafoss strandaði var aðeins rúmt ár frá því að skipið kom nýsmíðað til landsins. Ekki tókst að bjarga skipinu. Strand í Noregi Goðafoss strandaði um klukkan 20 í fyrrakvöld nokkrar sjómílur út af Fredrikstad í Noregi. á leið til Helsingborg í Svíþjóð. Fjórtán manna áhöfn er á skipinu og um borð eru 430 gámar. Talið var að um 800 tonn af olíu væru í tönkum skipsins og kom leki að tveimur þeirra, sem voru með um 250 tonn af olíu hvor. Mikill viðbúnaður var í Noregi vegna strandsins og olíulekans. Í lok október í fyrra kom eldur upp í Goðafossi á hafi úti. Áhöfnin sýndi hetjulega framgöngu við slökkvistörf. Þjóðgarðurinn í Ytri Hvaler í Noregi var stofnaður árið 2009 og er í sveitarfélögunum Hvaler og Fredrik- stad yst við Oslóarfjörð. Svæðið er 354 ferkílómetrar, sker, sjór og fast land. Þar finnst 131 tegund sem talin er í hættu eða á válista, þar af eru 48 fuglategundir, 32 plöntur og 11 bjöllutegundir. Kóralrifið á Tisler er 1.200 metra langt og 200 metra breitt og er talið stærsta, þekkta kóralrifið innan skerja í heiminum. Fólk stundar fiskveiðar og búskap í Hvaler eins og gert hefur verið öldum saman og ferðamennska hefur vaxið á svæðinu síðustu ár. Norsku sjónvarpsþættirnir Hvaler voru sýndir í RÚV. Viðkvæmt lífríki Ljósmynd/Reuters Strandstaður Goðafoss Venjuleg siglingaleiðASMALØY K IRKØY Ekevika Håbu Fredrikstad Fyrirhuguð siglingaleið Goðafoss Fredrikstad Helsingborg Göteborg Álaborg Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson Þröng siglingaleið Fredrikstad er viðkomuhöfn í siglingum Eimskips. Skip Eimskips koma þangað vikulega. Stórt skip » Goðafoss er stærsta skip ís- lenska flotans, ásamt Detti- fossi, öðru skipi Eimskips. Skipið er 165 metrar á lengd. Það er sautján ára gamalt. » Um borð í Goðafossi eru 430 gámar, meðal annars má þar finna tólf tonn af sprengi- efni og hvellhettur. » Um 800 tonn af olíu voru í tönkum Goðafoss þegar hann strandaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.