Morgunblaðið - 19.02.2011, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.02.2011, Qupperneq 20
ÚR BÆJARLÍFINU Björn Björnsson Sauðárkrókur Nú fer að síga á seinni hluta þorra og hefur hann farið mjúkum hönd- um um Skagfirðinga og þarf að róta djúpt í það „sem elstu menn muna“ til að finna samanburð við veðurblíð- una á þessum árstíma. Svo langt hef- ur gengið að fyrir nokkru heyrðist í veðurfregnum að búast mætti við næturfrosti, sem er líklega eins- dæmi á þorranum. Hins vegar eru þorrablótin að renna sitt skeið þetta árið og mun fólk hér hafa blótað af sama krafti og undanfarin ár.    Gamalt hús í bænum sem í ár- anna rás hefur verið m.a. sláturhús, klakstöð og verkstæði, hefur enn fengið nýtt hlutverk. Þar er nú inn- anveggja klasastarf þar sem nokkrir aðilar hafa komið sér þægilega fyrir og sinna störfum tengdum list- sköpun. Nefna má Kvikmynda- félagið Skottu, ljósa- og hljóðkerfa- leiguna Sviðsljós og Bennemann stúdíó. Svo á myndlistin sinn fulltrúa og innan tíðar mun væntanlega áhugaljósmyndari bætast í hópinn. Árni Gunnarsson kvikmyndagerð- armaður sagði hópinn nú vera með hálft húsið undir, en væntanlega mundi rýmkast svo til innan tíðar að fleiri aðilar í þessum geira gætu fengið inni.    Meistaradeild Norðurlands – KS-deildin hélt sitt fyrsta mót í síð- ustu viku í Reiðhöllinni Svaðastöð- um á Sauðárkróki. Í fjórða sinn fer nú þessi mótaröð fram en í henni keppa 18 knapar af Norðurlandi. Eftir fjögur mót þar sem keppt er í fjór- og fimmgangi, tölti, skeiði og smala, en þar reynir á samspil manns og hests, lipurð og snerpu, þá skapar samanlagður árangur þeirra 12 bestu, sæti í mótaröðinni að ári. Í janúar nk. mun svo keppt um þau 6 sæti sem laus eru.    Nýlega voru Héraðssafninu af- hentar „Raddir fólksins“, 115 klst. af upptökum Kára Steinssonar véla- manns af röddum fólks í Skaga- fjarðar- og Húnavatnssýslum. Kári sem var hugmyndaríkur og lífs- glaður lést fyrir fáum misserum, en það voru börn hans sem létu hreinsa upptökurnar og setja á stafrænt form. Unnar Ingvarsson skjalavörð- ur sagði hér um efni að ræða sem mikill fengur væri að og stefnt yrði að því að gera þetta góða safn öllum aðgengilegt. Næturfrost á þorra Morgunblaðið/ Björn Björnsson Blíðviðri Þorrinn hefur farið mjúkum höndum um Skagfirðinga. Það þóttu nýverið fréttir er spáð var næturfrosti, slík hefur verðurblíðan verið. 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011 Í dag, laugardag, kl. 11-16 verður opið hús í Háskóla Íslands. Í boði verða ótal viðburðir, kynningar og uppákomur sem sýna vísindin í litríku og lifandi ljósi. Gestir geta kynnt sér fjölbreytt náms- framboð háskólans, starfsemi og þjónustu og skoðað rannsókn- arstofur, tæki, búnað og húsa- kynni. Opið verður í Aðalbygg- ingu, Háskólatorgi, Gimli, Odda og Öskju. Þá verður Sprengju- gengið með litríkar sýningar í Háskólabíói. Opið hús í háskóla Ráðstefnan „Heilsuveisla 2011“ verður haldin um helgina. Ráð- stefnan verður haldin á Hótel Sögu milli kl. 8:30 og 17:00 bæði á laugardag og sunnudag. Að þess- ari ráðstefnu koma margir heilsu- áhugamenn og -konur Íslands sem og einnig aðilar og fyrirtæki sem bjóða vörur og þjónustu tengda heilsu og hreyfingu. Rætt verður um allt milli himins og jarðar tengt heilsu. Bæði verð- ur boðið upp á fyrirlestra á ákveðnum tímum og einnig geta aðrir tjáð sig. M.a. munu áhuga- menn og sérfræðingar í heilsu og hollustu reyna að svara spurning- unni „Hvað í ósköpunum eigum við að borða þegar alls kyns sér- fræðingar segja okkur hitt og þetta um næringu og upplýsing- arnar stangast allar á?“ Rætt verður um mataróþol, andlegt heilbrigði og hvort matur og hreyfing geti komið í staðinn fyrir lyf. Þá verður sýnikennsla í mat- reiðslu og gestum leyft að smakka auk þess sem boðið verður upp á skemmtilega hreyfingu og skemmtiatriði. Morgunblaðið/Eggert Hollusta? Misvísandi skilaboð um hvað er hollt og hvað ekki rugla stundum fólk. „Heilsuveisla 2011“ haldin um helgina Á mánudag nk. kl. 21:00 halda samtökin OA (Overeaters Ano- nymous) kynningarfund í húsnæði SÁÁ, VON, Efstaleiti 7. Á fund- inum munu þrír OA-félagar segja sögu sína. Allir eru velkomnir. Matarfíkn getur verið stórt vandamál í lífi fólks. OA-samtökin hafa lausn við þessu vandamáli sem byggist á 12 spora kerfi AA- samtakanna. OA-félagar eru karl- ar og konur á öllum aldri um all- an heim sem eiga sér þá ósk að halda frá sér matarfíkn og vilja bera boðskap samtakanna áfram til þeirra sem enn þjást. OA er ekki megrunarklúbbur og setur engin skilyrði um þyngdartap. Samtökin hafa starfað á Íslandi síðan árið 1982. Matarfíkn STUTT Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Konudagurinn hefur haft veglegan sess í Garðaprestakalli síðastliðin fimm ár og verður hann að sögn sr. Jónu Hrannar Bolladóttur, óvenju- stór þetta árið. Dagurinn hefst á út- varpsguðsþjónustu í Vídalínskirkju klukkan 11, en þar verða konur í að- alhlutverkum. Gerður Kristný Guðjónsdóttir, rithöfundur og skáld, flytur hugleið- ingu, Jóna Hrönn þjónar fyrir altari ásamt Kolbrúnu Sigmundsdóttur og kvennakór Garðabæjar, undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur, flytur tónlist við undirleik Sólveigar Önnu Jónsdóttur. Þá flytja þær Gerður Bolladóttir sópransöngkona, Sophie Schoonjans hörpuleikari og Victoria Tarevskaia sellóleikari suðurríkja- sálma. Að sögn Jónu Hrannar var Magnús Kristjánsson, formaður sóknarnefndar, sérstaklega valinn til að flytja ávarp í upphafi guðþjón- ustunnar. „Hann var með í fyrra og er svo sérdeilis góður og flottur herra. Það er svo mikill ljómi yfir Magnúsi að við viljum að hann ávarpi okkur konur sérstaklega í upphafinu.“ Tískusýning og súpa Aðspurð segir Jóna Hrönn alla velkomna til messu, konur og karla, unga jafnt sem aldna. „Það er svo gaman að konur og karlar skiptast alveg til helminga í þessum mess- um.“ Boðið verður upp á sunnudaga- skóla fyrir börnin í safnaðarheim- ilinu á sama tíma og guðþjónustan fer fram. Að þeirri stund lokinni sameinast allir í safnaðarheimilinu þar sem lionsmenn í Garðabæ bera fram súpu í boði kirkjunnar, og verslanirnar Ilse Jacobsen, MB og Rauðakrossbúðin, sem allar eru staðsettar á Garðartorgi, halda tískusýningu. Þar verður vortísk- unni í fatnaði og skarti kvenna gerð skil, en þess má til gamans geta að fermingarstúlkur sáu um að velja fatnaðinn frá Rauðakrossbúðinni og munu þær bregða sér í hlutverk fyr- irsæta og sýna flíkurnar sjálfar. „Við ætlum svo að færa okkur yfir á Álftanesið um kvöldið og það verð- ur guðsþjónusta í Bessastaðakirkju klukkan 20,“ segir Jóna Hrönn sem mun sjálf þjóna fyrir altari. Sigrún Pálína Ingvarsdóttir ráðgjafi flytur hugleiðingu og fyrrnefndu listakon- urnar þrjár flytja suðurríkjasálma. Í leikritinu ballið á Bessastöðum, eftir Gerði Kristnýju, sem var frum- sýnt nýverið, er að finna ábúðar- miklu ráðskonuna Halldóru, en það vill svo til að kirkjuvörðurinn á Bessastöðum heitir Halldóra Páls- dóttir og hafði áður með ráðskonu- starfstarf að gera á Bessastöðum al- veg frá því að Ásgeir Ásgeirsson var forseti og þar til fyrir tveimur árum. „Halldóra kirkjuvörður er alveg sérdeilis frábær kona og hún mun undirbúa messukaffi í Brekkuskóg- um 1, sem er safnaðarheimilið á Álftanesi að lokinni guðsþjónustu og þangað er öllum boðið. Hún sagði mér að það yrði borið fram konfekt, kaffi og kransakökur sem hún bakar sjálf,“ segir Jóna Hrönn. Þegar talið berst að undirbún- ingnum fyrir daginn svarar Jóna Hrönn kát í bragði: „Við konur erum svo skipulagðar að það er í rauninni allt tilbúið. Við bíðum bara eftir deg- inum.“ Konur, sem hafa yndi af að klæða sig upp verða eflaust ánægðar með að heyra þau orð sem Jóna Hrönn lætur falla að lokum. „Það mæta allir prúðbúnir til stundarinn- ar, enda mikill hátíðarbragur yfir deginum.“ „Hátíðarbragur yfir deginum“  Vegleg dagskrá Garðaprestakalls á konudaginn  Konur í aðalhlutverkum í tveimur messum  Magnús Kristjánsson valinn til fara með ávarp  Konur og karlar, ungir jafnt sem aldnir, velkomnir Morgunblaðið/Golli Glæsilegar Frá æfingu Kvennakórs Reykjavíkur síðastliðinn fimmtudag. Jóna Hrönn er fyrir miðri mynd. Á morgun er sunnudagur átjándu viku vetrar og hefst þá góa, fimmti mánuður ársins samkvæmt norræna tímatalinu. Á Íslandi hefur fyrsti dagur góu lengi verið kallaður konudagurinn, rétt eins og fyrsti dagurinn í þorra er bóndadagur. Gói er persónugerð sem vetrarvættur í gömlum sögnum og dóttir Þorra. Ljóst er af heimildum frá öndverðri 18. öld að fagna átti góu á svip- aðan hátt og þorra og skyldi dagurinn eignaður húsfreyjunni. Dagur húsfreyjunnar UPPRUNI KONUDAGSINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.