Morgunblaðið - 19.02.2011, Síða 33

Morgunblaðið - 19.02.2011, Síða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2011 Mjög vel var hugsað um ömmu á sjúkrahúsinu á Hvammstanga. Nefndi hún stundum við mig að það væri nú meiri munurinn að vera þarna með þetta góða fólk að hugsa um sig, sem fengi svo meira að segja borgað fyrir það, heldur en að við værum bundin yfir henni heima. Hún hafði annast margt gamalmennið og sjúklinginn heima á Bessastöðum og eins í barnæsku á Barði, eins og tíðk- aðist í þá daga. Með þessum orðum og mikl- um og góðum minningum vil ég þakka elsku ömmu fyrir sam- fylgdina og leiðsögnina. Guðný Helga og fjölskylda. Þegar ég skrifa síðustu kveðjuorðin til Helgu systur, þá er ég þess fullviss að hún dó sátt við allt. Kynni okkar hófust þeg- ar ég var 10 ára og kom til sum- ardvalar hjá þeim hjónum Helgu og Einari. Hún var elst en ég yngst okkar systkina, munaði 20 árum. Var ég hjá þeim næstu fimm sumrin en þá fór ég í iðn- nám. Þetta var góður tími. Ég fékk að gera svo margt skemmtilegt eins og að reka stóðið með þrjá til reiðar sem var mikið ævintýri, slá með orfi og ljá, var kennt að elda, baka og búa til konfekt. Þessu bý ég að enn í dag, alltaf sömu gæðin og örvunin og hlýr faðmur sem ég þurfti á að halda og var hún í mínum huga mamma tvö, sem alltaf var hægt að leita til. Svo voru það stuttar heimsóknir á sumrin í nokkur ár. Þegar við Sverrir giftum okk- ur og byrjuðum að búa og eign- ast börn reyndust þau hjónin okkur einstaklega vel, því þá þurfti ég oft að liggja á sjúkra- húsum um langan tíma. Elsta barn okkar var sex ára þegar hann fór fyrst í sveitina og var fram yfir fermingu, eitt sinn fram að jólum, því þá lá ég nærri fimm mánuði. Kom hann heim á Þorláksmessu með skreyttar tertur og smákökur til jólanna frá Helgu. Fannst honum hún vera mamma tvö eins og mér. Eins fór ég með yngri börnin norður og dvaldi um sumartím- ann, fór þá á bílnum, þar sem Sverrir var með hópa í vinnu úti á landi. Gat ég þá snúist og sótt fólk á rútuna, því það var alltaf mikill gestagangur og eitt sinn man ég eftir að það voru 25 manns um helgi. Gekk það bara vel því það hjálpuðust allir að. 1977 var ákveðið að fara í heimsókn til systur okkar og mágs, sem bjuggu í Noregi. Við fórum með Smyrli og vorum fimm manns; Helga, við hjónin og tvö yngri börnin. Þessi ferð varð fjögurra landa sýn og hringurinn á Íslandi. Þetta var fyrsta utanlandsferð Helgu, en ekki sú síðasta. Var hún vel heppnuð í alla staði og ógleym- anleg fyrir okkur öll. Það er í rauninni mjög mik- ilvægt í lífinu að eiga vináttu sem er svo einstök, fyrir það viljum við fjölskyldan þakka. Sendum börnum, tengdabörn- um og afkomendum Helgu sam- úðarkveðjur. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Þökkum yndislegar stundir. Guð geymi þig. Sigríður, Sverrir og börn. Mig langar að minnast móð- ursystur minnar hennar Helgu. Hún var stór hluti af mínu lífi þegar ég var að alast upp þar sem við systkinin fórum mörg sumur norður með mömmu. Eitthvað hefur mér fundist Helga ömmuleg á þeim tíma sem ég fór að tala, þótt hún væri ekki orðin amma, svo ég kallaði hana ömmu. Var mér þá vinsamlega bent á að hún væri móðursystir mín en ekki amma. Þá á ég að hafa sagt að þá væri hún bara „Helga amma móðursystir mín“ og það hefur hún síðan verið í mínu hjarta. Helga var hress og glaðleg kona, það var alltaf mik- ið að gera hjá henni og mikill gestagangur. Það var alltaf pláss fyrir þá sem komu og allir vel- komnir. Ég á óskaplega góðar minningar frá Bessastöðum og þar var gott að fá að vera sem barn. Nálægð við sjóinn var óskaplega spennandi og miklir fjársjóðir sem fundust í fjörunni. Það var líka flott bú við bæj- arlækinn og hestar í heimahaga. Þær voru ófáar ferðirnar sem við krakkarnir fórum á „barna- hestinum“ um túnin og meðferð- in var ekki alltaf sem best þegar kappið fór með okkur og við vildum fara hraðar. Ekki má gleyma fjósinu en ég, gamla fjósið og fjóshaugurinn tengd- umst á ógleymanlegan hátt. Þar gerðust tilraunir og of mikil nánd sem ekki þætti fínt í dag. Ég minnist „Helgu ömmu móð- ursystur minnar“ með mikilli hlýju og þakka fyrir að hafa fengið að kynnast henni á þann hátt sem ég gerði. Guð veri með þér. Sóley Sverrisdóttir. Heiðurskonan Helga á Bessa- stöðum er fallin frá. Hún er ef- laust komin við hlið Einars síns eftir nokkra bið. Þegar fjöl- skylda mín fluttist að Söndum voru þau Bessastaðahjón Helga og Einar fyrstu nágrannarnir sem ég man eftir. Þannig var að Helga var á heimleið með Högna son sinn nýfæddan, og á Sönd- um þurfti að skipta um farkost því ekki var þá bílvegur vestur yfir hálsinn. Þetta var í desem- ber og snjór á jörðu. Einar beið hennar með hest og sleða, en á sleðanum var útbúin aðstaða fyrir móður og barn. Fjölskyld- an hélt síðan heimleiðis, en mér 6 ára stelpunni fannst þetta und- arlegur ferðamáti. Þær urðu fljótt góðar vinkon- ur móðir mín og Helga og hélst það meðan báðar lifðu. Það voru og mikil samskipti milli þessara tveggja heimila. Þeir Bessa- staðabændur Einar og Bjarni áttu bát og faðir minn fór nokkr- um sinnum með þeim í róður að veiða í soðið. Það kom fyrir á haustin að mjólkurlaust var á Söndum. Allar kýrnar snemm- bærar. Þá var rölt yfir í Bessa- staði eða farið á gamla Bleik að sækja mjólk eða að Helga sendi einhvern með mjólkurflöskur yf- ir að Söndum. Þegar börnunum fjölgaði á Bessastöðum var þörf fyrir snúningastelpu og ég var svo lánsöm að vera ráðin. Þetta var skemmtilegt þrátt fyrir að ég væri ekki mikið fyrir börn. Helga alltaf kát og skemmtileg og fólkið allt svo notalegt. Þá var mjólkin skilin, þ.e. í skilvindu, en fyrst tekin frá neyslumjólk fyrir heimilið þar á meðal í þrjú drykkjarmál fyrir strákana. Þetta fannst mér alveg fráleitt en Helga sagði að strákarnir vildu hafa rjómaskán ofan á könnunum sínum. Ekki öfundaði ég þá af þessu því ekki vildi ég mjólk með rjómaskán. Ég var um áramót hjá Helgu þegar Nonni og Stína voru tveggja ára. Á gamlárskvöld var svo gengið í kringum jólatréð og sungið af hjartans lyst. Krakk- arnir kunnu mörg lög og vísur. Ekki þurfti sérstakan forsöngv- ara því Jón Ingi tók það að sér óbeðinn. Ég hef aldrei heyrt svona ungt barn syngja svona hátt og snjallt. Heimili þeirra Helgu og Ein- ars var alltaf mannmargt og hún félagslynd og áhugasöm um allt sem gæti auðgað mannlífið. Kvenfélagið okkar og Kvenna- band V-Hún. hafa notið verka hennar um áratugaskeið. Helga og mamma nutu þess báðar að ferðast og gjarnan að komast í veiðiskap. Fyrri hluta sumars fyrir allmörgum árum var ákveðið að skreppa í veiði- ferð fram á Arnarvatnsheiði. Þetta var áður en bílvegur var lagður fram að Arnarvatni og þá farið fram „Kjálka“. Hestar voru tiltækir og allur útbúnaður. Það var fríður flokkur Helga, mamma, og Dóra systir og svo leiðsögumaðurinn Jón Sveins- son, þá búsettur í Hnausakoti. Þessi ferð tók nokkra daga og til baka komu þau endurnærð með hesta klyfjaða silungi og fjalla- grösum. Oft var minnst eftir- minnilegra atvika úr þessu ferðalagi. Er við kveðjum Helgu er margs að minnast en mér er efst í huga þakklæti fyrir vináttu og tryggð við mig og mína fjöl- skyldu. Einnig frá systkinum mínum og fjölskyldum þeirra. Í Guðs friði. Sólrún K. Þorvarðardóttir. „Margs er að minnast – margt er hér að þakka.“ Þessar ljóðlínur sálmaskáldsins eiga sannarlega vel við í dag þegar kvödd er heiðurskonan Helga á Bessastöðum, eins og hún var jafnan nefnd í sinni sveit. Langri og farsælli vegferð er lokið. Helga var merk kona og eft- irminnileg fyrir margra hluta sakir. Henni fylgdi jafnan hlýr og hressandi blær. Hreinlynd og hispurslaus í framgöngu og allir, sem hana þekktu, muna hlátur- inn hennar hvellan og smitandi. Mannblendin og félagslynd gekk hún innan fermingar í ung- mennafélag sveitarinnar og vann þar vel að ýmsum málefnum fé- lagsins með öðru góðu fólki. En æskan leið við leik og störf heima á Barði, þar sem hún ólst upp frá fjögurra ára aldri eftir skilnað foreldranna, hjá móðurömmunni og prest- sekkjunni Sigríði Jónasdóttur. Við tók nám í Kvennaskólanum á Blönduósi og fljótlega upp úr því gifting og búskapur. Brúð- guminn var ráðsettur bóndi í sveitinni, Einar Friðgeir Björns- son á Bessastöðum. Aldursmun- ur á þeim hjónum var að vísu allmikill, eða 18 ár, en það kom aldrei að sök því traust og sam- hent bjuggu þau góðu búi á Bessastöðum og eignuðust 6 börn. Heimilið var jafnan mann- margt. Auk hinnar stóru fjöl- skyldu voru börn og unglingar í sumardvöl og fólk í kaupavinnu á árum áður. Öllum þótti gott að vera á Bessastöðum og margir komu þangað til dvalar ár eftir ár. Hér átti húsfreyjan sinn stóra þátt með sínu hlýja við- móti og glaðværð og var það þeim hjónum báðum eðlislægt. Einnig var alkunn hennar gest- risni og rausn við að metta alla bæði heimafólk og gesti. Þótt búsannir og barnauppeldi tækju eðlilega mestan tíma á búskap- arárunum tók hún virkan þátt í félagsmálum sveitarinnar. Í 40 ár starfaði hún í kvenfélaginu Iðju og var þar oft í forystusveit. Auk þess átti hún sæti bæði í skólanefnd og sóknarnefnd og er þó ekki allt talið í þeim efnum. Það geymist vel í minni okkar eldri karlakórsfélaga er við kom- um saman til æfinga á söngloft- inu á Bessastöðum. Karlakór hafði verið endurvakinn í hér- aðinu, en söngstjóri var Ólöf tengdadóttir Helgu og húsfreyja á Bessastöðum. Allir voru ánægðir eftir vel heppnaða æf- ingu og góðar móttökur, þó held ég að enginn hafi verið glaðari en gamla húsmóðirin, sem hafði bæði verið veitandi og þiggjandi – veitt gestum af sinni alkunnu rausn og einnig verið áheyrandi að söngnum, þar sem helst mátti ekki missa af neinu lagi. Söngur var henni mikill gleðigjafi og lífsfylling og naut hún þess ætíð vel að hlusta á söng þó að ekki tæki hún sjálf þátt í þeirri list. Við leiðarlok er ljúft og skylt að þakka. Ég og mín fjölskylda eigum hér miklar þakkir að gjalda. Ung að árum varð konan mín þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga vist hjá þeim Bessastaða- hjónum. Fyrir þá dvöl var hún ævinlega ákaflega þakklát. Traust og gagnkvæm vinátta og virðing myndaðist, sem entist meðan báðar lifðu. Þessa nutu börn okkar líka í ríkum mæli. Öllum aðstandendum Helgu flyt ég hlýjar samúðarkveðjur. Magnús Guðmundsson. Hún hefur kvatt þetta líf hún Helga mín. Farin á vit ættfeðra sinna. Eflaust södd lífdaga og sátt við sitt framlag til okkar sem enn fáum að njóta þess að lifa lífinu og ylja okkur við minn- ingar. Það fyrsta sem kemur upp í huga mér þegar ég hugsa um Helgu er stórt hjarta og breiður faðmur. Það var mikil gæfa fyrir mig að fá að fara í sveit til hennar Helgu og Einars sumarið 1967, þá sjö ára. Ekki er hægt að tala um eða minnast Helgu öðruvísi en að Einar fylgi með. Samrýndari og meira sam- taka hjón er erfitt að finna. Fal- legur koss í morgunsárið þegar þau hittust eftir að hvort um sig hafði sinnt sínum morgunverk- um. Hann búinn að mjólka kýrn- ar og hún búin að útbúa morg- unmat fyrir hann og þann fjölda fólks sem í kring um þau var. Hlýja og nærgætni þeirra hvors í annars garð var svo góð að helst vildi ég festast í aðstæð- unum. Mikinn lærdóm má draga af samskiptum þeirra hjóna. Helga réð ríkjum innanhúss og fórst henni það einstaklega vel úr hendi. Í minningunni er þetta veisla frá morgni til kvölds. Já, gæði lífsins eru margbrotin. Gæfa mín var að komast í hend- urnar á henni Helgu og fá að njóta þess að vera í sveitinni. Barnbetri manneskju hef ég ekki hitt. Svo yndislega góð og mikil virðing borin fyrir lífinu og þeim sem í kring um hana voru. Rúmið var eins og prinsessurúm með stórri þungri sæng sem um- vafði mig á nóttunni eins og Helga gerði á daginn. Vakna upp við dásamlega kleinuilminn, dansa um allt húsið. Börn eru leiðinleg ef þau fá ekki að sofa var viðkvæði. Við fengum að leika okkur og gera tilraunir með allt og á öllu, leita að svör- um, lesa spennandi bækur, spila á spil, ríða út og gleðjast. Þetta voru slík forréttindi að leitun er að öðru eins fyrir barnssálina. Það er hægt að gleyma sér við að rifja upp þessa dýrðardaga. Hún var alltaf hrókur alls fagnaðar, tók á móti fólki hlæj- andi og veitti vel. Var snillingur í að matbúa og baka. Hún prjón- aði lopapeysur og annað prjónles eins og verksmiðja, féll ekki verk úr hendi. Svona var hún Helga, alltaf að gera eitthvað fyrir aðra og taldi ekki eftir sér. Lífið var eflaust ekki alltaf dans á rósum hjá henni Helgu. En það bar hún ekki á torg. Hún fékk að drekka af bikar sorgar. Erfitt hefur það verið þegar Einar kvaddi þennan heim, þá missti hún í leiðinni hluta af sjálfri sér. Þyngra en tárum taki hefur verið fyrir hana að horfa á eftir frumburði sínum á besta aldri kveðja. En Helga tók þessu með stóískri ró og æðruleysi. Bessastaðir voru í tíð Helgu fé- lagsheimili fyrir ættingja og vini. 25 manns plús var ekkert óalgengt um helgar. Einu sinni man ég að ég taldi 42 næturgesti og þá svaf Einar bóndi á eldhús- borðinu. Já, og velgjörðirnar og gestrisnin var engu lík, allir glaðir. Já, glaðir. Það er mildi að Helga hefur nú fengið hvíld. Farin að hlæja með öllu sínu fólki sem horfið er, eflaust farin að steikja kleinur og prjóna. Hlæjandi sínum dillandi og smit- andi hlátri. Takk fyrir að fá að ganga þennan vegstubb með þér. Hví í friði elskulega vinkona. Guðfinna Guðmundsdóttir. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Marta frænka eða systir eins og hún sagði oft þegar ég kom til hennar á Sólvang; „þetta er Sía systir mín“ en auðvitað var hún föðursystir mín, var aðeins 14 ára þegar hún kom á heimili foreldra minna 1942 ásamt Valgeiri bróður sínum, sem þá var ófermdur, 13 ára, þegar móðir þeirra lést. Sam- heldni systkina föður míns var ein- stök. Við bjuggum á Brú og Brúar- enda við Þormóðsstaði eins og þá var háttað í Reykjavík, nánar við Starhaga og gegnt Lynghaga sam- kvæmt núverandi skipulagi. Þar er ein af mínum fyrstu minningum þegar Marta frænka mín var flutt á sjúkrahús fárveik af lungnabólgu sumarið 1942. Þá var ekkert pens- ilín komið til sögunnar og henni ekki hugað líf, hún spjaraði sig en var lengi að ná sér. Marta var aldr- ei heilsuhraust en fór í gegnum líf- ið með rólegheitum og einstakri nægjusemi, gerði aldrei kröfur sér til handa. Hún lærði kjólasaum og var hún snillingur í höndunum, var falið að pallíettu- og perlusauma selskapskjóla á fínu frúrnar í Reykjavík þeirra tíma. Þegar Marta var tvítug giftist hún Kristni Wium sem var glæsilegur ungur maður. Fyrstu árin hófu þau búskap á Brú, þar fæddist Marta Sveinsdóttir ✝ Marta Sveins-dóttir fæddist í Reykjavík 25. októ- ber 1927. Hún lést á Sólvangi 9. febrúar 2011. Útför Mörtu fór fram frá Hafn- arfjarðarkirkju 15. febrúar 2011. þeim sonurinn Gísli (1947), en eins og margt ungt fólk á þessum tíma flutt- ust þau í lítið hús í Melgerði 2 í Kópa- vogi. Fljótlega hóf- ust þau handa við nýbyggingu á sömu lóð og var það erfitt á þessum árum eins og alltaf. Þar eign- uðust þau dótturina Hildi (1951), síðan soninn Þór (1953) og yngsta soninn Svein (1959). Seinni maður Mörtu var Magnús Sveinjónsson og var hann mikill ágætismaður en hann lést 1991. Marta var heimavinnandi húsmóð- ir í mörg ár og kom börnum sínum á legg. Hún var mér mjög kær enda alltaf að passa mig og vernda eins og allt mitt föðurfólk. Margar góðar minningar leita á hugann elsku Marta mín nú þegar leiðir skilur um sinn. Frúin, það er mamma, stjórnaði okkur vel. Það var tekið slátur saman og bakaðar jólasmákökur sem voru víðfrægar vegna gæða og svo fallegar að enn er verið að tala um þær. Saman vorum við í Sælunni við Álftavatn mörg sumrin með börnin okkar og við berjatínslu á haustin en þá dugði minnst vika í senn. Jólin voru haldin saman heima á Brú öll árin sem mamma lifði. Það er mikil gæfa að eiga góðar minningar frá uppvaxtarárum sínum og þar eiga föðursystkini mín stóran þátt. Vil ég senda elsku Stínu og Önnu systrum Mörtu innilegar samúðar- kveðjur en þær eru tvær eftirlif- andi af níu systkina hópi. Marta mín, ég þakka þér kæra systir fyrir mig og megi Guð taka þig í sinn náðarfaðm. Far þú í friði. Samúðarkveðjur sendi ég til barna Mörtu, barnabarna, tengdabarna og langömmubarna. Sigrún Oddgeirsdóttir (Sía systir). ✝ Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför okkar kæra frænda og vinar, JÓNS FRIÐRIKSSONAR frá Seldal, Norðfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- deildar Fjórðungssjúkrahússins í Neskaup- stað og annarra umönnunaraðila fyrir umhyggju og aðstoð. Seldalsfjölskyldan. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, HRAFNHILDAR GUNNARSDÓTTUR. Örn Jóhannesson, Anna Gréta Hrafnsdóttir, Álfgeir Logi Kristjánsson, Gunnar Haukur Hrafnsson, Lilja Ósk Björnsdóttir, Margrét Arna Arnardóttir, Svavar Guðmundsson, Hildur Ýr Arnardóttir og barnabörn. ✝ HAUKUR KARLSSON, brúasmiður. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts Hauks, sem lést á hjúkrunarheimilinu Mörk, Suðurlandsbraut, 2. desember 2010. Hann var áður til heimilis að Marbakkabraut 9, Kópavogi. Útförin fór fram frá Kópavogskirkju 20. desember 2010. Blessuð sé minning góðs afa, föður, tengdaföður, bróður og vinar. Fyrir hönd fjölskyldu hins látna, Hafdís Hauksdóttir Kjærgaard.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.