Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 15
13
mennafélagið Skallagrímur í Borgarnesi, sem stofnað var
árið 1916, gekk í U. M. S. B. árið 1920.
Frá stofnun sambandsins til ársins 1919 voru íþrótta-
mótin ætíð haldin á Hvítárbakka.
Á íþróttamótinu 1918 var í fyrsta sinni háður kappslátt-
ur í Borgarfirði, og var hann einstaklingskeppni. Halldór
skólastjóri Vilhjálmsson gaf kr. 300,00 til verðlauna, en auk
þess voru vinnendum veittir verðlaunagripir frá U. M. S. B.
sem verðlaun. Keppni í slætti var síðan um nokkurt skeið
haldið uppi, sem einum lið íþrótta á mótinu, en nú er því
aftur hætt, og er vafasamt, hvort það stefnir „fram á
leið“. Til ársins 1919 voru íþróttamótin háð að Hvítár-
bakka og fóru þau alltaf vel fram. Drykkjuskapur og ó-
regla sást þar ekki.
En Hvítárbakki þótti hafa vissa ókosti sem samkomu-
staður. Sundstaður var þar ekki til nema Hvítá, gruggug
og straumhörð, og hættuleg lífi hvers þess sundmanns,
sem eitthvað fataðist. Völlur til að þreyta á kappslátt var
ekki góður, sérstaldega ef þátttakendur voru margir, og
ferjustaður fyrir þá, er vestan yfir komu, var slæmur.
Allt þetta, og þó sérstaldega sundstaðurinn, varð til
þess að farið var að leita fyrir sér um annan stað. 1918
var gerður samningur við eiganda Ferjukots, um að fá þar
samastað fyrir íþróttamótin um næsta 50 ára skeið, og
þangað var mótið flutt árið 1919. Er það við ármót Norð-
urár og Hvítár, og síðan brúin kom á Hvítá, er hægara að
sækja þangað.
Árin 1912—’20 voru vaxtar- og þroskaár U. M. S. B.
Starfsemi hinna einstöku félaga var rekin af áhuga og
kappi og það setti svip sinn á starfsemi sambandsins. Hún
var byggð á traustum félagsmönnum sem af áhuga og ein-
lægni unnu að viðgangi félagsskaparins og málum hans.